Morgunblaðið - 03.03.1957, Qupperneq 16
PforjpttMaMib
52. tbl. — Swnnudagur 3. marz 1957
Reykjavíkurbréf
er á bls. 9.
Einar Olgeirsson hoðar í Finn-
landi brottför varnarliBsins
Á að misbeita verkalýðsfélögunum
til oð gera Island varnarlaust ?
AÐALMÁLGAGN konimúnista
í Finnlandi biríi hinn 21.
febrúar viðtal við Emar Oígeirs-
son undir aðalfy- irsögninni:
„Herstöðvamálið tekið app að
nýju á íslandi“.
f viðtalinu gorir Einar grein
fyrir stjómmálaviðhorfi hér frá
sínu sjónarmiði. Um Hannibal
Valdemarsson segir Einar:
„Hann hefur með góðum ár-
Vegna ófærðar fór jarð-
arförin fram að næturlagi
SVO sem kunnugt er af fréttum blaða og útvarps, hefur ófærð
verið svo mikil í Borgarfirði undanfarið að nær því hefur
reynst ógjörningur að halda vegum opnum. Hafa af þessu skap-
ast margvíslegir erfiðleikar. Hinn 1. þ. m. átti að fara fram
útför Ásmundar Ólafssonar á Akranesi í Reykholti, en vegna
snj óþyngslanna og ófærðarinnar tók það um 14 klukkustundir
að flytja kistu hins látna frá Akranesi að Reykholti. Fór jarð-
arförin, sem var fjölmenn, fram um nóttina í myrkri. Frásögn
af þessari jarðarför símar fréttaritari Mbl. á Akranesi, Oddur
Sveinsson, og fer hún hér á eftir:
Það var erfitt og harðsótt fyr-
ir ættingja og venslafólk Ás-
mundar heit. Ólafssonar, að upp-
fylla ósk hans um að fá að hvíla
í Reykholti. En það tókst samt.
Að aflokinni húskveðju á Akra
nesi, var lagt héðan af stað um
kl. 11 í gærmorgun á langferða-
bíl. En svo var snjóþunginn mik-
Slasaður Breli
SÍÐDEGIS í gær kom á ytri
höfnina hér í Reykjavík brezkur
togari með slasaðan mann.
Togari þessi sem heitir „Lord
Hotham", er frá Hull. Hinn slas-
aði maður, sem er háseti á togar-
anum, hafði orðið undir „bobb-
ingum“, er verið var að taka
„trollið“ inn. Hafði hann slasazt
allmikið, hlotið opið beinbrot á
handlegg og eins var talið, að
brjóstkassinn hefði brotnað og
einnig hafði maðurinn marist
mikið á baki.
Maðurinn var fluttur í hafn-
arbáti frá skipi upp að bryggju
hér í höfninni, en þar stóð sjúkra
bíll, er flutti hinn slasaða mann
í sjúkrahús.
ill og færðin erfið, að er komið
var innarlega í Hafnarskóg,
brotnaði öxullinn i bílnum. Var
þá farið ofan að Grjóteyri og
hringt að Seljabrekku og bónd-
inn þar beðinn að útvega þrjá
jeppabíla frá Hvanneyri. Jepp-
arnir komu ekki til fólksins í
skóginum fyrr en kl. 4,30 um
daginn, því að ýtur þurfti til að
ryðja veginn á undan þeim frá
Hvanneyri.
Gekk nú vel að Hvárbakka-
skála. Þar var matast og var
fólkið nauðbeygt að vera þar um
kyrrt þangað til kl. 11 um kvöld-
ið. Allan tímann, sem beðið var,
voru ýtur að hreinsa veginn frá
Hvítárvöllum og fram fyrir
Varmalæk. Einnig fór Jón Þóris-
son í Reykholti með 10 manna
flokk og mokuðu þeir veginn nið
ur að Fossatúni. Svo geysimikill
var snjórinn, að snjóruðnings-
traðirnar voru víða yfir tvo
metra á hæð.
Upp að Reykholti var komið kl.
rúmlega eitt um nóttina. Á ann-
að hundrað manns beið við kirkj-
una og var Ásmundur heitinn
jarðsunginn þarna um nóttina af
séra Einari Guðnasyni.
Út á Akranes kom fólkið aftur
á sjötta tímanum í morgun.
/ dag hefst um allt land
„landsgangaiT á skíðum
1D A G hefst um land allt hin svonefnda „skíðal;.ndsganga“,
en það er eins konar próf á það hvort menn geti gengið 4
lur, á skíðum. Landsgangan er öllum opin, körlurn sem konum,
ungum sem gömlum. Það skiptir engu máli hve lengi menn eru
að ganga. Það er aðeins spurt, geturðu gengið 4 km. á skiðum?
