Morgunblaðið - 31.03.1954, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 31. marz 1954
Hljómplötur
1000 félagar í Nóttúru
lækningafél. Rvíkur
Á UNDANFÖRNUM árum hafa
rslenzk fyrirtæki gefið út tölu-
vert af hljómplötum, — aðallega
íslenzk dægurlög sungin af ís-
lenzkum söngvurum, en auk þess
nokkrar plötur með eriendum
söngvurum. Hér í blaðinu hefur
fyrir skömmu verið sagt frá
hljómplötum, sem gefnar hafa
verið út á vegum Fálkans h.f.
— Annað íslenzkt fyrirtæki:
íslenzkir tónar & Musica hefur
einnig á síðustu árum gefið út
allmargar hljómplötur og verður
reynt að gera stutta grein fyrir
þeim nú og í nokkrum greinum
síðar hér í blaðinu.
Árið 1952 gáfu íslenzkir tónar
út fjórar hljómplötur með átta
sönglögum eftir Sigfús Halldórs-
son. Eru það þessar plötur:
I.M.2 Litla Flugan — Tondeleyo,
upptekin hjá Ríkisútvarp-
inu. — Textar: Sigurður
Elíasson — Tónias Guð-
mundsson.
l.M.7 í dag — Við vatnsmýrina,
upptekin af Ríkisútvarp-
inu. — Textar: Sigurður
frá Arnarholti — Tómas
Guðmundsson.
I.M.8 Játning — Við tvö Og blóm-
ið. Upptekin hjá Norska út
varpinu. — Textar. Tómas
; Guðmundsson — Vilhj.
frá Skáholti.
I.M.9 Til Unu — Þú komst. —
Upptekin hjá norska út-
varpinu. — Textar- Davíð
Stefánsson — Vilhj. frá
Skáholti.
Öll þessi lög syngur höfund-
urinn sjálfur við eigin undir-
leik.
Sigfús Halldórsson er fjölhæf-
ur listamaður og þjóðkunnur fyr-
ir löngu af lögum sínum, enda
eru þau flest mjög snotur og sum
ágætlega samin. Hafa þau hlotið
almennar vinsældir og eru sung-
in af ungum og gömlum um all-
ar byggðir lardsins, og að
.minnsta kosti eitt þeirra Litla
flugan, hefur vakið nokkra at-
hygli erlendis. Best þessara laga
finnst mér „í dag“, við hið
ágæta kvæði Sigurðar Sigurðs-
sonar frá Arnarholti. Er það
prýðilega gert lag, svipmikið og
fellur afbragðsvel við Ijóðið.
Furðar mig á því, að söngvarar
vorir hafa ekki gefið þvi meiri
gaum en raun ber vitni. —
Tondeleyo, Játning og Litia flug-
an, eru einnig athyglisverð lög,
Játning einfalt en innilegt og
Litla flugan skemmtilegt lag og
fullt af glettni. — Öll eru þessi
lög Sigfúsar betri tónlist en svo,
að þeim verði skipað í flokk
þeirra dægurlaga íslenzkra, er
nú flæða hér yfir.
Eins og áður er sagt syngur
höfundurinn sjálfur lögin og
leikur undir á píanó. Hetur Sig-
fús allmikla tenor-rödd og bjarta,
en skjálftinn í röddinni er til
lýta. Hann fer oftast vel með
lögin, af mikilli söngnæmi, en
stundum bregður fyrir í með-
ferð hans einhverskonar drama-
tiskri tilgerð, ef svo mætti segja,
með sterkum áherzlum. an þess
að textinn gefi tilefni tii þess.
(í laginu „í dag“ á það þó við).
Raskar þetta mjög heiidarsvip
lagsins og samræminu milli lags
og ljóðs og lögin verða síst
áhrifameiri fyrir það, eins og
söngvarinn (og tónskáldið)) mun
þó hafa ætlast til. .
Sigfús fer yfirleitt vel með
textana og undirleikur hans er
léttur og skemmtilegur. — Hann
hefir einnig til að bera þann
listasmekk og þá menningu, að
hann semur lög sín eingöngu
við vandaða texta, og mættu ís-
lenzkir dægurlagahöfundar taka
hann til fyrirmyndar í því efni.
Mun ég víkja að þessu atriði
síðar.
Sigfús Halldórsson
Upptakan á plötum þessum er
dágóð, en ekki fram yf:r það,
því að stundum bregður fyrir
óþægilegu urgi, einkum á hæstu
tónunum, þegar sterkt er sungið.
________________Oddvar.
Enginn bað um
viðræður
KAIRO, 23. marz — Nagíb for-
seti Egyptalands svaraði í dag
yfirlýsingu Edens utanríkisráð-
herra um það að Bretar væru
ekki fáanlegir til að taka upp um-
ræður um Súez-skurðinn fyrr en
kyrrð væri komin á í Egypta-
landi.
Nagíb sagði: — Hver sagði að
við vildum taka upp viðræður?
— Það viljum við alls ekki nema
Bretar viðurkenni fyrst full yfir-
ráð Egypta yfir Súez-skuðrin-
um.
