Helgarpósturinn - 30.04.1997, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 30.04.1997, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL1997 HELGARPÓSTURINN Útgefandi: Lesmál ehf. Framkvæmdastjóri: Árni Björn Ómarsson Ritstjóri: Páll Vilhjálmsson Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. Svardagar ungsfólks Stjórnmálasamtökin Gróska sækja liðsmenn í A-flokk- ana, Kvennalistann og í raðir óflokksbundinna. Tilgang- ur samtakanna er sameining flokkanna sem stundum kallast félagshyggjuflokkar, gegna líka nafninu vinstri- flokkar en heita núna stjórnarandstaða. Til að leggja áherslu á kröfuna um sameiningu hafa tveir einstakling- ar úr A-flokkunum, Þóra Arnórsdóttir í Alþýðuflokknum og Róbert Marshall í Alþýðubandalaginu, nýverið skrif- að blaðagreinar og sagt að þau ætli ekki að óbreyttu að starfa með þeim flokkum sem þau tilheyra. Róbert og Þóra eru meðal stofnenda Grósku og sjálfsagt mæla þau fyrir munn margra félaga sinna. En orðin eru sögð í ör- uggri fjarlægð frá næstu kosningum og þangað til getur margt gerst. Óþol ungs fólks á vinstri kanti stjórnmálanna fer vax- andi og gæti hrundið af stað áhugaverðri atburðarás. Ýmsir úr forystuliði stjórnarandstöðuflokkanna höfðu af því áhyggjur þegar Gróska var stofnuð í vetur að ung- liðarnir hygðust verða sjálfstætt stjórnmálaafl og jafn- vel bjóða fram sérstakan lista við næstu þingkosningar. Óttinn við sérframboð gæti auðveldað ungu fólki leið að öruggum sætum á framboðslista stjórnarandstöðuflokk- anna. Hins vegar er ekki augljóst hvaða pólitísku tíðindi það kann að boða. Stjórnmálaflokkar voru á sínum tíma stofnaðir til að knýja fram stefnumál sem voru þeim hugleikin og áttu hljómgrunn meðal fólks. Eftir því sem meiri samstaða náðist í þjóðfélaginu um hvert það skyldi stefna var stjórnmálaflokkunum nauðsynlegt að búa sér til sér- stöðu og réttlæta þannig tilveru sína. A-flokkarnir eru í erfiðustu stöðunni vegna sameiginlegs uppruna síns. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur sóttu í önd- verðu styrk til ólíkra hugmynda og þjóðfélagshópa en rætur A-flokkanna liggja í verkalýðshreyfingunni. Verðugt verkefni Grósku er að endurnýja hugmynda- fræði Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. Aðferðafræðin sem virðist hafa orðið ofan á er að sameina flokkana fyrst og leita síðan að sameiginlegri pólitík. í Ijósi sögu sameiningarumræðunnar, sem spannar nokkra áratugi, er afstaðan skiljanleg. Sameining myndi tryggja að hvor- ugur flokkurinn hlypi útundan sér og efndi til ríkis- stjórnarsamstarfs án hins, eins og Alþýðuflokkurinn gerði með Viðeyjarstjórn Davíðs Oddssonar síðasta kjörtímabil og Alþýðubandalagið var albúið að gera undir forystu Ólafs Ragnars Grímssonar eftir þingkosn- ingarnar fyrir tveim árum. Sameining án pólitísks inntaks býður þeirri hættu heim að íitið verði á fyrirtækið sem hugsjónalaust valdabrölt. Hæpið er að draumurinn um þrjátíu pró- senta vinstriflokk rætist á þeim forsendum. Þá gleymist það stundum að fólkinu sem borið hefur uppi starfið í A- flokkunum á liðnum áratugum er í blóð borin andúð á þeim A-flokki sem það tilheyrir ekki. Kannski borgar það sig fyrir unga fólkið að láta ekki sitja við svardagana. Til að fara í gegnum kosningar þarf að búa til pólitík. Helgarpósturinn Borgartúni 27, 105 Reykjavik Sími: 552-2211 Bréfasími: 