Morgunblaðið - 03.01.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANUAR 1978
15
Synir hennar tveir eru mjög
ólikir. Carlo, þeim eldri er mjög
illa við Ijósmyndara og á
myndir móður sinnar horfir
hann yfirleitt ekki. Sérstaklega
fellur honum illa þegar hún
leikur í sorglegum myndum og
hefur látið þau orð falla að
þegar móðir hans leiki i sorg-
legum myndum, eigi hún að
gefa honum merki um að hún
sé alls ekki sorgmædd.
Eduardo er andstæða Carlos.
Hann kann vel við þá hugsun
að móðir hans sé fræg kvik-
myndastjarna og dag einn við
hádegisverðarborðið sagði
hann við hana kíminn á svip:
„Veiztu að núna minnirðu mig
á leikkonuna Sophiu Loren."
Áður en hún ól syni sina hafði
hún tvisvar sinnum misst fóstur
og synina varð að taka með
keisaraskurði. Að visu langaði
Sophiu alla tið að eignast dótt-
ur og langar það enn, en sona
sinna vegna vill hún ekki taka
þá áhættu sem þvi er samfara.
Carlo og Sophia höfðu oft orð
á því áður en þau eignuðust
synina, að vel gæti svo farið að
þau arfleiddu börn. Enn i dag
langar Sophiu til þess, en með
aldrinum hefurCarlo orðið and-
snúinn þeirri hugmynd, og
bent á að þau hjón ættu þegar
tvö börn
Sophia gerir sér vel Ijósa þá
hættu að hún spilli sonum sín-
um með dekri. Hún hefur alla
tíð reynt að forðast það, en
leiðbeint þeim þegar þess hef-
Sophia hrnðist ekki barnaræningja
sem nú hralla hinn vestræna heim.
ur verið þörf. Fyrir skömmu fór
Carlo yngri að hafa mikinn
áhuga á dægurlagatónlist, og
móðir hans sá hann fyrir sér 1 6
ára gamlan með skegg og sítt
hár, spilandi á gitar. Hún ákvað
því að hann skyldi læra á
pianó, og þegar hann litlu siðar
spilaði opinberlega á tónleik-
um, var hún mjög stolt af
honum. Sophia segir mann
sinn ekki vera góðan föður, en
hann hafi batnað með árunum.
Hann láti hana um að ala þá
synina upp, en hún leitar til
hans þegar um mikilvæg mál
er að ræða.
Vegna þess að Sophia byrjaði
ung að vinna fyrir sér, fór hún
á mis við æsku sina. Hana
segist hún lifa i gegnum börn
sín, enda eyðir hún miklum
tíma með þeim. Ef ég lít ung-
lega út, er það af þvi að mér
finnst ég vera tvítug."
Hún hlakkar enn alltaf jafnmik-
ið til að leika í kvikmyndum og
finnst allir morgnar vera eins
og morguninn þegar hún lék i
sinni fyrstu kvikmynd. „Þegar
ég hætti að hlakka til að leika í
kvikmyndum og hafa gaman af
því, ætla ég að draga mig i hlé.
En ég hef engan áhuga á að
gera mikið veður út af því,
þegar að því kemur, heldur
ætla ég að draga mig hljóðlaust
úr kvikmyndaheiminum. Það
er aldrei að vita nema mér
snúist hugur og mig langi til að
byrja að leika á ný."
E OBSERVER •iMnát. THE OBSERVER THE OBSEE
Hann hefur komið því þannig
fyrir að hann nýtur fulls stuðn-
ings miðstjórnar flokksins
(sem skilgreina má sem áhrifa-
þing landsins: leiðtoga sem tap-
ar stuðningi miðstjórnarinnar,
er auðveldlega hægt að sparka,
eins og raunin varð um
Khrushchev).
Hernaðarlist Brezhnevs til að
ná þessari stöðu var mjög ein-
föld. í hvert sinn sem mikilvæg
flokksleiðtogastaða úti á landi
hefur losnað siðast liðin tiu ár,
hefur hann venjulega skipað i
stöðuna næstvaldamesta mann-
inn á eftir sér. Þetta hefur
hann jafnframt gert við útnefn-
ingu nýrra ráðherra. Með öðr-
um orðum myndað stöðugri og
fyrirsjáanlegri heim varðandi
æðri stöður innan flokksisn og
rikisstjórnarinnar, þar sem
stöðuveitingar eru í samræmi
við metorðin. Þetta hlýtur að
vera vel þegin breyting frá
stjórnartið Khruschevs.
