Morgunblaðið - 22.01.1953, Blaðsíða 16
VecMiiii í dag:
SA-átt. — Eigoitig öðru
tavcrju. —
17. tbS. — Fimmtudagur 22. janúarl953
rj*
á Ms. Mmnasm 7 og ÍMíÓTTASÍD V á StSs. 14.
seuiagangur 1
raforkumálum Vestfjarða
I Pós&úsimi í «iasr
Úr ræðu Sig. Bjarnasonar á Alþingi í gær.
•TEKIN VAít til Kieðferðar í Sameinuðu þingi í gær fyrirspurn frá
Sigurði Bjarnasyni og Eiríki Þorsteinssyni um niðurstöður rann-
sóknar á virkjunarskilyrðum á Vestfjörðum. Raforkumálaráðherra
Hermann Jónasson svaraði með því að lesa bréf raforkumála-
stjóra. Kom í ljós að víðtækar virkjunarrannsóknir hafa farið fram
á Vestfjörðum. Er nú verið að vinna úr þeim og er stefnt að því
að ljúka á þessum velri höfuðþætti rannsóknarinnar, það er fá úr
því skorið, hvort stefna beri að heildarvatnsvirkjun i Dynjanda og
ánum í botni Arnarfjarðar, eða að mörgum smávirkjunum.
Sigurður Bjarnason lét í Ijós vonbrigði yfir að rannsóknunum
væri ekki lengra komið. Hann lýsti því við hve mikla erfiðleika
byggðarlög Vestfjarða ættu að stríða, þar sem dieselrafstöðvarnar
væru mjög dýrar í rekstri. Ef vissir landshlutar yrðu svo útundan,
þá hlyti það að leiða til þess að fólk flytti þaðan. Sýndi hann fram
á þörfina til að bæta úr þessum erfiðleikum.
SsttafiSEsgan samþykkt
Verkfaillno iokið
LOICIS er verkfalii sjómanna á fiskMiátum í Reykjavík og
Hafnarfirði. Samþykktu bæði sjómeitn «g átgerðarmenn við
atlsherjar atkvæðagreiðslu i gær miðiunartillögu þá, sem sam-
komu'iag varð um á sáttanefndaríunéU á fyrrinótt. Sjómeún
samþykktu tillöguna með 62 atkv. gegn 39 og útgerðarmenn
með 25 gegn 12. Þar með lýkur þessu verkfalli, sem staðið
, hefur frá áramóíum og tekið heíur til tun Uðö sjómanna að þvi
er talíð er.
sjomðons
RAFORKA DÝR A
VESTFJÓRDUM
Sigurður Bjárnasoh, þmgrriað-
ur Norður-ísfirðinga, gerði grein
fyrir fyrirspurninni
greinargóð svör. Hannjét í ljós
vonbrigði yfir að rannsóknunum
skyldi ekki vera lengra komið,
Hann gat þar sem raf0rkumálastjórn hefur
þess að raforkuþörf Vestfjarða ekki haft aðeins þetta
sumar til
hefði til þessa verið leyst með rannsókna, heldur fjöTda mörg
sma-dieselrafstöðvum. En sú raf- ' undanfarin ár
orka er geysi dýr. Benti hann j
á það að sums staðar á Vestfjörð-
um væri kw.-stundin seld á ,l, 18
kr. midað Við í Reykj-avík á 42
aura. Má af þessu sjá, hvílík
ókjör Vestfirðingar búa við x
rafmagnsmálum.
OF LITILL AHUGI
Hann sagði að ríkisstjórnin
hefði á undanförpum árum ekki
sýnt nægilegan áhuga fyrir raf-
virkjunarframkvæmdum byggð-
arlaganna á Vestfjörðum. T. d.
hefði Bolungarvík haft tilbúinn
virkjánaundirbúning úm ára-
skeið, en ekki fengið áheyrn.
AÐ HVERJU BER
A» STEFNA?
Rannsókn á virkjunarskilyxð-
um Vestfj. hefur- staðxð .fjöJxxiörg.
