Morgunblaðið - 13.06.1974, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ/FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1974
— Jarðskjálftar
Framhald af bls. 1
hús muni ekki þoia annan eins
kipp, því mörg þeirra eru illa
sprungin. Maður sem stóð á hlað-
inu að Norðtungu þegar ósköpin
gengu yfir lýstu þvf þannig, að
það hefði verið eins og bærinn
gengi f bylgjum, og engu hefði
verið lfkara en hann ætlaði að
stingast á endann. Slfkan ógnar-
kraft hafa húsin ekki boiað.
Fyrri skjálftinn varð klukkan
16.08 en sá seinni klukkan 17.55.
Fyrri skjálftinn mældist 5,4 stig á
Richterkvarða og sá seinni um 6,3
stig. Sfðari skjálftinn er með
mestu skjálftum sem orðið hafa
hér á landi á þessari öld. Hann er
t.d. svipaður og jarðskjálftinn
mikli, sem varð við Dalvík 1934,
en miklar skemmdir urðu af
völdum hans. Svipaður skjálfti
varð einnig við Reykjavík 1926,
en 1963 var jarðskjálfti í mynn;
Skagafjarðar sem mældist 7 stig
Hann var fjarri mannabyggð, 0{
varð þvi ekki tjón af hans völdum.
Áætlað er að Suðurlandsskjálft-
arnir 1896 og 1784 hafi verið 7,5
og 8 stig. Að sögn Ragnars
Stefánssonar var styrkur seinni
skjálftans í gær svo mikill, að
erfitt reyndist að ákvarða styrk-
leika hans nákvæmlega, styrk-
leikinn var meiri en skjálfta-
mælar Veðurstofunnar þoldu.
Eins og komið hefur fram í
fréttum, hafa verið tíðir jarð-
skjálftar á þessu svæði undan-
farnar vikur, og hafa þeir átt upp-
tök sín í Síðufjalli. Talið var að
hrinan væri smám saman að fjara
út, en reyndin hefur verið önnur.
Sagði Ragnar Stefánsson að það
væri mjög óvanalegt hérlendis að
slík skjálftahrina væri undanfari
stærstu skjálftanna, venjulega
kæmi stærsti skjálftinn fyrst og
síðan smáskjálftahrina.
„Þessir tveir síðustu jarð-
skjálftar koma mér á óvart. Þeir
varpa alveg nýju ljósi á þá
skjálftahrinu, sem áður hefur
orðið vart, en þeir hafa verið for-
skjálftar að þessum skjálftum,
sem ég álít hámark þessarrar
hrinu. Ég tel að þessir skjálftar
útiloki alveg þann möguleika, að
skjálftahrinan sé undanfari elds-
umbrota,“ sagði Ragnar Stefáns-
son.
Talið er að skjálftar á borð við
þann seinni í gær, þ.e. um 6,3 stig,
komí að meðaltali á 10 ára fresti.
Þá er talið að skjálftar yfir 5 stig
á Richterkvarða komi að meðal-
tali annað hvert ár. Mbl. spurði
Ragnar hverju það sætti, að
skjálftar af þessarri stærðargráðu
kæmu nú aðeins ári eftir 5,4 stiga
skjálfta sem varð í Grindavík í
september í fyrra.
Ragnar sagði: „Þetta tímabil
núna er tímabil tiltölulega mik-
illar virkni í jarðskjálftum, eins
og virðist líka vera í eldsumbrot-
um. Þetta virðist vera mjög
mismunandi, t.d. var talsvert
langt í stóran skjálfta 1963. En ég
tel afar ólíklegt að búast megi við
stórum skjálftum úr þessu, a.m.k.
ekki i þessarri hrinu".
— Ráðstefnan
Framhald af bls. 1
vegar um fyrirkomulag at-
kvæðagreiðslu á ráðstefnunni.
Þrátt f.vrir hundruði undir-
búningsfunda hefur ekki tekizt
að ná samkomulagi um þetta
efni. Fyrrnefndu löndin, eins
og Bandaríkin, Sovétrfkin, Jap-
an o.fl., óttast að hin löndin
muni sameiginlega geta knúið
fram vilja sinn, en þessi lönd,
þar með talin iöndin f „þriðja
heiminum", hafa meirihluta,
110 á móti 30. Fyrrnefndu lönd-
in eru því fylgjandi að ráð-
stefnan vinni ágrundvelli sam-
hljóða álits, þannig að aðeins
komi til atkvæðagreiðslu þegar
samhljóða niðurstaða næst
ekki.
