Morgunblaðið - 09.03.1974, Page 31

Morgunblaðið - 09.03.1974, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9, MARZ 1974 31 Sigrar Valur KR? Fjórir leikir í 1. deild ÞAÐ verður enn ein „stórhelgin" í körfuboltanum um þessa helgi. Alls verða leiknir fjórir leikir í 1. deild, og tveir leikir í 2. deild. Auk þess heldur Bikarkeppnin áfram, og í henni veröur leikið á mánudagskvöld. Fyrsti leikurinn i 1. deild um helgina er i Njarðvfk i dag, og hefst kl. 14. Þá leika heimamenn við Borgarnes. Njarðvíkingar eru með sterkara lið, en UMFS virðist vera að rétta úr kútnum, ef dæma má eftir leik liðsins við KR um fyrri helgi. Kl. 16 í dag leika ÍR og HSK á Seltjarnarnesi. Fyrri leik liðaiina lauk með tveggja stiga sigri ÍR, svo HSK menn eiga harma að hefna i dag. Að vísu er ÍR-liðið sterkara nú en þá, en þess má einnig geta að HSK tapaði eftir framlengdan leik gegn Ármanni um síðustu helgi. Síðan leika KR og ÍS. í fyrri leik liðanna sigraði KR með 10 stiga mun, en IS liðið er í mikilli framför þessa dagana, á sama tíma og KR hefur sýnt misjafna leiki. Að þessum leikj- um loknum leika Snæfell og UMFG í 2. deild. Staðan 1 körfuknattleik KR 8 7 1 724:601 14 Valur 9 7 2 814:707 14 Ármann 9 7 2 814:704 14 IR 8 6 2 737:639 12 UMFN 8 3 5 620:650 6 IS 7 2 5 557:605 4 HSK 8 1 7 585:667 2 UMFS 9 0 9 575:777 0 Stighæstir: Þórir Magnússon, Val 234 Kolbeinn Pálsson, KR 199 Kristinn Jörundsson, ÍR 186 Gunnar Þorvarðarson, UMFN 182 Jón Sigurðsson, Ármann 178 Bragi Jónsson, UMF’S 172 Bragi Gunnar, IS 166 Birkir Þorkelsson, HSK 155 Kolbeinn Kristinsson, IR 153 Þröstur G uðmundsson, IISK 142 Jóhannes Magnússon, Val 137 Kári Marísson, Val 132 Villur dæmdar á lið: IS 145. UMFN 171. IR 172. HSK 178. KR 187. UMFS 195. Valur 223. Ármann 240. Brottvísun af velli: UMFN 5. IS 7. IR 8. HSK 9. UMFS 11. KR 11. Ármann 12. Valur 12. gk. Á Seltjarnarnesi á morgun hefst keppnin kl. 18 með leik Snæfells og UMK i 2. deild, en síðan er komið að stórleik helgar- innar, leik KR og Vals í t. deild. — Valsmenn eiga nú i fyrsta skipti möguleika á að vinna sigur í 1. deild, en til þess að svo megi verða þurfa þeir að leggja KR á ÞÓTT engir leikir verði í 1. deild- ar keppni Islandsmótsins í hand- knattleik um þessa helgi verður leikið frá morgni til kvölds bæði I Hafnarfirði og í Laugardalshöll- inni. Er þar um að ræða leiki f yngri flokkunum, en nú er farið að síga á seinni hluta keppni þeirra vngri. Um helgina fara einnig fram úrslitaleikirnir í 3. deildar keppn- inni og eigast þar við Stjarnan úr Garðahreppi og Þróttur frá Nes- kaupstað. Seinni leikurinn verður í Hafnarfirði ásunnudag. Aðrir meistaraflokksleikir, sem fram fara um helgina, eru eftir- taldir. I 1. deildar keppni kvenna leika Víkingur — KR, Armann-Valur og Fram — FH í Laugardalshöll- inni á morgun. Má þarna búast við skemmtilegum leikjum, eink- um leik Ármanns og Vals, en þann leikþurfa Valsstúlkurnarað vinna til þess að eiga möguleika á að halda titli sinum. Þá kynni einnig svo að fara að jöfn viður- eign yrði milli Fram og FH, en FH-stúlkurnar hafa komið nokk- Sundmót í Keflavík BOÐAÐ hafði verið til sundmóts Keflavíkur 10. marz, en af óvið- ráðanlegum orsökum varð að fresta mótinu og er ákveðið, að það fari fram 17. marz n.k. Keppnisgreinar á sundmötinu, sem er öllu sundfólki opið til keppni, verða eftir taldar: 100 metra bringusund drengja (16 ára og yngri), 100 metra skrið- sund kvcnna, 50 metra bringu- sund stúlkna (14 ára og yngri), 100 metra skriðsund karja, 50 metra bringusund telpna (12 ára og yngri), 