Morgunblaðið - 31.03.1954, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 31. marz 1954
MannaSæti í
Austur-Þýzka-
landi
® BERLÍN-, 30. marz. — For-
maður kommúnistaflokks Aust-
ur-Þýzkalands, Walter Ulbricht,
tilkynnti í dag, að Austur-Þjóð-
verjar muni ekki leyfa hernaðar-
sendinefndum vestrænna þjóða
að ferðast gegnum landið.
® Ulbricth hélt því fram, að
austur-þýzka þjóðin hefði fengið
fullt forræði lands síns, og stjórn-
in væri fús til að taka upp venju-
legt stjórnmálasamband við
vestrænar þjóðir.
® Stjórnmálamenn skoða þetta
tiltæki sem klaufalega tilraun til
að neyða Vesturveldin til að taka
upp beint samband við ríkis-
stjórn, sem þau hafa einráðið að
viðurkenna alls ekki.
® Kunnugt er um, að franska
stjórnin hefir í hyggju að bera
fram andmæli við Rússa vegna
þessa brölts kommúnista.
Drengjamól Sigíu-
fjarðar í svigi
og göngu
SIGLUFJÖRÐUR 30. marz: —
Drengjamót Siglufjarðar í svigi
og göngu var háð um helgina er
leið. í göngu voru keppendur 50
talsins. Úrslit urðu sem hér seg
ir: 7—8 ára, fyrstur varð Sig-
þór Erlendsson á 9,12 mín., 11.—
12., fyrstur varð Valur Jóhanns
son á 12,17 mín., í svigi voru kepp
endúr 44. Úrslit urðu þessi, 7—8
ára, fyrstur Haraldur Erlendsson
á 45,6 sek., 9—10 ára, fyrstur
varð Gísli Kjartansson á 61,0
sek., 11—12 ára, fyrstur varð
Hákon Ólafsson á 41,8 sek. 13—14
ára, fyrstur varð Bogi Níelsson á
46,6 sek. — Stefán.
Viðræður við
foringja Mau Mau
NÆRÓBÍ 30. marz — í Kenía
hafa fulltrúar stjórnarinnar átt
fund með 6 leiðtogum Mau Mau
manna. Voru þeir hvattir til upp
gjafar. Frekari fundir eru vænt-
anlegir.
- Vandamél
Framh. af bls. 6.
vörum þeirra manna, sem um það
tala. Máske er það rétt frá hag-
fræðilegu sjónarmiði, að vera
ekkert að arða upp á þessa staði,
láta bara þetta litla land minnka
ofurlítið. En væri það talið ein-
hvers virði, að láta það ekki
minnka a.m.k. meira en orðið er,
er vissulega tími til kominn að
taka málið fastari tökum en til
þessa hefur verið gert.
Ég veit að þetta er vandamál,
og sízt af öllu ber að líta svo á,
að hér sé um ölmusu að ræða til
handa því fólki, sem enn byggir
þessa staði, því þetta vandamál
er vandamál allrar þjóðarinnar.
Ég legg ekki fram hér neinar
tillögur um hvað gera skal, en
tel rétt að málið væri falið dug-
legum hagfræðingi, sem yrði
nokkurskonar ráðunautur í þess-
um málum. Hann kæmi á þessa
staði og athugaði í samráði við
fólkið, hvað hægt væri áð gera,
Og legði sínar tillögur fynr ríkis-
stjórnina, sem svo tæki ákvörðun
um hvort hún teldi hægt að
tryggja framtíð þessara byggða,
eða ekki. En verði það ekki hægt
á það fólk, sem enn byggír þessa
staði fullan rétt á því að ríkið
kaupi allar afsteignir sem það
verður af yfirgefa og stofna til
heimila annars staðar vegna gjör-
breyttra þjóðfélagshátta.
Sætúni, 17. 3. 1954.
Bindindisfél. ökumanna mun
hefja öflugf úlbreiðslusfarf
EINS OG kunnugt er, var stofnað hér í Reykjavík á síðastliðnu
sumri félagsskapur er nefnist Bindindisfélag ökumanna. Var
það stofnað hér um svipað leyti og norræna bindindismálaþingið
var háð hér í Reykjavík. Aðalstjórn félagsins er skipuð 7 mönn-
um og eru deildarstofnanir nú í undirbúningi á nokkrum stöðum
utan Reykjavíkur.
í vor hyggst stjórn félagsins1^
hefja öfluga útbreiðslustarfsemi
og er áformað að gefa út út-
breiðslupésa sem dreift verður
hér í Reykjavík og víðar um
landið.