Þess er vænzt, að ráðstefnan
ákveði 12 mílna landhelgi al-
mennt, með þvi skilyrði að
málamiðlun náist um nýtingu
og stjórn efnahagssvæða hand-
an 12 mílna markanna, og um
siglingar á slíkum svæðum og á
sundum. Einnig er búizt við, að
hún setji á laggirnar alþjóðlega
stofnun sem veiti leyfi til
vinnslu úr sjávarbotninum.
— Kissinger
Framhald af bls. 1
sagði t.d. að gagnrýninni á
hendur Kissinger í þessu efni
yrði að linna, en hefja yrði um
leið rannsókn á þvf, hvernig og
hve mikið af upplýsingum „læki“
út úr stjórnarskrifstofunum f
Washington. Slíkur „leki“ var
einmitt orsök hlerana árið 1972.
Þá sagði Hubert Humphrey, fyrr-
um varaforseti, að Kissinger ætti
að taka það rólega og halda áfram
hinu árangursríka starfi sfnu i
embætti utanríkisráðherra.
— Previn
Framhald af bls. 3
Motown-hljómplötufyrirtækið
og nú síðast hafi hann leikið
inn á hljómplötu, þar sem Glen
Gampell syngur ný lög eftir
Burt Bacharach og stjórnaði
Bacharach sjálfur hljómsveit-
inni.
Annars hefur Árni upp á síð-
kastið aðallega verið viðriðinn
flutning á klassískri tónlist.
Þannig stjórnaði hann tónleik-
um í Los Angeles fyrir fáeinum
dögum, þar sem fluttar voru
Árstíðir Vivaldis. Hér var um
að ræða nýstofnaða kammer-
hljómsveit, er nefnist Los
Angeles Festval Orchestra og
aðstandendur eru fyrst og
fremst stúdíóhljóðfæra-
leikarar, sem tóku sig saman
um að setja þessa hljómsveit á
laggirnar. Árni er hins vegar
aðalstjórnandi hennar. „Já, það
er mikið fjör í tónlistarlífinu
um þessar mundir," segir Árni,
„og við töldum að ný hljómsveit
myndi fá þar góðan hljóm-
grunn, sem mér sýnist líka ætla
að verða raunin. Við fáumst
aðallega við klassíska tónlist
þessa stundina, en ég gæti
trúað að við tækjum til við ný-
klassíska eða „móderne“-tónlist
þegar líður fram á haustið og í
vetur.“
Hvað um jassinn? „Æ, já,
jassinn," segir Árni dálítið
sorgmæddur. „Ég held, að jass-
inn sé að deyja út i Ameríku
eða að minnsta kosti er sára-
litill áhugi fyrir honum i Los
Angeles. Mér sýnist hann vera
að renna saman við rokkið og
fyrir bragðið hittir maður nú
gamlar jassstjörnur, sem fá
ekki að spila nema á einhverj-
um ómerkilegum búllum og
verða helzt að borga með sér.
Ég held að Evrópa sé miklu
líflegri núna hvað jassinn
snertir."
Ætlar Árni þá að ílendast í
Los Angeles? „Ég verð þar,
þangað til eitthvað betra
býðst," svarar hann. „Mig
langar til að spila minna og fara
að stjórna meira. Sá tími kemur
þegar maður hefur lært nógu
mikið og séð nógu margt, að þá
langar mann að fara að miðla
einhverju af kunnáttu sinni og
þekkingu, og hljómsveitar-
stjórn er bezta leiðin til þess.
Núna finnst mér erfíðast að
halda við öllum þessu mismun-
andi tegundum af tónlist sem
stúdíóvinnan krefst."
Hvað þá um að snúa heim til
íslands? Árni er heldur van-
trúaður á að það gerist í bráð.
