Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐÍÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978 5 Búlgarski þjóðdansaflokkurinn sem skemmtir á búlgörsku vikunni að Hótel Loftleiðum. Þau munu kynna þjóðdansa og þjóðsöngva frá heimalandi sínu á búlgörsku vikunni að Hótel Loftleiðum. Búlgörsk kynningarvika í GÆR hófst í Víkingasal Hótels Loftleiða svokölluð búlgörsk vika. Að þessari viku standa eftirtaldir aðilar: Búlg- arska ferðaskrifstofan Balkantours, flugfélagið Balkanair, Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar, sem selur ferðir til Búlgaríu, Flug- leiðir og Hótel Loftleiðir. Tilgangur vikunnar er að auka tengsl milli íslendinga og Búlgara að því er fram kom í ræðu sendiherra Búlgara á blaðamannafundi á Hótel Loftleiðum í gær. I tilefni þessarar viku eru staddir hér nokkrir Búlgarar sem m.a. munu matreiða ýmsa búlgarska rétti, sýna þjóð- dansa og syngja þjóðlög. I ræðu sendiherrans kom einnig fram, að á undanförn- um árum hefur orðið mikil aukning á ferðum útlendinga til Búlgaríu. Hann sagði að mikil rækt hefði verið lögð við ferðamannaiðnað landsins síð- ustu ár. Sendiherrann, sem hefur aðsetur í Ósló, sagði að ferða- menn til Búlgaríu þyrftu nú ekki vegabréfsáritun. Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar er aðili að kynn- ingarvikunni, en ferðaskrif- stofan mun í sumar bjóða upp á 20 ferðir til Búlgaríu. Kjartan sagði á blaðamanna- fundinum að hann reiknaði með að um 800 íslendingar heimsæktu Búlgariu í sumar, en um páskana dvöldust 56 manns á vegum ferðaskrif- stofunnar á búlgörskum bað- ströndum við Svartahaf. Framsóknarmenn á Selfossi: Ingvi Eben- hardsson í fyrsta sæti INGVI Ebenhardsson varð efstur í skoðanakönnun framsóknar- manna á Selfossi um helgina. Hann hlaut samtals 157 atkvæði, þar af 82 í fyrsta sæti, en atkvæði greiddu 166. Tveir seðlar voru ógildir. Kosið var í sex sæti, en frambjóðendur voru 9. í öðru sæti varð Hafsteinn Þor- valdsson með 142 atkvæði, þar af 91 í fyrstu tvö sætin. 3. Gunnar Kristmundsson 133 atkvæði, þar af 83 í fyrstu þrjú sætin. 4. Guðmundur Kr. Jónsson 122 atkvæði, þar af 81 í fyrstu fjögur sætin. 5. Sigríður Hermannsdóttir 122 atkvæði, þar af 103 í fyrstu fimm sætin. 6. Sigurdór Karlsson 102 atkvæði. 7. Guðmundur Eiríksson 85 atkvæði. 8. Magnús Sveinbjörnsson 68 atkvæði. 9. Sig- urður Ingimundarson 34 atkvæði. Framsóknarmenn hafa nú tvo menn í hreppsnefnd Selfoss, Haf- stein Þorvaldsson og Eggert Jó- hannsson, en sá síðarnefndi gaf ekki kost á sér í skoðanakönnuninni. Athugasemd frá Jóni Helgasyni MORGUNBLAÐINU hefur borizt yfirlýsing frá Jóni Helgasyni, for- manni Einingar á Akureyri, sem er svohljóðandí: „Vegna skrifa Morgunblaðsins síöastliöinn föstudag, þar sem vitnað er í ummæli mín á fundi verkalýðs- félaganna á Hótel Loftleiöum daginn áöur, kemst ég ekki hjá því aö gera smá athugasemd, þar sem töluvert brengl hefur orðiö á hjá sögumanni (því aö ekki átti neinn blaöamaöur aö vera þar) og sannleikanum hagrætt á miður geöfelldan hátt, trúlega til aö skapa óvild milli mín og þeirra atvinnurekenda, sem mættu okkur í þeim viöræöum og öörum atvinnu- rekendum á svæöinu. Þaö er alls ekki rétt aö ég hafi sagt aö atvinnurekendur, sem mættu okkur í viðræöum, sem voru aöeins þrír, auk formanns Vinnuveitenda- félags Akureyrar, fulltrúa Vinnuveit- endasambands íslands og Vinnu- málasambandsins, sem voru tveir, vildu semja viö okkur, en gætu þaö bara ekki, því