Tíminn - 30.01.1964, Side 8
í fullan áratug hafa byggingaframkvæmdir Landspítalans þokazt fram. Fyrsta álman hefur verið tekin í notkun. Annar hluti
verður tekinn í notkun á þessu ári. Enn vantar mikiS á, að hinir hlutar bygginganna komist i not. Spítalalóðin hefur ekki ver-
ið fullnýtt. Byggingamái Landspítalans er mál þjéSarinnar. Mörgum leikur hugur á að vita, hvernig þaé hefur fariö úr
hendi, sem þegar hefur verið gert við Landspítalann, og hvernig tekið verður á því, sem er ógert. Blaðið hefur leitazt við
að fá svör víð þsssu með viðtölum við iækna um byggingarnar, gildi þeirra og nýjungar í iæknavísindum.
SPGURÐUR SIGURÐSSON
Landfæknir, dr. Sigurður
Sigurðsson
— Hvenær raá gera ráð fyrir,
að fastákveðnum byggingarfram-
kvæmdum á Landspítalalóðinni
verði lokið?
— Þessu er ekki hægt að svara
ákveðið. Framkvæmdir á Landspít
alalóðinni munu standa yfir næstu
ár, jafnvel áratugi. Þar eru mikl-
ar byggingar í smíðum og aðrar,
sem ákveðið hefur verið að reisa.
Þar næst eru fyrirhugaðar bygg-
ingar, sem ekki verður byrjað á
fyrr en þeim er lokið, sem eru í
smíðum eða hafa verið ákveðnar.
Þetta eru mikil framkvæmdaátök
og því örðugt að setja þeim ákveð
in tímamörk, auk þess sem óvíst
er um framlög til bygginganna á
hverju ári og skortur á vinnuafli
getur hvenær sem er tafið fram-
kvæmdirnar. Uppdráttur húsa-
meistara ríkisins um skipulag lóð-
arinnar hefur verið sendur skipu-
lagsnefnd til athugunar, en þar
eru merktar þær byggingar, sem
eru í smíðum, þær sem ákveðið
er að reisa og þær, sem er fyrir-
'hugað að reisa. Meðal þeirra, sem
ákveðið er að reisa, eru nýtt eld-
hús og matstofa, þvottahús og inn-
gangar í spítalabyggingarnar.
Húsameistari er nú að ganga frá
teikningum af eldhúsi og matstofu,
og unnið er að útvegun fjár til að
unnt sé að hefja þessar fram-
kvæmdir sem allra fyrst. Aðrar
fyrirhugaðar byggingar, sem eru
merktar á uppdrátt húsameistara,
eru norðurálma — húsnæði fyrir
röntgendeildir og rannsóknir, áætl
uð bygging fyrir rannsóknastofu
Háskólans, þá deild sem fæst við
vefjarannsóknir og krufningu,
skrifstofubygging, stækkun fæð-
ingardeildar, bygging fyrir geð-
sjúka til afnota meðan beðið er
eftir nýju geðsjúkrahúsi og fyrir-
hugaður læknaskóli. Skólinn hefur
verið settur á uppdráttinn, á lóð
sem tilheyvi* ekki spítalanum enn
sem komið er, enda heyrir sú bvgg
ing undir Háskólann og er algjör-
Framhald á 15. sfðu.
Prófessor Snorri Hallgrímsson
— Hvernig miðar framkvæmd-
um í viðbótarbyggingu spítalans,
og hvenær má gera. ráð fyrir, að
hún verði nothæf?
— Þeim miðar hægt, og eins og
sakir standa má segja, að fram-
kvæmdiir séu stöðvaðar vegna verk
falls. Að vísu tókum við í notkun
á s.l. ári nýja deild með 25 rúm-
um, og það er út af fyrir sig
góður áfangi. Hins vegar stend-
ur okkur fyrir þrifum, sérstaklega
á handlæknisdeildinni, að vinnu-
plássið er á sama stigi og þegar
Landspítalinn tók fyrst til starfa.
