Morgunblaðið - 23.05.1974, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.05.1974, Blaðsíða 20
Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Minnihlutastjórn Ólafs Jóhannessonar hefur nú á örfáum dögum framkvæmt gengislækkun, tekið af launþegum vísi- töluhækkun kaupgjalds, sem þeir áttu að fá 1. júní n.k., vísitölubundið hús- næðismáiastjórnarlán, sett á innflutningshömlur, hækkað verð á áfengi, tóbaki og bensíni og hækk- að innflutr.ingsgjald á bíl- um, jafnframt því að gefa út gúmmítékka að upphæð 2000 milljónir króna á inn- stæðulausan reikning ríkis- sjóðs í Seðlabankanum til þess að lækka verð á bú- vöru, svo myndarlega, að kílóið af kartöflum kostar nú svipaða upphæð og einn eldspýtustokkur! Þetta eru mikil afrek, ekki sízt i ljósi þess, að Framsóknarflokkur og Al- þýðubandalag lofuðu því að lækka aldrei gengi krón- unnar,(!) kölluðu frestun á greiðslu tveggja vísitölu- stiga haustið 1970 vísitölu- hf. Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sfmi 10 100. Aðalstræti 6, sími 22 4 80. rán(!) og létu það verða sitt fyrsta verk sumarið 1971 að láta greiða þau tvö stig, afnámu vísitölubind- ingu húsnæðislána þegar þeir komu til valda en hafa nú sett hana á aftur og hafa því gert allt það, sem þeir skömmuðu Viðreisnar- stjórnina fyrir að gera og lofuðu að þeir sjálfir mundu aldrei gera!! Verkalýðssamtökin hafa jafnan talið vísitölubind- ingu kaupgjalds undir- stöðuatriði í öllum kjara- samningum. Þegar vísi- tölubinding verðlags og kaupgjalds var afnumin á fyrstu árum Viðreisnarinn- ar, barðist verkalýðshreyf- ingin mjög eindregið gegn þeirri ákvörðun með þeim árangri, að með júnisam- komulaginu 1964 var ákveðið að taka upp verð- tryggingu launa á ný, enda hafði reynslan sýnt, að hið fyrra ástand hafði skapað óskaplegan óróa á vinnu- markaðnum. Vinstri flokk- arnir svonefndu hafa aldrei mátt heyra á það minnzt, að verðtrygging launa væri afnumin eða skert eins og bezt mátti sjá á þvf upphlaupi, sem Al- þýðubandalagið sérstak- lega efndi til haustið 1970, er frestað var greiðslu vísi- tölustiga f nokkra mánuði. Nú hafa kommúnistar skipt um skoðun, nú hafa þeir staðið að útgáfu bráða- birgðalaga, sem fela í sér, að launþegar eru rændir nokkrum vísitölustigum, svo notað sé orðalag komm- únista sjálfra. En þeir gæta þess, að ekki komi fram um hve mörg vísitölu- stig er að ræða. Með gúmmítékkunum voru greidd niður 8 vísitölustig og má þá telja, að um 7 hafi verið eftir, sem greiða átti á öll laun í næstu viku. Þá gera þessir herrar sér lítið fyrir og taka bílinn út úr vísitölunni, sem mun nema um 2 vísitölustigum, (slíkt kölluðu þeir áður fölsun), þannig að þá eru 5 eftir. Og þau eru alveg tekin af launþegum, a.m.k. næstu mánuði. Menn taki eftir því að þetta eru verk Al- þýðubandalagsins. Engum þarf að koma á óvart, þótt forystumenn verkalýðssamtakanna hafi þegar mótmælt þessum að- gerðum. 1 viðtali við Morg- unblaðið í gær segir Björn Jónsson, forseti Alþýðu- sambands Islands um þessa ákvörðun, að hann telji þetta „þverbrot á gildandi kjarasamningum". Og Eðvarð Sigurðsson, for- maður Dagsbrúnar, tók í sama streng og mótmælti afnámi vísitöluhækkun- arinnar. Hann kvaðst heldur ekki sjá tilgang þess að taka bílinn út úr vísitölunni og taldi „ákaf- r lega slæmt“ að vísitölu- binda húsnæðislán til hinna lægstlaunuðu. Guð- mundur Garðarsson, for- maður stærsta launþegafé- lags landsins, sagði, að all- ar aðgerðir núverandi ríkisstjórnar væru „hreint kák“ og til þess fallnar að vekja falskar vonir hjá al- menningi. Af þessu má Ijóst vera, að ríkisstjórn „hinna vinn- andi stétta“ er nú komin í þá aðstöðu, að helztu for- ystumenn verkalýðssam- takanna hafa eindregið mótmælt aðgerðum hennar og hún hefur ráðizt á þann þátt kjaranna, sem verka- lýðshreyfingin hefur jafn- an talið heilagan, þ.e. verð- tryggingu launa. I viðtali við Þjóðviljann í gær sagði einn af fram- bjóðendum kommúnista við borgarstjórnarkosning- arnar í Reykjavík, að hvert atkvæði greitt G-listanum væri krafa um vinstri stjórn. Þessu ættu Reyk- víkingar að taka vel eftir. Það er skoðun frambjóð- anda kommúnista að hvert atkvæði, sem greitt er framboðslista þeirra