Hver er þá niðurstaðan um
stöðu Brezhnevs sem á yfir-
borðinu virðist óhagganlegur i
sessi, þrátt fyrri veikindi sin?
Sérfræðingar i málefnum
eftir
Mark
Frankland
Sovétríkjanna á Vesturlöndum
íhuga nú þann möguleika sem
þessi aðstaða veitir Sovét-
ríkjunum, i fyrsta skipti nú frá
dauða Lenins, að nýr léiðtogi
taki við embætti (eða eins það
hét i upphafi, verði sá fyrsti
meðal jafningja) án þess að
sverta nafn forvera síns.
Stalín, Malenkov, Khrushch-
ev, — allir voru þeir opinberað-
ir fyrir sovéskum almenningi
þegar þeir fóru frá, sem hetjur
með risastóra fætur, ataða auri.
Almenningi getur ekki likað
við slíkar gerðir, þvi hvers
vegna skyldi hann virða leið-
toga sinn, þegar öruggt er að
þegar hann fer frá völdum,
verður hann smánaður?
Maður hefur það á tilfinning-
unni að þetta komi ekki til með
að eiga sér stað, þegar að brott-
farartíma Brezhnevs kemur.
Londoij, 20. desember,
The Observer.
Mýrdælingar vara
við hættunni af smit-
sjúkdómum í búfé
BÆNDUR landsins horfast nú í
augu við þá alvarlegu staðreynd
að smitsjúkdómar í búfé þeirra
fara vaxandi ár frá ári og samfara
því eykst hættan vegna meiri og
auðverldari samgangna, svo ekki
sé nú talað um óhindraða búfjár-
flutninga milli sveita og héraða,
sem þvf miður munu vera alltof
algengir, enda þótt slfkt brjóti f
bága við öll lög og reglur, er sett
hafa verið þar um. IVIeð þetta í
huga haf Mýrdælingar rætt þessi
alvarlegu mál og gert um þau
eftirfarandi samþykktir.
Sameiginlegur fundur sveitar-
stjórnarmanna og búnaðarfélag-
anna í Mýrdal, Bf. Dyrhólahrepps
og Bf. Hvammshrepps, haldinn að
Ketilsstöðum laugardaginn 17.
desember 1977 samþykkir eftir-
farandi:
I. Vinna bér að því að styrkja
og efla allar hugsanlegar varúðar-
og varnaraðgerðir, er miða að
auknu öryggi gegn útbreiðslu
þeirra hættulegu smitsjúkdóma
búfjár, sem sífellt fara vaxandi og
óðum færast nær hreinum
varnarhólfum.
II. Fundurinn bendir á þá
ómetanlegu sérstöðu, sem Mýr-
dælingar eru i að vera enn lausir
við þá miklu vágesti, er nú herja á
búfé margra landsmanna og valda
gífurlegum erfiðleikum og fjár-
hagstjóni.
III. Fundurinn hvetur mjög
eindregió til sameiginlegrar varð-
stöðu og heitir fyllsta stuðningi
sínum við þá sem falin hefur ver-
íð forsjá þessara mála á opinber-
um vettvangi og þeir geri stjórn-
ar- og áhrifavöldum ljóst hve mik-
ið er hér um að tefla.
(Fréttatilkynning)
NÝH - NÝTT - NÝTT
—Piltar á öllum aldri------------------------------
Námskeiö í snyrtingu, hreinlæti, framkomu,
kurteisi og siðvenjum hefst í næstu viku.
Innritun og upplýsingar í síma 36141 eftir kl. 13.
»__________________________________________________
Unnur Arngrírnsdóttir
Vegna tollalækkunar á innfluttum gólfteppum, sem tók gildi 1 janúar s I , lækkum við
teppabirgðir okkar til samræmis við hið nýja útsöluverð, þannig að þér getið strax i dag
valið teppi á hinu nýja útsöluverði
Og við bjóðum eftir sem áður mesta teppaúrval borgarinnar á einum stað -— Þér getið
valið úr um 70 stórum tepparúllum eða um 200 mismunandi gerðum af hinum
vinsælu dönsku Weston-teppum
OPIÐ TIL KL. 7 Á FÖSTUDÖGUM. LOKAÐ Á LAUGARDÖGUM.
Teppadeild
riH
A A A A A A * s
3 ílii t
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121, sími 10600 — 28603.