Tíminn - 30.01.1964, Qupperneq 3
FRIÐRIK ÓLAFSSON SKRIFAR UM SKAKMÓTIÐ
Stórmeistarinn og heims-
meistarinn léku sig í mát
10. UMFERÐ.
Freysteinn-Tal 0:1. '
Friðrik-Wade 0:1.
Nona-Guðmundur 0:1.
Johannessen-Gligoric V-iVk.
Ingi-Magnús Vz'.Ví.
Ingvar-Jón biðsk.
Trausti-Arinbjörn biðsk.
Friðrik hlaut heldur slasman
skell að þessu sinni og minnk-
uðu nú stórlega möguleikar
hans til efstu sætanna. Tal átti
ekki í miklum erfiðleikum með
andstæðing sinn, en Gligoric
mátti teljast sleppa vel með
jafntefli gegn Johannessen.
Friðrik-Wade. — Sikileyjar-
vcrn. Fljótlega varð ljóst, að
skákin mundi ekki verða með
neinum friðsemdarblæ, því að
hvítur hrókeraði á lengri veg-
inn, en svartur á þann styttri.
Wade lagði snemma til atlögu
á miðborðinu og bauð upp á
skiptamun skv. ráðum ,,teórí-
unnar", en andstæðingurinn af-
þakkaði hið góða boð. Hefði
hann tekið skiptamuninn, er
hætt við, að Wade hefði tekizt
að byggja upp mjög öfluga
kóngssókn. í staðinn kaus Frið
rik að koma liðskipan sinni í
viðunanlegt horf og gerðist nú
miðborðið vettvangur allmik-
illa átaka. Þegar komið var
fracn í 18. leik hafði nokkuð
rofað til og hafði Wade þá tölu
verð færi, en hvíta staðan var
traust og engir veikleikar sjá-
anlegir. Þá gerðist það, að Frið
rik lagði út i ævintýralega sókn
á miðborðinu, en yfirsást um
leið snjall leikur frá hendi
Wade. Þessi leikur gerði út um
ailar sóknartilraunir hvíts og
kom honum jafnframt í mikla
klípu. Friðr. eyddi miklum tíma
i að finna réttan svarleik og sá
sig að lokum tilneyddan til að
leggja út í allmikla tvísýnu.
í glæfralegri stöðu og mikilli
timaþröng sást honum yfir
nokkrar jafnteflisleiðir og lék
sig að lokum í mát.
Freysteinn-Tal. — Kóngs-ind
verskt tafl. Skákin fylgdi lengi
framan af troðnum slóðum, en
í 9 leik bryddaði Tal npp á enn
einni nýjung og fórnaði peði
öllum að óvörum. Freysteinn
þáði peðið, átti sýnilega ekki
annars úrkosti, en við það
fékk Tal allsterka aðstöðu á
miðborðinu, sem greinilega var
peðsins virði. í framhaldinu
gerðust svörtu mennirnir sí-
fellt ágengari við hvítu kóngs-
stöðuna og það varð æ erfið-
ara fyrir Freystein að finna
góða varnarleiki. Þar kom að
staða hans þoldi ekki álagið og
eftir vel útfærða sókn frá hendi
Tals hlaut Freysteinn að gefast
upp. — ,,Typisk” Tal-skák.
Nona-Guðmundur. Sikileyjar-
taf! Nona náði fljótlega að
byggja upp frjálsa stöðu, væn-
lega til kóngssóknar, en Guð-
mundur varðist af mikilli
seiglu og tókst ávallt að sporna
við á réttu augnabliki. Nona
fórnaði peði i þágu sóknarinn-
ar, en hafði lítið upp úr krafs-
inu og varð að lokum að fara
út í endatafl, þar sem mislit-
ii biskupar gáfu henni nokkra
von um jafntefli. Guðmundur
tefldi áframhaldið mjög vel og
hallaði sífellt undan fæti fyr-
ir Nonu, sumpart vegna þess,
að hún var líka komin í mikla
tímaþröng. Undir lokin reyndi
hún að létta á stöðu sinni með
mannakaupum, en yfirsást, að
uppskiptin leiddu beint til
máts.
