Morgunblaðið - 13.06.1974, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1974
Hafnarfjörður:;
Sjálfstæðismenn og
óháðir í meirihluta
FYRSTI fundur nýkjörinnar
bæjarstjórnar Hafnarf jaröar
var haldinn á þriðjudaginn.
Stefán Jónsson (Sjálfstfl.),
aldursforseti bæjarstjórnarinn-
ar, stjórnaði fundinum þar til
kjör forseta hafði farið fram.
Við atkvæðagreiðslu var Stefán
Jónsson kjörinn forseti bæjar-
stjórnar, 1. varaforseti var kjör-
inn Vilhjálmur Skúlason (Fél.
óháðra borgara) og 2. varafor-
seti Haukur Helgason (Alþfl.)
Þvf næst tók Árni Grétar Finns-
son (Sjálfstfl.) til máls, og
gerði hann grein fyrir því, að
Sjálfstæðisfiokkur (5 fulltrú-
ar) og Félag óháðra borgara (2
fulltrúar), hefðu gert með sér
samkomulag um m.vndun
meirihluta á þessu kjörtfmabili
og kynnti málefnasamning,
sem þessir aðiiar höfðu gert.
I ræðu Árna Grétars Finns-
sonar kom fram, að fyrsta verk
hins nýja meirihiuta verður að
taka til endurskoðunar fjár-
hagsáætlun bæjarins, þar sem
tekjur og lánsfé til fram-
kvæmda hafa reynzt allt að 50
milljón krónum lægri en ráð
var fyrir gert við afgreiðslu
fjárhagsáætlunarinnar f janúar
s.l. Á síðasta kjörtínlabili
mynduðu Alþýðuflokkur,
Framsóknarflokkur og Félag
óháðra borgara meirihluta í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Að lokinni ræðu Árna Grét-
ars Finnssonar var kjörinn
bæjarstjóri til næstu fjögurra
ára, og var Kristinn 0. Guð-
mundsson endurkjörinn í það
starf með 8 atkvæðum af 11.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, Félags óháðra borg-
ara og Framsóknarflokksins
greiddu honum atkvæði, en
fulltrúar Álþýðufiokksins og
Alþbl. skiluðu auðu. Þvf næst
var kjörið í bæjarráð og fasta-
nefndir. Hlutu þeir Arni Grét-
ar Finnsson, (Sjálfstfl.), Arni
Gunnlaugsson (Fél. óháðra
borgara) og Kjartan Jóhanns-
son (Alþfl.) kosningu f bæjar-
ráð.
Á fundinum kom fram, að
Framsóknarflokkur hafði ritað
bæjarfulltrúum annarra flokka
en Sjálfstæðisflokksins bréf, og
óskað eftir samvinnu um mynd-
un meirihluta. Þá kom það
einnig fram hjá Kjartani Jó-
hannssyni fulltrúa Alþfl., að
Alþfl. vildi áframhaldandi
samstarf þeirra flokka sem
áður mynduðu meirihluta, að
viðbættum liðsstyrk kommún-
ista, sem nú eiga einn mann, en
áttu engan áður.
f ræðu Árna Grétars Finns-
sonar kom fram, að sá meiri-
hluti sem nú væri myndaður í
Hafnarfirði. hefði að baki sér
um 60% kjósenda. Lýsti hann
yfir ánægju sinni með myndun
þessa meirihluta, og kvaðst
vona að samstarfið yrði gott og
árangursríkt.
Þessi mynd var tekin á bæjar-
st jórnarf undinum f Hafnar-
firði á þriðjudaginn. Lengst til
vinstri situr Einar Þ. Mathie-
sen, Guðmundur Guðmunds-
son, Árni Grétar Finnsson, þá
bæjarritarinn og Stefán Jóns-
son, forseti bæjarstjórn-
arinnar.
Stofnlánadeild
landbúnaðarins:
Stöðvar lán
til dráttarvélakaupa
STOFNLÁNADEILD landbúnað-
arins hefur stöðvað lán til
dráttarvélakaupa. Fram til þessa
hefur stofnlánadeildin lánað 40%
af söluverði dráttarvéla. Innflytj-
endum var á sl. vetri tilkynnt, að
tændur myndu áfram njóta sömu
íyrirgreiðslu, en af þvf hefur ekki
orðið, enda hefur ríkisstjórninni
ekki tekizt að afla fjár til Stofn-
lánadeildar landbúnaðarins
fremur en til annarra stofnlána-
sjóða. Rætt hefur verið um að
hækka verulega vexti af stofnlán-
um landbúnaðarins og binda þau
með gengis- eða vfsitölutrygg-
ingu.
Miðað við venjulegan innflutn-
ing landbúnaðartækja þyrftu inn-
flytjendur að greiða 110 til 120
milljónir króna í innlánsbindingu
í bönkunum. Þessi ráðstöfun veld-
ur því bændum miklum erfiðieik-
um nú, enda er meginþorri allra
landbúnaðartækja fluttur inn á
þessum árstíma.