ÁFENGIÐ SVIPTIR MENN
AÐGÁT
í riti þessu er bent á að lítill
skammtur af áfengi, svo lítill að
menn finni lítt eða alls ekki á
sér sem kallað er, getur svipt
menn svo miklum hluta af hæfm
þeirra til að aka bíl að þeír
verði hættulegir við stýrið. Það
sé hin æðri andlega starfsemi,
sem fyrst dragi úr við neyzlu á-
fengis, svo sem sjálfsgagnrýni,
siðgæðisvitund, aðgát og kæru-
semi. Einnig dragi fljótlega úr
hinum ósjálfráðu viðbrögðum
handa og fóta, sem öryggi öku-
mannsins er svo mjög undir kom
ið. Ölvaður maður telur sig oft-
ast til alls færan. ________
LEIKUR SÉR AÐ LÍFI SJÁLFS
SÍN OG ANNARRA
Þá segir einnig, að hver sá,
sem lætur sig henda að aka undir
áhrifum áfengis, sé með því stór-
hættulegur allri umferð, leiki sér
að lífi sjálfs sín cg annarra. Hann
drýgir stórt afbrot, enda þótt
ekki verði slys, þar sem hann hef
ur með því að aka „undir áhrif-
um“ stuðlað að því að svo gæti
orðið. — Stórslys og líftjón af
þessum orsökum eiga sér þvi
miður oft stað.
SAMVINNA VIO
LÖGREGLUNA
Bindindisfélag ökumanna mun
svo sem unnt er hafa samvinnu
við lögregluna og umferðaeftir-
litið yfirleitt með úrbætur á um-
ferðamálum hér á landi. Utaná-
skrift til félagsins er: Bindindis-
félag ökumanna, Eskihlíð 11,
Reykjavík.
NauSsyn kartöflu-
geymslu í Slykkish.
STYKKISHÓLMI 30. marz: — Á
síðasta fundi hreppsnefndar bar
Hinrik Jónsson sýslumaður fram
tillögu um það að hreppsnefndin
beitti sér fyrir að koma upp
geymslu í kauptúninu fyrir garð
ávexti, en á því hefur verið til-
finnanlegur skortur í Stykkis-
hólmi. Var tillagan samþykkt ein
róma. — Á. H.
Bretar flyija vörur
lil Rússlands
LUNDÚNUM 30. marz: — Brezki
viðskiptamálaráðherranna skýrði
frá því í neðri málstofunni í gær,
að brezka stjórnin hefði fallizt
á, að vélar yrðu fluttar til Rúss-
lands fyrir um 70 milljónir kr.
Hann sagði ennfremur frá því,
að fyrir lægju umsóknir um að
flytja vörur til Rússaveldis fyrir
um 1000 milljónir króna. —
Reuter-NTB.
— Minning
Framh. af bls. 11.
sanni tekið mér í munn vísuna
gömlu:
Fyrir handan hérvistar
harmi drifna móðu,
sé ég í anda sólfagrar
sælustrandir himneskar".
Og nú er hún einnig horfin
yfir móðuna miklu.
Ágúst Sigurmundsson.
BÆJARBÍÓ —
Sunnudagur í ágúst
ANNA BALDINI — FRANCO INTERLENGHI
Myndin hefur ekki verið sýnd áður hér á landi.
Danskur skýringartexti. — Sindrandi ítalskt sólskin.
Sýnd kl. 7 og 9. — Sími 9184.
ítölsk verðlaunamynd, sem gekk meira en heilt ár á
sama kvikmyndahúsinu í París.
B. T. gaf myndinni 4 stjörnur.
Heimdaffur
SpilakvöEd
í kvöid kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu.
Húsið opnað kl. 8.
Spiluð félagsvist.
Ræða: Valgarð Briem, lögfr.
Dans.
Aðgöngumiðar verða seldir í skrifstofu Heimdallar,
Vonarstræti 4, frá kl. 4—6,30 og við innganginn.
Spánskar BLÓÐAPPELSfl\iUR
Ódýrar — Ljúffengar — Safamiklar —
fást í næstu búð.
RAFGEYIHAR
6 og 12 volta.
Flestar stærðir fyrirliggjandi.
Rafgeymaverksmiðjan PÓLAR h. f.
Borgartúni 1 — Sími 81401
STJÓRNIN
Svikmyndafiœki
Bolex 16 mm tökuvél með 3 linsum og í leðuikassa,
Quick-sett, þrífótur, Weston ljósmælir, Bell & Howell,
16 mm. hljóð- og talsýningarvél með innbyggðum há-
talara. Screenmaster sýningartjald 52”—70” á þrífæti,
Brush míkrófónn, Craig Rewinders, Baia Wiewer, Gris-
wold Splicer og Multi-Flood ljósaútbúnaður til þess að
taka innimyndir.
Til sýnis hjá Jóni H. Björnssyni, Kjartansgötu 2, íkjall-
ara). — Til sölu aðeins ef viðunandi tilboð fæst í öll
tækin saman eða sitt í hvoru lagi
kAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAOAAAAA^áiiAAAAAAAAAAAAAi
MAKKt* 'SOit R* W
1) — Þegar ég kom út að hest- linsuna niður og hún síðan kveikt
3) — Ég vildi óska, að ég hefði. 4) Og hún kastar lisunni niður
húsinu, þá hlýt ég að hafa misst
í öllu saman.
aldrei séð þennan Sigga og Togga í djúpa tjörn.
og þessa bölvuðu linsuu. I . i
lii'