„Mér finnst ég verða var við
dálítið tónlistarsnobberí hér
heima. Bara af því að ég lék
fyrir dansi í Breiðfirðingabúð í
gamla daga og hef verið viðrið-
inn jassinn undan farið held ég
að ég eigi hér erfitt uppdráttar
sem tónlistarmaður innan
klassískrar tónlistar. Fólk veit
ekki, að flestír góðir jass-
leikarar geta undið sér fyrir-
hafnarlítið yfir í klassíska tón-
list en klassískir tónlistarmenn
geta í fæstum tilfellum leikið
jass svo vel sé. Þar gildir allt
annar nótnalestur og einnig
hitt að jass er ekki hægt að
læra, jass verður maður að
„fíla". En kannski er maður
eins og Previn einmitt til þess
fallinn að brjóta þessa fordóma
niður."
Meðan við sötrum síðustu
dreggjarnar úr kaffibollanum
spyr ég Árna hvort hann geri
ekkert af þvi að semja sjálfur.
„Það getur varla heitið, ég held
ég sé heldur lítill kompónisti,"
svarar hann og hlær við. Þó
kemur það upp úr kafinu að
hann hefur samið tönlist í tvo
sjónvarpsþætti sem eiginkona
hans, Dörte, hefur gert en hún
er prófessor I leikhúsfræðum
og þó einkum látbragðsleik við
háskóla í Los Angeles og er nú
stödd hér á landi með honum.
En Árni vill sém minnst um
þessar tónsmíðar sinar tala.
Ég hafði einnig ætlað mér að
heyra í John Dankworth og
konu hans Cleo Laine um tón-
leikana í kvöld en vegna þess
hversu seint þau komu til
landsins í gærkvöldi verður að
gera þeim skil á öðrum vett-
vangi. — B.V.
— Vinstri
samvinna
Framhald af bls. 3
sóknarmenn sitja í ríkisstjórn
með mönnum, sem þeir telja
ekki treystandi í utanrikismál-
um, en sem þeir samt sem áður
hafa leitt til úrslitaáhrifa á
stefnu vinstri stjórnar f varn-
armálum og Alþýðubandalags-
menn sitja í rfkisstjórn með
mönnum, sem þeir segja að
sýni slíkan undirlægjuhátt
gagnvart útlendingum að ekki
verði við unað. Þetta er vinstri
samvinna í verki.
— Landnáms-
hátíð
Framhald af bls. 3
Selfossbúa. Flutt verður ávarp
fjallkonunnar og Lúðrasveit Sel-
foss leikur, en henni stjórnar
Ásgeir Sigurðsson. Klukkan 14.40
flytur Matthías Johannessen
skáld hátíðarræðu og á eftir flyt-
ur Rósa B. Blöndal frumsamin
hátiðarljóð sín. Þá syngur Karla-
kór Selfoss, íþróttakeppni í gamni
og alvöru verður, og loks barna-
skemmtanír. Dansleikir verða um
kvöldið bæði á útisvæði og í Sel-
fossbíói.
Á þlaðamannafundi, sem þjóð-
hátíðarnefnd Árnessýslu hélt í
gær en í henni eiga sæti Eiríkur
J. Eiríksson, Hafsteinn Þorvalds-
son og Jóhannes Sigmundsson,
kom fram að að sjálfsögðu væru
öll útihátíðahöld háð veðri, en
þótt veðrið yrði ekki gott, ættu
menn að eiga erindi til Selfoss,
þar sem margt forvitnilegt væri
að finna á þeim fjölmörgu sýn-
ingum, sem opnar verða í sam-
bandi við þessa landnámshátíð.
— 1000 milljónir
Framhald af bls. 32
hugað að taka 600 millj. í erlend-
um lánum. Ekkert liggur fyrir um
það, hvort þau fást, en Seðlabank-
anum falið að leita eftir þeirri
lántöku. Ennfremur mun sjóður-
inn hugsa sér að taka lán að upp-
hæð 450 millj. hjá lífeyrissjóðun-
um, en það hefur Byggingarsjóð-
ur ríkisins einnig hugsað sér að
gera, og vaknar þá sú spurning,
hvort lífeyrissjóðirnir geti staðið
undir þessum miklu fjárkröfum á
hendur þeim, auk þess að halda
upþi eðlilegri lánastarfsemi til líf-
eyrissjóðsþega og lífeyrisgreiðsl-
um til þeirra, sem komnir eru á
eftirlaunaaldur.
— Stöðvar lán
Framhald af bls. 2
gjaldfrest, er fæst er’lendis. Það
hefur hins vegar í för með sér
mikla áhættu.