LÚÐRABLÁSTUR OG
HÁTÍÐAHÖLD
Víðs vegar um land verður
landsgangan í dag opnuð með
viðhöfn. Á Akureyri verður at-
höfnin hvað mest. Þar situr stjórn
Skíðasambands íslands, sem hef-
ir hrundið þessu máli í framkv.
Þar hefst hátíðin með lúðra-
blæstri, og ýmsir fyrirmenn bæj-
arfélagsins munu fyrstir og sam-
an þreyta gönguna.
★ VIÐ SKÍÐASKÁLA
FÉLAGANNA. *
Á öðrum stöðum sjá skíðaráð
og stjórnir sérsambanda um fram
kvæmd göngunnar. f Reykjavík
hefst gangan einnig í dag og
verða starfsmenn landsgöngunn-
ar við alla skíðaskála í nágrenn-
inu, og er þess vænzt ef veður
verður gott, að Reykvíkingar
fjölmenni að skíðaskálanum og
þreyti gönguna, njóti þeirra dá-
semda, sem skíðaíþróttin býður
upp á um leið og þeir reyna hæfni
sína.
angri barizt gegn dýrtíðinni á
íslandi“.
Um Lúðvík Jósefsson tekur
Einar fram, að hann sé „einnig
mjög hæfur á sínu sviði“.
Þá segir:
„Um efnahags-ástand íslands
nefndi herra Olgeirsson, að
vegna aðgerða ríkisstjómar-
innar hafi verðbólgan stöðvazt
þangað til annað verði“ („tills
vidare“ í sænskri þýðingu).
Einnig tekur Einar fram, að „á
suðvestur íslandi hafi að sinni
ekki hafizt neitt atvinnuleysi“.
Hinu finnska kommúnista-
blaði þykir þó mest koma til þess,
sem Einar segir um vamarsamn-
inginn, en Einar fræðir félaga
sína um, að samningurinn sé hér
„hataður" og ílokkarnir þrír, sem
ákváðu uppsögn hans hafi irnnið
„mikinn kosningasigur". Þá
rekur Einar ástæður þess af
hverju uppsögninni hafi ekki ver-
ið fylgt eftir og segir ástæður
samstarfsflokkanna fyrir því
ekki fá staðizt. En Alþýðubanda-
lagið og ríkisstjórnarfulltrúar
þess hafi þó talið „með sam-
einingarflokk alþýðu og stjórn-
arsamstarfið í huga, rétt að bíða
og sjá þangað til ástandið skýr-
ist. Þessi raunsæja afstaða hef-
ur ákveðið stöðu Alþýðubanda-
lagsins í herstöðvamálinu. Verka-
lýðurinn mun taka málið upp
þegar vel stendur á til að koma
hinum amerísku hermönnum
burt“.
Nína sýnir
í París
NÍNA Tryggvadóttir hinn kunni
íslenzki abstrakt-málari hefur
opnað listsýningu með olíumál-
verkum og límmyndum í sýning-
arsölum Arnaud-listasafnsins í
París.
Sýningin var opnuð 28. febrú-
ar og mun standa fram til 13.
Sjómenn dæmdir í 159 þús.
kr. sekt fyrir smygl
IVETUR hefur verið dæmt í mjög mörgum smyglmálum í saka-
dómi Reykjavíkur. Fyrir helgina var enn dæmt í slíku máli.
Voru það nokkrir menn á Dettifossi, sem dæmdir voru í 159.000
króna sekt alls, fyrir áfengissmygl.
Við leit í skipinu fundust alls
454 flöskur á frönsku Burson
koníaki, sem skipsmenn höfðu
keypt er skipið lá í höfninni í
Boulogne. Einnig var tekinn í
skipinu radíógrammófónn, næl-
onsokkar og nokkurt magn af
leikföngum og fleiru.
Tollverðir gerðu mjög ýtar-
lega leit í skipinu og stóð hún
yfir í nokkra daga. Mun sjald-
an hafa verið gerð eins ná-
kvæm leit að áfengi í skipun-
um hér og sem dæmi má
nefna, að í frystirúmi skips-
ins létu tollverðirnir rífa upp
korkeinangrun og kom þá í
ljós, að þar undir höfðu verið
faldir nokkrir tugir af koni-
ak-flöskum og leikföng. Höfðu
eigendur áfengisins rifið ein-
angrunarkorkið í burtu, er
þeim datt í hug þessi felustað-
ur.
I sakadómi Reykjavíkur er nú
lokið máli þeirra manna er áfeng-
ið áttu. Voru þeir dæmdir alls í
159.000,00 króna sekt sem fyrr
segir. Vínið var gert upptækt til
ríkissjóðs, þ.e.a.s. að það fer í
ÁVR. Ekki er lokið málinu út af
grammófóninum og nokkrum
varningi öðrum.