aö þá væri bönkunum lokaö fyrir þeim. Þaö bar aldrei á góma í þeim viðræöum, enda höföaöi ég ekki til þeirra. Þar kom aðeins fram þaö, sem ég hafði áöur viöhaft viö blaöamenn Morgunblaösins, sem birtist 11. apríl, aö ekkert jákvætt hefði komið út úr viöræðunum og aö atvinnurekendur teldu sig ekki vera til svara um þessi kröfumál laun- þegasamtakanna, heldur ríklsstjórn- ina. Þaö er því eölilegt og sjálfsagt að Baröi Friðriksson segi þetta firru. Á slíkum fundum er þögnin þeirra helgasta vopnið og hefur dugaö þeim vel. Hins vegar vitnaöi ég í ýmis ummæli fyrr og nú, sem atvinnurek- endur á félagssvæöi mínu hafa sagt við mig prívat, aö það vaáru ekki laun þess verkafólks, sem ég er meö umboö fyrir, sem væru ■ aö sliga atvinnureksturinn. Það væru allt aðrar og verri álögur og þar nefndi ég vaxtaokriö og ann'aö, sem væri miklu þyngra á metunum hjá þeim — ennfremur aö þaö hafi komiö fram hjá þeim í röksemdafærslum, aö þeim yrði ekki fært að semja, þótt þeir vildu og gætu, því aö þá yröi bara bönkunum lokaö fyrir þeim. Viöskipti mín viö atvinnurekendur á félagssvæði mínu hafa veriö góö. Því þykir mér þaö miður ef mislukkaöur sögumaöur eða mönnum tekst aö breyta því. Ég vona því aö svo veröi ekki. Þarna var um lokaðan fund aö ræða um innri mál launþega, sem ekki átti aö berast á torg og engin ástæöa til aö vera aö hlaupa með ummæli mín frekar en annarra ræöumanna, sem þarna tóku til máls.“ Bcsia ferdaúrvalid "Samvinnu feróir Austurstræti 12 simi 27077 9 LANDSYN / N SÓLARFERÐ TIL FIMM LANDA r ^ SUMARBÚSTAÐIR A NORÐURLONDUM r \ SEPTEMBERDAGAR Á ÍTALÍU Þessi ferð er einstæö Feröaskrifstofur verkalýös- og samvinnu- Eftir beint þotuflug í sólarbæinn Portoroz Hún hefst á 4ra daga dvöl i sólarbænum hreyfinganna á Noröurlöndum eiga aö reka i Jugóslaviu, sem er á frægri baöstrond, er Portoroz á strönd Adríahafsins mörg sumarhús. svipuö og til eru hér á landi, ettir þnggia daga dvol lagt upp 115 daga ferft Ekiö á fimmta degi noröur meö landi í en vegna tengsla við þessar skrifstofur og þær til ítaliu i loftkældum langferðavagm Okkur loftkældum langferöavagni — því þaö er heitt. félagsmálahreyfingar sem aö þeim standa. ber hratt yfir, þvi vegir eru greiðfærir Ekiö aö hinu fagra Bledvatni, en siöan liggur geta Landsýn og Samvinnuferðir nú boöiö is- Fyrstu dogunum er eytt i aó skoöa tvær leiöin til Austurríkis, til Salzburgar, en þar bjó lendingum upp á dvöl í sumarhúsum á hinum frægar borgir, Bolonga og Flórenz, en báöar hann Mozart og borgin ómar af tónlist og Norðurlondunum. eru frægar af sogu og listum, og fyrir fegurö sögu. Veröiö fer eftir gerö húsanna og árstíma. Siglt til Elbu, sem er 5 mílur undan Frá Salzburg okum viö til Múnchen, sem en unnt ætti aö vera að leigja mjog gott hús strondinni Eyjan er fræg fyrir aö þar var er milljónaborg. hofuöborg Bæjaralands Þar fyrir kr 45.000 — á viku; hús sem rúmar fjóra Napoleon í haldi 1814—15 verður dvalið i þrjá daga, enda nóg aö sjá — Viö bjóöum fjölskyldufargjóld til Norður- Ekió til Rómar, hinnar eilifu borgar, og þar og svo er þaö hinn víöfrægi bjór, sem einnig landa og þau eru mjög hagstæö Ef til vill hefur veröur dvaliö i 3 daga hefur gert héraöiö frægt þarna opnast ódýr leið fyrir alla fjölskylduna til Ekið meö austur strondmm. viö Adriahaf Frá Múnchen er ekiö til Sviss og viö aö dveljast í sumarbústaó á Noröurlondum Viðdvol er i Pescara, sem er borg á stærö viö dveljum tvo daga i Zúrich. sem er héraöshöf- Vegna