Morgunblaðið - 28.06.1964, Page 27
ÍJunnudagUr '28. Juní 1964
27
MORGUNBLAÐIÐ
Börnum þakkað
NOKK.UR börn í Hafnarfirði og
Heykjavík, hafa sýnt fágætt fram
tak til styrktar góðu málefni.
í Hafnarfirði tóku sig saman
3 telpur, 7—10 ára gamlar, og
efndu til tomíbólu. Ágóðann
færðu þær Styrktarfélagi vangef
inna að gjöf.
í bílskúr vestur á Kvisthaga í
Beykjavík efndi hópur barna til
skemmtisamkomu. Áður höfðu
þau ræst og málað bílskúrinn,
fengu síðan lánaða bekki og sitt-
hvað annað, sem þurfti til að
breyta honum í samkomuhús,
og héldu svo skemmtun þar sem
þau sáu sjálf um öll skemmtiat-
riði. Að visu hefur heyrzt, að
söngkona, sem átti að koma fram,
hafi brugðizt skyldu sinni, en
laun voru greidd fyrirfram. Þar
sem hún mun aðeins vera um
þriggja ára gömul, verður samn-
ingsrof henni vonandi ekki til
trafala síðar á ævinni. Er ekki
að orðlengja það, að ágóðinn af
skemmtisamkomunum færðu
börnin dagheimilinu Lyngási að
gjóf.
Lyngásheimilið og Styrktarfé-
lag vangefinna eru mjög þakklát
fyrir þessar gjafir og meta þær
hvað mest af þeim mörgu góðu
gjöfum, sem þeim hafa borizt.
Þær sýna, að börnin hafa hug-
leitt, að ekki eru öll börn svo
lánsöm að búa við óhefta, and-
lega þroskamöguleika, þau hafa
skilið, að það er göfug nauðsyn,
að hinir sterkari styðji Iþá, sem
minni eru.
Þessi þörn hafa þegar í
bernsku beitt kröftum sínum til
hjálpar þeim, sem alla ævi búa
við vanmátt bernskunnar, þeim,
sem hvern dag standa frammi
fyrir viðfangsefnum, sem eru
þeim um megn, sé þeim ekki
veitt vernd og hlífð.
Um leið og þessum elskulegu
börnum er þakkað, skulum við
gleðjast yfir því manndómsmerkx
sem framtak þeirra sýnir.
ílosemarie Þorleifsdóttir með krakka sem hún kenndi leikfi
Jni á hestum í reiðskóla hér í Reykjavik.
Ljósm. Mbl. Sv. Þ.
Heldur
áfram
í dag
Meistaramót Norður-
landa - í útihandknattleik
kvenna heldur áfram á Laug
ardagsvellinum kl. 8 í kvöld.
Fyrst leika Noregur og Sví-
þjóð, þá ísland og Finnland
og loks Danmörk og Sví-
þjóð. Dómarar í leikjunum
verða Knud Knudsen (D),
Björn Borgesen (N) og Karl
Jóhannsson (í).
Myndin hér að ofan er úr
leiknum mili íslands og Dan
rnerkur — og sýnir líf í tusk
unum. Díana Óskarsdóttir
hyggst skjóta, en er hindruð.
Á hinni myndinni sjást tvær
íslenzku stúlknanna hlaupa
biosandi út af vellinum að
ieik loknum.
Husfreyjan í Vestra Geldinga-
holti ætlar aö setja upp reiöskóla
ROSEMARIE Þorleifsdóttir,
hin nýja húsfreyja í Vestra-
Geldingaholti í Gnúpverja-
hreppi, var í kaupstaðaferð
á föstudaginn. Við hittum
hana á förnum vegi og fórum
að spyrja hana um búskapinn
og hvort hún væri alveg hætt
að kenna börnum að sitja
hest, en hún lærði sem kunn-
ugt í reiðskóla í Þýzkalandi
og kenndi reiðlist i 3 ár hjá
Fáki.
Rosemarie er gift Sigfúsi
Guðmundssyni, búfræðingi frá
Hvanneyri, og keyptu þau
Vestra-Geldingaholt í vor og
eru farin að búa þar. — Bú-
skapinn er á byrjunarstigi,
sagði Rosemarie. Við fengum
19 kýr með búinu, en ætlum
að bæta við bústofninn seinna
eftir því sem efni og ástæður
leyfa. Okkur langar til að eign
ast fé, en þetta verður nú
samt aðallega kúabú og eitt-
hvað af hrossum. íbúðarhúsið
er gamalt timburhús, en fjós
nýtt, ekki fullbyggt. Jörðin er
geysistór, þar af aðeins 20 ha.
ræktað, land, en miklir mögu-
leikar til ræktunar á þurru.
Þetta er yndislegur staður,
útsýni dásamlegt og stöðu-
vatn í túni með silungi í. Við
þekkju þetta bara svo lítið
ennþá.
— Svo þú unir þér vel
þarna. Hefurðu verið i sveit
áður?
