Morgunblaðið - 23.05.1974, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 23.05.1974, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1974 31 hjálpa börnum sínum, til að þeim liði vel, allt fram til þess slðasta, þess vegna fór vel á því, er hún var kölluð burt frá okkur og lagði upp I hina löngu för, að hún væri hjá þeim, sem hún unni mest, og sonur hennar fylgdi henni hinzta spöl- inn. ,,Ég minnist þín, um daga og dimma nætur“, eins og skáldið kvað, það mun ég áreiðanlega gera, því að mér þótti svo vænt um hana Lóu frænku mína. Að leiðarlokum þakka ég henni allt, sem hún gaf og gerði fyrir mig af hjartahlýju sinni, ég geymi það í hjarta mínu ævinlega i minningunni um hana. Algóði Guð, gef þú Birgi, Sonju, Ölafi litla og Jóa þann styrk og kjark, sem þau þurfa með núna, til að harmur þeirra og sorg dvíni og þau geymi minningu um yndis- lega móður og dásamlega konu í hjarta sér og mæti komandi degi með festu og dugnaði. Þannig veit ég, að Lóa hefur viljað skilja við þau. Um leið og ég votta þeim mina dýpstu samúð, kveð ég mina elskulegu frænku. Blessuð sé minning hennar. V.F.E. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. María Guðmunds- dóttir — Mmningarorð V. Briem. Það er torráðin gata og litt skilj- anleg, hvers vegna kona i blóma lífsins er svo snöggt kölluð á braut. Það hefur jafnan verið svo, að sviptibyljir mannlegrar tilveru eru utan þess sjónmáls, er þekk- ing okkar nær til. Oft gleymist manni hversu lífið er stutt og bilið tæpt milli fjörs og feigðar, þessar óræðu leikfléttur lífs og dauða leita sterkt á huga manns. María Guðmundsdóttir fæddist 2. desember 1931 að Egilsstöðum, Ölvesi, Árnessýslu, dóttir hjón- anna Markúsinu Jónsdóttur og Guðmundar Steindórssonar, er þar bjuggu og þar ólst hún upp i fríðum systkinahópi með 2 systr- um og bróður. Guðmundur faðir hennar er látinn fyrir nokkrum árum, en Markúsína móðir henn- ar býr enn á Egilsstöðum, ásamt Steindóri syni sinum. í april 1958 giftist María Helga Daníelssyni vélstjóra og var þeim 4ra barna auðið, tveir drengir og tvær stúlkur, það elsta 14 ára, en það yngsta 8 ára. Kynni okkar Maríu hófust fyrir um það bil 12 árum, þegar ég átti þvi láni að fagna að vera í sambýli við þau I Safamýri 63. Ég hefði vart getað hugsað mér betra sam- býlisfólk en þau hjón og þegar María birtist í ibúðinni hjá okkur, svo glöð og svo kát að vanda, þá var eins og birta og hlýr ylur Jóhanna Gunnbjörns- dóttir — Mumingarorð kæmu með henni og verður sú hugljúfa mynd um hana geymd i hugum okkar. María var frábær móðir og hús- móðir, börnin vel uppalin, prúð og elskuleg i allri framkomu, sem vænta mátti af slikri ágætiskonu, sem hún var. Maria var alltaf boðin og búin að rétta öðrum hjálparhönd, ef á þurfti að halda og fæ ég seint þakkað henni alla þá hjálp og aðstoð er hún veitti mér við frá- fall eiginkonu minnar fyrir þrem árum síðan. Eg kveð hana með söknuði, en sárastur verður söknuðurinn hjá eiginmanni hennar og börnum svo og aldraðri móður og systkin- um og bið ég þeim öllum Guðs blessunar. Blessuð sé minning hennar. Emil Helgason. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Hvers vegna skyldi ég eyða tímanum í það að lesa Bibliuna, tvö þúsund ára gamla bók? Vel má vera, að hún hafi flokkast undir heitið „góóar bókmenntir". En ætti ungur maður ekki fremur að hyggja að því, sem nær er nútímanum? Menn, sem eru eldri og skynsamari en þú, hafa haft mikinn hag af því að lesa bók bókanna. Davíð segir: „Ég geymi orð þín i hjarta mínu, til þess að ég skuli ekki syndga gegn þér“. Job talar um, að hann meti orðin af munni Guðs meira en líkamsfæðuna. En menn á seinni tímum hafa komizt að sömu niðurstöðu og hlotið sömu uppörvunar í Bibliunni. Thomas Carlyle sagði: „I aumasta hreysi er bók nokkur, þar sem andi mannsins hefur árþúsundum saman fundið Ijós og næringu og svar og skilning á því, sem hrærist í dýpstu fylgsnum hans.“ Daniel Webster komst svo að orði: „Biblian er bók trúar og bók kenningar, bók siðgæðis, bók um átrún- að, sérstök opinberun frá Guði. En hún er einnig bók, sem fræðir manninn um ábyrgð einstaklingsins, um tign hans og um að hann sé jafn náunga sínum.“ Of gömul? Margföldunartaflan er ævagömul. Hef- ur aldurinn dregið úr gagnsemi hennar eða áreiðan'- leika? Hafa árin svipt Hómer, Shakespeare og Síseró glæsileik þeirra? Það, sem er gamalt þarf ekki að vera gamaldags. „Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu alls ekki undir lok liða.