Morgunblaðið - 03.01.1978, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1978 25
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Munið sérverzlunina
með ódýran fatnað.
Verðlistinn Laugarnesvegi
82. S. 31330.
Brotamálmur
er fluttur að Ármúla 28, simi
37033. Kaupi allan brota-
málm langhæsta verði. Stað-
greiðsla.
St. Jósepsspítalinn
í Reykjavik óskar eftir að taka
á leigu fyrir sjúkraliða ein-
staklingsibúð (helst ris) og í
nágrenni spítalans. Uppl. hjá
starfsmannahaldi i sima
29302. St. Jósepsspitalinn.
Röskur sendill
óskast hálfan daginn. Uppl. í
síma 86100. Páll Þorgeirs-
son og co., Ármúla 27.
Vélstjóri
með full réttindi úr rafmagns-
deild óskar eftir atvinnu i
landi. Tilboð merkt: „A —
4178" sendist augld. Mbl.
fyrir 1 5. janúar.
íbúð til leigu
6 herb. ibúð i Kópavogi til
leigu. Upplýsingar i sima
17311 kl. 1 7—20 i kvöld.
Atvinnuhúsnæði
til leigu á III. hæð efst i
Bankastræti. Upplýsingar i
sima 21299.
Kaupi umslög og
póstkort
með virkjana- og fossa-
frimerkjum (1956 —1960).
Auk þess óska ég eftir um-
slögum, póstkortum og
afklippum með nýrri frimerkj-
um. Greiðsla i sænskum
krónum. Svar, þar sem
lægsta verð er tilgreint,
óskast sent:
Leif Adolfsson.
Svefsaregatan 6. 42T68 V.
Frölunda. SVERIGE.
Tilkynnið þátttöku i[]3. og
4. janúar kl. 17 — 19 (kl.
5—7) og greiðið fyrir máls-
verð.
St.Sm.
RÓSARKROSSREGLAN
* M ♦ R C
V 'R « 7 -. 7
V ATLANTIS PRONAOS
313330830
Filadelfia
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30.
Enskukennsla félagsins byrj-
ar aftur mánudaginn 9. jan-
úar. Innritun verður að Ara-
götu 14 laugardaginn 7. jan-
úar frá kl. 3—6. Áriðandi að
allir nemendur mæti til innrit-
unar.
Stjórnin.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
húsnæöi
22 ára reglusamur
maður óskar eftir einstaklingsíbúð eða
stóru góðu herbergi. Starfar í miðbæn-
um. Einhver fyrirframgreiðsla. Uppl. í
síma 21 597 þriðjudag kl. 6.30 — 9.00.
Vinningsnúmerin
í happdrætti
Styrktarfélags
vangefinna
1. vinnungur Plymouth Volare kom á
miða nr. R—4492 1. 2. —10. vinningur:
Bifreið að eigin vali að upphæð 1.200
þús. kr., kom á eftirtalin númer:
R—4204, R-18115, R-21684, R-
47007, R-47073, R-63142, K-2094,
X-381 1, Y-6621.
Styrktarfélag vangefinna.
Stangveiðimenn
Veiðiréttur í Haukadalsá Dalasýslu (neðan
Haukadalsvatns) er til leigu veiðitímann
1 978, ásamt húsi.
Tilboð sendist í ábyrgð, merkt: „Tilboð”,
til Sigurðar Jónssonar Köldukinn fyrir 20.
jan. 1978. Réttur áskilinn að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum. Stjórnin.
Skipstjórafélag íslands
Kvepnfélagið Hrönn og
Stýrimannafélag íslands
Árshátíð
félaganna verður i Snorrabæ nk. laugar-
dag. Skemmtunin hefst kl. 18.30 með
sameiginlegum gleðskap. Kjarnar leika
fyrir dansi. Miðar verða afhentir á skrif-
stofu Stýrimannafélags íslands í Hafnar-
stræti 1 8 föstudag kl. 1 6.00—1 8.00 og
laugardag kl. 13.30—15.00 Nefndin.
Sauðárkrókur
Aðalfundur Sjálfstæðisfélagsins verður i Sæborg sunnudaginn
8. janúar kl. 1 6.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Norðurland vestra:
Kjördæmisráðsfundur verður haldinn að Sæborg Sauðárkróki
laugardaginn 7. janúar nk. kl. 3 siðdegis (1 5) stundvislega.
Dagskrá:
1. Kjörnefnd leggur fram tillögur um framboð til alþingis-
kosinga
2. Önnur mál.
Áriðandi er að allir fulltrúar flokksfélaga og fulltrúaráða i
kjördæmisráði mæti á fundinum.
Kjördæmisstjórn
\l GLVSINGA
SÍMINN ER:
22480
Minning:
Jóhann Árnason
bankafulltrúi
Það er 28. desember, baráttunni
er lokið með ósigri, minn kæri
vinur, Jóhann Asbjörn Arnason,
er látinn. Enn eitt fórnardýr hins
hræðilega sjúkdóms, krabba-
meinsins.
Það var fyrir tæpum tólf árum
að ég sá hann fyrst, virðulegur
eldri maður með grátt yfirvarar-
skegg.
En er ég á aðfangadagskvöld s.l.
klippti þetta skegg til uppi á
Landspítala þá gerði ég mér fulla
grein fyrir þvf að samfylgdinni
væri senn að Ijúka og skammt
mundi vera í að ferðin hæfist yfir
móðuna miklu.