552-2311 Bein núnier: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2311, fréttaskotið: 552-1900, tæknideild: 552-4777, auglýsingadeild: 552-4888, símboði (augl.) 846-3332, dreifing: 552-4999. Netfang: hp@this.is Áskrift kostar kr. 800 á mánuði efgreitt er með greiðslukorti, en annars kr. 900. SAMKVÆMT LÖQUM NR10 28 MABS1961 »•««» vamrA SEÐLABANKI ÍSLANDS F01361865 Þú í bankasftjórastól! Já, þú í bankastjórastól. Ég veit þú lest þetta blað í hverri viku í þeirri von að sjá mynd af þér á elítusamkomum eða af hræðslu við að blaðið fjalli um vafasama starfshætti þína. Eða annarra. Ég tel því víst að athygli þín sé fönguð. Stöðu þinnar vegna hlýtur þú að fylgjast með umræðunni í þjóðfélaginu og fréttum hvers konar og hefur því efalaust fengið þinn skammt af umræð- unni um launin sem þú þiggur. Ef þú ert jafn vitiborin skepna og staða þín bendir til hefur þú vafalítið gert þér grein fyrir af- stöðu almennings í landinu til málsins. Hvað finnst þér hins vegar sjálfum? Eg ætla ekki að efast um hæfni þína til starfsins, enda þekki ég ekki til þín persónu- lega. Ég ætla einungis að halda því fram að þú vitir vel að sið- leysi er eina rétta orðið yfir at- hæfið sem þú vissulega tekur þátt í. Laun þín fyrir hvern mánuð eru margföld laun pöp- uisins, sem undanfarnar vikur hefur á svo ósvífinn hátt heimtað 70.000 króna lág- markslaun. í vinnutímanum ferð þú gjarnan á fundi í nefnd- um ýmiss konar og þiggur fyrir það heilan helling af peningum sem ég kann ekki einu sinni að nefna. Og ef þú ferð utan til að skoða heiminn — því heimsk- ur er heimakær og það vill eng- inn vera — færðu dagpeninga upp á 25.000 krónur meðan á ferðinni stendur og ferða- kostnað elskulegs maka greiddan. Ég ætla ekki að þykjast hafa allar tölur í þessu máli á hreinu, enda ekki kynnt mér málið nægilega vel til að fjalla um það á fullkominn og mál- efnalegan hátt. En ég hef heyrt það sem ég hef heyrt, það sem pöpullinn talar um. Helvítis pöpuliinn sem heimtar 70.000 króna laun á mánuði. Helvítis pöpullinn sem vill kalla óðaverðbólgu yfir þjóð- ■ Maður hringdi og spurði um það sem hann kallaði „ástar- haturssamband“ HP og Jóns Ólafssonar. ■ Miðaldra maður vakti at- hygli á framgöngu Morgun- blaðsins í umræðunni um líf- E'l Davíð p| Stefánsson ina með kröfum sínum. Helvít- is pöpullinn sem þykist vita betur en réttkjörnir ráðamenn þjóðarinnar. Helvítis pöpullinn sem ekki er langskólagenginn eða þeirrar gæfu aðnjótandi að vera rétt staðsettur í flokka- pólitíkinni til að hljóta banka- stjórastól í sumargjöf. Þessi helvítis pöpull er orð- inn þreyttur á hegðun þinni, kæri bankastjóri. Það er hann sem lendir í að þurfa nauðsyn- lega að ná af þér tali, einmitt þegar þú ert staddur á banka- ráðsfundi eða einhverju slíku. Og það sem miklu verra er, hann lendir í að borga mánað- arlaunin þín, fundarlaunin þín og verðlaunin þín — nefnilega ferðastyrkinn sem þú og konan þín kæmust vitanlega ekki af án. í ofanálag þarf hann svo að kljást við samviskubitið yfir að hafa kallað plágu okkar tíma yfir þjóðina — verðbólguna ógurlegu!! Kannski liggur enn fleira undir þúfum sem ég hef látið óhreyfðar. Ég veit ekki... bílastyrkir, bensínstyrkir, beinastyrkir, hórustyrkir, mútur... er ég á réttri leið með þetta? Hvað veit ég... með mitt ímyndunar- afl?? Ég veit þetta eitt: öllu er hægt að trúa