ér. Þrátt fyrir þennan langa
tíma er ekki enn hægt að slá
neinu föstu um það, hvort beri
að stefna að heildarvirkjun eða J rekstrarhalli á dieselstöðvum á
smávirkjunum. Alþingi sam- J Vatneyri, Bildudal, Þingeyri,
þykkti þingsályktunartillögu í(Flateyri, Suðureyri, Bolungarvík
fyrra um það að heildarrannsókn og Súðavík, sem nemur yfir 600
skyldi fram fara á þessu og gekk' þús. ,kr. Væri óþjákvæmilegt ann
fyrirspurnin út á það, hvérnig J að en hið opinbera hlypi undir
AÐSTOÐ NAUÐSYNLEG
Sigurður nefndi þá staðreynd,
að þrátt fyrir háan 'verðtaxta
hefði árið 1951 orðið heildar
Það er mjög miklw.m vandkvæð-
um hundið, að sýna á mynd úr
Pósthúsinu, hve mikið pláss 809
póstpokar tíika. Þrengslin eru
svo mikil, að ljósmyndarinn hef-
ur tæplega rúm til þess að taka
slíka mynd. — Þessi gefur þó
nokkra hugmynd um það, og var
tekin í gærmorgun, er póstmenn
voru að byrja að taka póstpok-
ana úr staflanum, en hann náði
upp undir loft í póstmóttakuher-
berginu. Það var Lagaríoss, sem
kom með þennan póst og hefur
aldrei fyrr jafmnikið póstmagn
borizt í sömu póstfeiðinni.
—Ljósm. Mbl.
annn
um 271,6 tnillj.
ir. s.l. sr
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR-
INN við útlönd var óhag-
stæður um 271,6 miiljónir kr.
s ðastliðið ár. Útflutningurinn
nam- 639,8 milljómim, en inn
var flutt fyrir 911,4 millj., þar
af eru skip fyrir 21,5 millj.
Á árinu var vöruskiptajöfn-
uðurinn óhagstæður um 197,3
millj. Þá var flutt út fyrir
726,8 millj., en inn fyrir 923,9
milljónir.
í desembermánuði var jöfn-
uðurinn óhagstæður um 25.5
millj. innflutt var fyrir 67,5
millj., en út fyrir nær 42
millj. kr.
þeirri rannsókn liði.
SVAR HEEMANNS
Raforkumálaráðh. Hermann
Jónasson svaraði. Las hann upp
bréf frá raforkumálastjóra.
I því sagði, að sumarið 1952
hefðu farið ffám landmælingar
og vatnsmælingar á Dynjanda og
ánum í botni Arnarfjarðar. Væri
nú verið að vinna úr þessurn
rannsóknuin. Yrði uppdráttur af
svæðinu tilbúinn um miðjan
feb'rúar.
20 ÞÚS. HESTÖFL
í ARNARFIRÐI
Virðist afl ánfta í botnr Arn-
arfjárðár vera úm 20 þús. hestöfl,
en raforkuþörf Vestfjarða er tal-
in um 7 þús. hestöfl, sagði ráð-
herrann. Bfi þannig hágSr til
þarna, að hætt er við að kostn-
aður við virkjunina verði alltof
hár., ...
bagga með þessum sveitarfélög
um, sem afskipt hafa orðið um
virkjunarframkværrídír, því að
þetta væri að sliga þau.
16 SMÆSRI ÁR
Ef svo reyndist þá yrði að
taka þá stefnu að gera margar
smávirkjanir. Ýil að undirbúa
það hefur mikill fjöldi smærri
falLvatna * verið mældur. Því
miður væri rr.ikill hluti þeirra
tíragár, sém þorna upp að vetri.
llokkrar þeirra eru þó lindarár
cg þær, ásamt stærstu dragán-
um er hugsanlegt að virkja. —-
Ta'di hanrí síðan upp 16 smærri
ár, sem hugsanlegt er að virkja.
T E ÞESSU SKORIÐ
Á NÆSTUNNI
Stefrit er* að því að Ijúka á
jfcessum vetri þeim höfuðþætti
rannsóknarinnar, að fá úr því
skorið, hvort beri að stefna að
heiidarrafvirkjun eða mörgum
cmávirkjunum.
