Morgunblaðið - 23.05.1974, Side 38

Morgunblaðið - 23.05.1974, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAI 1974 Sjö sögur af Villa Aldrei skyldi það bregðast, að Hans var skipað að fara að hátta, þegar leikurinn var hvað skemmtilegast- ur. Þó var hann orðinn svo stór, að hann var farinn að ganga í skóla. Kennarinn hans sagði einu sinni: „Nú getið þið bráðum farið að lesa blöðin alveg frá fyrstu síðu aftur á þá öftustu. Nú, eða frá þeirri öftustu og fram á fyrstu, ef þið viljið það heldur." En Hans les ekki dagblöð, þegar hann er kominn upp í rúm. Hann skoðar myndirnar í bók. Það er sérstök bók og honum þykir afar vænt um hana. Það er eftirlætisbókin hans. Eiginlega er þetta myndabók fyrir yngri börn. Og mamma hans segir: „Viltu ekki heldur lesa sögu?“ En þegar Hans leggst út af á kvöldin segir hann alltaf: „Mamma, viltu sýna mér myndabókina?" Hann skoðar hverja myndina af annarri. Sjálfsagt hefur hann skoðað þær tvö hundruð sinnum eða meira. Og þetta eru alltaf sömu myndirnar. En þær eru jafn skemmtilegar hvert sinn. Móðir hans, sem situr við rúmstokkinn, segir: „Svona, nú er nóg komið.“ En Hans segir: „Bara eina til.“ Þá flettir mamma hans aftur á þrettándu síðu og segir: „Fuss, fuss, sjáðu þennan vonda ræningja." Hans skoðar ræningjann. Hann er með stóran fjað- eftir Rudolf 0. Wiemer urhatt á höfðinu. Langt og mjótt nef. Lftil músaraugu. Alskegg. Með leðurhanzka. Og í háum stígvélum með sporum á hælunum. Voðinn er vís þar sem Villi fer. Vandar engum kveðjurnar. Varast hann ber. Þetta stendur undir myndinni. Hans kann það utan bókar. Samt er hann ekkert hræddur. Og þegar móðir hans leggur bókina til hliðar, segir Hans: „Er Villi ræningi svona vondur?“ „Ræningjar eru alltaf vondir,“ segir mamma hans. „Það fylgir þeirra grein.“ „Ef til vill er Villi góður ræningi." „Nei,“ segir móðir hans. „Góðir ræningjar eru ekki til.“ „Það er leitt,“ segir Hans. Hann dregur sængina upp að höku og horfir á myndabókina, sem liggur á stólnum. Móðir hans hefur gleymt að loka bókinni, svo Hans getur enn virt fyrir sér Villa ræningja. Hattinn. Nefið. Skeggið. Stígvélin. Hann horfir á hann, þangað til móðir hans slekkur ljósið og lokar hurðinni. Þá sofnar Hans. En hann veit ekki, hvernig hann sofnar, enda þótt hann reyni að Sá frœgi Sherlock Holmes Sherlock Holmes er frægastur leynilögreglu- maður allra tíma. Aðalein- kenni hans eru höfuðfatið og pípan hans. Hér eru 8 teikningar af kappanum, í fljótu bragði virðast þær allar eins, en svo er þó ekki, tvær eru eins og hvaða númer hafa þær? Lausnin er mynd 3 og 5. (fJVönni ogcTVfanni Jón Sveinsson Guð minn góður, hvað átti ég nú að taka til bragðs? Atti ég að elta hann? Nei, ekki mátti ég það. Þá hefði hann styggzt ennþá meir. Eg hugsaði mig um. Líklega var hann hræddur við hundinn. Ég fór nú með Trygg að stórum steini. Þar lét ég hann leggjast niður og skipaði honum með harðri hendi að liggja þar, þangað til ég kallaði á hann. En ekki var ég kominn lengra en tvö eða þrjú skref frá honum, þegar hann laumaðist á eftir mér með rófuna á milli afturfótanna. Ég fór með hann að steininum aftur og hótaði hon- um öllu illu, ef hann lægi nú ekki kyrr. Til þess að sýna iðrun sína, velti hann sér um hrygg og teygði frá sér lappirnar. Ég labbaði af stað í annað sinn. Þegar ég var kominn stuttan spotta, leit ég við. Nú elti Tryggur ekki. Hann stóð eftir hjá steininum, greyskinnið, og mændi eftir mér og ýlfraði ósköp lágt. Freysteinn Gunnarsson þýddi Ég bandaði til hans með hendinni, svo að hann settist. Síðan hélt ég áfram. Hesturinn hafði ekki hlaupið langt. Hann var farinn að bíta aftur á grasbletti dálítið neðar í brekkunni. Ég læddist hægt og gætilega niður að grasblettinum, þar lagðist ég niður og skreið svo áfram á fjórum fót- um. Allt í einu heyrði ég skrjáfa í grasinu fyrir aftan mig. Það var Tryggur. En hann hafði hljótt um sig, og ég lét hann fara sinna ferða. Nú bað ég guð og allar góðar vættir að hjálpa mér. Þegar ég átti skammt eftir að hestinum, fór ég að blístra ósköp lágt, eins og oft er gert til þess að spekja styggan hest. Ég blístraði í sífellu, alltaf jafnhátt, og dró það eins lengi og ég gat. Og mikið varð ég feginn, þegar ég sá, hvaða áhrif þetta hafði. Hesturinn hætti að bíta, reisti höfuðið, starði beint fram fyrir sig og stóð grafkyrr. Það var eins og hann væri negldur niður. — Það er maður hérna f rammi sem heldur þv( fram að hann geti fjarlægt axlabönd án þess að menn taki eftir þvf... — Pst.. fannstu þjölina sem ég faldi f franskbrauðinu... s POLLUX — Og svo læturðu mig halda á þyngstu töskunni... — Komið heim seint að kveldi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.