Morgunblaðið - 23.05.1974, Page 10

Morgunblaðið - 23.05.1974, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1974 Borgarfulltrúar eru ekki atvinnusijórnmálamenn MARKÚS Örn Antonsson borgarfulltrúi, býður sig nú fram til borgar- stjórnar öðru sinni fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Er hann einn af fjórum fráfarandi aðalmönnum f borgarstjórn, sem aftur gefa kost á sér og eru meðai átta efstu manna á listanum; því má segja, að endurnýjun f efstu sætum framboðslista sjálfstæðismanna sé um 50%. Þetta sama hlutfall kemur og í ljós, þegar tekið er tillit til alls borgarstjórnar- flokksins, þ.e.a.s. bæði aðal- og varafulltrúa 16 talsins. Þá hafa 9 frambjóðendur verið áður f borgarstjórnarflokknum, en aðrir fram- bjóðendur eru nýir. Þannig má segja, að góð endurnýjun eigi sér stað á listanum. Morgunblaðið spjaliaði nýlega við Markús um hann sjálfan og störfin í borgarstjórn. Markús Örn, ritstjóri Frjálsrar verzlunar ræðir um útlit blaðsins vio prentara f Félagsprentsmiðjunni, Ólaf Pétursson. • • Samtal við Markús Orn Antonsson, fjórða mann á framboðslista sjálfstœðismanna til borgarstjórnar Markús Örn Antonsson og kona hans Steinunn Ármannsdóttir ásamt börnum sfnum, Sigrúnu Ástu og Ántoni Birni, að heimili þeirra að Ásgarði 77. — Ljósm. Mbl. ÓI.K.M. Markús Örn er borinn og barn- fæddur Reykvikingur, fæddur 1943 og gerist þaó æ fátiðara nú á dögum, að menn á hans aldri geti rakið ættir sínar mann fram af manni í Reykjavík sjálfri. En þeir stofnar, sem standa að Markúsi í báðar ættir, eru reykvískir og sem dæmi má nefna, að langafi hans var Markús Þorsteinsson söðla- smiður, sem fluttist ásamt konu sinni til Reykjavíkur á síðustu öld. Byggði hann hús á horni Laugavegar og Frakkastígs, sem í þá tíð var á endimörkum Reykja- víkur. Síðar byggði Markús Þor- steinsson annað hús við Frakka- stíg númer 9 og þar ólst móðir Markúsar upp. Hann segist minn- ast bernskuheimsóknar á það heimili, svo og til ömmu sinnar í föðurætt, er bjó á Sólvallagöt- unni. Þar fékk hann gjarnan að sofa í rúmfataskúffu nótt og nótt og þótti ekkert tiltökumál, þótt börn 7 og 8 ára ferðuðust borgina á enda í strætisvagni í heimsókn til ættingja og vina eða jafnvel til að sækja skóla. Þótt Markús sé í raun ekki nema rúmlega þrítug- ur, hefur borgin þó á þessum ár- um tekið miklum stakkaskiptum, breytzt úr allstóru bæjarfélagi í víðáttumikla borg og ekki er ólík- legt, að foreldrum ói nú tilhugs- unin um að börn þeirra, jafnvel á unglingsaldri, flækist borgarenda á milli. Markús segir, að sér hafi fund- izt sá vettvangur, sem hann ólst upp á, einkar skemmtilegur, hafi víðáttan verið mikil og ánægju- legur leikvöllur fyrir dreng af hans kynslóð. Hann fluttist ungur með móður sinni og fósturföður í Bústaðahverfið, sem þá var ekki tengt öðrum hverfum borgarinn- ar, Sogamýrin var næstum óbyggð með öllu. Markús segir, að því miður eigi börn nú á dögum ekki leikvettvang í slikri víðáttu sem hann átti og því telur hann, að borgarbörn fari ef til vill mikils á mis. 1 Fossvogsdalnum voru þá sumarbústaðalönd og gróður- reitir, sem gaman var að leika sér í. Markús segir: „Smáfólkið í dag hefur ef til vill ekki óskemmti- legri tækifæri, þótt í annarri mynd séu, en samkvæmt minni eígin reynslu finnst mér að leggja eigi áherzlu á að viðhalda slíkri aðstöðu eftir fremsta megni. I því efni má minna á svokallaða „græna byltingu", sem borgar- stjórnarmeirihlutinn hefur nú lagt áherzlu á.