“ segir Biblían. F.4.11.1938. D.24.4.1974. ÞANN 3. maí var jarðsungin frá Fossvogskapellu Jóhanna Gunn- björnsdóttir. Hún var fædd á Akureyri, dóttir hjónanna Odd- rúnar Jóhannsdóttur og Gunn- björns Egilssonar. Ölst upp hjá foreldrum sfnum og lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavfk 15. júní 1958. Hinn 17. júnf giftist Jóhanna eftirlifandi manni sínum Jakob Jabobssyni fiskifræðing og bjuggu þau alla tíð að Nökkvavogi 41, þar sem fyrir voru foreldrar Jóhönnu. Börn þeirra eru: Sól- veig 15 ára, Oddur Sigurður 13 ára og Auðbjörg 7 ára. Allir dagar eiga kvöld, það verður ekki umflúið. En helfregn- inni um Jóhönnu var næsta erfitt að trúa. Þegar vinir og ástvinir eru kallaðir burt í blóma lífsins, — þá erum við sjaldnast viðbúin. Við efumst um réttlætið en verðum samt að lúta þeim dómi, sem upp er kveðinn. Við hin eldri erum lengi að sætta okkur við þann dóm, hvað þá blessuð börnin. Þeirra harmur, eigin- mannsins og hinna öldnu for- eldra, er sár. Móðirin, eiginkonan, allt I einu tekin burt og gömlu hjónin sjá á bak seinna barni sfnu, sem var þvf einkar hjart- fólgið. Samhjálpin milii dóttur og foreldra var mjög til fyrirmyndar. Jafnframt heimilisstörfum og ágætri umönnun barna sinna stundaði Jóhanna nám við Há- skóla Islands. Jóhanna tók nám sitt alvarlega enda sóttist það með eindæmum vel. Hún hafði lokið B.A. prófi f tungumálum og bjó sig undir kennslustörf. Enga slika hæfileika hef ég þekkt fyrr. Af- burða námsgáfur en jafnframt ótrúleg lægni og þolinmæði við kennslu. Þessa nutu hennar eigin börn sem annarra, enda var gleði hennar mikil, er börnin komu heim við ágæta vitnisburði. Já, það er mikið, sem eiginmaðurinn og börnin hafa nú misst og erfitt að skilja hversvegna mamma dó svo ung. Hún hafði búið börnin sin sem bezt hún mátti undir lffið og stutt eiginmann sinn dyggilega f ábyrgðarmiklu starfi hans. Nú kemur það sér vel. Öll störf Jó- hönnu voru markviss. Umhyggja og næmur skilningur varð til þess, að börnin sýndu henni ein- stakt trúnaðartraust. Jóhanna var fögur kona. Fyrir eiginmanninn var hún ekki aðeins vel menntaður lifsföru- nautur, heldur hin glæsilegasta kona, ætíð vel klædd og svo íignarleg í framkomu og á velli, að flestir tóku eftir, hvar sem hún fór. Ferðir þeirra hjóna lágu vfða um heim. Aldrei lét Jóhanna á því bera, sem hún hlaut að vita, hvað hún hafði fram yfir marga aðra. Það var alltaf jafn ánægjulegt að eiga tal við Jóhönnu. Það skipti engu hvort rætt var um alvarleg efni eða gamanmál. Henni var það enginn vandi að finna hugs- unum sínum búning, hvort sem notuð var íslenzka eða erlend tunga, — með hinu ágætasta mál- fari. Kostir þessarar indælu konu verða seint taldir, — hún vildi öllum gott gera. Við höfðum rætt um það að eiga saman næstu jól með fjölskyldum okkar. Þar verður nú skarð fyrir skildi. Tengslin og kynnin milli fjölskyldnanna hafa verið okkur hjónum ómetanleg. Þeir, sem guðirnir elska, deyja ungir. — Bjartari tímar eru nú aftur í hönd farandi. Við vitum, að Jóhönnu líður nú vel. Hún átti enga heitari ósk en að börnum sínum mætti vegna vel. Eftir bestu getu munt þú uppfylla þá ósk Jakob minn. Við ættingjar þínir og vinir, sem viljum sýna samúð okkar og veita aðstoð, finn- um svo átakanlega til vanmáttar- ins. Blessuð sé minning Jóhönnu Gunnbjörnsdóttur. Jóhann Klausen. Timburhús til sölu Viljum selja timburhús 9x36 ferm. Húsið er vel byggt hentugt sem sumarbústaður o.fl. Húsið stendur við verksmiðju okkar við Sundahöfn, og er til sýnis hjá verkstjóra. Óskum eftir tilboði í húsið. Mjólkurfélag Reykjavíkur. Stór-rýmingarsala I. VEFNAÐARVÖRUR Sumarkjólaefni verð frá kr. 250.- Jersey efni verð frá kr. 200 - pr.m. ULLAREFNI, verð frá kr. 350 - II. VEGGKLÆÐNINGAR Hessian, margir litir, verð kr. 1 70 ferm. Allskonar veggklæðningar, þykkar og þunnar. Verð kr. 1 00.—— 200.- pr. ferm. eftir gerðum. íiT"peysur"ö".fl7 Dömupeysur frá kr. 100. — Dömuvesti kr. 600.-. — Barnaúlpur frá kr. 1500.-. — Dömujakkar kr. 1 500.-. — Pils kr. 800.-. — Síðbuxur kr. 950.-. Sérstakur 10% afsláttur af sængum, koddum og sængurfatnaði ■v1 M Vörumarkaðurinnhf. ÁRMÚLA 1A, SÍMI 861H REYKJAVÍK.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.