Helgarpósturinn - 30.04.1997, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 30.04.1997, Blaðsíða 4
4 IVUÐVIKUDAGUR 30. APRÍL1997 Sókratesáætlunin er eins konar samskiptaáætiun á vegum Evrópusambands- ins og hefur að markmiði að auka samskipti ungs fólks í Evrópu. Síðastliðið > haust fóru sextán ungir ís- lendingar úr Menntaskól- anum á Laugarvatni / heimsókn til Bayern í Þýskalandi á vegum Só- kratesáætlunarinnar. Til- gangurinn var að vinna að verkefni með sextán manna hópi Þjóðverja í sambærilegum þýskum framhaldsskóla. Samanburður á Islandi og Þýskalandi „Það má segja að Sókrat- esáætlunin sé nokkurs konar nemendaskipti á milli Evr- ópulanda, þar sem aðaltil- gangurinn er að auka menn- ingarleg samskipti milli landa Evrópu," segir Þröstur Freyr Gylfason, nemi í ML og einn þeirra sem fóru til Þýskalands. „Við heimsækj- um viðkomandi land og vinnum þar að verkefni sem Sókratesáætlunin setur okk- ur. í okkar tilviki var verk- efnið Lcind-umhverfi-menn- ing og þá að sjálfsögðu um ísland og Þýskaland, þar sem við gerðum samanburð á milli þess- ara landa. í Þýskalandi heimsótt- um við meðal annars orku- ver sem byggist á kola- vinnslu. Þjóðverjum fannst þetta orkuver nokkuð lítið á sinn mælikvarða en það var samt á stærð við fjögur Búr- fell! Síðan heimsóttu þýskir nemar okkur nú fyrir stuttu og skoðuðu sig um hér á landi, til að mynda skoðuðu þeir Þingvelli og Nesjavelli, Þjóðverjunum fannst þetta allt voða merkiiegt og hrein- legt. Þau vinna sitt úr kolum en við byggjum allt á vatni. Eins unnum við að því sam- eiginlega að ljúka við verk- efnið hér heima, það er að segja reyndum að sjá í hverju mupurinn væri fólg- inn hvað varðar þetta þrennt; land, umhverfi og menningu. Eitt af skilyrðunum var að koma niðurstöðum úr verk- efninu í fjölmiðla og það höf- um við gert, meðal annars sett allt inn á Internetið. Verkefnið þykir hafa heppn- ast mjög vel og við höfum fengið mikið hrós fyrir það. Alþjóðaskrifstofa háskóla- stigsins segir verkefnið stór- gott. Eins er verið að kynna verkefnið á alþjóðaskrifstof- um í Evrópu. Þýska sendi- ráðið lofar verkefnið í hás- tert og menntamálaráðherra sendi okkur meira að segja skeyti í tölvupósti til að hrósa okkur sérstaklega fyr- ir vel unnin störf. Þá var sendiherra Evrópusam- bandsins mjög ánægður með verkefnið." Hvað er það sem heppn- aðist svona vel? „Vinnan sjálf. Við unnum hana mjög skipulega. Síðast en ekki síst settum við, að eigin frumkvæði og án nokk- urrar hjálpar, allt saman á Internetið, samtals 43 síð- ur,“ segir Þröstur að lokum. Ef einhver hefur áhuga á að skoða verkefnið og hvernig var að málum staðið hjá nemendum Menntaskól- ans á Laugarvatni er bent á netfangið: http://rvik.ismennt.is/- ml/HCA-ML/hca-ml.htm Tryggvi Htibner hefur verið einn fremsti gítarleikari okkar íslendinga síðustu áratugina. Hann hefur spilað í mörgum þekktum hljómsveitum í gegnum árin og verið mikilhæfur stúdíómaður, en hann hefur spilað inn á á annað hundrað hljómplötur á ferli sínum. Guðbjartur Finnbjörnsson leit inn heima hjá Tryggva og ræddi við hann, í fyrsta lagi um tónlistarferilinn og í öðru lagi um eitt aðaláhugamál hans síðustu ár, hæstaréttarmál númer 214/1978 eða hið svokallaða Geirfinnsmál. „Mál 214“ er tra án sÉoffns Smíðaðir þú þinn fyrsta gítar þegar þú varst ungling- ur eins og Björn Thoroddsen gerði? „Og Brian May, gítarleikari hljómsveitarinnar Queen,“ segir Tryggvi og brosir. „May smíðaði sinn fyrsta gítar úr ar- inhillu af heimili sínu og úr varð þessi einstaki eðalgítar, sem May notar enn. Annars byrjaði ég snemma í tónlist- inni. Vinur pabba gaf mér mel- ódíku þegar ég var þriggja ára. Svo fór ég að æfa fiðlu þegar ég var sex ára og hélt því áfram þar til ég heyrði í Jimi Hendr- ix. Þá skipti ég yfir í rafmagns- gítar. Seinna lærði ég á klass- ískan gítar.