Skurðstofurnar geta ekki annað
þeim verkefnum, sem leiðir af
sjúklingafjöldanum. Það stafar af
því, að það tók skemmri tima að
fullgera sjúkrastofurnar á nýju
deildinni en skurðstofurnar, sem
nú er verið að ljúka. Við vænt-
um þess s. 1. sumar, að skurð-
stofurnar yrðu fullbúnar fyrir ára-
hæð eru kennslustofur og rann-
sóknarstofur, en þær síðarnefndu
eru enn ekki fullgerðar, en nokkur
hluti þessarar hæðar hefir verið
í notkun síðastliðið ár. Skurðstof-
urnar verða á annarri hæð. Á
þriðju hæð er nýja sjúkradeildin,
fullskipuð sjúklingum. Á fjórðu
hæð eru vaktherbergi kandidata
og gistivist héraðslækna, sem óska
að vera hér til að rifja upp lær-
dóma, og þar er einnig bókasafn,
fundarherbergi og skrifstofur.
Vesturálma nýbyggingarinnar er
svo langt komin að það er gert ráð
fyrir, að verulegur hluti hennar
verði tekinn í notkun á þessu ári.
Þar er barnaspítalinn á tveimur
hæðum og er lögð áherzla á, að
fullgera það húsrými sem fyrst.
Þá er gert ráð fyrir deild fyrir
sjúklinga með taugasjúkdóma í
þessari álmu. Enn fremur er fyrir
hugað að lyflæknisdeildin fái eina
hæð bæði í vestur- og austurálmu
og í austurálmu er gert ráð fyrir
um getað fangað á þessum tíma
nýjungar, að vísu ekki hvað snert
ir form og stærð hússins, en ýms-
an nýjan útbúnað, sem hefur kom
ið fram. Raunar hefur ekkert ver-
ið til sparað, annað en plássið
sjálft. Það verður fullmikið út-
nýtt og litlir möguleikar á ’breyt-
ingum síðar meir. Það sem ein-
kennir spítalabyggingar nú á .dög-
um, eru stórir skálar, breiðir gang
ar, sem virðast í fljótu bragði til-
gangslítið umfang, en hreyfan-
leiki og breytingar fá svigrúm í
slíkum húsakynnum. Hvað það
snertir er þessi bygging mjög
sparlega úr garði gerð.
— Eg hef heyrt þess getið, að
félagsskapur hér i Reykjavík hafi
hug á að gefa Landspítalanum
tæki til að frysta maga og lækna
blæðingar frá maga og vélinda.
Hvaða álit hafið þér á tækinu?
— Eg fór s.l. vetur til Ameríku
til að kynna mér þessa nýju aðferð
til að lækna skeifugarnarsár, en
LANDSPÍTALINN AÐ SUNNAN.
mót, en verkfallið varð þrándur
í götu. Nú verðum við eflaust
að bíða til vors. Tengiálman milli
aðalbygginganna hefir nú verið
tekin í notkun að mestu leyti,
nema sá hluti, þar sem skurðað-
gerðir munu fara fram. Á fyrstu
SNORRI HALLGRÍMSSON
deild fyrir slasaða og bæklunar-
sjúka. Frágangur innanhúss
er ekki hafinn þar, og ég geri ráð
fyrir, að hann dragist nokkuð á
langinn, en hraði verksins er auð-
vitað háður fjárveitingum. — Auk
þess, sem þegar hefur risið af
grunni, er eftir að byggja eldhús
og þvottahús og fyrirhugaða álmu
norður úr byggingunni. Þar verða
röngendeildir, rannsóknarstofur
og vinnustofur fyrir deildirnar i
nýbyggingunni.
— Hvað þarf spítalinn að bæta
við sig mörgum læknum og sér-
fræðingum, þegar viðbótarbygg-
ingin öll kemst í gagnið?
— Eg er alls ekki tilbúinn að
svara því. Við höfum ekki bætt
við læknum nema það væri fyrir-
sjáanlega óhjákvæmilegt, en hér
má gera ráð fyrir þó nokkurri
aukningu á læknafjölda.
— Verður nýi spítalinn innrétt-
aður eins og bezt verður á kosið
á nútímavísu, og með nýjum góð-
um áhöldum?
