Morgunblaðið - 03.03.1957, Blaðsíða 1
r
16 síður og Lesbók
44. árgangur
52. tbl. — Sunnudagur 3. marz 1957
Prentsmiðja morgunblaðsins
Listkynning Mbl.
Jón Þorleifsson
ÞESSA viku verða myndir eftir
Jón Þorleifsson listmálara til
sýnis í sýningarglugga Morgun-
blaðsins. Hann er Austur-Skaft-
fellingur að ætt, sonur Þorleifs
alþingismanns í Hólum.
Jón Þorleifsson hóf ungur list-
nám og stundaði m.a. nám í Dan-
mörku og Frakklandi. Byrjaði
hann nám sitt í Kaupmannahöfn.
Hann hefur haldið málverkasýn-
ingar á Norðurlöndum, m.a. tekið
þátt í mörgum sýningum á Char-
lottenborg. Einnig hefur hann
haldið sjálfstæða sýningu í Kaup
mannahöfn.
Fyrstu sýningu sína hér í
Reykjavík hélt hann árið 1931.
Það ár hafði hann áður haldið
sýningar á Seyðisfirði, Akureyri
og ísafirði.
Síðan hefur hann haldið hér
fjölda sýninga.
Jón Þorleifsson hefur skrifað
mikið um myndlist. M. a. var
hann myndlistargagnrýnandi
Morgunblaðsins í mörg ár. Hann
er einn af þekktustu og mest
metnu listmálurum landsins.
Málverkin, sem eru til sýnls
í sýningarglugga Morgunblaðs-
ins eru þessi:
„Fjallið Þorbjörn", málað 1953,
„Frá Þingvöllum“, málað 1956 og
tvær blómamyndir málaðar sama
ár.
Öll þessi málverk eru til sölu
hjá listamanninum.
Heilsuverndarstöð Reykjavikur vígð
Norskir blaðamenn votta
Ungverjum somúð
ÓSLÓ: — Stjórn norska blaða-
mannafélagsins hélt á dögunum
fund — þar sem eftirfarandi sam-
þykkt var gerð: „Norskir blaða-
Vpprelsn
JAKARTA 3. marz. — Upp-
reisn hefur brotizt út í Austur
Indónesíu — og hefur her-
stjórnin í þessum hluta eyja-
sambandsins tekið stjórnina í
sínar hendur. Til Austur-Indó
nesiu teljast mörg hundruð
eyjar, en Celebes er stærst
þeirra.
Krefjast uppreisnarforingj-
arnir þess, að 70% af opin-
berum gjöldum íbúanna renni
beint til viðreisnar þar
á eyjunum, en 30% renni til
stjórnarinnar í Jakarta til ráð
stöfunar. Hingað til hafa um
96% af gjöldium íbúanna á
þessum eyjum runnið til stjórn
arinnar.
Fréttaritarar telja, að upp-
reisn þessi geti haft afdrifa-
rikar afleiðingar í stjórnmál-
um Indónesiu — og geti meira
að segja orðið til þess, að Sok-
arno endurskoði fyrirætlun
sína um að taka kommúnista
í stjórn.
MONACO, 2. marz: — Karolina,
prinsessa af Monaco, kom í dag í
fyrsta skipti opinberlega fram,
en á morgun mun hún verða
formlega skýrð við hátíðlega at-
höfn í dómkirkjunni í Monacö.
Um tvær þúsundir Monacobúa
voru viðstaddar auk fjölda er-
lendra blaðamanna og ljósmynd-
ara. Var Karolina sveipuð ullar-
klæði, og hélt móðir hennar á
henni. Borgarstjórinn 1 Monaco
bar fram heillaóskir. Mælti Raini-
er að lokum: Guð verndi land
okkar og barn okkar.
menn hafa með aðdáun fylgzt
með þáttöku ungverskra blaða-
manna í frelsisbaráttu þjóðarinn-
ar. Við höfum orðið vitni að
því, að nú verða hafnar á ný
ofsóknir gegn þeim blaðamönn-
um, sem krafizt hafa málfrelsis
og ritfrelsis — og það veldur
okkur djúpum áhyggjum. Stjórn
„Norsk Presseforbund“ mótmælir
harðlega kúgun þessari og beinir
þeim tilmælum til blaðamanna-
félaga annarra landa, að styðja
ungverska blaðamenn í baráttu
þeirra“.
Síðan ákvað stjórnin að veita
fé úr sjóði félagsins til Ung-
ver j alandshj álparinnar.
Stoinun hennai var sogulegur
viðburður í heilbrigðismólum
þjóðarinnar
í
GÆR FÓR fram vígsluathöfn Heilsuverndarstöðvar Reykja-
Barónsstíg saman kominn mikill fjöldi gesta auk yfirstjórnar stofn-
unarinnar, heilbrigðismálaráðherra og yfirmanna Reykjavíkur-
bæjar. — Athöfnin hófst með því að gestum öllum var boðið til
kaffidrykkju en því næst voru ræður fluttar og að síðustu gafst
þeim er vildu tækifæri til þess að skoða bygginguna og var
starfseminni lýst af forstöðumönnum stofnunarinnar.
