Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 28
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978 Af hálfu Skipaútgerðar ríkisins er nú rekinn mikill áróður fyrir því á Alþingi og fyrir ríkisstjórn að Skipaútgerðinni verði heimilað að fjárfesta í nýjum skipum og vöruskemmu, sem samtals eiga að kosta kr. 1.886.000.000. Forstjóri Skipaútgerðarinnar hefur haldið því fram í blaðaviðtölum, að með því að endurnýja skipin og táekja- útbúnað Skipaútgerðarinnar, jafn- framt því að byggja nýja vöru- skemmu hér í Reykjavík, þá megi koma í veg fyrir rekstrarhalla á Skipaútgerðinni sem er um 240 millj. króna í ár. Heildarflutnings- magn Skipaútgerðarinnar er nú og hefur verið um árabil 40.000 tonn á ári, en hugmynd forstjóra Ríkisskips er sú, að eftir endur- skipulagningu fyrirtækisins muni flutningsmagnið verða 150.000 tonn á ári og að af þessum 110.000 tonna flutningsauka komi 50.000 tonn sem nú eru flutt með bifreiðum um landið. Hver eiga ríkisaf- skipti að vera? I allri þeirri umræðu, sem fram hefur farið um hallann á rekstri Skipaútgerðar ríkisins, þá hefur ávallt gleymst að ræða það veiga- mikla atriði hver sé tilgangurinn með Skipaútgerð ríkisins. Svarið við þeirri spurningu er nátengt því spursmáli hver ríkisafskipti eigi að vera almennt. Það er almenn skoðun meginþorra landsmanna, að ríkið eigi að tryggja sem jafnasta velferð þegnanna í land- inu með því að sjá um heilbrigðis og félagsþjónustu, menntun lands- manna og stór samfélagsverkefni svo sem vegalagningu. Jafnframt því á ríkið að sjá svo um að landsmönnum sé kleift að reka atvinnugreinar sínar hvort heldur þær eru á samvinnugrundvelli eða á grundvelli einkarekstrar án of mikilla ríkisafskipta, en vera reiðubúið aö grípa inn í ef á bjátar og rétta fram örvandi hjálpar- hönd, en ekki að fara út í beina samkeppni við framkvæmdahvöt þegnanna. Það er ljóst, að landsmenn sitja ekki allir við jafnt borð að því er varðar samgöngur. Samgöngur á landi til margra byggðarlaga eru oft ekki kleifar mánuðum sáman og þá einungis um að ræða samgöngur á sjó eða í lofti. F'lugvellir eru fáir í slíkum héruð- um og veður oft válynd og henta eigi til flugferða. Eina lausnin er sú að nota sjóleiðina. Þegar þannig stendur á er eðlilegt að ríkið aðstoði þessi b.vggðalög og tryggi þeim nauðsynlegar samgöngur en það mun hafa verið upphaflega markmiðið með stofnun Skipaút- gerðar ríkisins og með styrkveit- ingum til flóabáta. Því miður virðist raunin hins vegar vera orðin sú, að þetta markmið Skipa- útgerðarinnar hefur gleymst og ef marka má nýjustu fregnir frá Skipaútgerð ríkisins, þá er í ráði að fækka ferðum til smærri og afskekktra staða að mun, en auka þær til hinna stærri staða svo sem til Akureyrar. Jafnframt þessu á Skipaútgerðin að ná til sín meira flutningsmagni með því að taka það frá þeim aðilum, er nú fullnægja algjörlega þörfinni. Getur ríkið styrkt hallalaust? Ef menn eru sammála um það, að ríkið eigi að styrkja strandsigl- ingar svo sem með því að reka skipaútgerð er þá jafnframt hægt að gera þá kröfu að slíkt eigi sér stað með því að rekstur strandsigl- inganna sé hallalaus? Er ekki raunhæft að hugsa sér markmiðið með endurskipulagningu Skipaút- gerðarinnar það, að