“ Þannig að þú ert nokkuð vel menntaður ú gítar? Þögn... „Ja, það finnst sum- um _en mér finnst það ekki allt- af. Ég hef til að mynda aldrei lært djass.“ Tryggvi segist ekki hallast að neinni sérstakri tónlistar- stefnu, enda maður fjölbreytn- innar. „Ég hafði mjög gaman af að vinna með Megasi á síðasta ári, en ég vann plötuna Til hamingju með fallið frá grunni ásamt Megasi. Svo vann ég með Jóhanni Helgasyni á plötunni KEF. Ég hef í raun gaman af allri tónlist sem nær sínum tilgangi.“ Nú lifirðu ú tónlistinni. Var það œtlunin frú byrjun? „Við getum sagt að eftir að ég heyrði í Jimi Hendrix hafi ekki verið annað á kortinu en að spila á gítar, með öllu sem því fylgir. Það var mikil upplif- un þegar ég heyrði ellefu-tólf ára gamall fyrst í Jimi og tón- list hans. Hún var allt önnur en það sem maður hafði heyrt áð- ur. Ég velti því aldrei fyrir mér, eftir að hafa heyrt í honum, hvað ég ætti að gera í framtíð- inni. Foreldrarnir veltu því aft- ur á móti fyrir sér, töldu trú- lega atvinnutónlistarferil ekki nógu öruggan starfsvettvang, þannig að ég datt inn í Iðnskól- ann hálfan vetur,“ segir Tryggvi og hlær. „Ég reyndi en fann mig ekki þar, ja, eigum við ekki að segja að ég þættist reyna.“ Ég óska Sævari betri ferð- ar Árið 1995 gaf Tryggvi út sína fyrstu og einu sólóplötu hing- að til, en hann segist ekki eiga auðvelt með að semja lög. „Ég þarf að hafa svolítið fyrir því. Lögin velta ekki upp úr mér eins og sumum,“ segir hann. „Ég hef lært þónokkuð í tónlist en það hefur ekki hjálpað mér hingað til að semja tónlist. Mér finnst stundum að þeir sem kunna jafnvel minnst semji bestu músíkina. Ekki skemmdi það fyrir Bítlunum að kunna lít- ið af nótum. Ein ástæðan fyrir því að ég ákvað að gera sólóplötu var að ég vildi finna flöt á því að tjá mig um þessi stóru mál, sem eru mál Sævars Ciecielski. Ég hef alveg frá byrjun haft mikinn áhuga á þessu svo- kallaða Geir- f i n n s m á 1 i. Þetta er gríð- arlega athygl- isvert mál fyr- ir margra hluta sakir, þannig að ég gerði þessa plötu, sem er öll mjög mjúk og róandi. Hún heitir Betri ferð, en betri ferð er tilvitnun í að þegar Sævar var dæmdur í Hæstarétti fékk hann leyfi til að ávarpa dómar- ana. Ræðu sína endaði hann á tilvitnun í varnarræðu Sókrat- esar. Það er lokasetningin í varnarræðunni. Menn geta bara flett því upp. En þar talar hann um betri ferð. Sævar var dæmdur í sautján ára fangelsi í Hæstarétti árið 1980, en 21. febrúar síðastliðinn voru þessi sautján ár liðin. Ég er að óska Sævari betri ferðar með plöt- unni.