Morgunblaðið - 23.05.1974, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 23.05.1974, Qupperneq 22
22 23 Sérstæðasta uppbygging 1 sögu landsins í MARZMÁNUÐI lauk Reykja- vfkurborg við gerð Breiðholts- áætlunar sinnar, en þar er um að ræða framkvæmdaáætlun borgar- innar fyrir Breiðholtshverfi 1974—1980. Byggingaframkvæmdir f Breið- holti hafa algjöra sérstöðu f bygg ingamálum landsins, þvf að þar hafa risið upp á örskömmum tfma fbúðahverfi, sem eru á við stærstu bæi á islandi. Stærst- ur hluti framkvæmdafjármagns borgarinnar fer i hinar f jölmörgu framkvæmdir, sem nauðsynlegt er að gera f svo ungum bæjar- hluta. Miðað við þær fjölmörgu framkvæmdir, sem borgin stend- ur ávallt f, hefur framkvæmda- geta hennar f Breiðholti þvf verið L' furðulega mikil. Þegar maður l leggur fyrir sig, hvað 1 raunverulega þarf að gera til þess 1 að hægt sé að b.vggja upp slfk hverfi þá er þar um að ræða i feikna f jölþætt verksvið. i Að sjálfsögðu tekur nokkur ár 1 að fullgera slfk hverfi, en miðað við það, sem þekkist erlendis, er framkvæmdahraðinn þarna með L þvf mesta sem þekkist í heim- i inum f dag og þess má geta, að Breiðholt hefur byggzt upp á mun skemmri tíma en ráð var fyrir gert. Borgin hefur unnið mjög mark- visst að þvf að fullgera það í Breiðholti, sem henni ber, en auð- vitað er ekki hægt að gera allt fyrir alla f einu. Með hinni nýju Breiðholtsáætiun getur fðlk nú séð, hvað verður tekið fyrir á hverjum tfma og munum við hér f stórum dráttum greina frá því Það kemur fram í viðtölum hér í blaðinu við íbúa úr Breiðholti, að fólki líkar geysivel að búa þar. Kona, sem var ein af fyrstu íbúum i Breiðholti, sagði okkur, að hún væri mikið vör við það, að þegar fólk flyttist upp i Breiðholt, þá talaði það i upphafi um að búa ekki þar til frambúðar. Svo til undantekningalaust kvað hún fólk skipta um skoðun, svo vel likaði þvi að búa i þessum bæjar- hluta, þar væri friðsælt og fallegt og skemmtilegt á margan hátt, þótt ekki væri lokið við fram- kvæmdir alls þess, sem skiptir máli. Tónn mannlífsins I Breiðholti er að setja svip á þetta unga hverfi, það er að festa rætur. Ýmis félög hafa verið stofnuð, íþróttafélög og fleiri félög og unnið er að þvi að skapa aðstöðu fyrir margs konar félagsaðstöðu. Þannig er sýnt, að Breiðholt, ekki síður en önnur hverfi borgar- innar mun bera sinn sérstaka svip og útlit er fyrir, að þar verði á ýmsan hátt fjölskrúðugri tilþrif i félagsmálum en víða annars staðar og þess ber að geta, að þegar Breiðholt verður fullbyggt miðað við núverandi skipulag, munu milli 20 og 30 þús. manns búa þar. Víkjum þá að fram- kvæmdaáætlun Breiðholts fyrir timabilið 1974—1980. Um hvað er að ræða? Áætlun þessi er unnin i sam- vinnu borgarverkfræðings og hagsýsluskrifstofu. Lýsir hún framkvæmdahraða og kostnaði við framkvæmdir borgarsjóðs á þessu tímabili í Breiðholti. Höfuðþættirnir, sem eru teknir fyrir, eru: Gatna- og holræsagerð, göngustígar, hjólreíðastígar og gangstéttír, ræktun vegna