Helgarpósturinn - 30.04.1997, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 30.04.1997, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 30. APRlL 1997 - SteingerðurSteinarsdóttir er mikill aödáandi bandaríska rithöfundarins Johnslrving. Hún deilir hértöfrum verka hans með lesendum. Hánor, kynlíf oq betjur John Irving er bandarískur rithöfundur sem á sér tryggan aðdáendahóp íslandi. Þeir sem heillast af stíl hans verða líkt og innvígðir í heim þar sem allt getur gerst. Það besta við John Ir- ving er þó að atburðir og persónur eru svo raun- veruleg að lesandi er sannfærður um að þetta geti hafa gerst og sé enn að gerast. Hann töfrar fram hliðar mannlífsins sem aðrir hafa lítt eða ekki kannað og fjallar um af mikilli hlýju og kímni. í bókum Irvings er fólk bara fólk með öllu því ljóta, fallega, góða, vonda, heimskulega og gáfulega sem því fylgir. Nýjasta bók hans heitir A Son of the Circus. Líkt og venjulega er þessi afurð Irvings uppfull af spaugilegum atvikum og skringilegum karakt- erum. Fyrri bækur hans eru meðal annars The World According to Garp og A Prayer for Owen Meany, en í þeim kafar hann ofan í ofbeldi vest- ræns samfélags án þess að missa nokkurn tíma vonina. Hann bregður upp myndum af miskunn- arleysi mannanna hvers í annars garð og á jafn auðvelt með að koma út tárunum hjá lesendum sínum og að vekja þeim hlátur. Trúin á hið góða í manninum er þrátt fyrir allt leiðarhnoða í öll- um bókum hans og sýnir sig í hinum óvenjulegu hetjum hans. Garp er lágvaxið lausaleiksbarn hjúkrunar- konu sem sefur hjá dauðvona hermanni til þess eins að geta með honum barn. Móðir hans vildi barn en ekki mann svo þessi skytta úr sprengju- flugvél seinna stríðsins var upplögð. Líkami hans er nánast í rúst, heilinn það skemmdur að eina orðið sem hann getur gefið frá sér er garp. Eina líffærið sem enn starfar er það sem sér um viðhald tegundarinnar og það nýtir konan sér. Bókin um Garp hefur verið kvikmynduð og leik- ur Robin Williams Garp snilldarlega og Glenn Close á stórleik sem móðir hans. Owen Meany er óvenju smár verkamannsson- ur sem heillar alla með styrk persónleika síns. Röddin og útlitið eru frekar til þess fallin að vekja aðhlátur en aðdáun. Hann er pínulítill með stór eyru og rödd sem ekki er hægt að lýsa með orðum. Hún er hvell og skræk en hefur auk þess svo einkennilegan tón að þegar hermt er eftir tali hans nær það að greiða sundur þokuna í hugskoti gamallar elliærrar konu þótt hún þekki ekki eigið barnabarn. En Owen er maður með köllun, handbendi guðs á jörð, fullvissa hans sjálfs um framtíðarhlutverk sitt nægir til að setja hann ofar og utan við samferðamennina. Dr. Daruwallah, hetja Sirkussonarins, er smá- Vcixinn, friðsamur læknir sem af ljúfmennsku og lítillæti líknar einstaklingum sem rekur á fjörur hans úr flóði fátæktar og niðurlægingar í neðri lögum indversks samfélags. Umburðarlyndi hans og góðmennska eru aðalsmerki sanngöf- ugrar persónu. Sonur sirkussins er ekki saga sirkusheiminum er dvergurinn Vinod. Þeir kynntust vegna áhuga læknisins og rann- sókna á ættgengi dvergeinkenna. Vinod sá um að koma lækninum í kynni við aðra dverga í sirkusum og telja þá á að leyfa honum að taka þeim blóð. Vinod missti heilsuna og gat ekki lengur gegnt trúðs- starfi svo hann gerðist leigubílstjóri. Lagni dvergsins við vélar gerði honum