Nú hefur innlánsbindingin ver-
ið lækkuð úr 25% í 15%. Þannig
að samtals verður frystingin 25%
en ekki 35% eins og var í byrjun,
þegar reiknað er með þeim 10%,
sem leggja verður inn vegna
gjaldfrests erlendis.
Stofnlánadeild landbúnaðarins
býr nú við mikinn fjárskort. Af
þeim sökumhefurdeildin ekki get-
að lánað bændum til dráttarvéla-
kaupa. Samkvæmt upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur aflað
sér, hefur verið rætt um að
hækka vexti af stofnlánum land-
búnaðarins og binda þau visitölu-
eða gengistryggingarákvæðum.
Ennfremur mun nauðsynlegt að
skera stórkostlega niður öll ián.
Umferðarfræösla '74
5 og 6 ára barna í Reykjavík
Lögreglan og Umferðarnefnd Reykjavíkur, í samvinnu við Fræðsluskrif-
stofu Reykjavikurborgar, efna til umferðarfræðslu fyrir 5 og 6 ára börn
í Reykjavik. Hvert barn á þess kost að mæta tvisvar, klukkustund í
hvort skipti. Sýnt verður brúðuleikhús og kvikmynd, auk þess sem
börnin fá verkefna spjöld.
Fræðslan fer fram sem hér greinir:
24.—25. júní
Álftamýrarskóli 09.30 11.00
Laugarnesskóli 14.00 16.00
Lögreglan.
Umferðarnefnd Reykjavíkur.
rTÍl SÖIll----------------------------
4ra herbergja íbúð við Álfheirrla.
Sumarbústaður í nágrenni Reykjavíkur.
Upplýsingar gefur
Hafsteinn Hafsteinsson,
Garðastræti 38, simi: 25325
AUGLÝSING FRÁ
BÆJARSÍMANUM
Götu- og númeraskrá
fyrir Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavog,
Hafnarfjörð og Bessastaða- og Garðahrepp,
símnotendum raðað eftir götunöfnum og í
númeraröð, er til sölu hjá Innheimtu Landssím-
ans í Reykjavík, afgreiðslu Pósts og síma í
Kópavogi og Hafnarfirði. Upplag ertakmarkað.
Verð götu- og númeraskrárinnar er kr. 1.000.-
fyrir utan söluskatt.
Bæjarsíminn í Reykjavík.
Vélaviðgerðarmaður
óskast
Stórt og þekkt vélasölufyrirtæki óskar að ráða sem fyrst starfsmann í
vélaþjónustudeild.
Starfssvið er, frágangur og stilling nýrra véla, eftirlits- og viðhaldsþjón-
usta.
Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu og reynslu á þessu sviði. Góð
enskukunnátta æskileg.
Skriflegar umsóknir um starf þetta ásamt upplýsingum um fyrri störf,
aldur og annað sem máli skiptir póstsendist merkt:
VÉLAÞJÓNUSTUDEILD
PÓSTHÓLF555
REYKJAVÍK.
ORLOF
Að gefnu tilefni vill Vinnuveitendasamband ís-
lands vekja athygli á reglugerð um breytingu á
reglugerð nr. 161, 14. maí 1973 um
breytingu á reglugerð nr. 150, 21. júní 1972
um orlof.
2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar falli niður. í
hennarstað komi ný mgr. svohljóðandi.
Fastur starfsmaður telst hver sá skv. reglugerð
þessari, sem skv. lögum, gildandi kjarasamn-
ingi eða venju á rétt á að minnsta kosti þriggja
mánaða uppsagnarfresti.
í breytingu þessari felst, en engir nema þeir,
sem hafa 3ja mánaða uppsagnarfrest skuli taka
orlofslaun þ.e. fara í frí á fullu kaupi. Allir þeir,
sem skv. samningum og lögum, hafa minna en
3ja mánaða uppsagnarfrest fá hins vegar greitt
orlofsfé þ.e. a.m.k. 8.33% af útborguðu kaupi.
Greiðsla orlofsfjár inn á póstgiró og endur-
greiðsla þess til launþega fer fram skv. 2. gr.
reglugerðar nr. 161 — 1973.
VINNUVEITENDASAMBAND ÍSLANDS