Morgunblaðið - 09.03.1974, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.03.1974, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1974 Ingólfur Jónsson: Efna verður til kosninga, svo að sterk ríkis- stjórn geti tekið til við að leysa efnahagsvandann í gær lauk í neðri deild fyrstu umræðu um frumvarp rfkis- stjórnarinnar um skattkerfis- breytingu. í ræðu, sem Ingólfur Jónsson (S) hélt við umræðuna, lagði hann áherzlu á nauðsyn þess, að efnt yrði hið bráðasta til nýrra kosninga, þannig að ný ríkis- stjórn með ríflegan meirihluta þingmanna á bak við sig gæti hafizt handa um að fást við þann gífurlega vanda, sem nú blasir við í efnahagsmálunum. Sú ríkis- stjórn, sem nú sæti, væri gjörsam- lega rúin öllu trausti, enda sæti hún aðgerðalaus, þegar slíkur vandi steðjaði að þjóðarbúinu sem nú. Lárus Jónsson (S) færði rök að því í ræðu, sem hann hélt, að raunverulega fæli skattafrum- varpið ekki í sér 2,7 milljarða tekjuskattalækkun, eins og rfkis- stjórnin vildi halda fram, heldur 1 milljarði minna eða 1,7 millj- arða lækkun. Stafaði þetta af því, að fjármálaráðherra hefði ákveð- ið skattvfsitöluna í fjárlögunum 154 stig í stað 166 stiga, eins og eðlilegt hefði verið miðað við meðaltalshækkun launa milli ár- anna 1972 og 1973. Fyrsti ræðumaður á fundinum í gær var Bjarni Guðnason (Ff), og' gerði hann nýgerða kjarasamn- inga og efnahagsmálin i heild að umtalsefni. Sagði hann, að strax áður en blekið hefði verið þornað í undirskriftunum undir kjara- samningana hefðu skollið yfir verðhækkanir á landbúnaðaraf- urðum og ýmsum öðrum vöruteg- undum, sem þúrrkað hefðu út margra mánaða baráttu launþega fyrir bættum kjörum. Þá rakti Bjarni, hvernig kaupmáttur launa ákveðins Dagsbrúnartaxta hefði breytzt miðað við land- búnaðarafurðir frá 14. júlí 1971, er ríkisstjórnin tók við, og fram til dagsins í dag. Setti hann kaup- máttinn í 100 stig 14. júlí 1971 og rakti síðan verðbreytingar á ákveðnum vörutegundum og hver kaupmátturinn væri nú miðað við þær. Eftirfarandi kom m.a. fram hjá þingmanninum: •3 C !C > 2 Mjólk(ll) 12,60 32,60 Skyr(lkg) 27,30 73,00 Rjómi(ll) 119,20 266,00 Smjör (1 kg) 130,00 464,00 Ostur (45%) 122,00 313,00 Kart.(ókg) 50,00 182,00 ‘Ctf E Q. 3 cs X. 83.2 80,5 96,4 60.3 83,9 59,1 og alls staðar var kaupmátturinn innan við 100 eða minni nú en 14. júlí 1971, þegar- ríkisstjórnin tók við. Sagði Bjarni þetta ömurlegan lestur. Þá taldi þingmaðurinn fram ýmis dæmi þess, að ríkisstjórnin hefði svikið málefnasamninginn. Væri ljóst, að ásakanir stjórnar- sinna í sinn garð um að hafa svik- ið ríkisstjórnina hefðu ekki við rök að styðjast. Það væri ríkis- stjórnin, sem hefði svikið mál- efnasamninginn. ,,Ég tek ekki þátt í svona hringavitleysu," sagði Bjarni Guðnason. Síðar í ræðu sinni staðfesti hann ummæli sín í Morgunblað- inu í gær um, að hann myndi ekki styðja þá söluskattshækkun, sem í frumvarpi ríkisstjórnarinnar fæl- ist. Lárus Jónsson kvað frumvarp stjórnarinnar hafa nokkra kosti, en þó meiri galla. Kostirnir væru tveir: I fyrsta lagi sá, að launþega- samtökin í landinu hefðu knúið ríkisstjórnina til að breyta stefnu sinni í skattamálunum og fara út í neyzluskatta í stað beinna skatta, þó að hér væri gert ráð fyrir allt of háum neyzlusköttum. 