“ Játningarnar geta ekki staðist Afhverju þessi mikli úhugi ú Geirfinnsmúlinu? „Ég fékk áhuga á þessu máli alveg í byrjun, þegar maður heyrði fyrst lýst eftir Geirfinni Einarssyni í fjölmiðlum 21. nóvember 1974. Tilkynningin í útvarpinu var svo dularfull að maður gat ekki annað en feng- ið áhuga á málinu, enda fékk öll þjóðin strax áhuga. Málið átti síðan eftir að þróast í mikla „aksjón“ á næstu sex ár- um, þangað til búið var að dæma í því í Hæstarétti. Allan tímann hafði þjóðin meira og minna áhuga á þessu. Eineu" Bollason sat saklaus inni eins og margir aðrir. Hann er kvæntur frænku minni. Erlu Bolladóttur, systur hans, þekkti ég síðan í gamla daga og mér fannst það alltaf skrýtið að hún ætti að vera einhvers konar prímus mótor í þessu gengi. Arið 1980 hitti ég Erlu og fór að reyna að spyrja hana út í þetta, en hún vildi ekki ræða þessi mál við mig. Hún sýndi mér hins vegar málsskjölin sem hún átti; 27 hefti eða um 10 þúsund síður. Þetta þróað- ist síðan þannig að á meðan hún afplánaði sinn dóm geymdi ég öll þessi skjöl fyrir hana og ég fór að lesa. Ég var ekki búinn að lesa mikið þegar mig rak í rogastans. Algengast við rannsókn sakamála er að aðstæður á vettvangi brotsins leiði rannsóknarmenn á sporið og það ferli endi jafnvel með með sönnun og játningu. í þessu tilfelli er allt ferlið í hina áttina •— frá sakborningunum og að „sönnunargögnunum", sem hvergi hafa fundist. Fyrstu og reyndar einu vísbending- arnar í málinu eru játningarn- ar. Engin raunhæf gögn styðja þessar játningar. Sé tekið mið af kringumstæðum sakborn- inganna hljóta þessar játning- ar að teljast ótraustur grunnur að sakfellingu, enda eru marg- ar skrásettar og blákaldar staðreyndir sem útiloka að þessar játningar geti staðist. Hvernig er til dæmis hægt að grafa lík í Rauðhólum án dýn- amíts og stórvirkra vinnuvéla þegar allt er þar gaddfreðið? Eða flytja lík út í Hafnarfjarðar- hraun á 17 ára gamalli Volks- wagenpúddu þegar allt var kol- ófært vegna snjókomu og jafn- vel leigubílar hættir akstri inn- anbæjar? Um þetta er sam- ræmdur framburður. En er þetta trúlegt? Ég furðaði mig æ meira á þessu eftir því sem ég las meira. Síðan hef ég grams- að og gramsað og í raun má segja að það að skoða þetta mál hafi verið mitt hobbý síð- ustu ár. Þetta hefur mörgum þótt í meira lagi undarlegt tómstundagrúsk en það verð- ur bara að hafa það. Nú hef ég sett ýmsan fróðleik um Geir- finnsmálið á Internetið, þar sem almenningur getur rifjað upp hvað það var sem gerðist á þessum árum. í frétt frá Morg- unblaðinu segir að á síðunni sé hægt að sjá „allt“ um Geirfinns- málið, en allt um Geirfinnsmál- ið er ekki.til, að minnsta kosti ekki ennþá." Eru ekki öll kurl komin til grafar? „Nei, langt í frá. Það eru eng- in kurl komin til grafar." Hefurðu þú trú ú að „allt“ um Geirfinnsmúlið eigi eftir að líta dagsins Ijós? „Ég get auðvitað vonað það eins og aðrir, en í dag finnst mér það ekki vera markmiðið eða innan seilingar. Það sem er innan seilingar er að sýnt verði fram á að fjöldi manna var dæmdur saklaus. Ég reyndi mikið að ræða þetta mál hér áður fyrr. Það varð bara til þess að mér var hent út úr partíum. Ég var ef til vill ekki sá diplómatískasti í þessum málum. Fólk segir gjarnan að þetta sé flókið og það nenni ekki að ræða þetta. Ef maður nefnir einhverjar blákaldar staðreyndir í málinu kemur alltaf svarið: „Það er svo margt annað í málinu." Ég heyrði minnst á þetta í Þjóðarsálinni þegar Sævar var að reyna að fá málið tekið upp. Gömul kona hringir þangað og segir að þetta sé alveg hræðilegt. Fyrsta setningin sem stjórn- andinn segir við konuna var: „Þetta er nú svo flókið að við getum ekki farið að ræða þetta hér.