eftirspurnar verður aó hafa hraö- Reykjavik og til baðstrandarbæjarins Timmi uöborg og stærsta borgin í Sviss Limmat áin ann á og panta hús Stutt viódvol i dvergrikinu San Marino. streymir gegnum borgina og fannhvít fjöllin sem er svo vinsæll ferðamannastaður aö aö- ber viö himin gangur er takmarkaóur Ekiö til Italíu og viö skoöum Mílanó og Feneyjar skoðaðar og siðan haldió til Feneyjar, en aö þvi loknu er aftur haldiö til Portoroz, þar sem dvalió veröur á strondinni Portoroz og slappaö þar af i sólinni í tæpa þrjá siðustu dagana viku. Brottfor 31 ágúst, 3 vikur Innifaliö Hótel Brottför 10 ágúst, 3 vikur morgunmatur og kvöldveröur og 15 daga ferö Innifaliö: Hótel, morgunveröur og meö islenskum fararstjóra kvöldmatur Verð 193 000— Fjöldi þátttakenda er 11 daga feröin veröur meö islenskum takmarkaöur leiösögumanni Verö 179 000 — Fjöldi þátttakenda er takmarkaöur V J v y f _ > 1 f'" ' . . . N / N FERÐIST OG MEGRIST ENSKUNAM A IRLANDI FERÐIST OG FRÆÐIST Venjulega fitnar fólk í sumarleyfinu Menn Viö höfum nú ákveöið, vegna fjölda fyrir- Venjulega feröast menn til solarlanda til geta ómögulega veriö aö kvelja sig með spurna, aö efna til enskunámskeiós á írlandi i þess aó slappa af i sólinni og safna þreki, og megrunarkúrum í sjálfu sumarleyfinu. sumar Námsdvölin er einn mánuöur menn skemmta sér. eftir þvi sem tilefm gefast Annaö er þó líka til, aö feröast og Dvaliö veröur á góöum, írskum heimilum En þaö er ekki ollum nóg Sumir vilja megrast. undir eftirliti umsjónarmanna, en auk þess aó kynnast landi og þjóð. hafa jafnvel feröast þar í Portoroz í Júgóslavíu er t.d. rekin umgangast enskumælandi fólk, veröa taltimar um í bókum og vilja nu sjá eitt og annaö meó heimsfræg heilsubótarstöö. Hún er líka þekkt einu sinni á dag, þar sem kennarar fá nem- eigin augum. á Islandi því margir hafa farið þangaö til aö fá endur ti* þess að tjá sig á enskri tungu Þetta Feröaskrifstofurnar bjóöa nu i samstarfi bót viö liöagigt, asma og soreasis, og nú hefur er áhrifamikil aóferó til þess aó bæta viö sig i viö verkalýðshreyfinguna á Islandi. skipu- stööin tekiö upp megrunarmeðferð, sem tekur enskri tungu. lagöar sjö daga ferðir um Jugóslaviu Viö 10 daga heimsækjum fyrirtæki og vinnustaöi, og viö Hefur árangurinn þótt mjög athyglisverð- Brottför í fyrstu viku júní munum fræöast um hagi fólks, en um 20 mill- ur, enda beitt nýjustu aöferöum læknavísind- Innifaliö: flug, gisting og fullt fæöi á jómr manns bua i Jugóslaviu, af sex ólikum anna, þar á meöal nálarstunguaðferö. heimilunum; auk þess 20 kennslustundir í þjóðernum Meöferöin tekur tvo tíma, daglega. og al- ensku Júgóslavar búa vió sterka stjórn, og mikla gengt er aö menn missi 10 kg. á 10 dögum. Verð 145 000 —kr valddreifingu er varöar stjórn atvinnulifsms Viö höfum þegar tekið á móti pöntunum Ferðast veröur um landiö i viku i loft- frá fólki, og Ijóst er aö margir viröast vilja kældum vagni og islenskur fararstjón veröur i megra sig í sólarlandaferöinni í ár, og vissara förinni er því aö panta tímanlega Samvinnuferöir og Landsýn hafa einka- - Brottfor 17 mai. 21 dagur rétt til aö vista Islendinga á þessa Innifaliö Hótel, morgunveróur. kvold- heilsubótarstöö. verður daglega og 7 daga skoóunarferó meö viökomu í Bled, Zagreb. Plitvice, Viöbótarverö fyrir Sarajevo og Split megrunarferö: Kr. 25 000 — Verö kr 145 000 — L J l J L A SKOLAVORÐUSTIG 16 SIMI28899

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.