Hann minntist einnig á undir-
búninginn fyrir kosningarnar,
sem haldnar verða í júní-lok.
Sagði hann að fyrir kosningarn-
ar yrði aflétt herlögum í landinu
og pólitískum föngum gefið
frelsi. —Reuter.
NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG
Reykjavíkur (N.L.F.Í.) hélt
aðalfund sinn síðastliðinn fimmtu
dag í Guðspekifélagshúsinu við
Ingólfsstræti. — Formaður fé-
lagsins, Böðvar Pétursson, kenn-
ari, setti fundinn, og tilnefndi
Hjört Hansson, kaupm., fyrir
fundarstjóra. Flutti formaður síð-
an skýrslu um störf félagsins á
liðnu starfsári.
Á árinu bættust félaginu 90
nýir félagar, og var tala félags-
manna um síðustu áramót alls
962. Síðan höfðu bætzt við 21
nýir félagar, og er því tala fé-
lagsmanna nú 983.
Síðastliðið ár beitti stjórn
N.L.F.R. sér fyrir að félagið kæmi
sér upp pöntunarfélagi, og var
því gefið nafnið Pöntunarfélag
N.L.F.R. Húsnæði var tekið á
leigu á fyrra helmingi ársins í
húseigninni Týsgötu 8, þar sein
pöntunarfélagið hóf starfsemi
sína, með skrifstofu fyrir það og
N.L.F.Í. — í pöntunarfélagið
gengu strax um 200 manns. —
í október sama ár, var pöntunar-
félaginu breytt í nýlenduvöru-
verzlun með pöntunardeild. Hef-
ur verzlunin á boðstólum aðal-
lega þær fæðutegundir er tald-
ar eru hollastar, samkv. kenn-
ingum náttúrulækningastefnunn-
ar, og hefur beitt sér fyrir út-
vegun slíkra vara. Enn fremur
eru seldar þar allskonar hrein-
lætisvörur. Keypti félagið einnig
á árinu kornmyllu, er sett var
upp í verzlunarhúsnæðinu og er
malað í henni nýtt korn, sem
selt er daglega í verzluninni.
Verzlunarstarfsemi þessi hef-
ur unnið sér traust og álit fé-
lagsmanna, sem og annarra við-
skiptamanna, síðan hún hóf
göngu sína, og á hún ekki hvað
minnstan þátt í aukningu félaga-
tölunnar á starfstímabilinu, enda
njóta félagsmenn þeirra fríðinda
að fá hinar ýmsu vörur á lægra
verði en ella.
í byrjun yfirstandandi mán-
aðar tók Náttúrulækningafélag
íslands (N.L.F.Í.) á leigu skrif-
stofuhúsnæði i húseigninni Hafn-
arstræti 11, og rekur þar starf-
semi sína, Skrifstofumaður er
Þórður Halldórsson. í febrúar
þessa árs réði stjórn N.L.F.Í.
framkvæmdastjóra fyrir félagið,
Sigurjón Danívalsson, er var áð-
ur starfsmaður hjá Ferðaskrif-
stoíu ríkisins.
Eitt af aðaláhugamálum N.L.
F.í. hefur verið að koma upp
heilsuhæli. Hefur félagið þegar
hafizt handa með byggingu slíks
hælis í landi því er það gat feng-
ið úthlutað í Hveragerði. Er mein
ingin að byggja hæli þetta í á-
föngum, eftir því sem fjárhags-
legar ástæður leyfa. Hyggst fé-
lagið að koma upp fyrsta áfang-
anum á næsta sumri, svo að hægt
verði þá að hefja fyrirhugaða
starfsemi. Félagið hefur í undan-
farin sumur rekið sumarheimili
bæði í Hveragerði og upp í Borg-
arfirði, er hefur gefizt vel og
verið fjölsótt. Með því að fé það
sem þegar er fyrir hendi í Heilsu-
hælissjóði mun hrökkva skamt til
að fullgera þessa byrjunarbygg-
ingu, með nauðsynlegum hús-
munum og áhöldum, þá hefur
stjórn N.L.F.Í. ákveðið að hefja
fjáröflun með ýmsu móti, svo sem
útgáfu skuldabréfa að verðmæti
kr. 100,00 og kr. 500,00, vöru-
happdrætti o. f 1., í von um að
félaginu verði vel ágengt í því
efni, og í trausti þess að almenn-
ingur, og þá ekki sízt félagsmenn,
séu viðbúnir að greiða götu þessa
þjóðþrifa fyrirtækis, með því að
leggja fram fé, eftir efnum og
ástæðum til kaupa á nefndum
bréfum og vöruhappdrætti. Hef-
ur þegar safnazt nokkurt fé fyr-
jr seld skuldabréf. Enn fremur
væntir stjórn N.L.F.Í. fjárhags-
pegs stuðnings frá ríkinu, svo að
hægt verði að ljúka byggingu
nefnds hælis hið fyrsta.