1 annan stað væri hér hreyft hugmynd um skattafsláttarkerfi, þó að ákvæði frumvarpsins þar um væru mjög gölluð. Til dæmis mætti taka, að ekki væri gert ráð fyrir að taka upp staðgreiðslukerfi á sköttum svo sem jafnhliða væri nauðsyn- legt. Þá væru heldur ekki teknar inn í myndina fjölskyldubætur og ýmsar tryggingabætur, eins og gert væri ráð fyrir í hugmyndum um slikt afsláttarkerfi. Megingallinn á frumvarpinu og það, sem þyngst vægi, væri, að gengið væri allt of skammt í lækk- un tekjuskattanna. Þá rakti hann, að tekjuskattslækkunin í frum- varpinu væri 1 milljarð lægri en í útreikningum rikisstjórnarinnar kæmi fram. Það væri vegna þess skollaleiks, sem fjármálaráðherra léki með skattvísitöluna. Hefði hann ákveðið í fjárlögunum, að vísitalan skyldi verða 154 stig í stað 166, eins og í minnsta lagi hefði verið verjandi miðað við hækkun launa milli áranna 1972 og 1973. Sú hækkun væri a.m.k. 30% í stað 25—26%, eins og gert væri ráð fyrir í fjárlögunum. Ef miðað hefði verið við rétta vísi- tölu hefði persónufrádráttur orð- ið heldur hærri skv. núgildandi skattalögum en gert væri ráð fyrir að hann yrðí í þessu frum- varpi ríkisstjórnarinnar. Því væri tekjutap rfkissjóðs vegna tekju- skattslækkunar ekki 2,7 millj- arðar heldur 1,7 milljarðar. Þá sagði hann, að í frumvarp- inu væri stefnt að miklu meiri hækkun óbeinna skatta en ríkis- stjórnin vildi halda fram, og ef tekjuáætlun fjárlaganna yrði leið- rétt miðað við forsendur eins og þær væru nú, myndu tekjur árs- ins hækka um 3.000 milljónir kr. Þeim mun til viðbótar, sem i þessu kæmi fram, ætlaði ríkis- stjórnin sér að innheimta 5% söluskatt og um 600 milljónir í launaskatti. Ingólfur Jónsson sagði, að ekki væri sæmandi aðferð sú, sem ríkisstjórnin viðhefði við þetta mál, þegar hún segði, að engar skattalækkanir yrðu samþykktar nema frumvarpið í heild yrði sam- þykkt. Þó væri vart hætta á, að ríkisstjórnin stæði við þessi stóru orð. Hefði fjármálaráðherra vafa- laust létt í gær, þegar Gylfi Þ. Gíslason lýsti þvi yfir, þó ekki bindandi, að Alþýðuflokkurinn myndi styðja 3V4% söluskatts- hækkun. En Gylfi ætti, eins og aðrir rétt á að endurskoða sina afstöðu, þegar málið lægi ljósar fyrir. Ingólfur sagði, að í fjárlögum yfirstandandi árs hefði kaup- hækkun milli áranna 1972 og 1973 verið áætluð 26%. Raunveruleg hækkun myndi þó hafa verið 32% eða 23% meira en áætlað hefði verið. í tekjuskatti gæfi þetta um 1.335 milljónir umfram áætlun fjárlaganna. Þegar einnig væru taldar aðrar hækkanir frá fjár- lagaáætluninni, svo sem fyrirsjá- anleg aukning innflutnings, hækkun á tekjum hvers sölu- skattsstigs, hækkun á launaskatti vegna rangrar áætlunar um tekju- aukningu á milli ára, innflutn- ingsgjald og söluskattur af ben- síni vegna verðhækkana á því, léti nærri, að þessar hækkanir yrðu samtals 5.150 milljónir króna. Með þeirri 5%-stiga hækkun á söluskatti, sem hér væri gert ráð fyrir, bættust 4.000 milljónir við, svo að tekjuaukn- ingin yrði 9.150 milljónir á árs- grundvelli. En ríkissjóður yrði einnig fyrir auknum útgjöldum umfram það, sem áætlað væri í fjárlögunum, vegna hinnar miklu verðbólgu, auk þeirrar skattkerfisbreyt- ingar, sem fyrirhugað væri að lög- festa. Mætti ætla, að gjöldin ykjust um 6.550 