kleift að útbúa bíl sinn handvirkri bens- íngjöf og kúplingu enda hefðu fætur hans aldrei náð niður á fótstigin. Fjölmargar aðrar spennandi aukaper- sónur koma við sögu í bókinni, svo sem einkar fríðir tvíburar sem ekki vita hvor af öðrum en sameinast í bókar- & ösv » -Vf * „Garp er lágvaxið lausaleiksbarn hjúkrunarkonu sem sefur hjá dauðvona hermanni til þess eins að geta með honum barn. Móðir hans vildi barn en ekki mann svo þessi skytta úr sprengjuflugvél seinna stríðsins var upplögð. Líkami hans er nánast í rúst, heilinn það skemmdur að eina orðið sem hann getur gefið frá sér er garp. Eina líffærið sem enn starfar er það sem sér um viðhald tegundarinnar og það nýtir konan sér...“ a son of the circus r Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa Frá og með 15. apríl 1997 hefst innlausn á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum: 1. flokki 1991 - 21. útdráttur 3. flokki 1991 - 18. útdráttur 1. flokki 1992 - 17. útdráttur 2. flokki 1992 - 16. útdráttur 1. flokki 1993 - 12. útdráttur 3. flokki 1993 - 10. útdráttur 1. flokki 1994- 9. útdráttur mikilla átaka eða stórfenglegra örlaga. Hún er miklu frekar saga skringilegheita og hverdags- legra atburða í lífi aðalpersónanna. Mikilleiki frásagnarinnar felst frekar í umfangi og marg- breytileika þjóðfélagsins sem hún lýsir. Duckworth-klúbburinn hýsir enn meðlimi ind- versku yfirstéttarinnar á grænum snyrtilegum flötum sínum og tekur á móti gestum í mat í matsalnum. Sir Duckworth var aðeins venjuleg- ur breskur lávarður en konú hans er enn minnst með rómantískri eftirsjá, því hún þjáðist af sýniþörf og beraði brjóst sín karl- mönnum hvenær sem færi gafst. Útsýn er úr gluggum þessa verndaða heims til Þagnarturnanna þar sem hrægammar rífa í sundur lík persneskra Zorostria, trúflokks sem flúði til Ind- lands á sjöundu og átt- undu öld undan ofsóknum múslima í heimalandi sínu. Fyrir utan á götum Bombay er betl iðngrein, og bæklun, meðfædd eða áunnin, telst ávísun á ein- hvers konar afkomu. Of- beldi fátæktarinnar rekur þá sem skortir kjark til sjálfslemstrunar eða þá heppnu sem verða fyrir slysi í vændishús. í þessu umhverfi er sirkuslíf góð undankoma. Heimur sir- kusfólksins heillar Dr. Daruwallah og hann hefur komið þangað í læri nokkr- um börnum af götunni. Besti vinur læknisins úr 1. flokki 1995 - 6. útdráttur 1. flokki 1996 - 3. útdráttur 2. flokki 1996 - 3. útdráttur 3. flokki 1996 - 3. útdráttur Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu, mióvikudaginn 15. apríl. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. KK3 HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS |J HÚSBRÉFADEILD • SUOURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SÍMI 569 6900 lok; bandarísk stúlka sem tekur óafvitandi þátt í að smygla eiturlyfjum í risastórum plastlim; kona dvergsins Vinod; yfirþjónn Duckworth- klúbbsins og síðast en ekki síst dularfullur og bráðsnjall fjöldamorðingi. Kynhvötin er eitt sterkasta aflið í manninum til ills eða göðs en Irving kryddar gjarnan alla umfjöllun um kynlíf skemmtilegum húmor. Til marks um það er uppákoman í Veröld Garps þeg- ar Garp hleypur í almenningsgarði fram á tólf ára barn sem hefur verið nauðgað. Hann er sjálf- ur faðir og hálftryllist við þessa sjón og hleypur af stað í leit að glæpamanninum. Sá fyrsti sem hann sér er gamall