Landbúnaðartækin eru fyrst og
fremst notuð til fóðuröflunar.
Samt sem áður njóta þau ekki
undanþágu frá reglum um inn-
lánsbindingu eins og t.a.m. sam-
bærilegar útgerðarvörur. Iðnað- I
urinn hefur einnig fengið nokkr-
ar undanþágur frá innlánsbind-
ingunni. Landbúnaðurinn fær á
hinn bóginn engar undanþágur,
nema að þvi er varðar fóðurbæti.
En notkun fóðurbætis er sáralitil
á gildistíma efnahagsráóstafan-
anna. Sú undanþága kemur
bændum því ekki að notum.
Áætlað er, að binda þurfi um.
það bii 70 þúsund kr. fyrir hverja
innflutta dráttarvél. Eðlilegur
innflutningur er u.þ.b. 600
dráttarvélar. Hér er því um að
ræða 42 milljónir króna. Þar sem
álagning á landbúnaðartæki er f
algjöru lágmarki er útséð um, að
innflytjendur geti staðið undir
þessum kostnaði. Þessar ráð-
stafanir koma einmitt á þeim
tíma, er mest er flutt inn áf land-
búnaðartækjum.
Torfæru-
keppni
á Hellu
Hellu 12. júní.
NÆSTKOMANDI laugardag fer
fram torfærukeppni á vegum
Flugbjörgunarsveitarinnar á
Hellu, en þessi keppni er liður i
fjáröflun sveitarinnar.
Keppnin verður háð ofan
Suðurlandsvegar við Varmadals-
læk og hefst kl. 14.00. Ftugbjörg-
unarsveitin gekkst fyrir slíkri
keppni á síðasta ári og þótti hún
takast vel. Horfói fjöldi fólks þá á
keppnina. Má því búast við góðri
þátttöku á laugardaginn, en einn-
ig verður dansleikur á vegum
Flugbjörgunarsveitarinnar í
Hellubíói um kvöldið.
Jón.
Þrettán þús. miðar
seldir á Listahátíð
MJÖG góð aðsókn hefur verið að
fiestum atriðum Listahátfðarinn-
ar, og skömmu eftir hádegi í gær
höfðu selzt samtals yfir 13 þús.
miðar. Mest virðist aðsóknin hafa
verið á tónleika, en fram að þessu
hefur verið uppselt á alla tón-
leikana.
Jón Steinar Gunnlaugsson
framkvæmdastjóri Listahátíðar-
innar sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að uppselt hefði ver-
„Byggt á veikum grunni”
MBL. snéri sér í gær til Jóns G.
Sólnes, fyrrverandi forseta
bæjarstjórnar Akure.vrar, og
innti eftir áliti hans á mvndun
vinstri meirihluta í bæjarstjórn-
inni. Eins og kom fram í Mbl. í
gær, hafa Framsóknarflokkur,
Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur
og Samtök vinstri manna myndað
meirihluta, en á síðasta kjörtfma-
bili voru Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur í meirihluta.
Jón G. Sólnes sagði:
„Þetta kemur okkur Sjálf-
stæðismönnum dálítið á óvart, því
að við töldum mjög góðan grund-
völl fyrir áframhaidandi meiri-
hlutasamstarfi. Við gáfum Fram-
sókn og J-listasamsteypunni kost
á viðræðum strax eftir kosningar,
en fengum þau svör, að það væru
byrjaðar viðræður milli hinna
svokölluðu vinstri flokka um
samstarf, og ekki yrði rætt við
okkur nema þær viðræður færa
út um þúfur.
Það skaut upp þeirri hugmynd
eftir kosningar, þegar ljóst var að
viðreisnarflokkarnir voru í meiri-
hluta, að ganga til samstarfs við
Alþýðuflokksmanninn á J-listan-
um, en þótt samstarf J-listamanna
hafi brostið í landsmálum, átti að
reyna að halda því í bæjarstjórn,
svo ekkí gat að því orðið. En þaó
er líka merkilegt við þennan
meirihluta, að Alþýðubandalagið
fær mikil völd miðað við lítið
fylgi. Hér nyrðra er almennt
megn ótrú á þessu samstarfi, og
menn telja það byggt á veikum
grunni."
Óvenjuleg sigling
Á ELLEFTA tímanum á
þriðjudagskvöldið fór bifreið
út af veginum við brúna á
Kópavogslæk, lenti í læknum
fyrir ofan brúna, sigldi síðan
undir hana og kom upp fyrir
ncðan hana. Að sögn sjónar-
votta mun ökumaður, sem var
stúlka, hafa misst stjórn á
bílnum rétt við brúna, þannig
að hann snerist við á veginum
og rann svo stjórnlaust aftur-
ábak í lækinn. Stúlkunni og
farþega sem í bilnum var, tökst
að komast út áður en hann fór á
kaf. Þau voru flutt á slysadeild
Borgarspítalans, en meiðsli
þeirra eru óveruleg.
ið á einleikstónleika Barenboim í
Háskólabíói og á mánudagskvöld-
ið var uppselt á tónleika Sinfóníu-
hljómsveitar íslands undir stjórn
Allaim Lombard, en þá lék ein-
leik Jean Bernard Pomier. I
fyrrakvöld lék svo Sinföníuhljóm-
sveit Lundúna í Laugardalshöll
undir stjórn André Previn og var
fullt hús áheyrenda. Hljómsveitin
átti svo að leika aftur í höllinni i
gærkvöld og um hádegisbilið í
gær höfðu selzt 1500 miðar, en
fullsetin tekur Laugardalshöllin
2500 manns.