samgöngur hvort heldur eru í lofti á láði eða á legi verði sem jafnastar til ailra hluta landsins eftir endurskipu- lagninguna. Þannig verði Skipaút- gerðinni ætlað að veita fyrst og fremst þeim stöðum þjónustu, sem ekki njóta eðlilegra samgangna í lofti eða á láði. Rekstur ríkisins á skipaútgerð er ekki markmið í sjálfu sér heldur leið að því markmiði að jafna aðstöðumun landsmanna með til- liti til samgangna. Það kann því að „Hekla“ og „Esja“ í Reykjavíkurhöfn. Hvaða tilgang hefur Skipaútgerð ríkisins? vakna sú spurning hvort ekki sé rétt að leita fleiri leiða svo sem þeirrar að minnka athafnasemi Skipaútgerðarinnar og einbeita frekar starfsemi hennar að þjón- ustu við færri staði en styrkja þess í stað flugsamgöngur eða sam- göngur á landi þar sem slíkt hentar. Það kunna að vera til þeir staðir á landinu sem Skipaútgerð- in flytur nú vörur til í mjög litlum mæli en þeir sömu staðir njóti nú eðlilegra flugsamgangna og að ástæða þess að vörurnar eru frekar fluttar með Skipaútgerð- inni sé sú, að fólki hrjósi hugur við því hve dýrt er að flytja þær með flugi. Styrkur ríkisins til slíkra flutninga gæti e.t.v. orðið minni á hvert tonn en með núverandi fyrirkomulagi. Hvaða flutningsþörf sinnir skipaútgerð ríkisins? Sé reynt að gera sér grein fyrir því hver þörfin sé á flutningum með Skipaútgerð ríkisins, þá er rétt að athuga hvernig flutnings- magnið skiptist á milli landshluta. Því miður höfum við ekki nýrri tölur en frá 1974, en það ár skiptust flutningar frá Reykjavík á eftirfarandi hátt: Vesturland 2% Vestfirðir 23% Norðurland 6% Norðausturland 5% Austuríand . 39% Vestmannaeyjar 25% Alls 100% Þessar hlutfallstölur kunna að hafa raskast nokkuð þar sem nú hefur verið opnaður vegur um Skeiðarársand og flutningar Skipaútgerðarinnar til Vest- mannaeyja hafa eflaust minnkað með tilkomu nýju Vestmannaeyja- ferjunnar frá Þorlákshöfn. Af töflunni má þó sjá þá staðreynd, að flutningarnir eru mestir til vestfjarða og austurlands, en þar eru einmitt þeir staðir, sem einangrast á vetrum með tilliti til flugs og landflutninga. Af þessum hlutfallstölum má einnig sjá, að flutningar til norðurlands eru óverulegir þrátt fyrir að þar býr mun fleira fólk en í hinum landshiutunum. Önnur flutninga- tæki virðast því anna flutningun- um til norðurlands og ber þar helst að nefna bifreiðar, flugvélar og önnur skipafélög. Eigi Skipaút- gerð ríkisins að auka flutninga sína til norðurlands og þá helst til Akureyrar, þá verður slíkt einung- is gert í samkeppni við áðurnefnd flutningatæki. Sé það vilji ráðamanna að flytja vöruflutninga af þjóðvegunum yfir á skip, þá er það álitaefni hvort slíkt beri að gera með eflingu Skipaútgerðar ríkisins. Eimskipa- félag íslands er nú með vikulegar ferðir til Isafjarðar og Akureyrar frá Reykjavík auk þess sem skip félagsins og annarra skipafélaga koma við á mörgum öðrum höfn- um landsins. Því virðist koma sterklega til greina, að þau skipa- félög, sem hafa komið sér upp vöruafgreiðslum og tækjabúnaði hér í Reykjavík og úti á landi annist sjóflutningana ekki til ákveðinna staða, en að Skipaút- gerðin sé ekki að keppa við þau félög um sjóflutninga á þessa sömu staði og njóti til þeirrar starfsemi endalausra styrkja úr