milljónir kr. Yrði þá hækkun tekna umfram gjöldin 2.600 milljónir. í tekjuáætlun frumvarpsins væri gert ráð fyrir 5% söluskatti, sem gæfi 4.000 milljónir á ársgrundvelli, eins og áður sagði. Tekjur umfram gjöld í áætluninni hefðu verið, eins og áður væri fram komið, 2.600 millj- ónir. Þá upphæð mætti draga frá 4.000 milljónunum. Mismunurinn yrði þá kr. 1.400 milljónir, eða tæplega sú upphæð, sem 2% sölu- skattur myndi gefa. Væri því nægilegt að samþykkja 2% sölu- skattshækkun til að ná þeim tekj- um, sem þyrfti vegna breytinga á skattkerfinu, væri miðað við frumvarpið. Kæmi þó vissulega til álita, hvort nauðsynlegt væri að samþykkja nokkra söluskatts- hækkun og hvort ekki væri eðli- legra nú í verðbólgunni að lækka útgjöld ríkissjóðs og draga úr eyðslu. Þingmaðurinn vék nú almennt að þróun efnahagsmálanna og sagði, að flestar greinar atvinnu- veganna ættu nú í vök að verjast vegna verðbólgunnar. Söluskatts- hækkun færi beint út í verðlagið og kynti undir verðbólgunni. Ríkissstjórnin sæti aðgerðalaus og horfði á, hvernig efnahagsmál- in færu úr skorðum og atvinnu- vegunum væri ógnað í verðbólgu- flóðinu. Þessi ríkisstjórn væri rúin öllu trausti og nauðsynlegt að efna til kosninga til að unnt yrði að mynda ríkisstjórn, sem styddist við ríflegan meirihluta í þinginu og væri fær um að takast á við hinn gífurlega vanda, sem að steðjaði. Fleiri tóku ekki til máls og var frumvarpinu vísað til 2. umræðu og fjárhags- og viðskiptanefndar. Pálmi Jónsson: FRAMLOG TIL BYGGINGAR ÍBÚÐARHÚSA OG GRÓÐUR- HÚSA HÆKKI UM 66,7% PÁLMI Jónsson (S) mælti sl. mánudag fyrir frumvarpi til breyfinga á iögum um stofnlána- deild landbúnaðarins, sem hann flytur ásamt tveimur öðrum þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins, þeim Friðjóni Þórðarsyni og Gunnari Gíslasyni. Er þar gert Stjórnarflokkarnir deila um Framkvæmdastofnun I GÆR voru lögð fram í neðri deild þingsins nefndarálit frá fjárhags- og viðskiptanefnd deildarinnar um frumvarp til laga um Framkvæmdastofnun ríkisins, en í frumvarpi þessu lagði ríkisstjórnin til, að hag- rannsóknadeild yrði klofin út úr Framkvæmdastofnuninni og stofnuð sérstök hagrannsókna- stofnun. Nefndin skiptist í afstöðu sinni til frumvarpsins og voru í gær lögð fram nefndarálit 1. og 2. minnihluta nefndarinnar. 1. minnihlutann skipa stjórnar- þingmennirnir Vilhjálmur Hjálmarsson (F) og Þórarinn Þórarinsson (F) ásamtGylfa Þ. Gíslasyni (A), og leggja þessir þingmenn til, að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. 2. minnihlutann skipa stjórn- arþingmennirnir Gils Guð- mundsson (Ab) og Karvel Pálmason (SFV) og eru þeir andvígir því, að stofnuð verði sérstök Hagrannsóknastofnun. 3. minnihlutann munu svo skipa fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins í nefndinni, þeir Matthfas Á. Mathiesen og Ásberg Sigurðsson, en þeir hafa ekki lagt fram álit sitt ennþá. Það er því greinilegt, að hér er kominn upp ágreiningur milli Framsóknarflokksins annars vegar og hinna stuðn- ingsflokka ríkisstjórnarinnar hins vegar um framtfð Fram- kvæmdastofnunarinnar. Engu að síður var frumvarpið lagt fram á sínum tíma sem stjórnarfrumvarp. Gils og Karvei leggja til. að frumvarp- inu verði vísað til ríkisstjórnar- innar og segja