Morgunblaðið - 03.01.1978, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1978
| atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Ólafsvík Umboðsmaður óskast til að annast dreif- ingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið. Upplýsingar á afgreiðslu í Reykjavík. Sími 10100. ‘ Snyrtisérfræðingur óskast á snyrtistofu. Upplýsingar í síma 10266 Dyravörður óskast á Hótel Borg nú þegar. Upplýsingar á skrifstofunni. Hótel Borg.
Óskum að ráða stýrimann á 230 tonna bát til tog- og netaveiða. Uppl. í símum 97-8880 og 97-8886.
Keflavík Vantar blaðbera í vesturbæ. Uppl. á af- greiðslu sími 1 1 64, Keflavík. pltrg]iti!tí>I$íl»il> Vanur maður óskast á 1 50 tonna netabát. Uppl. í síma 99-3775.
Hagvangur hf.
óskar að ráða hönnuð í fataiðnaði FYRIRTÆKIÐ: Traust verzlunar- og framleiðslufyrirtæki í fataiðnaði á höfuðborgarsvæðinu. í BOÐI ER Starf hönnuðar það er hönnun, sauma- skapur og sniðning tízkufatnaðar ásamt verkstjórn þessara verkþátta á sauma- stofu fyrirtækisins. Mjög góð vinnuaðstaða og góð laun. V/Ð LE/TUMAÐ YNGRIMANNI: karli eða konu, sem hefur góða reynslu í sniðningu og saumaskap og helst mennt- un á þessu sviði. Nauðsynlegt að maðurinn sé hugmynda- ríkur, samvinnulipur og hafi gott auga fyrir tízkufatnaði og þróun hans. Umsóknir ásamt uppl um aldur, mennt- un, starfsferil, mögulega meðmælendur, síma heima og í vinnu sendist fyrir 13. janúar 1978 til
Beitingamenn vantar á línubát sem rær frá Vestmanna- eyjum. Upplýsingar í síma 98-1459 í hádeginu og á kvöldin Atvinna óskast sem er fjölbreytt og áhugaverð. Get byrjað strax. Er tvítug með Verzlunar- skóla- og stúdentspróf. Uppl. í síma 93-1 346.
Tækniteiknari óskar eftir atvinnu. Lysthafendur leggi inn til- boð á auglýsingadeild Morgunblaðsins fyrir 5. janúar 1978 merkt: „TT — 4058."
Verkamenn Óskum að ráða strax nokkra verkamenn til verksmiðjustarfa. Upplýsingar hjá verk- stjóra. Jón Loftsson hf. Hringbraut 121
Skrifstofustarf Verslunarfyrirtæki óskar að ráða í eftirtal- in störf: 1 Almenn skrifstofustörf. 2. Símavörslu og vélritun Um er að ræða heilsdags störf Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf leggist inn á afgreiðslu Morgun- blaðsins fyrir 9. janúar merkt: „Góð vinnuaðstaða — 41 79."
iiagvangur hí. c/o Ó/afur Örn Haraldsson, skrifstofustjóri rekstrar og þjóðhagfræðiþjónusta Grensásvegur 13, Reykjavík, simi 83666. Farið verður með allar umsóknir sem a/gert trúnaðarmá/. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknareyðub/öð fást hjá Hagvangi h. f. Afgreiðslumaður Óskum að ráða afgreiðslumann á næst- unni í verzlun vora. Þeir sem vildu sinna þessu komi til viðtals sem fyrst. BÍLANAUST H/F S/ðumúla 7—9
Morgunblaðið óskar
eftir blaðburðarfólki
VESTURBÆR
Granaskjól
AUSTURBÆR
Miðtún, Sóleyjargata
Ingólfsstræti, Samtún
Lindargata
Skipholt 54 — 70
Flókagata 51—69
ÚTHVERFI
Sogavegur
Upplýsingar í síma 35408
— Kongress-
flokkurinn
Framhald af bls. 1 1
um sem hún eitt sinn stjórnaði
með harðri hendi.