“ Staðreyndin er sú að þótt málsskjölin séu yfir tíu þúsund og málið vissulega flókið, þá getum við líkt þessu við ljós- mynd af tré þar sem greinarn- ar eru vel í fókus en stofninn týndur. Geirfinnsmálið er „leyst“ eingöngu í smáatriðun- um. Stóru atriðin eru enn óleyst." Tryggvi segir að þrátt fyrir upplýsingarnar á Internetinu og sjónvarpsþáttinn sem á að að sýna um Geirfinnsmálið (viðtalið var tekið fyrir helgi þannig að Tryggvi er ekki bú- inn að sjá þáttinn), þá sé það sem muni hafa mest vægi í öllu þessu máli þegar fram líða stundir greinargerð Ragnars Aðalsteinssonar hæstaréttar- lögmanns, sem fór með málið fyrir Sævar. „Hvernig sem mál- in þróast og fara í meðhöndlun Hæstaréttar og Ragnars Hall, sem er skipaður saksóknari í málinu, mun þessi greinargerð Ragnars tala sínu máli um ókomna tíð.“ Þeim sem vilja skoða hæsta- réttarmál númer 214/1978 er bent á Internetið. Netfangið er www.this.is/mal 214 lUeðanmáls Dagur verkalýðsins er á morgun og því tilhlýðilegt að hafa verkalýðsleiðtoga hér \ dálkinum. Hvernig líst þér á hag verkalýðsins þennan 1. maí Grétar? „Mér líst nú alveg sæmilega á-hann," segir Grétar Þorsteinsson, for- seti ASÍ. „Ég er á þeirri skoðun að þeir samningar sem við höfum gert að undanförnu séu í flestu tilliti ágæt- lega ásættanlegir. Hins vegar er verðlagsþróunin áhyggjuefni, að hún fari úr böndunum. Ef tekst að halda þeirri þróun í skikki lít ég sæmilega björtum augum á hlutskipti verkafólks í dag." Hvaöa listamaöur hefur haft mest áhrif á þig? Þeir sem koma fyrst upp í hugann eru rithöfundarnir Halldór Kiljan Laxness og Þórbergur Þóröarson. Hvaöa stjórnmálamaður lifandi eöa látinn er í mestu uppáhaldi hjá þér? Einar Olgeirsson og Hannibal Valdimarsson. Hvaöa skáldsagnapersónu vildirðu helst líkjast? Mér þykir alltaf óskaplega vænt um Sveijk, en ég held aö ég kysi nú ekki aö líkjast honum samt. Hvaöa persóna mannkynssögunnar vildiröu helst hafa veriö? Þarna rekuröu mig algerlega á gat. (Þögn.) Ég hef alltaf dáöst aö því sem Ghandi fékk áorkað. Ef þú fengir að lifa lífinu aftur myndirðu þá breyta einhverju? í fljótu bragöi ekki. Ég sé enga ástæöu til annars en aö vera sæmilega sáttur viö lífið eins og þaö hefur verið. Hver er merkilegasti atburður sem þú hefur upplifaö? Þaö persónulegasta var þegar börnin mín fæddust. Síöan er mér í barns- minni Heklugosiö áriö 1947, sem voru miklar hamfarir. Hver er merkilegasti atburöurinn sem þú ætlar aö upplifa? Ég heföi viljað sjá betur samstillta verkalýöshreyfingu í framtíðinni og þar af leiðandi líklegri til aö ná árangri. Hvaöa atburður, verk eða manneskja hefur mótað lífsviöhorf þitt framar ööru? Þaö er erfitt aö draga eitthvaö sérstakt fram þar. Þaö er fjölmargt sem mót- ar mann og hefur áhrif. Ef þú ættir kost á aö breyta einu atriði í þjóðfélaginu eöa umhverfinu, hvaö yröi fyrir valinu? Það er væntanlega fyrst og síöast aö tryggia langtum betur en viö gerum í dag hlut þeirra sem eiga undir högg aö sækja í samfélaginu. Sérðu eitthvaö sem ógnar samfélaginu ööru fremur? Já, mér finnst þau viðhorf vaxandi í samfélaginu aö hver og einn eigi aö sjá um sig og komi hlutskipti náungans lítiö sem ekkert viö. Þaö er mikið áhyggjuefni. Einkunnarorð? Ég vil sjá hlutskipti launafólks betur tryggt, ekki síst í velferöarkerfinu. I \ > > > > > > > > > > > > > > > > \ > > \ >

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.