svo í nefndar- áliti sfnu: Þegar lög nr. 93/1971 um Framkvæmdastofnun ríkisins voru sett, voru með þeirri lög- gjöf sameinaðar þrjár stofn- anir: Efnahagsstofnunin, Fram kvæmdasjóður íslands og At- vinnujöfnunarsjóður, sem þá fékk nafnið Byggðasjóður. Ein af meginröksemdum fyrir setningií laga nr. 93/1971 var einmitt þessi sameining framangreindra stofnana, það hagræði, sem af sameiningunni leiddi, og þó einkum þau stór- bættu vinnubrögð, sem samein- ingin gæti haft í för með sér, þar sem sérfræðingar á sviði hagrannsókna, áætlanagerðar og fjármagnsráðstafana gætu nú unnið sameiginlega innan einnar stofnunar undir einni stjórn að þessum verkefnum, í stað þess að vera sambandslitlir hver í sínu horni. Sá stutti tími, sem liðinn er síðan Framkvæmdastofnun var komið á fót, hefur að flestra dómi sannað réttmæti þess, að löggjöf um hana var sett á þann veg, sem gert var. Hins vegar heíur ekkert að höndum borið, sem bendir til þess, að æskilegt sé að kljúfa stofunina í tvennt, hvað þá að þar sé um brýna nauðsyn að ræða. ráð fyrir, að framlög Landnáms ríkisins til nýbygginga og endur- byggingar á íbúðarhúsum á lög- býlisjörðum utan þéttbýlis hækki úr 120 þúsund kr. í allt að 200 þúsund krónur. Ennfremur að framlög til bygginga gróðurhúsa á garðyrkjubýlum verði hækkuð úr 120 krónum á fermetra í 200 krónur. Pálmi sagði, að þrjú ár væru nú liðin síðan framlag til byggingar íbúðarhúsa í sveitum var hækkað síðast, en á þessu tímabili hefði verðbólgan verið mun meiri en áður hefði þekkzt. Byggingar- kostnaður hefði og vaxið hraðar en flestar aðrar verðbreytingar. Því væri nauðsyn á því nú að færa Pálmi Jónsson alþm. þetta í eðlilegt horf, ef ekki ætti að hverfa frá þeirri stefnu að einskis virði að skömmum tíma styrkja skuli þessar framkvæmd- iignum lr- Með frumvarpi þessu væri gert Með frumvarpi þessu væri lagt til, að íbúðarhúsaframlagið og framlög til byggingar gróðurhúsa hækkuðu um 66.7%, sem væri nokkru minna en hækkun bygg- ingarvísitölunnar. Flutnings- menn þessa frumv.arps teldu eðli- legt og nauðsynlegt að vinna þann mun upp með hækkuðum lánveit- ingum. 1 nýframlögðum frumvörpum rfkisstjórnarinnar, þar sem gert væri ráð fyrir að leggja Landnám ríkisins niður, kæmi í ljós, að þar væri gert ráð fyrir, að umræddar upphæðir ættu að vera óbreyttar frá því, sem ákveðið var 1971. Yrði þannig ekki annað séð en það væri ætlun núverandi ríkis- stjórnar að láta þessi framlög ét- ast upp í eldi verðbólgunnar, því að sýnt væri, að þau yrðu lítilseða ráð fyrir hækkun í samræmi við þær hækkanir, sem urðu á tíma Viðreisnarstjórnarinnar á árun- um 1962—1971. Friðjón Þórðarson (S) sagði, að samkvæmt hinum nýútkomnu stjórnarfrumvörpum um stofn- lánadeildina og jarðræktarlögin virtist því vera slegið föstu, að þessir styrkir færu aldrei fram úr því, sem ákveðið hefði verið 1971. Þá átaldi þingmaðurinn ríkis- stjórnina fyrir þau vinnubrögð, sem notuð hefðu verið við fram- lagningu þessara nýju frumvarpa. Þar væri f einu frumvarpinu vísað f hitt, þ.e.a.s. aðeins væri vitnað f frumvörp, sem væru á umræðustigi. Þannig ætti að þræla því í gegn að leggja Land- nám ríkisins i rústir og dreifa verkefnum þess í allar áttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.