Þjóðmál - 01.12.2013, Blaðsíða 5
4 Þjóðmál VETUR 2013
Óskar Jóhannsson
Bráðum koma blessuð jólin
Kafli úr bókinni Bernskudagar
Bráðum koma blessuð jólin,
börnin fara að hlakka til.
Allir fá þá eitthvað fallegt,
í það minnsta kerti og spil.
Þegar jólin nálgast heyrist úr ýmsum áttum þessi alkunni og gleðiríki söngur
sem allir kunna .
Við vissum að þau yrðu daufleg, fyrstu
jólin eftir að pabbi dó . Mamma hafði saum-
að einhvern fatnað á okkur upp úr gömlu,
svo að við færum ekki í jólaköttinn og hún
sagði að við fengjum annaðhvort kerti eða
spil í jólagjöf . Hún ætlaði að kaupa tvo pakka
af marglitu, snúnu Hreins-barnakertunum
og tvo pakka af barnaspilum . Hvort okkar
fengi því hálfan pakka af kertum eða pakka
af spilum . Við gætum skipt því á milli
okkar eða átt það öll saman . Barnaspilin
voru íslensk, helmingi minni en venjuleg
spil, prentuð á mjög lélegan pappa .
Það var mikið áfall að komast að því að
það sem var til á prenti, og meira að segja
sungið, var samt ekki satt, en í vísunni segir:
„Allir fá þá eitthvað fallegt, í það minnsta
kerti OG spil“!
En við vissum að við yrðum að sætta
okkur við þetta og það gerðum við . Við
nutum kertanna og spilanna öll saman
og áttum þau saman . Aðallega var spiluð
Langa vitleysa, sem var kölluð Áflog, og
Rakki — og þá gátu allir verið með .
Nú erum við aðeins þrjú á lífi af fyrri
systkinahópnum og enn rifjast þetta upp
fyrir hver jól þegar þessi söngur hljómar
víða . Og þótt Líndal [bróðir Óskars] muni
ekki eftir þessum jólum var svo oft talað
um kertin og spilin að það fór ekki fram
hjá honum .
Þessi fyrstu jól eftir að pabbi dó urðu
ógleym anleg, ekki síst vegna þess að Bjarni
Eiríksson kaupmaður og Halldóra Bene-
diktsdóttir kona hans buðu mömmu með
allan hópinn heim til sín á annan jóladag .
Þá bjuggu þau og versluðu í húsi utar í
þorpinu, sem varð seinna læknisbústaður
og apótek . Þótt ég hafi aðeins verið fjögurra
ára gleymi ég ekki jólunum hjá þessu góða
fólki sem bætti sjö manna fjölskyldu við
jólaborðið hjá sér . Á jólatrénu héngu körfur
úr mislitum glanspappír með sælgæti sem
við fengum öll með okkur heim . Alls
vorum við ellefu börnin, því að Bjarni og
Halldóra áttu fimm stráka sem alla tíð hafa
verið góðir vinir okkar .