ríkissjóði. Hæpnar fullyrðingar og órökstudd talnadæmi I áætlun Skipaútgerðarinnar um uppbyggingu strandferðaþjónust- unnar eru settar fram nokkrar hæpnar fullyrðingar sem vert er að víkja að. í fyrsta lagi er því haldið fram að fái Skipaútgerðin heimild til að endurnýja skipastól- inn fái fyrirtækið um 50.000 tonn sem nú eru flutt með bílum um landið og 15.000 tonn, sem kæmu með betri þjónustu. Á hvaða forsendu er þessi fullyrðing byggð? Forstjóri Skipaútgerðar- innar virðist hafa þá bjargföstu trú, að eftir breytinguna verði flutningurinn svo miklu ódýrari og þjónustan svo miklu betri en nú er með bílum, að flutningskaupendur hreinlega sláist um að koma vöru sinni í flutning hjá Skipaútgerð- inni. Með þessum breytingum megi- spara flutningskaupendum um 400 milljónir króna á ári. Hvernig í ósköpunum forstjórinn hefur reiknað sig í þennan sparnað er ekki skilgreint í greininni né í áætlunum hans, en vert er að benda á, að flutningsgjald Skipa- útgerðarinnar er aðeins brot af þeim kostnaði sem það kostar að senda vöru sjóleiðis. Það er alkunna að í höfnum landsins eru tekin hafnargjöld og út- og upp- skipunargjöld og er ekki kunnugt um að Skipaútgerð ríkisins hafi neitt um það að segja hver þessi gjöld eiga að vera. Gjaldtaka Skipaútgerðarinnar er einungis fyrir það að sigla með vöruna frá einum hafnarbakkanum til ann- ars. Einhvernn veginn læðist að manni sá grunur, sem' reyndar hefur fengist staðfestur stundum, að í talnadæmum sínum beri þeir Skipaútgerðarmenn saman taxta vöruflutningabifreiða eins og hann er til ákveðins staðar og taxta Skipaútgerðarinnar fyrir að sigla með vöruna milli sömu staða, án þess að taka tillit til út- og uppskipunargjalda, hafnargjalda og vörugjalda, sem flutningskaup- andinn verður að sjálfsögðu að greiða. 9.500 króna styrkur á hvert tonn Staðreyndin er sú, að ríkissjóður á í ár skv. fjárlögum að styrkja Skipaútgerðina um 240 milljónir króna fyrir að flytja 40.000 tonn og er ríkisstyrkurinn því kr. 6.000 á hvert tonn. Samkvæmt tillögum forstjórans á ríkið jafnframt þessum styrk á yfirstandandi ári að leggja til kr. 141 millj. vegna nýrra fjárfestinga og aukist flutn- ingsmagnið ekki verulega á þessu ári þá bætist þarna við ríkisstyrk- ur, sem nemur 3.500 kr. á hvert tonn. Heildarstyrkur ríkisins verður því kr. 9.500 á hvert tonn sem Skipaútgerðin flytur í ár. Sú spurning kann að vakna af hverju ríkissjóður sé að greiða niður hvert flutningstonn til Akureyrar kr. 9.500 á sama tíma og öðrum flytjendum er ekki veittur styrkur svo sem öðrum skipafélögum og eigendum vöruflutningabifreiða. Þetta kann að vera sparnaður hins einstaka flutningskaupanda, þótt það sé ósannað, en niðurgreiðsl- urnar eru að sjálfsögðu ekki sparnaður þjóðarinnar í heild. Greinargerð frá Landvara, landsfélagi vörubifreiðaeigenda á flutningaleiðum Er þá komið að öðru atriði í málflutningi forstjórans, en það er sú fullyrðing hans, að endurskipu- lagning Skipaútgerðarinnar spari ríkissjóði um 400 milljónir króna vegna bættrar nýtingar vegafjár. Forstjórinn fullyrðir, að tilflutn- ingur á vöruflutningi af þjóð- vegunum yfir til skipanna minnki það mikið álagið á vegina, að vegaféð sparist um áðurnefndar 400 milljónir. Þessi fullyrðing