gatna- gerðar, leikvellir, dagheimili, leikskólar, skóladagheimili, úti- vistarsvæði, skólabyggingar, æskulýðsheimili og heilsugæzlu- stöð. Úndirstaðan að framkvæmda- röð og framkvæmdahraða er sam- setning byggðar í Breiðholti, fjöldi fólks í hverfinu fullbyggðu, spá um úthlutun lóða og það, að gatna- og holræsagerð sé lokið áður en byggingaframkvæmdir hefjast. Framkvæmdahraði ann- arra verkefna miðast við þann tíma, sem ætla má, að flutt sé i íbúðir. Við frágang grænna svæða og annarra útivistarsvæða er miðað við þann tíma, sem ein- staklingum er ætlaður til að full- gera hús sín að utan og ganga frá lóðum, þ.e. 4 ár. I ársbyrjun 1974 var óúthlutað í Breiðholti II og III alls 2077 íbúð- um. 1257 í Breiðholti II og 820 lóðum í Breiðholti III. Breiðholt I er fullbyggt, en miðað við þróun undanfarinna ára ættu byggingarsvæði í Breið- holti II og III að endast fram á árið 1977, þ.e. fullbyggjast á næstu 3—4 árum. I umrædda áætlun vantar nokkra þætti, sem verið er að vinna að, t.d. íþrótta- svæði í Suður-Mjódd, fleiri æsku- lýðsmiðstöðvar og aðra heilsu- gæzlustöð í Breiðholt III, en gert er ráð fyrir glæsilegri heilsu- gæzlustöð i Mjóddinni. Búið er að —„stórbœir”á íslenzkan mœlikvarða hafa þotið upp Hluti af Breiðholti III, sem hefur þotið upp á síðustu 4 ár- um. Barnaheimili og útivistarsvæði Skóladagheimili: Áætlað er að festa kaup á hús- eign til þessarar starfsemi. Dagheimili og leikskóli: Staðsetning hefur ekki verið ákveðin, en eins og fram kemur í heiti verkþáttar er um að ræða byggingu, sem rúmar hvort tveggja, dagheimili og leikskóla. Samsetning byggðarinnar í Breiðholti fullbyggðu er þessi: Breiðholt I Breiðholt II Breiðholt III Samtals Fj. % Fj. % Fj. % Fj. % Einbýli 120 8.84 396 19.49 137 4.06 653 9.66 Raðh., keðjuh. 120 8.84 490 24.11 457 13.56 1067 15.78 Fjölbýli 1118 82.32 1146 56.40 2776 82.38 5040 74.56 Samtals 1358 100 2032 100 3370 100 6760 100 teikna hana og stefnt að þvi, að framkvæmdir hefjist i haust. Heildarkostnaður við þær fram- kvæmdir, sem borgin hefur gert áætlun um i Breiðholti, er um 4000 millj. kr. miðað við gengið í janúar sl. Er þar yfirleitt um að ræða framkvæmdir fyrir 500—600 millj. kr. árlega. Framkvæmdaáætlun: Breiðholt I. Gatna og holræsagerð 1 ár (1974) er áætlað að setja malbiksyfirlag á Arnarbakka og malbika Ósabakka, Prestbakka og Réttarbakka. Árið 1975 eru áætlaðar gatna- og holræsafram- kvæmdir í Norður-Mjódd. Árin 1976—1978 er áætlað að setja malbiksyfirlag á íbúðargötur. Vellir á vegum leik- vallanefndar Þegar er lokið við leikvöll við Fremristekk, gæzluvöll, sparkvöll og handboltavöll við Arnarbakka. Opið leiksvæði við Arnarbakka er að hluta fullgert og lokafrá- gangur fer fram á þessu ári (1974). Á þessu ári (1974) verður gerður starfsvöllur við Blöndu- bakka. Leikvallanefnd ákveður siðan röð framkvæmda fyrir hvert ár í senn, en miðað er við, að leik- svæðum á vegum leikvalla- nefndar verði lokið í árslok 1976. Framkvæmdir við göngu- og hjólreiðastiga verða unnar i ár og næsta ár og ræktun vegna gatna- gerðar