50 metra skriðsund drengja (14 ára og yngri), 50 metra bringusund drengja (12 ára og yngri), fjórboðsund drengja (14 ára og yngri), 100 metra bringusund kvenna og 100 metra bringusund karla. Þátt- tökutilkynningar þurfa að berast i síma 2842 í Keflavik. morgun. Liðið var mjög gott í leiknum gegn UMFN um s.l. helgi, og með leik svipuðum þeim ættu þeir að hafa möguleika gegn ,,Vesturbæjarljónunum“ sem enn hafa forustu í deildinni og hyggj- ast ekki láta hana af hendi. Það verður eflaust enginn svikinn af uð á óvart með góðri frammlstöðu sinni i mótinu til þessa. Um næstu helgi hefst svo 1. deildar keppnin í karlaflokki að nýju og leika þá Valur og Þór nyrðra. Hljóm- skálahlaup Á MANUDAGSKVÖLDIÐ verður Bikarkeppni Körfuknattleikssam- bandsins fram haldið og þá leikn- ir lokaleikirnir í 1. umferð. Fyrri leikurinn er milli KR og Fram. Þessi lið hafa aldrei keppt saman í m fl. áður, og varla þarf að fjölyrða um úrslit þessa leiks. Hinir ungu leikmenn Fram sem eru á góðri leið með að sigra í 3. deild verða að berjast af alefli til að forðast stórtap. Síðan er leikur ÍR og IS, aðal- leikur 1. umferðarinnar. Sfðast þegar þessi lið mættust, en það var i íslandsmótinu á dög- unum, þá sigraði ÍS, og því ættu þeir ekki að geta gert það aftur i kvöld? Það má bdast við hörku- leik. Keppnin verður í Laugardals- höllinni, og hefst kl. 20. ÍR — ÍS í bikarnum IR-INGAR hafa ákveðið að gera fjórðu tilraunina til að halda sitt þriðja Hljómskálahlaup á þessum vetri, en hingað til hefur slæmt veður og færð hindrað að keppni þessi gæti farið fram. Áformað er að hlaupið fari fram n.k. sunnu- dag kl. 14.00 og hefst það að venju við Hljómskálann. Keppendur eru hvattir til að mæta stundvís- lega til skráningar og númeraút- hlutunar. að sjá þessa viðureign. gk. Handknattleikur: Kvenfólkið keppir og úrslit í 3. deild Landsflokkaglíman LANDSFLOKKAGLlMAN 1974 verður háð laugardaginn 30. marz n.k. i Iþróttahúsi Vogaskólans í Reykjavík og hefst kl. 14.00. Glímt verður i þremur þyngdar- flokkum fullorðinna og auk þess í Vörðu titil sinn RODNINA og Aleksander Saitzev frá Sovétrikjunum urðu heims- meistarar i listhlaupi á skautum, sem fram fór í Munchen nýlega. Þau urðu einnig heimsmeistarar siðast, þegar keppt var um þenn- an titil. unglinga-, drengja- og sveina- flokki. I flokkt fullorðinna verður skiptingin þannig: 1. þyngdarflokkur yfir 84 kg. 2. þyngdarflokkur 75—84 kg. 3. þyngdarflokkur undir 75 kg. I sveinaflokki er aldurinn 14—15 ára, í drengjaflokki 16—17 ára og í unglingaflokki 18—19 ára. Ákveðið er að landsflokkaglim- unni verði sjónvarpað af mynd- segulbandi. Þátttökutilkynningar þurfa að berast mótanefnd GLI, i pósthólf 997, fyrir 17. marz n.k., með ná- kvæmum upplýsingum um aldur ogþyngd keppenda. Grótta bætti stöðu sína GRÖTTA bætti enn stöðu sina í 2. deildar keppni Islandsmótsins i handknattleik i fyrrakvöld, en þá fór liðið norður á Akureyri til keppni við KA. Var þessi viður- eign hin skemmtilegasta, en henni lauk með sigri Gróttu 29—25 eftir að staðan hafði verið 16—14 f.vrir KA í halfleik. Það var einkum góður leikkafli Gróttu í upphafi seinni hálfleiks, sem skipti sköpum í leiknum. Nánar verður sagt frá þessari viðureign toppliðanna i deildinni síðar. Pierre Vogel og Natacha kona hans. Svissneskur mál- ari sýnir í Rvík Kári Eiríksson sýnir í Genf UNDANFARNA daga hefur staðið yfir sýning á verkum svissneska listmálarans Pierre Vogel í sýningarsal að Skipholti 37. Er þar sýnt 21 verk, 10 olíumálverk og 11 teikningar. Sýningin er opin fram til