Morgunblaðið - 11.01.1966, Page 1
53. árgangur.
7. tbl. — Þriðjudagur 11. janúar 1966
Prentsmiðja Mnrgunblaðsins.
FRIÐARSAMNINGUR
IILLIINDLANDS
OG PAKISTAN
— samið uiri inörcf atriði
varðandi samskifti ríkjanna,
þétt líasmirdeiian sé enn óleyst
Tasjkent, 10. janúar.
_ AP — NTB —
’AYUB Khan, forseti Pakist-
an, og Lal Bahadur Shastri,
forsætisráðherra Indlands,
undirrituðu í dag samkomu-
iag, sem kveður svo á um, að
Jivorugt ríkið muni beita
vopnum gegn hinu. Er sam-
ikomulagið talið mjög þýðing-
®rmikið, en ráðamenn Sovét-
ríkjanna hafa staðið að mála-
miðlun þeirri, er til þess
leiddi.
Fundur Khans og Shastris
ihefur staðið í Tasjkent, í Sov-
étríkjunum, undanfarna daga,
og þótti í upphafi ekki senni-
legt, að neinn árangur myndi
riást. Forsætisráðherra Sovét-
ríkajnna, Aleksei Kosygin,
var viðstaddur, er samkomu-
Jagið var undirritað.
Helztu atriði, sem nú var sam-
Í8 um, eru eftirfarandi:
• Pakistan og Indland ákveða
Erbndu skák-
menitSrnir
í fjöltefli
1 KVÖLD, þriðjudag, munu er-
lendu skákmennirnir, Vassjukov
©g Wade, sem keppa hér sem
gestir á Reykjavikurskákmótinu,
tefla fjöltefii í Lídó, og hefst það
kl. 8.
að taka upp eðiileg samskipti, og
vinna að því að halda frið með
þeim 600 milljónum manna, sem
löndin byggja.
• Vísað er til skyldna ríkjanna.
samkvæmt sáttmóla Sameinuðu
þjóðanna, og því heitið, að valdi
verði ekki beitt til að leysa á-
greiningsmál.
• Herir beggja ríkjanna skulu,
fyrir 25. febrúar nk., hörfa til
þeirra staða, er þeir voru á 5.
ágúst sl., áður en átökin um
Kasmir hófust.
• Báðir aðilar heita því að
beita sér fyrir því, að ekki verði
haldið uppi fjandsamlegum á-
róðri. Hins vegar skuli reynt að
bæta samskipti þjóðanna með
vinsamlegum, sönnum ummæl-
um.
• Tekin verði upp stjórnmála-
samskipti milli ríkjanna.
• Skipti verði höfð á stríðs-
föngum.
• Eignir, sem gerðar hafa ver-
ið upptækar, verði afhentar fyrri
eigendum.
• Unnið verði að því, að menn-
ingar- og efnahagsviðskipti verði
tekin upp á breiðum grundvelli.
• Haldnir verði reglulegir
samningafundir, þar sem ágrein-
ingsmál ríkjanna verði rædd.
í viðræðum þeim, sem stað-
ið hafa, hefur þó ekki náðst
samkomulag um aðaldeilumál
Pakistans og Indlands, Kas-
mír. Auyb Khan heldur því
fram, að þar sé um grundvall-
arágreiningsmál að ræða, en
Shastri, að Kasmír sé óaðskilj-
aniegur hluti Indlands.
Óvíst er, hvernig viðræðum
ríkjanna tveggja um Kasmír
verður háttað framvegis.
Framhald á bls. 27
SHASTRIL
■l
IGÆRKVOLD
Tasjkent, 10. janúar.
— AP — NTB —
LAL Bahadur Shastri, for-
sætisráðherra Indlands,
lézt í Tasjkent, í Sovétríkj-
unum. í kvöld, af hjartabil-
un, að því er talið er. —
Shastri varð 62 ára. Hann
tók við embætti forsætis-
ráðherra, eftir lát Jawa-
harlal Nehrus, 1964.
Shastri hafði nýlokið við
að undirrita friðarsamn-
inga við Pakistan (sjá
frétt), er andlát hans bar
að höndum.
Shastri var, að því er
virtist, við beztu heilsu síð-
degis í dag, og kom fráfall
hans mjög á óvart, þótt
hann hafi átt við nokkra
vanheilsu að stríða,
skömmu eftir að hann tók
við embætti forsætisráð-
herra.
Skömmu eftir, að til-
kynnt var, að Shastri væri
látinn, var frá því skýrt í
Nýju-Delhi, að Gulzarilal
Nanda, innanríkisráðherra,
hefði tekið við embætti for
sætisráðherra, til bráða-
birgða. Sór hann embættis-
eið sinn í forsetahöllinni í
Nýju-Delhi, þegar í gær-
kvöldi. Nanda tók einnig
við embætti forsætisráð-
Framhald á bls. 27
Tasjkent: Þetta er ein síðasta myndin, sem tekin var af Shastri,
forsætisráðherra Indlands. Sést hann hér, ásamt Ayub Khan,
forseta Pakistan, koma af samningafundi. — AP.
Ottast stdrstyrjöld á
öllu meginlandi Asíu
— berí friðarsókn Bandaríkjanna í Vietnam
ekki árancfKjr
Washington, 10. janúar.
— AP — NTB —
FIMM bandarískir öldunga-
deildarþingmenn, sem nýlega
hafa heimsótt Vietmam, hafa
látið frá sér fara skýrslu, sem
mikla athygli hefur vakið
vestan hafs.
Þingmennirnir fimm, undir
íorystú Mike Mansfields, leið-
toga demókrata á þingi, halda
því fram, að styrjöldin í Viet-
nam muni leiða til . átaka á
gervöllu meginlandi Asíu,
verði ekki árangur af friðar-
sókn Bandaríkjamanna í Viet
nam nú. Hins vegar telja öld-
ungadeildarþingmennirnir litl
ar líkur til þess, að sóknin
muni leiða til þess, að friður
komist á.
Stjórnmálafréttaritarar vest
an haís segja, að skýrslan hafi
vakið mikinn óhug þar í landi.
Þá er á lofti óstaðfestur orð-
Framhald á bls. 27
Wyszinski fær
ekki fararleyfi
Varsjá, 10. jan. AP-NTB.
PÓLSKA stjórnin skýrði
frá því í dag, að hún hefði
neitað Stefan Wyszinski,
kardinála, um leyfi til að fara
úr landi. Hann hefði fyrr gert
sig sekan um afskipti af stjórn
málum, og kynni að gera það
aftur.
Kardínálinn hafði í huga
að heimsækja Pál páfa VI. í
Páfagarði.
Haft er eftir áreiðanlegom
heimildum, að þessi neitun
pólsku stjórnarinnar muni
leiða til þess, að Páll páfi
muni hætta við lieimsókn þá
til Póllands, sem fyrirhuguð
var í maí. Þá verður þess
minnzt, að 1000 ár eru liðin frá
því, að kristni var lögtekih í
Póllandi.
í tilkynningu þeirri, sem
birt var í dag, segir, að pólska
stjórnin hafi ákveðið að neita
Wyszinski nm ferðaleyfi, þar
eð það myndi brjóta í bága
við lög, sem gilda um fólk,
sem vinnur gegn hagsmumim
pólska rikisins".
Blaðið „Zycie Warszawy“
segir í dag, að menn verði að
hafa í huga, í þessu sambandi
Framhaltl á bls. 27
»