verður lokið á næstu tveimur árum. Heilsugæzlustöð í Norður-Mjódd Áætlað er, að uppdrættir verði tilbúnir til útboðs I ágúst n.k. Fyrri áfanga er ætlað að þjóna heilsugæzlu í Breiðholti I, II og III til 1980. Stærð fyrri áfanga er 1076 fm. Borgarstjórn hefur ákveðið að reisa aðra heilsugæzlustöð í Breiðholti III og mun þá umrædd heilsugæzlustöð i Mjóddinni þjóna Breiðholti I og II. I síðari áfanga heilsugæzlustöðvar, sem byggður verður eftir 1980, er gert ráð fyrir, auk heilsugæzlu, starf- semi á vegum félagsmálaráðs og annarri félagastarfsemi. Skóladagheimili og leikskóli Áætlað er að festa kaup á hús- eign til starfsemi skóladagheim- ilis. I Norður-Mjódd er fyrirhuguð bygging leikskóla, sem þjóna á Breiðholti I, staðsetning er ekki endanlega ákveðin, en hann mun rúma 80 börn, þ.e. 40 fyrir hádegi og 40 eftir hádegi. Utivistarsvæði, uppgræðsla og leiksvæði Svæðin eru innan reits, sem af- markast af Stekkjabakka að norð- an og vestan, Breiðholtsbraut að sunnan ogHöfðabakka að austan. Breiðholt II. Gatna og holræsagerð I Skógahverfi og Neðri-Fálkhól eru framkvæmdir áætlaðar sem hér segir: I ár verður unnið við gatna- og holræsagerð í eftirtöld- um götum, Seljaskógum, Ásaseli, Akraseli og Brekkuseli. Árin 1977 og 1978 verður sett Þessi mynd var tekin fyrir u.þ.b. fjórum árum og sýnir Breiðholt I risið af grunni. Á myndinni fyrir ofan sjáum við samanburðinn, Breiðholt III. er risið, þúsundir nýrra íbúða á aðeins örfáum árum. malbiksyfirlag á götur í þessu hverfi. Göngu- og hjólreiðastígar Um er að ræða aðalstiga, hverfisstíga og gangstéttir í Skógahverfi og Neðri-Fálkhól. Framkvæmd þessa verkþáttar nær yfir árin 1975—’77. Þar sem um fullnaðar frágang er að ræða á öllum stigum i hverfinu þykir ekki ástæða til að merkja stígana sérstaklega inn á meðfylgjandi kort. Ræktun Ræktun á þessu svæði verður framkvæmd jafnhliða lagningu stiganna, þ e. á árunum 1975— 1977. Gatna- og holræsagerð Gatna- og holræsagerð í Efri- Fálkhól, Selhrygg og verka- mannabústaðahverfi er áætluð þannig: Götur, sem unnið verður við 1974. Götur, sem unnið verður við eftir 1974. Stærsti hluti þess, sem eftir verður i árslok 1974, verður unninn 1975. Á tímabilinu 1976— ’78 er að mestu um að ræða að setja malbiksyfirlag á göt- urnar. Göngu- og hjólreiðastígar og ræktun Framkvæmd þessa verkþáttar nær yfir árin 1975—’78. Um fulln- aðarfrágang er að ræða á öllum stígum í hverfinu og þykir ekki ástæða til að merkja stígana sér- staklega inn á kortið. Ræktunarframkvæmdir fara fram jafnhliða lagningu stiganna, þ.e. á árunum 1976—1978. Vellir, dagheimili og leikskólar Á þessu ári verður lokið við gæzluvöll í Seljahverfi (stærð 1200 fm). Leikvallanefnd ákveð- ur siðan röð framkvæmda fyrir hvert ár í senn, en áætlað er, að leikvöllum í hverfinu verði lokið i árslok 1978. Staðsetning vallanna verður ákveðin i deiliskipulagi, sem ekki liggur fyrir. Á árunum 1975—’76 verður reist dagheimili fyrir 74 börn í hverfinu. Á árunum 1975—’76 verður reistur leikskóli í hverfinu, sem