frakkaklæddur maður að pissa inni í runna. Garp getur ekki eytt tíma í umræður svo hann beygir sig niður að lim þess gamla og lyktar af honum. Lykt af nýafstöðnu kynlífi taldi Garp það sterka að ekki væri hægt að losa sig við hana án þess að þvo sér. Gamli maðurinn reynist saklaus og Garp finnur brota- manninn seinna inni á klósetti í garðinum. Nokkru síðar er Garp að kaupa smokka í apóteki í hverfinu þegar sá gamli gengur þar inn og eys sér yfir öfuguggann... Af sama toga er sagan af bókinni sem frú Daruwallah tekur með sér í sumarfrí. Þetta er er- ótísk saga eftir James Salter sem heitir Tórn- stundagaman og sport. Frúin lætur bókina liggja á glámbekk og óeðlilega oft verður hún á vegi manns hennar þangað til hann tekur hana upp og fer ab lesa. Þetta verður til þess að kynlíf Daruwallah-hjónanna gengur í óvænta endur- nýjun lífdaga og sé þessi bók raunverulega til ætti að vera komin prýðisjólagjöf frá íslenskum eiginkonum til eiginmanna sinna. Síðar í sama fríi rekast hjónin á amerísku stúlkuna með fyllta gervitippið og þá gerast fleiri spaugileg atvik. Annað þema í bókum Irvings tengt kynhvöt- inni er sjálfslemstrun. í Veröld Garps segir hann frá unglingsstúlku sem var nauðgað og skorin úr henni tungan til að koma í veg fyrir að hún segði frá. Glæpamennirnir voru ekki betur gefnir en svo að þeir gerðu ekki ráð fyrir þeim möguleika að barnið kynni að skrifa svo þeir náðust samt. Hópur kvenna, sem margar hafa einnig orðið fórnarlömb nauðgara, tekur sig saman henni til stuðnings og skera úr sér tunguna til að sýna samlíðan. Konurnar eru hreyknar af athæfi sínu og sjálfskapaðri fötlun en Garp hefur mikla skömm á því og fordæmir það. Síðar kemur í ljós að stúlkan sem var innblástur að aðgerðum kvennanna hefur sömu viðhorf og hann til hóps- ins. í Syni sirkussins kynnumst við að nokkru leyti heimi hijrannaáen, það er þriðja kynið ef svo má segja. Þetta eru ungir menn sem skera undan sér og svíða með glóandi teini djúpt ör í sárið sem grær þannig að hola myndast. Þeir selja sig síðan í vændishverfum Bombay og telja sig standa skör ofar gleðikonum og -piltum. Sjálfs- lemstrun er ekki algengt þema í bókum, í það minnsta ekki á þennan hátt, og ekki verður ann- að sagt en að hálfógeðfellt sé að velta fyrir sér þeirri staðreynd að slíkir hlutir eru í raun til. Irving er á hinn bóginn jafnframt mikill tals- maður tilfinningatengsla og í skrifum hans er að finna einstaklega fallegar lýsingar á vináttu og ást. Owen Meany og vinur hans John eiga náið og fallegt vináttusamband og geta ekki hvor án annars verið. Garp býr í góðu hjónabandi sem stendur af sér stór áföll og Dr. Daruwallah hefur með rólegri hlýju sinni og mannkærleika áhrif til góðs á líf allra sem hann snertir. Það er synd að bækur þessa stórkostlega höf- undar skuli ekki enn hafa verið þýddar á ís- lensku og er skorað á góða þýðendur að hugsa til hans. Þeir sem lesa ensku ættu hins vegar að fjölmenna í næstu bókabúð og ná sér í eintak af Syni sirkussins. Vinnins'shafar i vinmngshc uiKKUPorn íapríl AIWA-ferðatæki með geislaspilara unnu: Emilía Lorange, Engihjalla 11 Sveinn Jóhannsson, Miðvangi 32 Samsung-myndavél fengu: Ingihjörg Sófaníasdóttir, Hala 1 Jónas Guðmiindsson, Miðstrœti 1 Elín Þ. Guðlaugsdóttir, Hlíðarhúsum 112 HEICARPÓSTUR/NN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.