— Það er að minnsta kosti ætl-
un byggingarnefndar að gera hann
eins vel úr garði og framast er
unnt, en nú eru bráðum 12 ár
síðan byrjað var að leggja frum-
drögin að þessari byggingu, og á
þeim tíma hefur margt gerzt. —
Þessi dráttur á byggingunni er þó
ekki að öllu leyti til ills. Við höf-
(Ljósm.: TÍMINN-GE).
um lækningu þeirra er fyrst og
fremst að ræða. Þá stóðu vonir til,
að með þessu móti yrði komizt
hjá skurðaðgerðum. Margir hafa
tekið upp þessa nýju aðferð, að-
allega vestanhafs, en þar var hún
fundin upp. í Evrópu hefur tækið
verið reynt litils háttar. En það
tekur alltaf þó nokkuð langan tíma
að fá vitneskju um raunverulegt
gagn nýrra læknisaðferða, og enn
verður ekki fullyrt hve mikið gagn
er að þessari aðferð. Eg hef þess
vegna dregið að reyna þessa að-
ferð hér og tel mig ekki enn hafa
fengið nægilegar upplýsingar um
hana. Það skal tekið fram, að þetta
er ekki vegna þess, að erfitt sé
að fá tækið sjálft. Eitt af því, sem
gerir að verkum, að mér hefur
þótt allgott að vinna hjá íslenzka
ríkinu, er það, að okkur hefur
aldrei verið neitað um þau tæki,
sem við höfum talið nauðsynleg
þótt við höfum stundum þurft að
bíða eftir þeim. En þrengslin í
spítölunum hafa sett okkur stól-
inn fyrir dyrnar. — Það hefur
hreint og beint ekki
verið hægt að koma fyrir tækj-
um, sem við hefðum annars vilj-
að fá.
— Verður þessi nýbygging á-
fangi, sem dugar í nánustu fram-
tíð?
— Eg geri ráð fyrir, að ástandið
í sjúkrahúsmálum verði sæmilega
gott það árið, sem þessari bygg-
ingu og Borgarspítalanum er lok-
ið, verði þeim áföngum sem nú
eru í smíðum lokið innan tveggja
til þriggja ára. En það verður að
halda áfram að byggja, jafnt og
þétt, samsvarandi fjölgun fólksins,
annars verðum við í sömu súp-
unni og undanfarin ár, langt á
eftir þörfinni.
— Mundi verða haldið áfram að
byggja á Landspítalalóðinni?
— Það getur verið. Mér þykir
ekki ólíklegt, að hér komi ein-
hverjar viðbætur. Annars fer
spítalinn að nálgast heppilega
stærð, þegar þessi viðbygging er
komin í gagnið. Rúmafjöldi spít-
alans nú er kringum 250. Þar við
bætast 100 rúm í hvorri álmu ný-
byggingarinnar, svo hér verða um
450 rúm. Spítali með 400—600 rúm
er mjög heppileg stærð, og ég er
því andvígur, að rúmafjöldinn fari
mikið yfir 600. Eg tel óheppilegt
að spítalar séu byggðir eins og
stórar verksmiðjur. Að Landspítal-
inn hefur verið frekar vinsæl stofn
un mun meðal annars vera vegna
þess, að hann er ekki stærri en
raun er á. Við þekkjum sjúkling-
ana, og það verður svolítið meirl
heimilisbragur hér en þar, sem
þúsundir sjúklinga liggja í einum
stað.
Prófessor Sigurður Samúels-
son
— Eruð þér ánægður með bygg-
ingarframkvæmdir spítalans?
— Þessi bygging hefur dregizt
úr hófi fram til mikils ógagns fyr-
ir sjúklinga, lækna og alla aðstöðu
til lækninga á íslandi. Þar af leið-
ir, að byggingin er ekki eins heppi
leg og vera skyldi. Það sem prjón-
að er við gamalt, getur aldrei orð-
ið sem nýtt. Eg mun ekki orð-
lengja þetta mál nú, en ég vil taka
fram, að það er ekki nóg að byggja
hús yfir sjúkrarúm. Slík hús eru
ekki fallin til fullkominnar þjón-
ustu við hina sjúku, jafnvel þótt
jafn sjálfsagðir hlutir og skurð-
stofur og almennar rannsóknar-
stofur komi til. Það verður að
SIGURÐUR SAMUELSSON
8
T f M I N N , flmmtudaglnn 30. ianúar 1964 —