Jón sagði, að aðsókn að leikhús-
unum hefði verið nokkru minni
en að tónlistarsölum. Sænski
leikflokkurinn Dramaten sýndi
þrisvar sinnum i Þjóðleikhúsinu,
og skorti ávallt nokkuð á að upp-
selt væri á sýningarnar. Sömu
sögu er að segja af sýningum
þeim, sem verið hafa hjá Leik-
félagi Reykjavíkur. En uppselt er
á skemmtun Lona Herzt í
Norræna húsinu og á kvöldstund-
ina i Háskólabíói í kvöld er einnig
uppselt. Þá er uppselt á allar
þrjár sýningar Litlu flugunnar
eftir Sigfús Halldórsson, en þær
sýningar fara fram í kaparett-
formi í Þjóðleikhúskjallaranum. 1
kvöld er svo frumsýning i Iðnó á
Sæmund fróða. Er það forvitni-
legt og skemmtilegt verk, en ekki
er þó uppselt á þá sýningu. Á
föstudagskvöld verður óperan
„Þrymskviða" frumsýnd i Þjóð-
leikhúsinu og hefur forsala að-
göngumiða gengið mjög vel.
Á laugardagskvöldið verður
konsert Matti Talvela, bassa-
sönvara, og er því sem næst upp-
selt. Frumsýning á nýju ballet-
verki verður í Þjóðleikhúsinu á
miðvikudagskvöldið og er það ís-
lenzki ballettfiokkurinn, sem sýn-
ir, með þátttöku Sveinbjargar
Alexanders. Lokatónleikar Lista-
hátiðarinnar fara fram í Laugar-
dalshöliinni og er uppselt á þá!
Vladimír Ashkenazy stjórnar þá
Sínfóníuhljómsveit íslands, en
einleikari verður Renate Tebaldi.
Auk þessara nýju bindingar-
reglna þurfa innflytjendur að
greiða 10% af fob .verði i
geymslufé af öllum vörum, sem
keyptar eru með gjaldfresti. Uti-
lokað er að fjármagna þennan
innflutning án þess að nota þann
Framhald á bls. 18
Fyrsti fundur
á Reykjanesi
FYRSTI sameiginlegi framboðs-
fundurinn á Reykjanesi verður í
kvöid í Hlégarði Mosfellssveit og
hefst hann klukkan 20.30. Þar
tala fulltrúar allra flokka sem
bjóða fram í kjördæminu.
Jónas Halldórs-
son sextíu ára
Sextugur er í dag Jónas Hall-
dórsson, hinn iandsfrægi sund-
kappi og landsliðsþjálfari i sundi.
Jónas setti á sinum tíma 57 Is-
iandsmet i sundi og var það afrek
sem ekki átti sér hliðstæðu i ísl.
íþróttum Iengi vel, eða þar til
einn nemenda hans bætti um bet-
ur. Jónas þjálfaði sundmenn ÍR
um aldarfjórðungsskeið og var
jafnframt iengi landsliðsþjálfari
með góðum árangri.
Hin síðari ár hefur Jónas rekið
Gufubaðstofuna að Kvisthaga
29, og nýtur i þvi starfi, sem hin-
um fyrri störfum sínum, al-
mennra vinsælda. Vinir Jónasar
telja að í dag sé hann yngstur í
anda þeirra íslendinga, sem náð
hafa sextugsaldri. Kona Jónasar
er Rósa Gestsdóttir og búa þau að
Kvisthaga 29.
Leiðrétting
VEGNA fréttar í blaðinu í g
um beitingu nálarstunguaðferi
við lækningu augnsjúkdóms sl
það leiðrétt, að Guðmund
Björnsson augnlæknir og dóse
við H.í. hefur ekki haft viðko
andi sjúkling til meðferðar
eru ummæli höfð eftir honi
byggð á misgripum. Er be(
mikillega velvirðingar á þessi
mistökum.
Aðeins tveir
tóku hæfnispróf
VEGNA fréttar í Mbl. í gær um
skipun konsertmeistara við Sin-
fóníuhljómsveit islands er rétt að
taka fram, að aðeins tveir um-
sækjenda, þau Guðný Guðmunds-
dóttir og Þorvaldur Steingrims-
son gengust undir hæfnispróf, að
því er Gunnar Guðmundsson
framkvæmdastj óri hljómsveit-
arinnar upplýsti i samtali við Mbl
i gær.