rúmar 120 börn, þ.e. 60 fyrir há- degi og 60 eftir hádegi. Utivistarsvæði: Hér er um að ræða svæði innan hverfisins, en þar sem deiliskipu- lag liggur ekki fyrir er ekki hægt að segja fyrir um staðsetningu svæðanna. Framkvæmdir við þau fara fram á árunum 1976—’78. Skógaskóli og Seljaskóli Skógaskóli: Heildarstærð 25 þús. rúmm. (svipaður að gerð og Hólaskóli). Stefnt að því, að I. áfangi verði tilbúinn til kennslu haustið 1975 (stærð 3500 rúmm.). 2. og 3. áfangi byggjast með jöfnum hraða á framkvæmdatimabilinu (1974 til og með 1979) og hver hluti tekinn I notkun jafnóðum og hann er nothæfur til kennslu. Seljaskóli: Mjög svipaður að stærð og gerð og Skógaskóli. Framkvæmdamáti sá sami að undanskildu þvi, að framkvæmdir eru ári á eftir, þ.e. I. áfangi tekinn til kennslu haust- ið 1976. Nákvæm staðsetning skólans liggur ekki fyrir, þar sem hverfið er óskipulagt. Reynt verður að haga byggingu skólanna þannig, að hægt verði að nýta þá saman meðan á byggingu stendur, t.d. verði iþróttahús annars skólans byggt á undan og nýtt fyrir báða, Séð yfir hluta Breiðholts I og fyrir ofan er Breiðholt III, mesta hraðuppbygging í sögu íslands. Ljósmyndir Mbl. ÓI.K.M. en aftur á móti sérkennslustofur hins byggðar á sama tima og nýtt- ar fyrir báða skólana. Breiðholt III. Vesturberg, Fella- og Hólahverfi: Götur, rækturi, göngu- og hjólreiðastígar. Gatna- og holræsagerð er að mestu lokið I þessum hverfum. I ár (1974) verðursett malbiksyfir- lag á eftirtaldar götur: Norður- fell, Vesturberg og Vesturhóla. Á árunum 1975—’78 vefður sett sams konar yfirlag á íbúðagötur í hverfunum. I ár (1974) er gert ráð fyrir, að meirihluti þeirrar ræktunar, sem fylgir gatnagerð, verði unninn. 1975—’76, verður siðan endan- lega gengið frá minniháttar gras- reinum, sem ekki er unnt að ljúka i ár vegna annarra framkvæmda (t.d. gangstéttagerðar). Hluti framkvæmda við göngu- og hjólreiðastíga í þessu hverfi verður unninn á þessu ári, en áfram verður unnið við fram- kvæmdir á næstu þremur árum. Austurdeild og norð- austurhluti. Götur, stígar og rækt- un. I ár (1974) verður unnið við gerð Austurbergs, eftirstöðvar i Keilufelli og aðalræsi frá austur- deild. Árin 1975—’76 verður unn- ið að gatnagerð innan hverfanna. Þar sem austurdeild er óskipu- lögð og norðausturhluti er skammt á veg kominn í skipulagi, er ekki unnt að greina frá legu stiganna, en ráðgert er að leggja þá á árunum 1979—’80. Samhlíða verður unnið að ræktun. Leikvellir, dagheimili, leikskólar. Á þessu ári verður lokið við eftirtalin verkefni: Gæzluvöll við Suðurhóla (stærð 1600 fm), opinn leikvöll við Suðurhóla (stærð 1000 fm), sparkvöll og sleða- brekkur við Suðurhóla (stærð 8000 fm) og starfsvöll við Vestur- berg (stærð 5800 fm). Leikvallanefnd ákveður siðan röð framkvæmda fyrir hvert ár I senn, en áætlað er, að öllum leik- svæðum verði lokið i ársiok 1978. Þegar er ákveðin bygging tveggja dagheimila, þ.e. við Völvufell fyrir 50 börn og Suður- hóla fyrir 74 börn. Einnig er gert ráð fyrir dag- heimili