sunnudagskvölds. Pierre Vogel er 35 ára að aídri. A yngri árum var hann mikið í ferðalögum, m.a. i far- mennsku, en tvítugur að aldri ákvað hann að helga sig málara- listinni. Framan af voru litir og form steinaríkisins honum mjög hugstæð viðfangsefni, en nú er raunveruleikinn honum tilefni til myndgerðar, en með frjálsri túlkun, eins og Natacha, eiginkona málarans orðaði það, en hún var túlkur i samræðum Pierre og blaða- manns Mbl. Pierre er fyrst og fremst list- málari, en hefur mjög gaman af að fást við að búa til alls kyns hluti — til að fá nánari skilning á formi þeirra — og svo eins til að hafa gagn af þeini. Meðal nýjustu hlutanna, sem Pierre hefur þannig gert, er filmu- framköllunarvél og sítar að ind- verskum hætti. Er Pierre áhugamaður um sitartónlist og þekkir persónulega sjálfan Ravi Shankar, kunnasta sitar- leikara heims. Pierre Vogel hefur haldið hátt í 20 einkasýningar og tekið þátt í álíka mörgum samsýning- um. Auk margra sýninga í S viss hefur hann verið með sýningar i Þýzkalandi, Austurríki, Frakklandi, á Norðurlöndum og í Suður-Ameriku. Sýning hans hér á landi er þannig til komin, að forstjóri sýningar- salarins „Atríum Artis" i Gefnf ætlar að efna til sýningar á verkum Kára Eiríkissonar i haust, en í staðinn sá Kári um að koma upp sýningu Pierre Vogels hér á landi. Pierre og Natacha komu hingað til lands á föstudag i síðustu viku og opnuðu sýning- una um helgina, en héldu siðan utan á miðvikudagsmorgun — þó með töf vegna hreyfilbruna Loftleiðaþotunnar. Á þriðju- daginn kemur verður opnuð sýning á verkum Vogels i Genf og sama dag kemur út i Sviss á vegum samtakanna, sem fyrir sýningunni standa, bók um Pierre Vogel og list hans, með fjölmörgum myndum og skrif- um eftir þrjá menn: blaða- mann, listgagnrýnanda og heimspeking, sem býr i Paris og er fróður mjög um málara- list. Bláðamaður spurði Pierre Vogel hvernig Island og Islend- ingar hefðu komið honum fyrir sjónir í þessari stuttu viðdvöl. Hann sagði: „Ég er mjög hrifinn af þvi hvernig fólkið, sem er mjög gáfað, getur lifað hér góðu lífi þrátt fyrir harðneskju náttúr- unnar og veðurfarsins — hvað hér er hægt að gera margt. Fyrir listamann er mjög áhuga- vert þetta sérstæða samband milli mannsins og harðrar náttúrunnar. — Einnig er landslagið áhugavert fyrir lista- menn; ég hef séð hér yndislegt form — vatn og steina, sem ég hefði áhuga á að mála." Prófkjör í Grindavík SJÁLFSTÆÐISMENN í Grindaxík efndu í siðustu viku til prófkjörs fvrir sveitar- stjórnakosningarnar í vor meðal allra félaga í sjálfstæðis- félögunum í hreppnum. Gevsi- leg þátttaka var í prófkjörinu og greiddu allir félagsmenn at- kvæði nema einn. Prófkjörið snerist um skipan manna i þrjú fvrstu sætin, og urðu úrslitin þau, að Dagbjart- ur Einarsson framkvæmda- stjóri hlaut flest atkvæði, þá Sigurpáll Einarsson iðnnemi og Ólina Ragnarsdóttir varð þriðja. Voru þau öll með vel yfir 50% greiddra atkvæða. Sálmabókin HERMANN Þorsteinsson hjá Hinu íslenzka bibliufélagi hringdi til Morgunblaðsins í gær vegna greinar, sem Júlíus Ólafsson ritaði i Morgunblaðið, en þar vitnar Júlíus i ummæli höfð eftir Hermanni 24. 7. '73 um að fyrra upplag sálinabók- arinnar hafi verið eiit þúsund eintök. I þessari. tilvitnun úr Morgunblaðinu hafði prent- villupúkinn fellt niður eitt núll, þannig að upplag bókarinnar var 10 þúsund eintök. Var þetta leiðrétt í Morgunblaðinu dag- inn eftir, en því miður hefur Júlíus ekki séð þá leiðréttingu. Óskaði Hermann eftir að þetta kæmi fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.