ÖÞOLANDI SEINAGANGUR
Sigurður Bjamason þakkaði
iim
embætti úfvarps-
sijóra
FJÓRIR menn hafa sott um
embætti útvarpsstjóra, sam-
kvæmt upplýsingum frá mcnnta-
málaráðuneytinu.
Umsækjendur eru: Bjarni Guð-
mundssorí, blaðafulltrúi, dr. Haf-
þór Guðmundsson, Ottó B. Arn-
ar, loftskeytafræðingur og Vil-
hjálmur Þ. tíislasonj slTólastjóri.1
Embættið verður veitt frá og
með næstu mánaðamótum.
rið al rekasi á siag
í FYRRAKVÖLD meiddist stúHca
inn við Laugateig, er hún hljóp
á stag sem er úr Ijósastaur og
liggur í lítilli hæð þvert jTir gang
braut. Stúlkan skrámaðist í and-
liti og braut í sér tennur, en vír-
stagið kom beint á munn hennar.
Þetta mun vera í annað sinn,
sem þetta vírstag veldur meiðsl-
um. Eftir að dimma tekur, og ef
vegfarendur eru ekki því kunn-
ugri á þessari gangbraut, þá er
stag þett.a stórhættulegt eins og
fregn þessi ber með sér.
í fyrra sinnið var það barn,
er meiddist.
Réttum aðilum er og hér með
bent á að nauðsynlegt er að gera
ráðstafanir til að slíkt þurfi ekki
að endurtaka sig.
I
« ■
Nýrbáfur
fil Akraness
AKRANESSI; 21. jan.: — Rétt
fyrir áramótin keypti Fiskiver.
h.f. bát áð ríafni Sævar, frá Hafn-j
aarfirði, *en þangað ' hafði hann
vérið fenginn 'fí*á Neskaupstað. i
Báturinn er 63 tonn að stærð, j
með 200 ha. Bolindervél, byggður
í Svíþjóð 1944 Heitir ríú þessi
bátur Sæfaxi. Skipstjórf er Guð-
jón Friðbjarnarson.
Bátur, kom hingað til Akra-
ness í gær Vestan frá Sandi. —
Báturinn er 18 tonn að stærð og
heitir Baldur. Skipstjóri og eig-
andr er Jóhannés Jónsson. Ætlar
Jóhannes að fróa bátnum héðan
á vetrarvertíðinni og hafa bæki-
stöð sina i Heimaskaga- h.f.
x ■ . ■' '■ —O.
Þingsálykfun um
smíði fiskibála
Sameinað alþingi afgreiddi í
gær þingsályktunartillögu til rík-
isstjórnarinnar um smíði fiski-
báta innanlands.
Þingsályktunin er á þessa leið:
Alþingi ályktar að skora á rík-
isstjórnina að láta athuga, hve
mikið fiskibátafloti landsmanna
hefur rýrnað á siðustu þrem ár-
um, og athuga jafnframt mögu-
leika á því, að láta smíða hentuga
fiskibáta í íslenzkum skipasmíða-
stöðvum.
Skýrt hefur verið frá um-
ræðum um þessa tiliögu, er Jó-
hann Þ. Jósefsson, form. allsherj-
amefndar haföi framsögu fyrir
nefndaráliti í síðustu viku.
Framkvæmdabanki
fer fil neðri deildar
EFRI DEILD Alþingis sam-
þykkti i gær frumvarpið um
Framkvæmdabanka með þeim
breytingum, sem orðið hafa á
frumvarpinu í deildinni. Fer
frumvarpið nú fyrir Neðri deild.
Fullfrúar
í Norlurlandaráð
ÞINGSÁL YKTUN ARTIL -
LAGA meiri hluta utanríkis-
máíanefndar um kosning
fimm fulltrúa í Norðurlanda-
ráð var til umræðu í Samein-
uðu Alþingi í gær. Hafði Jör-
undur Brynjólfsson framsögu
á hendi fyrir hönd meiri hlut-
ans, en í honum eru fulltrúar
allra lýðræðisflokkanna.