Flokkurinn klofnaði síðast 1969
þegar frú Gandhi losaði sig undan
áhrifum valdamikilla flokksleið-
toga sem höfðu töglin og hagldirn-
ar í flokknum. Flokkurinn var
stofnaður fyrir 92 árum og stjórn-
aði „baráttunni fyrir sjálfstæði
undan stjórn Breta og var undir
forustu manna eins og Mahatma
Gandhi og föður Indiru Gandhi,
Jawaharlal Nehru, fyrsta forsæt-
isráðherra Indlands.
Deilurnar i flokknum að þessu
sinni eiga rætur að rekja til kosn-
ingaósigurs frú Gandhi í marz i
fyrra. Hún hvarf af sjónarsviðinu
í nokkra mánuði en hófst síðan
handa um að reyna aftur að ná
völdum í flokknum þegar rann-
sóknir hófust á neyðarástandslög-
um sem lauk með kosningaósigri
hennar og ásökunum gegn Sanjay
syni hennar og öðrum nánum
samstarfsmönnum.
Frú Gandhi sagði þegar hún
hafði verið kjörin flokksforseti í
dag að 'hún mundi byggja upp
flokk sinn undir vígorðinu
„Áfram til sósíalismans". Hún
sagði að flokkurinn mundi berjast
fyrir málstað réttindalausra og
kúgaðra þjóðféiagsþegna. Hún
kvaðst aðeins mundu gegna starf-
inu um tíma. Hún sagði að siðan
yrði kosið í trúnaðarstöður og hún
mundi halda áfram að berjast fyr-
ir flokkinn.
Hún kvað sér það ekki hafa
verið ljúft að segja skilið við
flokksbræður sína en kvaðst hafa
látið til skarar skríða þar sem
Kongressflokkurinn hefði ekki
lagt út á nýjar brautir og eflt starf
sitt, svo og vegna þess að flokkur-
inn hefði ekki ráðizt nógu harka-
lega á stefnu stjórnarinnar sem
kæmi niður á þjóðarhagsmunun-
um.
— Verkalýðs-
hreyfíngin
reiðubúin —
Framhald af bls. 16
sambands Islands, I samtali við Mbi
þar sem ummæli ráðherranna voru
borin undir hann Björn benti á, að i
sumum tilfellum hefðu Alþýðusam-
bandið jafnvel lagt fram mótaðar tillög-
ur um úrræði í þessum efnum, t d
hefði svo verið fyrir síðustu kjarasamn-
inga „Ég vona einungis, að þessi um-
mæli tákni að þetta samráð eigi nú að
auka og meira tillit verði tekið til okkar
heldur en áður "
Björn sagðist að öðru leyti ekki vilja
túlka hvað i orðum ráðherranna fælist
„Við höfum haft ýmislegt um það að
segja hvernig við teldum að mætti
draga úr hraða verðbólgunnar, en ef
þetta merkir það að það eigi að fá
okkur i eitthvert kompani til að falla frá
okkar samningum eða skerða kjör okk
ar fólks, þá erum við ekki til viðræðu
um það."
Hann var spurður álits á þeim um-
mælum Ólafs Jóhannessonar um að
gripa ætti til viðnámsaðgerða fyrir
kosningar og hvort Björn teldi sjálfur
að réttara væri að biða þar til skýrari
linur hefðu fengizt í kosningunum „Ég
efast ekkert um að ástandið er að ýmsu
leyti þannig núna. að það dugar sjálf-
sagt ekki að biða með allar aðgerðir
fram yfir kosningar og það getur jafn-
vel talizt fráleitt. þvi að vafalitið þarf að
gera ýmsar ráðstafanir til þess að halda
atvinnuvegunum gangandi á þessu
tímabili "
— Baskar
Framhald af bls. 18
er ábyrgt fyrir fjölda sprengjutil-
ræða og morðum á Spáni.
Rikisstjórnin tók þéssa ákvörð-
un eftir 10 stunda samfellda
fundarsetu. Á sama tíma leitaði
lögreglan ákaft að 1.212 kg af
sprengiefni sem stolið var í tveim-
ur ránum í Baskahéruðunum. Þó
að enginn hafi lýst sig ábyrgan
fyrir þessum þjófnuðum, er talið
að ETA-samtökin eigi þar hlut að
máli, en þau lýstu sig ábyrg fyrir
þjófnaði á 264 skotvopnum í
vopnaverksmiðju fyrir 2 vikum
síðan.