— Já, mér þótti alltaf
gaman að vera í sveit, þegar
ég var krakki. Og mér er
sama þó ég þurfi að vera við
bústörfin inni við, bara af
ég get gengið út og veit af
dýrunum einshvers staðar ná
lægt. Sama hvaða skepna er,
þó hestarnir séu alltaf númer
1. Ég hefi líka alltaf hugsað
mér þannig fyrir með mína
hesta, að ég hafi þá í haga
nálægt mér og þurfi ekki að
flækja þeim til.
— Ekki ertu þá alveg hætt
við reiðmennskuna. Ætlarðu
ekki að kenna eitthvað?
— Það hafa margir spurt
mig að þessu og hvatt mig til
að gera það. Og nú ætla ég
að reyna að hafa tvö nám-
skeið fyrir krakka í sumar,
og vita hvort nægur áhugi er
fyrir hendi. Ég ætla einmitt
að byrja núna 6. júlí með
hálfsmánaðar námskeið fyiir
telpur, og hafa svo seinni
hluta júlímánaðar námskeið
fyrir stráka. Ég get tekið 12
börn í einu, svona frá 8 ára,
ef þau eru dugleg, og upp í
12 ára. Krakkarnir búa þá hjá
okkur þennan tíma og fá
fæði, húsnæði og hesta. Ég
verð alveg ú,ti við með þeim,
en hefi ráðskonu í bænum á
meðan. Ég hugsa mér að
kenna krökkum afí umgang-
ast hestinn, allt frá því að
leggja á hann og sitja hestinn
fyrst á staðnum, en síðan
fara í útreiðar, eftir því sem
getan leyfir. Svo ætla ég að
reyna að hafa eitthvað fræði-
legt með, hafa kvöldvökur,
þar sem sagðar eru hestasög-
ur og farið með kvæði, sýnd
kvikmynd um hesta, reynt að
fræða dálítið um hestinn,
bæði þann íslenzka og er-
lenda hesta og mismuninn á
þeim. Svo er ætlunin að
kenna leikfimi á hlaupandi
hesti, eins og ég hafði hjá
Fáki. Nú og láta krakkana
hafa dálítið fri til að fara í
leik um miðjan daginn, svo
blandað sá skemmtun og
fræðslu. Ég veit ekki hvort
áhugi verður fyrir þessu, eða
hvort fólki kann að finnast
þetta of dýrt. Ég reyna að
reikna allt á lágmarki, en
samt verða það 2800 kr. fyrir
námskeiðið.
— Ert þú kannski komin í
bæinn til að taka krakka á
námskeiðin?
— Nei, ég verð að fara
strax aftur austur til að sinna
búkonustörfunum segir Rose
marie og hlær við. En pabbi
og heimilisfólkið ætlar að
hjálpa mér að veita upplýsing
ar í símann heima, sem er
37470. Sjálfri Veitir mér ekki
af því að fara austur.
Fyrirlesari á
vegum Guðspeki
féla^sins
DAGINN fyrir þjóðhátíð okkar
kom til landsins góður skozkur
gestur, mr. Edward Gall að nafni.
Hann var fræðari á sumarskóla
Guðspekifélagsins, sem haldinn
var í Hlíðardalsskóla í Ölfusi
dagana 18. til 25. þ. m.
Flutti mr. Edward Gall fyrir-
lestra í skólanum og svaraði að
auki fyrirspurnum og má full-
yrða að skólagestum féll við
fxæðslu hans, en í skólanum
voru að staðaldri um 40 þátttak-
endur.
Mr. Edward Gall er, sem að
líkum lætur fróður vel um þau
fræði, sem guðspekinemum eru
hugleikin, hefur hann flutt
fjölda fyrirlestra og gefið út
bækur um þessi efni. Af bókum
hans mætti nefna t. d. Mysticism
Throughout the Ages (Dulspeki
aldanna og „The Mysteries of
Spxritual Ascent“ (Leyndardóm-
ur andlegrar framvindu).
Á Bretlandi er hann eftirsótt-
ur fyrirlesari og m. a. var hann
valinn til þess að flytja Blavatz-
kj’-fyrirlestur á ársþingi ensku
deildarinnar 1954 og fjallaði
hann um „Yoga og slöngueld-
inn‘ .
Mr. Gall heldur heimleiðis n.k.
þriðjudag, en hann hefur fallizt
a að flytja einn fyrirlestur fyrir
félaga og gesti áður en hann yfir-
gefur landið.
Þessi fyrirlestur verður flutt-
ur í húsi félagsins Ingólfsstræti
22 á sunnudagskvöld kl. 8%s.d.
(Frá Guðspekifélaginu)
Hrefna Karls-
dóttir
Kveðjum við þig Hrefna
hvílir nú þungur
skuggi, á okkar æfibrautum.
öllum varst þú ljúf
en einkum fundu
börn, ást þína og elsk'useúui.
Kveðjum við þig Hrefna
hvíslum við þögul
blessunar orð og baén fyrir þér
iifa munt þú áfram
í okkar hjörtum
sí ung, sí fögur
þó söknum við.
Sakna nú móðir
sakna nú faðir
þyngstur er þeirra ’iarmur.
Verður þó huggun og hugarfró
þungum harmi.
minningin góð
sem máist eigi.
O. J.