Það var erfitt að kynnast Jó-
hanni, hann var af gamla skólan-
um, röggsamur, ákveðinn og mik-
ill atorkumaður sem aldrei
geymdi það til morguns sem hægt
var að gera i dag.
En smám saman jukust okkar
kynni og hin síðari ár voru það
ekki margir dagar sem við ekki
hittumst eóa ræddumst við.
Ég læt aðra um að skrifa um
uppruna Jóhanns og starf en vil í
þessum fátæklegu línum þakka
honum samfylgdina sem ég var
svo lánsamur að njóta.
Þær eru orðnar nokkrar veiði-
ferðirnar sem við erum búnir að
fara saman en lax- og sjóbirtings-
veiði var það sport sem hann
hafði hvað mest dálæti á. Af hon-
um lærði ég mörg handtökin enda
var Jóhann mjög slunginn veiði-
maður.
Næst á eftir veiðinni var það
skákin, en þar sem annars staðar
stóð hann meðalmanninum miklu
framar.
Eitt er það að vera handlaginn
og annað að vera völundur í hönd-
unum en það var Jóhann svo
sannarlega. Ber þar hæst klukku-
viðgerðir hans. Ekki hafði hann
lært iðnina en leikni hans með
klukkur og klukkuverk var með
ólikindum. Jafnvei úrsmiðir leit-
uðu á náðir hans með klukkur
sinar svo og Taflfélagið og ein-
staklingar. Sjálfur á ég gamla
klukku sem legið hafði uppi á
háalofti úti á landi þar sem ekki
var hægt aó gera við hana. Jó-
hann gerði klukku þessa upp,
smíðaði í hana tannhjól sem vant-
aði og skar síðan út í tré litla
andlitsmynd til að skreyta klukk-
una með. Nú tel ég klukku þessa
dýrgrip og að sjálfsögðu gengur
hún alltaf. Eitt sinn sagði hann
mér frá því að hann hefði fengið
klukku til viðgerðar, kom hún öll
í pörtum í kassa og fylgdi henni
aðeins eitt lóð sem átti að duga
bæði fyrir slátt og gang. Hafði
hann verið að reyna að koma
klukkunni saman en ekki gengið
og taldi hann að sennilega hefði
vantað f kassann. Morguninn eftir
var klukkan samt komin í gang og
farin að slá reglulega. Hafði Jó-
hann legið andvaka fram eftir
nóttu og hugsað um klukkuna og
um miðja nótt fann hann lausn-
ina, setti klukkuna saman og gat
þá loks sofnað.
Eitt baráttumál átti þessi fyrr-
verandi bankafulltrúi en það var
fjármála- og vaxtapólitík. Hefur
hann ritað margar greinar um
þessi mál og á kreppuárunum gaf
hann út bækling um fjármál, og
ekki ómerkari maður en Ólafur
heitinn Thors kom til hans og
fékk hjá honum 20 eintök.
A þessum fátæklegu orðum má
sjá að genginn er merkur maður
sem við Anna og drengirnir þökk-
um samfylgdina.
Elsku Svava mín og Anný, eng-
inn getur bætt ástvinamissinn en
megi Guð gefa ykkur styrk í sorg
ykkar.
Friðrik Guðmundsson
— Minning
Margrét
Framhald af bls. 31.
hrið á skrifstofu. Siðar eignaðist
hún indælt heimili. Hamingjan
gaf henni góðan lifsförunaut. En
því miður verður ekki við allt
ráðið. Ung veiktist hún og varð
lengstum hin siðari ár vió erfið
veikindi að striða. 0, hve mér
fannst það synd með svo elsku-
lega sál. Oft varð hún ekki sjálf-
ráð. Það var eins og eitthvað gripi
inn í og vísaði aðra leið en ætlað
var. Hún átti góða að. Elskuleg
móðir sem gerði allt sem í hennar
valdi stóð og systkin og vinir.
Stundum birti til og þá var hægt
að vinna, en það stóð ekki nogu
lengi.
Oft hitti ég hana hin siðari ár.
Við rifjuðum upp. Við vorum svo
miklir og góðir Eskfirðingar. Þá
skildi ég svo margt sem fór fram-
hjá mér i hinni daglegu önn.
Alltaf var heiðríkjan sú sama og
góðvild sinni og elskulegheitum
hélt hun til hinstu stundar. Dag-
farsprúð qg falleg var hún alla tið
í mínum augum og með þolin-
mæði bar hún sinn kross. Björtu
minningarnar brjótast því fram.
Við áttum margar glaðar stundir
saman. Guð er góður, Já, hann er
sannarlega góður. Það sé ég þegar
nú skilja leiðir í bili. Við unnum
okkar heit við altarið i gömlu og
hlýju kirkjunni okkar á Eskifirði.
Þau hafa dugað betur en hægt var
að vonast eftir.
Og nú þegar ég er að festa þessi
kveðjuorð min á blað verður mér
hugsað til heimilis hennar á Eski-
firði. Þangað kom ég oft. Þar var
svo indælt andrúmsloft og vináttu
fólksins hennar á Eskifirði naut
ég í ríkum mæli og nýt enn.
Því sendi ég ástvinunum ein-
lægar samúðarkveðjur, um leið og
ég bið fermingar- og skólasystur
minni allrar blessunar á nýjum
áfanga og þakka samfylgdina.
Atthagarnir voru okkur kærir.
Guð blessi allar þessar góðu
minningar.
Árni Helgason.