“ „Þú fórst ungur að vinna, Markús?" „Já, svo atvikaðist, að ég fór snemma að vinna sumarstörf í bænum. Eg var að sjálfsögðu í skóla á veturna og átti því láni að fagna í Laugarnesskólanum, að þar kenndi mér Skeggi As- bjarnarson, sem lagði mikla rækt við að ala nemendurna upp í félagsmálastarfsemi og þar hlaut ég fyrstu tilsögn, sem ég tel að hafi orðið mér mjög dýrmæt. Fjögur sumur var ég í sveit hjá skyldfólki minu austur í Hruna- mannahreppi, en síðan fór ég að vinna hér í bænum og varð þegar nokkuð gjaldgengur á vinnu- markaði. Kynntist ég þar mér eldra fólki og fékk tækifæri til þess að ræða við það fram og aftur um landsins gagn og nauð- synjar. Um tíma var ég sendi- sveinn hjá Flugfélaginu og fékk ég þá brennandi áhug á flugmál- um og flugi, sem m.a. hefur valdið því, að ég stunda nú flugnám mér til gamans, þegar tími og veður leyfa. Ég minnist þess sérstaklega að eitt sinn var ég sendur i bank- ann að sækja 600 þús. kr. i reiðu- fé. Þetta var árið 1956 og geta menn rétt getið sér til um, hversu mikil verðmæti þetta voru. Með skjalatöskuna á stýrinu, fulla af seðlum hjólaði ég suður á Njarðargötu út á flugvöll eins og ekkert væri. Þannig var borgar- bragurinn í þá daga og 13 ára stráklingur hjólaði í góða veðrinu ábúðarmikill með gilda sendils- tösku og öll vikulaun starfsmanna Flugfélagsins í henni. Kannski er þetta einhver sú mesta ábyrgð, sem mér hefur verið falin um dagana," segir Markús og hlær við. „En ungur ákvaðst þú að leggja fyrir þig blaðamennsku. Hvernig atvikaðist það?“ „Flugfélagið ákvað að fá sér heilsárssendil. Þar með kom ég. ekki lengur til greina, þar sem ég varð að stunda skólann á veturna. Ég réðst þvi til Morgunblaðsins 14 ára og hjólaði með svokallaðar kvartanir fyrir Aðalstein Ottesen til áskrifenda, sem ekki fengu blaðið skilvíslega. Einnig leysti ég af gamalkunnan starfsmann Morgunblaðsins, Harald Richter, við það að taka við blöðunum, er þau komu út úr prentvélinni á nóttunni. Þetta olli því, að ég fékk smám saman áhuga á blaða- mennsku og áður en varði var ég farinn að aðstoða blaðamenn við að taka á móti tilkynningum sem fara áttu í Dagbók. Ég sat þarna og pikkaði á ritvél og kannski hefur þetta átt sinn þátt í því, að ég lærði aldrei vélritun, heldur hef ávallt lamið vélina með tveim- ur fingrum. Ég hef þó náð tals- verðum hraða með þvi. En þetta gerði það að verkum, að ég tók blaðamennskubakteríuna eins og kallað er og við hana hef ég enn ekki losnað og gerí sjáifsagt aldrei. Ég byrjaði þá þegar að búa mig undir að verða blaðamaður og réðst í það starf til Morgunblaðs- ins sumarið 1959. Blaðamaður við Morgunblaðið varð ég þó aldrei heilt ár. Með mér á ritstjórn Morgunblaðsins var gamall vinur minn úr menntaskóla, Andrés Indriðason, en við höfðum mikið unnið saman, m.a. i leiklistar- starfsemi Menntaskólans í Reykjavík og tekið þátt í Herra- nótt. Sáum við og saman um út- varpsþátt „Með ungu fólki“. Áhugi okkar á sjónvarpi var mik- ill og árið 1963 gengum við báðir á fund Vilhjálms Þ. Gislasonar út- varpsstjóra og tjáðum honum, að við hefðum mikinn áhuga á sjón- varpi. Hann sagði okkur þá, að við skyldum tala við sig eftir svo sem 10 ár, en þá bjóst enginn við þvi, að sjónvarp væri í nánd. En skyndilega er tekin ákvörðun og sjónvarp varð að veruleika. Aug- lýst var eftir tveimur fréttamönn- um og mönnum í lista- og skemmtideild. Við Andrés sóttum um og ég var ráðinn í fræðslu- og fréttadeild sem fréttamaður ásamt Magnúsi Bjarnfreðssyni, en Andrés var ráðinn í lista- og skemmtideild, Og nú er Magnús einnig kominn út í pólitíkina eins og allir vita.“ „Það voru ekki margir, sem sóttu um þessi störf „Nei, aðalástæðan held ég að hafi verið almenn bölsýni meðal fréttamanna varðandi sjónvarpið og framtið þess. Menn vildu ekki taka þá áhættu sem fylgdi því að yfirgefa stöður sfnar við blöðin á meðan engin reynsla var fengin af sjónvarpinu. Vissulega var þetta ævintýramennska í upphafi, en við höfðum brennandi áhuga. Fyrstu árin á sjónvarpinu voru geysiskemmtileg, enda starfsfólk- ið ungt að árum yfirleitt, kátt og liflegt.“ „Telurðu ekki, að sjónvarp hafi auglýst þig og hjálpað þér við að hasla þér völl í stjórnmálum borg- arinnar?