Meðal þeirra mála er rædd
voru á þessum aðalfundi N.L.F.Í.
var áfengislagafrumvarp þa3
sem nú liggur fyrir Alþingi tii
úrlausnar, og var samþykkt svo-
hljóðandi tillaga:
„Með hliðsjón af þeirri hættu,
sem hverri þjóð stafar af svo-
kallaðri „hófneyzlu“ áfengra
drykkja, með tilliti til heilbrigði,
vinnuafkasta, umferðaslysa, for-
dæmis o. fl. og með því að eng-
ar líkur eru til þess, að neyzla
léttra áfengra drykkja dragi úr
ofneyzlu áfengis, þá beinir aðal-
fundur Náttúrulækningafélags
Reykjavíkur þeirri eindregnu á-
skorun til Alþingis, að það leyfi
á engan hátt sölu eða bruggun
áfengs öls í landinu“.
I stjórn félagsins voru kosnir:
Böðvar .Pétursson, kennari, for-
maður, og meðstjórnendur þau
Hjörtur Hansson, kaupm., Stein-
unn Magnúsdóttir, frú, Marteinn
M. Skaftfells, kennari og Ingólf-
ur Sveinsson, lögregluþjónn. í
varastjórn: Frú Svava Fells,
Hannés Björnsson, póstmaður og
Kjartan Þorgilsson, kennari. —
Endurskoðendur þeir Björn
Svanbergsson og Dagbjartur
Gíslason.
Fór aðalfundur þessi í alla staði
mjög vel fram, og ríkti mikill
áhugi fyrir stefnu stjórnar
N. L.F.R. og N.L.F.Í. í þeim mál-
um er áður hefur verið getið.
Fréffabréf úr
■ ■
Oræfðsveif
KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 22.
marz: — Hinn 20. þ.m. átti frétta-
ritari Mbl. á Klaustri tal við Sig-
urð Arason oddvita á Fagurhóls-
mýri og fékk hjá honum eftir-
farandi fréttir úr Öræfasveit.
SKEPNUHÖLD OG TÍÐARFAR
Eins og um allt land hefur tíðin
hér verið einstaklega mild í Ör-
æfunum í vetur. Harðindakafla
með talsverðum snjó gerði þó hér
fyrripartinn af góu. Komu þá all
miklir skaflar í austurhluta sveit-
arinnar og urðu vegir ófærir bíl-
um. Þrátt fyrir milda tíð hefur
fénaði verið talsvert gefið, nema
á beztu beitarjörðum eins og til
dæmis Skaftafelli. Svo hlýtt hef-
ur verið að undanfarna daga er
farið að slá grænum lit á skjól-
beztu blettina kring um bæina á
Hofi.
REKI
Fiestar jarðir í Öræfasveit eiga
einhverjar fjörur, en lítið hefur
verið um reka undanfarin ár. I
vetur hefur þó rekið talsvert af
spýtum og hefur komið á fjör-
urnar í vetur meðal annars 20—
30 álna langt sívalningstré Rak
það á Svínafellsfjöru. Ekki hefur
tréð þó ennþá verið sótt, þar sem
aldrei. hafa komið svo traustir
ísar að hægt hafi verið að aka því
heim.
HEILSUFAR
Talsvert kvillasamt hefur ver-
ið í sveitinni í vetur. Þó hefur
læknir ekki verið sóttur, enda
langt að leita austur til Hafnar í
Hornafirði. í samráði við lækn-
inn hafa nokkrir sjúklingar farið
til Reykjavíkur til lækninga.
Samgöngur við Reykjavík hafa
verið ágætar, vikulegar flugferð-
ir hafa haldizt í allan vetur.
MANNSLÁT
Nýlega er látin Ingunn Þor-
steinsdóttid á Hnappavöllum,
ekkja Gísla Bjarnasonar. Eftir
lát manns síns bjó hún lengi með
börnum sínum að Hnappavöllum.
í vetur var hún flutt til lækninga
til Reykjavíkur og andaðist hún
þar. Hún var jarðsett að Hofi 19.
þ.m. — Gísli.
X BF.ZT AÐ AIIGLÝSA jL
T I MORGUHBLAÐIMJ T
í
IRELLI hjólbarðar
í eftirtöldum stærðum fyrirliggjandi:
650 x 15 6 strigalaga
710 X 15 6 —
700 X 15 6 —
760 X 15 6 —
820 X 15 6 —
500 X 16 4 —
525 X 16 4 —
550 X 16 6 —
600 X 16 6 —
650 X 16 6 —
700 X 16 6 —
450 X 17 4 —
525 X 17 6 —
550 X 17 6 —
700 X 20 10 —
750 X 20 10 —
825 X 20 12 —
900 X 20 12 —
1000 X 20 14 —
allar aðrar algengar stærðir væntanlegar bráðlega.
Afgreiðum hjólbarða beint frá P I R E L L I verksmiðjunum
til leyfishafa. — Stuttur afgreiðslutími.
Nafnið f
IRELLI tryggir gæðio
Einkaumboð:
fclueuzlun ^fóc^eiró SicjiA,rc)óóonar L.f
Símar 3308 — 3307.