upp á þá sem þiggja Júdasarlaun í stórum stíl. Mér hefur ávallt þótt væn- legast til árangurs að höfða til samvisku fólks, sérstaklega ef ég vænti árangurs af hjali mínu. Enginn VILL vera óheið- arlegur eða illa liðinn, álitinn mergsjúga þjóðfélagið. Af eyrissjóðina. Þegar blaðið fékk ekki hljómgrunn fyrir kröfu sinni um aukið valfrelsi í lífeyr- ismálum hafi það gert hávaða út af skorti á lýðræði í Iífeyris- sjóðakerfinu. þessum sökum reynir fólk gjarnan að hreinsa samvisku sína, í orði eða á borði. Ég ætla þess vegna — í Ijósi þess að ég veit að þú lest þessa grein — að nota gamal- dags aðferð sem var einhvers virði þegar heiður manns eigin var mikilvægari en allt annað: ég ætla að skora á. Ég ætla að skora á þig að hreinsa sam- visku þína, skora á þig að af- neita launum þínum. Þó ekki væri nema þóknunum fyrir fundarsetur og ferðastyrkjum erlendis. Þú getur bætt um betur og gert þetta enn áhrifa- ríkara með því að safna pen- • „Ég ætla því að venda þessu upp á þá sem eiga bankana sjálfa, þá sem eiga virkilegra hagsmuna að gæta: Snúið þessu upp ívið- skipti. Skipið banka- stjórum ykkar að þiggja ekki lengur risnuna, safnið pen- ingunum í sjóð og gef- ið til líknarmála. Aug- lýsið síðan vel og rækilega í öllum hugs- anlegum fjölmiðlum að þið séuð banki með hreina samvisku.11 ■ Þingmaður benti ritstjórn á að fjalla um andrúmsloftið í borgarkerfinu gagnvart Reykja- víkurlistanum. Þingmaðurinn sagði að stuðningurinn við Reykjavíkurlistann hefði verið mikill hjá borgarstarfsmönn- um við síðustu kosningar en ingunum í sjóð og gefa til líkn- armála. Þetta er samt sennilega gjör- samlega tilgangslaust hjá mér. Sóun á pappír. Hverjar eru lík- urnar á að þú rífir þig lausan úr klíkunni og gerist einhver Hrói höttur? Þú yrðir líklega ekkert sérlega vinsæll hjá hin- um í klíkunni, því þeir þyrftu að öllum líkindum að bregðast við á svipaðan hátt. Þér líður líka ágætlega með þetta allt saman, lifir fínu lífi og finnst þú sennilega hafa unnið fyllilega fyrir því. Þú getur líka falið þig á bakvið „allir hinir gera þetta“-múrinn. Nei, þetta er sennilega hrika- lega vonlaust hjá mér. Þú munt aldrei eiga þetta frumkvæði. Ég ætla því að venda þessu upp á þá sem eiga bankana sjálfa, þá sem eiga virkilegra hagsmuna að gæta: Snúið þessu upp í viðskipti. Skipið bankastjórum ykkar að þiggja ekki lengur risnuna, safnið peningunum í sjóð og gefið til líknarmála. Auglýsið síðan vel og rækilega í öllum hugsanleg- um fjölmiðlum að þið séuð banki með hreina samvisku eða eitthvað slíkt (sjálfsagt finnur auglýsingastofan upp á einhverju fallegu orðalagi!). Á móti lofa ég ykkur auknum viðskiptum almennings og rækilega bættri ímynd bank- ans. Þetta er sennilega rétta leið- in nú til dags. Það þýðir ekkert lengur að höfða til samvisku fólks, buddan er miklu væn- legri kostur: Bankastjórar íslands sundr- ist! Sprengið klíkuna upp til agna og takið mark á orðum mínum: AÐ HIKA ER SAMA OG TAPA, því aðeins sá sem fyrst- ur hleypur til og fjarlægir þetta illkynja æxli hlýtur náð fyrir augum almennings; hinir munu allir tapa. núna væri hann hverfandi. ■ Nafn greinarhöfundar féll niður. Höfundur greinarinnar Heræfingasvæði á norðurslðð- um, sem birtist í síðasta tölu- blaði, er Þórunn Magnúsdótt- ir sagnfræðingur. Frá lesendum

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.