“ „Sjónvarp auglýsir þá, sem við það starfa vel eða illa, vissulega, en það veltir ekki á undan manni rauðum dregli um ófyrirsjáanlega framtíð, Störf mín við sjónvarpið virtust verða jákvæð fyrir mig ef litið er á úrslit prófkjörsins 1970, en ég gerði mér grein fyrir því, að sú kynning, sem ég hlaut þar, myndi ekki endast mér lengi og eitthvað annað þyrfti að koma til. I raun leið mér ekki vel sem fréttamanni við rfkisfjölmiðil er á leið. Sjálfsagt hef ég verið of Dólitískur í eðli mínu til þess að svo gæti orðið. Þó gætti ég þess að sjálfsögðu, að afstaða mín kæmi hvergi fram í störfum mínum. Andstæðingar mínir í stjórnmál- um hafa kannski þótzt finna það. Ég aðhyllist vitaskuld vestræna lýðræðishugsjón og vona að það sé ekki talið hlutleysisbrot hjá íslenzkum ríkisfjölmiðlum. En flokkspólitík hafði aldrei áhrif á störf min við Rikisútvarpið. Ég tel heppilegast fyrir alla, að þeir sem gefa kost á sér til stjórnmála- starfa, segi algjörlega skilið við störf, sem eru jafn viðkvæm og störfifréttamanns. Ég valdi þann kostinn sjálfur og tel mig hafa sett fordæmi, sem Rikisútvarpið megi gjarnan vitna i, því að það hefur aldrei sett neinar ákveðnar reglur um þessi mál. Ef viðkom- andi ætlar að blanda saman pólitísku starfi og fréttamennsku veldur það bæði stofnuninni og starfsmanninum sjálfum erfið- leikum. Hann verður aldrei trú- verðugur og á þetta vissulega við um nokkra, sem starfa Við Ríkis- útvarpið nú. Menn hafa haft á orði, að um sé að ræða stjórnar- skrárbrot og skerðingu á persónu- frelsi, en ég tel, að hér sé ekkert slikt á ferðinni, heldur einfald- lega um tvo frjálsa valkosti að ræða sem hvor tveggja geti aldrei farið saman.“ „Hafa kynni þín af borgarstjórn sem fulltrúa þar reynzt önnur en þær hugmyndir, sem þú gerðir þér áður um störfin þar?“ „Sem fréttamaður kynntist ég störfunum þar óbeint og jafnan var talað um störf borgarstjórnar- fulltrúa sem væru þau fremur fábrotin. Það má kannski til sanns vegar færa, ef menn eru borgarfulltrúar án nokkurra annarra starfa fyrir borgina. Haldnir eru fundir hálfsmánaðar- lega, en þess á milli verða menn vitaskuld að búa sig undir að taka afstöðu til mála og kynna sér þau. Að öðru leyti eru ekki gerðar beinar kröfur til borgarfulltrúa, en meirihluti sjálfstæðismanna hefur haft með sér verkaskipt- ingu á þann veg, að fulltrúarnir hafa unnið í ráðum og nefndum borgarinnar. Hefur þetta skapað mjög þýðingarmikil tengsl milli borgarstjórnar og þessara ráða og nefnda. Þetta er og að því leyti mjög gott, að frumkvæðið í stefnumótun og framkvæmd ligg- ur að verulegu leyti 1 þessum starfsnefndum. Hef ég á kjör- tímabilinu verið formaður Æsku- lýðsráðs, formaður ferðamála- nefndar og nú siðast átt sæti i heilbrigðismálaráði og borgar- ráði. Þegar verkefnin eru orðin svo margvisleg, er starfið orðið æði viðamikið, þó svo að maður aðhyllist þá skoðun, að borgarfull- trúar eigi að hafa einhvern aðal- starfa, sem sé venjulegt starf í tengslum við daglegt líf í borg- inni. Alloft getur verið erfiðleik- um háð að sameina þetta, en ég hef verið mjög heppinn — hef haft með höndum ritstjórn Frjálsrar verzlunar — og nýt þar velvildar frainkvæmdastjórans, Jóhanns Briem, sem hefur mik- inn skilning á störfum borgarfull- trúans og sífelldum fundahöld- um. Það er ekki hægt að fram- fleyta fjölskyldu á launum borgarfulltrúa. Þarna er og kannski komið að talsverðu vandamáli og sýnist kannski sum- um sem borgarfulltrúastörf séu aðeins á færi þeirra, sem hafa algjört vald yfir vinnutíma sín- um. Ég tel þó, að heppilegast sé, að borgarfulltrúar fái ekki meiri umbun, en játa, að við erfiðleika er að etja í þeim efnum. Mér finnst heldur ógeðfelld tilhugsun að borgarráðsmenn í Reykjavík verði atvinnupólitíkusar, þótt reynslan kunni að leiða í ljós, að annað sé ekki fært,“ sagði Markús Örn Antonsson að lokum. Markús Örn er kvæntur Stein- unni Ármannsdóttur og eiga þau 2 börn, Sigrúnu Ásu, 8 ára, og Anton Björn, 3ja ára. Þau búa f fjölbýlishúsi við Ásgarð 77 í Reykjavík. - mf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.