Johannessen-Gligoric. Byrjun
in var ákaflega óregluleg, eig-
inlega ekki hægt að nefna hana
neinu nafni: 1. d4, Rf6. 2. g3,
c5 3. d5, b5. 4. Bg2, d6. 5. a4,
b4. — Johannessen náði fljót-
lega að byggja upp öfluga mið-
borðsstöðu og virtist Gligoric
mjög aðþrengdur, er út úr byrj
uninni var komið. Staða hans
var þó mjög traust, en fyrirsjá
anlegt var, að hann yrði að
grípa til einhverra mótaðgerða
til að geta spornað við væntan-
legri stórsókn hvíts. Eftir smá-
vegis ónákvæmni frá hendi Jo-
hannessen bauðst honum slíkt
tækifæri og jafnaðist þá stað-
an. Scmdu keppendur um jafn-
tefli.
Ingi-Magnús. — Drottningar-
bragð. Skákin var varla slopp-
in út úr byrjuninni, þegar kepp
endur sömdu jafntefli. Stóð þá
Ingi eitthvað betur að vígi,-en
Magnús hafði ýmis gagnfæri,
sem taka varð fullt tillit til.
Ingvar-Jón. — Sikileyjartafl.
Ingvar tefldi byrjunina rólega
cg tókst Jóni að jafna taflið án
mikilla erfiðleika. Lengi stóð
skákin i þófi, en þar kom að
að Ingvar tók af skarið og hóf
sókn á kóngsvæng. Sókn þessi
reyndist hættulegri en ætla
mátti í fyrstu og rataði Jón
brátt í krappa vörn. í 35. leik
fórnaði Ingvar manni til að
sundra svörtu kóngsstöðunni
os hefði leikflétta þessi að
réttu lagi átt að leiða til vinn-
ings. Hann fór hins vegar ein-
um of „fínt“ í áframhaldið og
gaf Jóni kost á varnarleik, sem
algjörlega snéri taflinu við. í
biðstöðunni er skákin töpuð
fyrir Ingvar.
Trausti-Arinbjörn. — Kóngs-
indverskt tafl. Byrjunin þræddi
lengi vel farveg hinnar hefð-
bundnu „teóríu“ en Trausta
varð fljótlega á ónákvæmni, er
leiddi til betri stöðu fyrir Ar-
inbjörn. Ekki voru yfirburðirn-
ir þó stórvægilegir og tókst Ar-
inbirni ekki að ná neinum tök-
um á andstæðingi sínum. Eftir
mikil mannakaup í miðtaflinu
kom að lokum upp endatafl,
þar sem Arinbjörn stendur ör-
lítið betur að vígi vegna bisk-
upapars síns, en vafasamt er,
■ að það nægi til að vinna skák-
ina
Röðin í mótinu eftir 10. um-
ferð er þessi: 1. Tal 9y2 v. 2.
Gligoric 8Vi v. 3. Friðrik 7]/2
v. 4. Johannessen 6 v. og 1 bið-
skáV, 5. Ingi 5Vz og 1 biðskák.
6.-7. Guðmundur og Wade 5
v 8. Nona 4 vinninga 9. Magn-
ús 3V2 v. 10- Ingvar 3 v. og 1
biðskák. 11. Freysteinn 3 vinn.
12—13. Arinbjörn og Trausti |
21/? v. 02 1 biðskák. 14. Jón
1% v. og 1 biðskák.
í kvöld verður tefld 12. um-
ferð og tefla þá þessir saman:
Friðrik-Tal, Nona-Trausti, Ingv-
ar-Guðmundur, Johannessen-
Wade, Ingi-Jón, Magnús-Gligor-
ic, Trausti-Freysteinn.
Frá Alþingi
Framhald af 6. síðu.
Á árum seinna stríðsins mun
hafa verið einu sinni eða tvisvar
heimilað að fresta slíkum fram-
kvæmdum að Vi eða svo, ef nauð-
syn krefði vegna ástæðna af völd-
urn heimsstyrjaldarinnar.
Nú metur hæstv. ríkisstjórn
ástandið hjá sér þannig að útlit
sé fyrir að fresta geti þurft öllum
verklegum framk,væmdum á þessu
ári. Svo gífurlegt er hennar stríð
og eftir fjögur ár.