er alröng og reyndar hjákátlegt að forstjóranum skuli detta í hug að setja hana fram, því þótt ekki séu greidd aðflutningsgjöld af skipum hans og tækjum, þá verða eigend- ur vöruflutningabifreiða að greiða 42% af nývirði bifreiðanna í aðflutningsfjöld og skatta til ríkissjóðs. Þannig fær ríkissjóður nú í aðflutningsgjöld og tolla um kr. 10 milljónir af hverri vöru- flutningabifreið sem flutt er til landsins. Jafnframt fær ríkissjóð- ur kr. 25 á hvern kílómeter sem bifreiðunum er ekið og einnig fær hann verulegar tekjur af brennslu- olíum bifreiðanna. Hverfi bifreið- ar þessar af þjóðvegunum hverfa einnig tekjur ríkissjóðs af þeim og er því vafasamt að sparnaður ríkissjóðs verði nokkur, e.t.v. verður um tekjumissi að ræða. Forstjórinn tekur fram í blaðavið- tali, að hann byggi þessar sparnaðarhugleiðingar á úttekt dansks fyrirtækis á samgöngumál- um hér á landi gerðri fyrir nokkrum árum. Staðreyndin er sú, að umrædd úttekt var gerð árið 1968 en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margvíslegar nýjar álögur verið lagðar á eigend- ur vöruflutningabifreiða í formi nýrra tolla og aðflutningsgjalda og nefna má að þungaskattur á bifreiðarnar var á árinú 1970 hækkaður um 3—400%. Fyrr- greind úttekt á því ekki við í dag og er alls ekki marktæk. Bifreiðaútgerð ríkisins? Áður hefur verið minnst á styrki ríkissjóðs til strandsiglinganna, en ætli ríkið að halda áfram á þeirri braut að reka umfangsmiklar strandsiglingar og yfirtaka nær allan flutning á vörum innanlands til þéttbýlisstaða við sjó, þá kann að vakna sú spurning hvers þeir staðir eigi að gjalda, sem ekki liggja að sjó eða njóta nægilegra hafnaskilyrða. Verður það ekki sanngjörn krafa þessara staða, að ríkissjóður styrki flutning á vör- um til þeirra eða ríkisreki jafnvel flutningana með Bifreiðaútgerð ríkisins? Nú fara flutningar til slíkra staða nær eingöngu fram með bílum og hafa þeir aðilar sem annast þessa flutninga komið upp vöruafgreiðslum í sínum heima- héruðum, jafnframt því að byggja hér í Reykjavík stórar vöruaf- greiðslur í samvinnu við þá aðila, sem annast flutninganna til ann- arra staða á landinu. Verði sá draumur forstjóra Skipaútgerðar- innar að veruleika, að færa 50.000 tonna flutning á ári af þjpðvegun- um yfir á skipin, þá þýðir það í raun, að um þriðjungur þeirra, er nú stunda skipulagsbundna vöru- flutninga með bílum um landið verði að leggja niður starfsemi sína. Bifreiðar þeirra eru sér- byggðar til vöruflutninga og fáir kaupendur að þeim leggist starf- semin niður. Ætlar ríkissjóður að leysa til sín um 50 vöruflutninga- bifreiðar á um kr. 15.000.000 hverja bifreið eða samtals 750 milljónir króna? Ætlar ríkissjóður e.t.v. einnig að leysa til sín þær vöruafgreiðslur, sem verða verk- efnalausar við breytinguna og útvega þeim 3 eða 400 aðilum nýja vinnu, sem missa atvinnu sína við breytinguna? Jafnvægi í byggð landsins Stjór n Landvara vill í lok greinar þessarar minna á það, að greiðar samgöngur á landi eru undirstaða velmegunar allrar þjóðarinnar. Alþingi og ráðamenn hafa margoft lýst yfir nauðsyn þess, að jafnvægi komist á í byggð landsins. Lélegir vegir og þar af Framhald á bls. 33.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.