Þjóðmál - 01.12.2013, Blaðsíða 31
30 Þjóðmál VETUR 2013
í Eyri á Álftanesi . Brúin lægi yfir 137m
dýpi yfir ál, sem liggur að stórum hluta
yfir siglingaleið frá Kerlingarskeri F-I-G-
3s til hafnar í Kópavogi . Af brúnni yfir að
Eyri lægi vegurinn að línu yfir stafina „st“
í Bessastaðanes og beygði síðan yfir stafinn
„e“ í Eskines og á Bessastaðaveginum og að
vegamótum við Engidal .
Þessi nýja aðalbraut myndi leysa mikil
vandamál vegna um ferðar til flughafnar-
innar sunn an við Skildinganes á uppfyllingu
og frá Seltjarnarnesi í vesturbæ og miðbæ
Í byrjun þarf að semja við Kópavogsbæ um að skipta Fossvogi sunnan gömlu flugbrautar norður-suður með jafnvægisreglu að dýpislínu 45m í Fossvogi að Hólmur F-I-R-5s á
milli tveggja fjögurra metra toppa í vestur yfir Hólmur á kortinu . Nú ætti að mæla á kortinu
einn sentimetra áframhald á þessari línu til vesturs frá 4m neðan línu og setja þar punkt
í kortið . Undir stafnum „E“ í Eyri á Álftanesi þarf að setja annan punkt, draga síðan línu
frá Eyri yfir fyrri punktinn að þverlínu milli 35 og 26 dýpistalna . Frá þessum punkti væri
dregin lína til suðausturs að dýpislínu 42m að framlengingu á gömlu braut norður-suður í
Fossvogi . Hérna kæmi fylling undir grjótvörn og veg, sem lægi á brú yfir að Eyri á Álftanesi,
þar sem dýpi er 137m í djúpálnum, sem liggur að Kópavogi .
Þá er dregin lína frá fyrsta punkti milli dýpis 4m og 4m í norðvestur að þverlínu milli 26m
og 0,8m að 26m dýpi og settur punktur undir 26m . Héðan er dregin lína undir 0,4m og
44m að 78m dýpi . Hér kemur punktur . Þessi lína mundi vera í beina stefnu á Kerlingarsker
F-I-G-3s . Frá punkti 78m lægi lína í norð-austur að 66m . Hérna kemur punktur, sem lína
er dregin í suð-vestur á milli 47m og 35m . Hér kemur punktur við 35m . Héðan er dregin
lína norð-austur á Nes Aero Rc . Innan þessara lína er ýtrasta stækkun til vestur fyrir flugvöll
og flugbrautir á Lönguskerjum . Meira svæði er til uppfyllingar fyrir stækkun vesturbæjar
Reykja víkur til framtíðarnota .
Aðalflugbrautin austur-vestur lægi á línu hugsaðri frá dýpispunkti 3m við enda gömlu
suður-norður-brautar undir OR Lambastaðir og að Jörundarboða sem stefnuvita . Ef litið
er frá 3m byrjar brautin við 43m og endar við 41m .
Suðaustur-braut á Lönguskerjum norðvestur byrjar á þverlínu 0,7m–22m við syðsta enda
Lönguskerja, yfir stafinn ö, og endar á 72m — og línan endar á Kerlingarskeri sem stefnuviti,
F-I-G-3s . Norður-suður-brautin hefst við 63m milli 56m–58m og stefnir á punkt nr . 2 út
frá fjörunni við skólpleiðsluna neðan Hofsvallagötu og endar þar en línan stefnir á syðsta
enda Eiðisskers, sem stefnuvita .
Semja þyrfti við Álftanes, Kópavog og Seltjarnarnes um legu landamæra Reykjavíkur til
suð-vesturs . Við lengingu suður-norður-brautar að miðju Fossvogs liggur varnargarður gegn
sjávargangi að Hólmur F-I-R-5s og að 4m dýptarlínu og endar við 53m dýpt .
(Þar sem flugbrautirnar eru dregnar með einu striki á kortið þarf að draga báðum megin við
strikið með tveggja millimetra bili á kortinu, til þess að gera brautirnar sýnilegri . Sömuleiðis
að draga línu innan við útlínur þessarar miklu uppfyllingar í Skerjafirði .)
KORT af flugbrautunum úti á Lönguskerjum og flughöfn og
flugvélastæði í skjóli við Skildinganesið sunnanvert . . .