Fyrr má nú rota en dauðrota.
Ég tel fráleitt að Alþingi veiti
þessa heimild.
Verði þörf að fresta framkvæmd
um, á Alþingi sjálft að taka um
það ákvörðun. Það á alls ekki að
afsala um þet.ta valdi sínu til
stjórnarinnar.
En þrátt fyrir það, þótt ég sé
varla eins svartsýnn og ríkisstjórn
in er eftir 6. gr. þessa frumvarps!
að dæma, þá er ég sammála því,:
sem hæstv. forsætisráðherra sagði
í háttv. neðri deild, þegar hann
mælti fyrir frumvarpi þessu: Hann
sagði:
„Haldgóð úrræði fást ekki, nema
um þau náist víðtækt samkomu-
lag“.
Þetta eru hans orð.
Þetta er mjög skynsamlega
mælt.
Því miður hefur hæstv. ríkis-
stjórn ekki ástundað það á valda-
tíma sinum að ná víðtæku sam-
starfi.
Ef hún hefði gert það, mundi
betur hafa til tekizt.
Þegar hún 1960 var að fara af
stað með efnahagsmálabrölt sitt,
fluttum við Framsóknarmenn til-
lögu um að skipuð yrði 8 manna
nefnd — tveir frá hverjum þing-
flokki — til að leita víðtæks sam
komulags um efnahagsaðgerðir.
Hinir sjálfumglöðu menn á
morgni stjórnarstarfsins felldu þá
tillögu hiklaust.
Þeir töldu sinn nauma meiri-
SIMCA 1000 - '63
sem nýr bíll, til sölu. Ekinn tæplega 8 þús. km.
Aðal-Bílasalan
Ingólfsstræti 11 — Sími 15014 og 19181
J hluta víst nógu víðtækan.
Við Framsóknarmenn flytjum
enn við umræður þessa neyðarúr-
ræðis-frumvarps hæstv. ríkisstjórn
ar sams konar tillögu.
Við ‘teljum okkur það skylt —
ekki hæstv. ríkisstjórnar vegna —
heldur þjóðarinnar vegna, því að
við þykjumst þess fullvissir, að það
sé rétt, sem hæstv. forsætisráð-
herra sagði:
„Haldgóð úrræði fást ekki nema
um þau náist víðtækt samstarf”
Nú eru háttv. stjórnarflokkarnir
reynslunni ríkari en þeir voru
1960.
Nú er ekki bjart, heldur myrkt
fyrir sjónum þeirra, eins og frum
varpið ber með sér.
Meirihluti þeirra er ekki síður
naumur en 1960, — og fenginn
í kosningunum síðastl. sumar út á
rangar skýrslur um efnahags-
ástandið.
Nú ættu þeir að samþykkja til-
lögu okkar um hið víðtæka sam-
starf við að leita úrræða á efna-
hagsmáiavandanum.
Stjórnarflokkamir í neðri deild
felldu tillöguna að vísu í gær.
En til þess er Alþingi í tveim
deildum að málin séu gerr metin-'.
ÞVOTTAHUS
Vesturbæjar
Ægisgötu 10 • Sími 15122 Atiglýsið í íímanum
SKIPAtiTGCRB RÍKISINS
Ms. Herðubreið
fer austur um land í hringferð
3. febrúar. Vörumóttaka í dag
til Hornafjarðar, Djúpavogs,
Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarðar,
Borgarfjarðar, Vopnafjarðar,
Bakkafjarðar, Þórshafnar og
Kópaskers.
W I L IVI O
G0g6t0
ARNI GE6TS6QN
Vatnsstíg 3 — Sími 11555.
skáladreifarar
Enginn dreifari dreifir eins jafnt og vel sem skála-
dreifari og enginn skáladreifari er betri en
WILMO. Dreifarar þessir fást í ýmsum stærSum,
6, 7, 10 og 14 skála.
Verð frá ca. kr. 14.000.00
Sendið pantanir sem fyrst
TÍMANN
vantar fultorðinn mann eða barn til að bara blaðið
út í ESKIHLÍÐ
Upplýsingar í skrifstofunni, Bankastræti 7.
Sími 12323
TÍMINN, fimmtudaginn 30. ianúar 1964 —