Einar Olgeirsson flutti
langa ræðu og hélt því fram
m. a. að með tillögu þessari
væri ætlunin að koma í veg
fyrir hlutfallskosningu full-
trúanna. Er það að sjálfsögðu
hin mesta fjarstæða. Ætlunin
er að Neðri deild kjósi þrjá
fulltrúa með hlutfallskosn-
ingu og Efri deild tvo.
Pósfbáfurinn einn
sleðvasf vegna
sjómannaverkfalls
á Akureyri
AKUREYRI, 21. janúar. — í
fyrradag kom til verkfalls hér á
Akureyri hjá sjómannafélaginu,
þar sem samningar höfðu ekki
tekizt við atvinnurekendur.
Engir bátar eru gerðir lréð-
an út til fiskveiða um þessar
mundir og stöðvast því eng-
in útgcrð hér að svo komnu.
Það er aðeins einn bátur, sem
stöðvast af völdum þess, póst-
háturinn Drangur, sem er í
ferðum á milli hafna í Eyja-
firði og Skagafirði með við-
komu á Siglufirði. Ennfrem-
ur er hann eina samgöngu-
tækið, sem heldur uppi reglu-
bundnura ferðum til Gríms-
eyjar.
Kemur það sér að sjálfsögðu
mjög illa, sérstaklega fyrir af-
skekktustu byggðina, ef Drang-
ur stöðvast lengi. —Vignir.
s
HÖFN í Hornafirði, JJþ jan.: —»
Á laugardaginn bárust hingað
tilmæli um, að tekin yrðu fingra-
för af manni nokkrum, sein
heima á austur við Fáskrúðsf jörð.
Var þetta gert. Tilmælin komu í
sambanxli við rannsókn þá, er
fram fór á Fáskrúðsfirði á inn-
broti og þjófnaði á sælgæti og
tóbaki, í kaupfélaginu þar.
Þessi maður hafði orðið að
fara að txeiman og hingað í ver,
um likt leyti og fingrafarasér-
fræðingwr rannsóknarlögregl-
unnar kom hingað. Hafði mað-
urinn ráðið sig á bát, sem gerð-
úr verður út héðan. Varð mað-
urinn, efíir fyrirskipun útgerð-
armannsins, að fara; með fyrstu
ferð hingað, en það var með mb
Valþór, sem fór frá Seyðisfirði
áleiðis til Reykjavíkur.
Maður þessi hefur neitað því
eindregið, að vera nokkuð við
þjófnaðarmál þetta riðinn. —■
Kveðst ekki hafa verið í kauptún-
inu, er þjófnaðurinn var fram-
inn.
Fingraför hans verða send flug-
leiðis til Reykjavíkur þegar, er
ferð fellur. Fæst þá væntanlega
úr þvi skorið, hvort maðurinrx
sé sekur eða saklaus.
Dregisii) til hafnar
með bilaða vél
AKRANESI, 21. janúar. — í nótt
bilaði vé4 hjá vélbátnum Reyni
frá Akranesi, er hann var á út-
leið. Vélbáturinn Baldur fór frá
Akranesi Reyni til aðstoðar. —•
Hafði hann dregið hann um 7
mílna leið, er vélbáturinn Keilir,
sem er stærn en Baldur, tok við
drættinum, en þá var tekið að
hvessa nokkuð.
Gekk ferðin til Akraness ekki
sem bezt. Slitnaði dráttartaugin
minnst tvisvar sinnum, og voru
bátamir ókomnir til Akraness
um 11 leytið í gærkvöldi.
Ágæl færð 1
fi! Óiafsvíkur 3
ÁÆTLUNARBÍLLINN kom í
gær frá Ólafsvík og var um sjö
og hálfa kluklcustund á leiðinni,
eða sama tíma og venjulegt er
að sumardegi. Smávegis hefur
snjóað á Fróðárheiði, en að því
er engin tálmun.
Áætlunarferðir til Ólafsvíkur
eru tvisvar í viku og hafa þær
aldrei fallið niður, nema hvað
bíllinn fór ekki nema að Breiða-
bliki s.l. laugardag, þar sem
hann var með enga farþega.