við borgarstjórnarkosningarn- ar sé jafnframt krafa um þá vinstri stjórn, sem hefur framkvæmt gengis- lækkun, sem hún lofaði að gera aldrei, sem hefur stað- ið að vísitöluráni, sem hún lofaði að gera aldrei, sem hefur staðið að vísitölu- bindingu húsnæðislána, sem hún lofaði að gera aldrei, sem hefur ráðizt á lífskjör launafólks til þess eins, að ráðherrarnir geti hangið í valdastólunum nokkrum vikum lengur. Við þessum vinnubrögðum er aðeins eitt svar og það er, að tryggja Sjálfstæðis- flokknum slíkan sigur í borgarstjórnarkosning- unum á sunnudaginn, að um óumdeilanlega van- traustsyfirlýsingu á ríkis- stjórnina verði að ræða. Áskriftargjald 600,00 kr á mánuði innanlands I lausasolu 35,00 kr eintakið VÍSITÖLURAN VINSTRI STJÓRNAR Græna byltingin . Græna byltingin I l Unnið affullum krafti á opnum svœðum borgarinnar Byrjað er af fullum krafti að snyrta og vinna á nýju svæðunum í borginni, enda voraði um 5 vik- um fyrr nú en venjulega. Það eina, sem háir, er skortur á mann- afla, þ.e. garðyrkjufólki og pilt- um, því nægt framboð er af ung- um stúlkum í garðvinnuna, sem margar eru harðduglegar, en þyrftu að vinna með fagfólki, að því er Hafliði Jónsson, garðyrkju- stjóri sagði, er við leituðum frétta hjá honum af þeim nýsvæðum, sem verið er að vinna. Byrjað er á litlum garði við Hringbraut og Kaplaskjólsveg, en þar verða skjólbelti og hellulagn- ir og hlýlegur útivistarreitur. Þá er unnið í öðru svæði skammt frá, við endann á Reynimel, þar sem verið er að byrja á grasflötum. Þá standa til dæmis yfir ræktunarframkvæmdir við Skild- inganeshóla og tekið verður fyrir stórt svæði við endann á flug- brautinni og víðar. Lokið er frá- gangi í umhverfinu við fæðingar- deildina við Eiríksgötu. Og byrjað að vinna á lóð Borgarspítalans þar sem m.a. verða fallegir trjálundir. A Sogamýrarsvæöinu er hald- ið áfram að planta trján, sem byrjað var á í fyrra. Og undirbún- ingur er hafinn neðan við Rafveit- una á Suðurlandsbraut, þar sem verður sáð grasfræði næstu daga. Þá er jarðvinnsla að hefjast i hólmanum neðan Elliðaárbrúa og verður sáð f það svæði. Svo sem menn hafa kannski veitt athygli, hafa verið teknar niður girðingar Rafveitunnar við Elliðaárnar og verður gengið frá þvi svæði, sem hefur verið geymslusvæði þar á bökkunum. En á þeim slóðum verður mjög rúmgott útivistar- svæði, og sagði Hafliði að á þess- um slóðum væri einn skjólsælasti bletturinn i öllu lögsagnarum- dæmi Reykjavíkur og verður það áreiðanlega notað af borgarbúum til útivistar. Grœnu svœðin þegar 240 ha í Arbæjarhverfi er verið að planta í litla skrúðgarða við Rofa- bæ, sem byrjað var á i fyrra. Og næstu daga verða hafnar fram- kvæmdir við mæðragarðana svo- nefndu, en byrjað verður á garð- inum við Rofabæ. En það eru leik- vellir, þar sem bæði er leikrými og gróður og ætlað fullorðnum til útiveru jafnt sem börnum. Langsamlega mesta átakið er í Breiðholti, enda allt ógert þar I ræktun. Nú er að hefjast ræktun við Alfabakka í Breiðholti I og í Breiðholti III er byrjað við Suður- fell og víðar. Gróðursetning hefúr verið við Stekkjarflöt. Annað gífurlega mikið verkefni í sumar liggur fyrir við Dalbraut- ina og Sundlaugaveginn. Og mikið verkefni liggur fyrir við Kringlumýrarbraut, allt frá Háaleitisbraut til sjávar, að því er Hafliði sagði. En austan Héðins- höfða á m.a. einnig að rækta upp svæði í sumar. Næg verkefni eru I uppræktun og vinnslu, sem ekki er hægt að telja öll upp. En grænu svæðin í borginni eru nú orðin 240 hektar- ar að stærð og viðhald þeirra mikið, enda vlða tafsamt. Nú þeg- ar eru um 100 manns í vinnu við nýgerð og viðhald opinna svæða og verða um 200, þegar mest er í sumar. — Það er ekki ætlunin að þessi svæði verði svo fín og fáguð sagði Hafliði. En þau þurfa að vera hrein og aðgengileg, svo auðvelt sé að hirða þau og halda við. Þannig verðum við að ganga frá þeim. Sigríður Ingólfsdóttir stjórnar einum vinnuflokkinum í garða- vinnunni hjá borginni. Hún var með flokk sinn að ræktunarstörf- um við gatnamótin á Suðurlands- braut og Elliðavogi, er ljósmynd- arinn smellti af þessari mynd. Ljósm. Sv. Þorm. mTrr-rr-———

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.