DETTIFOSS AÐ VEÐI
Þegar um er að ræða jafnháar
fjársektir og hér er skip sett
að veði fyrir sektunum, og
svo var gert í þetta sinn og er
Dettifoss þannig að veði settur.
Undanfarna mánuði hefur ver-
ið dæmt í fjölda smyglmála og
nema fjársektir hundruðum þús-
unda kr. Skip er að veði fyrir
hinum hærri fjársektum, en
hæst þeirra sem einstaklingur hef
ur verið dæmdur í eru kr. 90.000.
Algengastar eru sektirnar 30—40
þúsund kr.
Ekkert
somkomulag
UM ÞESSA HELGI hefur
verkfall meðal hásta og að-
stoðarmanna í vélarúmi á
kaupskipaflotanum staðið í
tvær vikur.
í gærmorgun klukkan um
níu lauk í Alþingishúsinu enu
einum samningafundinum
sem sáttasemjari hélt með
deiluaðilum. Þrátt fyrir þenn-
an næturlanga fund mun ekki
hafa þokazt neitt meira í átt-
ina til lausnar.
í gærdag klukkan 5 síðd.
hófst svo samningafundur á
ný og stóð hann yfir þá er
blaðið fór í prentun.
*
Ikviknun
AKUREYRI, 2. marz: — Laust
fyrir klukkan fimm í morgun var
slökkviliðið kvatt að húsinu
Strandgötu 23. Hafði þar orðið
.vart við reyk. Var eldur laus í
geymslukompu í suðausturhorni
hússins. Eru þar geymdar vörur,
sem eru eign Herrabúðarinnar,
sem er á næstu hæð fyrir ofan.
Tókst að vinna bug á eldinum,
en allmiklar skemmdir urðu á
vörum og á herberginu, en auk
þess barst reykur upp í búðina
og munu skemmdir hafa oiðið
nokkrar af hans völdum. Málið
er í rannsókn. — Job.
Kol keypt f rá
Baridaríkjunum
HINGAÐ til Reykjavíkur kom í
gærdag þýzkt kolaflutningaskip,
með um 1100 tonn af kolum vest-
an frá Bandaríkjunum.
Þessi kolainnflutningiur að vest
an er þannig til kominn, að með
honum eru verðjöfnuð hin pólsku
kol, sem hingað eru keypt í vöru
skiptum, en eru allverulega dýr
ari en hin amerísku. Hafa inn-
flutningsyfirvöldin í þessu verð-
jöfnunarskyni heimilað innflutn-
ing á 4000 tonnum af kolum frá
Bandaríkjum og er þetta fyrsti
farmurinn af þessu magni.
Það er Kol & Salt, sem kaupir
kolin.
Varðariélögum sýnd kvikmyndin
„Félagi Napéleon“
I G Æ R efndi landsmálafélagið
Vörður til kvikmyndasýningar
fyrir félagsmenn og gesti í Nýja
Bíói. Var sýnd teiknimyndin „Fé-
lagi Napóleon“ eftir sögu Georges
Orwells. Sýningin var vel sótt og
vakti verðskuldaða athygli.
Áður en sýningin hófst ávarp-
aði Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son formaður Varðar sýningar-
gesti og bauð þá velkomna. Síð-
an flutti Guðmundur G. Hagalín
rithöfundur ræðu og skýrði mynd
ina og talaði um kommúnism-
ann. Var ræða hans kjarnmikil
og snjöll og lýsingar á efni og
anda kvikmyndarinnar litauðug-
Kvikmyndin gerist í heimi dýr-
anna á bóndabæ einum. Bóndinn,
harðjaxlinn og drykkjurúturinn
Jones, er rekinn frá völdum og
dýrin taka stjórnina í sínar eig-
in hendur. Svínin hljóta forystu-
hlutverk, en endirinn á stjórn
þeirra verður á sömu leið, lýkur í
sukki og svalli valdhafanna. Ný
uppreisn er gerð meðan blóð-
hundarnir liggja ofurölvi í valn-
um. Þessi skoplega áróðursmynd
gegn kommúnismanum er snjöll
hugvekja, sem erindi á til allra
hugsandi manna hins frjálsa
heims.
Minni afli
Eyjabáta
Vestmannaeyjum 2. marz. — Afli
flotans hér í dag var ekki nærri
eins góður og í gær. í kvöld kl.
8 er nokkrir bátar voru komnir
að landi var afli þeirra 5—13
tonn. Bátarnir voru yfirleitt með
langa línu 40—50 stampa með
glænýrri loðnu á hverjum krók.
Norðan hvassviðri var á miðun-
um. — Bj. G.