Dr. Sigurður Sigurðsson, yfir-
læknir, formaður stjórnar stöðv-
arinnar stjórnaði þessari vígslu-
athöfn. Flutti hann langa og ýtar
lega ræðu, þar sem hann rakti
sögu stofnunarinnar og tildrög
þess, að þetta mikla og glæsilega
hús er risið af grunni og hefir
þegar starfað í nokkur ár, eða
sumar deildir hennar. Dr. Sig-
Frá vinstri: dr. Sigurður Sigurðsson yfirlæknir, Sigríður Eiriks-
dóttir hjúkrunarkona og Guimar Thoroddsen borgarstjóri.
Israelsmenn hika við heimfiuining hersins
Fundi Dayan og Burris frestað - Ben
Gurion bíður frekari skýringa
Jerúsalem og London, 2. marz.
4KVEÐIÐ hafði verið, að þeir Moshe Dayan, yfirhershöfðingi
fsraelshers, og Burns, yfirherforingi hers S. Þ., skyldu eiga
fund saman í dag til þess að ræða brottflutning ísraelshers frá
Gaza-svæðinu og egypzku landi við Akaba-flóa. Á seinustu
stundu var fundinum frestað að beiðni ísraelsmanna, en talið er,
að Ben Gurion eigi einhvem þátt í því.
Almennrar óánægju virðist
gæta í ísrael vegna þeirrar
ákvörðunar stjórnarinnar að
flytja herinn úr Egyptalandi án
þess að áreiðanleg trygging hafi
fengizt fyrir frjálsum siglingum
Israelsmanna um Súez-skurðinn
og Akaba-flóann.
Hefur stjórnin setið á nær
látlausum fundum síðan
ákvörðunin var tekin, en
flokkar stjórnarandstöðunnar
hafa boðað til mótmælafunda
um gervallt landið.
Talsmaour ísraelska utanríkis-
ráðuneytisins í Jerúsalem lét svo
um mælt í dag, að yfirlýsing sú,
er Lodge, fulltrúi Bandaríkjanna
hjá S. Þ., flutti í Allsherjar-
þinginu í gær — að lokinni ræðu
Goidu Meier, hefði hneykslað
ísraelsmenn. Engin fullyrðing
hefði falizt í yfirlýsingunni um,
að Bandaríkin og S. Þ. mundu
tryggja ísrael frjálsar siglingar.
Talsmaðurinn kvað stjórn-
ina bíða eftir frekari skýring-
lun á yfirlýsingu þessari frá I
Washington — og er senní-
legt, að dráttur sá, er verður
á viðræðum Dayan og Burns
stafi af því.
Þó er Lodge einnig fundið það
Framh. á bls. 15
urður bauð í upphafi ræðu sinnar
gesti alla velkomna. Kvað hann
alla aðalþætti heilsuverndarstarf
semi bæjarins nú komna í hin
nýju húsakynni. Því væri ástæða
til þess að fagna og þess vegna
væri efnt til þessa kaffiboðs.
Gerði dr. Sigurður síðan grein
fyrir tildrögum byggingarinnar
og lýsti henni í aðaldráttum,
stjórn hennar og starfsháttum.
Dr. Sigurður Sigurðsson rakti
síðan sögu líknarstarfsemi hér í
bænum og lét hugann reika 40
ár aftur í tímann til þess tíma,
er frú Christophine Bjarnhéðins-
son beitti sér fyrir stofnun Hjúkr
unarkvennafélagsins Líknar, sem
stofnsett var 1915. Fór hann mjög
lofsamlegum orðum um brautryðj
andastarf þessarar stofnunar. Þá
gat hann annarrar forustukonu
þessa félagsskapar, frú Sigríðar
Eiríksdóttur, er veitt hefur fé-
laginu forstöðu frá því 1931 og
þar til í janúar sl., en þá var
félagið leyst upp á þeim forsend-
um að stefnumál þess væri nú
framkvæmt og framtíðardraum-
ar þess rættir. Fór hann mörgum
þakkarorðum um baráttu og
brautryðjendastarf Líknar.
„ALDREI MAT HANN TIL
FJÁR LÆKNING SÍNA“
Þá sagði ræðumaður, að tæp-
lega hefði heilsufar þjóðarinnar
nokkru sinni staðið fastari fótum
en í dag. Þó væri enn að nægum
verkefnum að vinna.
Hann lauk ræðu sinni með þess
um orðum:
„Ef ég að lokum mætti velja
kjörorð þessarar stofnunar, þá
myndi ég taka þau úr sögu fyrsta
lærða læknis landsins, sem kunn-
ur er, Hrafns Sveinbjarnarsonar
frá Eyri í Arnarfirði, er tekinn
var af lífi árið 1213. Virðast mér
þau að ýmsu leyti vera einkenn-
andi fyrir þá heilsuverndarstarf-
semi, sem rekin hefir verið hér
undanfarið undir umsjá Hjúkr-
unarfélagsins Líknar, og lýst hef-
ur verið hér að framan. I sögu
Hrafns segir svo:
„Til einkis var honum svo títt,
hvorki til svefns né matar, ef
sjúkir menn kvámu á fund hans,
at eigi mundi hann þeim fyrst
nokkra miskunn veita, aldrei mat
hann til fjár lækning sína“.
Að sá andi, sem felst í þess-
um orðum megi ávallt fylgja
stofnuninni, er ósk mín og von“.
„HEILBRIGÐ SÁL í HEIL-
BRIGÐUM LÍKAMA“
Næstur tók Gunnar Thorodd-
Framh. á bls. 2.
Úr barnadeild Heilsuverndarstöövariiuiat
Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.