við Rjúpufell fyrir 50 börn, sem byggt verður árin 1975 og 1976. Dagheimilið við Völvufell er innflutt timburhús (norskt), sem keypt er af Viðlagasjóði og verður tekið i notkun á þessu ári, en greiðslum vegna kaupanna jafnað niður á 3 ár. Áætlað er að ljúka dagheimili við Suðurhóla 1976. Eftir er lokafrágangur við lóð og bilastæði leikskólans við Völvufell, sem tekinn var í notk- un á síðastliðnu hausti. Ákveðin er bygging leikskóla við Suðurhóla fyrir 120 börn, þ.e. 60 fyrir hádegi og 60 eftir hádegi, verður hann tekinn í notkun á fyrri hluta næsta árs. Þá er áætlað að festa kaup á tveimur húseignum til starfsemi skóladagheimilis. I Austurdeild er gert ráð fyrir einum leikskóla og einu dagheim- iii, en þar sem skipulag hverfisins liggur ekki fyrir, er staðsetning ekki ákveðin. Samkvæmt byggingasamningi á fullnaðarbyggingaframkvæmdum að ljúka á þessu ári. Félagsmið- stöð verður opnuð í kjallara skól- ans í vor. Hólaskóli I. áfangi. Stærð I áfanga er 6000 rúmm. og eru byggingaframkvæmdir hafnar. Stefnt er að því, að þessi áfangi verði tilbúinn til kennslu I. sept. 1974. Kennslustofur eru samtals 12 á tveim hæðum, ásamt tveim hópkennslusölum. II. og III. áfangi. Hafizt verður handa um bygg- ingu II og III áfanga 1975 og falla framkvæmdir við þessa áfanga að miklu leyti saman. Ráðgert er að taka hvern hluta þeirra i notkun jafnóðum og þeir eru tilbúnir til kennslu. Byggingaframkvæmdum lokið i árslok 1979. Fjölbrautaskóli. Fjölbrautaskólinn verður sam- einaður framhaldsskóli að loknu skyldunámi fyrir 1400—1500 nemendur úr Breiðholtshverfum. Framkvæmdir eru ákveðnar við tvö byggingastig, sem falla að mestu á sama tímabil, þ.e. 1974—’76 og 1974—77. Fram- kvæmdir árin 1978—’80 verða við aðalkennsluhús. 1. byggingastig: I áfangi (1974—76): íþrótta- völlur með áhorfendasvæðum, lokið 1974. Kostnaður skv. verk- samningi 17.150 þús. II áfangi (1974—76): Úti- og innisundlaug ásamt búningsher- bergjum. Einnig snyrting og að- staða fyrir áhorfendur. Samtals stærð mannvirkja verður 9940 rúmm. III áfangi (1975—76): Iþrótta- hús 13060 rúmm. að stærð. 2. byggingastig (1974—1977). Aðalkennsluhús I áfangi, 7000 rúmm. með 20 kennslustofum. Aætlað er að hefja kennslu haust- ið 1975 i hluta þessa húsnæðis. Gert er ráð fyrir, að staðsetning svæða innan hverfisins (nema Austurdeild) verði lokið í árslok 1978. Safnbrautir Breiðholtshverfis, Reykjanesbraut. I ár verður brautin fullgerð frá Miklubraut að Breiðholtsbraut. I ár verður lokið ræktun með- framþessum hluta. Stekkjabakki — Höfðabakki. Á þessu ári verður lokið við gerð brautar frá Stekkjabakka upp í Vesturhóla. Árið 1977—78 verður lokið við gerð Höfðabakka neðan Breiðholts III og frá Stekkjarbakka að Vesturlands- vegi. Einnig gerð Stekkjabakka meðfram Mjódd. Breiðholtsbraut. í ár verður lokið gerð vestari akbrautar frá Reykjanesbraut að Suðurfelli. 1975 verður unnið við framhald Breiðholtsbrautar og lokið kaflanum frá Suðurfelli að Flúðaseli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.