Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978 17 „Bensín ekki óhóf- lega dýrt hérlendis” MJÖG oft heyrast þær raddir að bensín sé óhóflega dýrt hér á landi. Þessi fullyrðing stenzt engan veginn sé tekið mið af nýgerðri könnun sem Samtök bifreiðaeigenda í Þýzkalandi hafa gert. Þar kemur í ljós að verð á bensíni í Evrópulöndum Svíþjóo. Minni sala Volvobíla SALA Volvo-bifreiða á innan- landsmarkaði í Svíþjóð minnkaði um 6% á s.l. ári, en á sama tíma jókst sala á erlendum mörkuðum um 7%. í heild varð um 3% söluaukning hjá verksmiðjunum, sem seldu á árinu fyrir 16,1 milljarð sænskra króna eða tæp- lega 900 milljarða íslenzkra króna. er á bilinu 89 til 152 krónur, en á Islandi er verð á bensínlítra 119 krónur. í þessari könnun er miðað við svokallað „normal“ bensín, en það er það bensín sem einvörðungu er selt hér á landi. I flestum Evrópuríkjum er einnig hægt að fá „super“ bensín sem er nokkru dýrara. Sem dæmi um það má nefna að verð á því er allt að 208 krónur. Hér á eftir fer svo listi yfir bensínverð í hinum einstöku Evrópulöndum: krónur Belgía 127 Danmörk 129 Frakkland 123 Grikkland 141 Bretland 91 Ítalía 141 Júgóslavía 100 Luxemburg 97 Holland 124 Austurríki 118 Portúgal 145 Rúmenía 113 Svíþjóð 92 Sviss 132 Spánn 123 Ungverjaland 90 Búlgaría 92 Tékkóslóvakía 136 íkin 77 (super) ekki selt normal A-Þýzkaland 208 krónur (super) ekki selt normal. Fargjaldastríðið heldur áfram: British Caledonian býður fargjaldið Lond on-Los Angeles $69 Breska flugfélagið British Caledonian tilkynnti núverið að félagið hygðist bjóða lægstu flug- gjöld á flugleiðinni London — Los Angeles sem til þessa hafa verið boðin, eða 69£ aðra leið, sem er um 33.000 íslenskar krónur. Að sögn forráðamanna félagsins er þetta einn þáttur félagsins í því að endurskipuleggja ferðir félagsins og auka þær á þessari flugleið. Lægstu fargjöld á þessari flugleið í dag eru 127£ aðra leið, eða 61.000 íslenzkar krónur. Þessi tala gefur þó ekki alveg rétta mynd af þeim miklu átökum sem eiga sér stað milli hinna einstöku flugfélaga á flugleiðinni yfir Atlandshafið, þar I sem ekkert þeirra félaga sem til þessa hafa lækkað fargjöld sín fljúga til Los Angeles. British Caledonian hefur í mörg ár hafa flugrekstrarleyfi á þessari leið en árið 1975 hætti félagið öllu flugi á ieiðinni til að athuga með aðra hugsanlega möguleika, þar sem þeir voru ekki einir um hituna, brezka flugfélagið British Airways héldu einnig uppi reglu- legu áætlunarflugi á flugleiðinni. Helzti keppinautur félagsins verður þó eflaust breska félagið Laker Airways sem þegar hefur hafið flug frá London til Los Angeles, en býður þó enn mun hærri fargjöld eða 113£ hvora leið. Almennt er þó búist við að Laker muni innan tíðar lækka sín fargjöld verulega á þessari flug- leið. Þetta 60£ fargjald British Caledonia er nefnt „11 klukku- stunda fargjaldið". Farþegar verða að vera mættir á flugvöllinn tveimur klukkustundum fyrir brottför vélarinnar, borga far- gjaldið og fá sérstakt „biðlista- kort“. Síðan um klukkustund fyrir áætlaða brottför er honum tjáð hvört hann kemst með. Ef svo reynist ekki vera er honum endur- greitt fargjaldið. Leikendur í Herbergi 213: Steinar Geirdal, Ingibjörg Hafliðadóttir, Jenný Lárusdóttir, Marta Haraldsdóttir, Hjördís Árnadóttir og Rósamunda Rúnarsdóttir. Herbergi 213 í Keflavik LEIKFÉLAG Keflavíkur frumsýndi nýlega leikrit Jökuls Jakobssonar Herbergi 213. Leikstjóri er Þórunn Sigurðardóttir og eru leikendur sex. Með hlutverkin fara Ingibjörg . Hafliðadóttir, Hjördís Árnadóttir, Jenny Lárusdóttir, Rósamunda Rúnarsdóttir, Marta Haraldsdóttir og Steinar Geirdal. Næsta sýning verður í kvöld. AF HVERJU ERU TVÆR HULSUR Á TORGRIP MURBOLTANUM FRÁ 1. Vegna þess að tvær jjKHIsg- 2IECS hulsur gefa aukið dragþol. Nota þarf færri bolta en ella, þar af leiðir: tímasparnaður. 2. Fyrir innanhússnotkun eru TiKTöTlgmTÍTa múrboltarnir rafgalvan- húðaðir með 10 pm Zn. Fyrir utan- hússnotkun heitgalvanhúðaðir með 60 pm Zn. r Fæst í flestum ^byggingavöruverzlunumj^ 3. Þvermál IXEESuEC© boltans ákveður þvermál borsins, þ.e.a.s. hægt er að bora beint í gegnum þann hlut sem festa á ... 4. . . . ef notaður er TORGRIP múrbolti frá 'öKMxHuEKS (þess skal þó gætt, að þegar um harða hluti er að ræða, t. d. stál, þarf gatlð í gegnum hlutlnn að vera u. þ. b. 2 n víðara en þvermál bottans). v: •j^TS5!íng HF. 51 Sundaborg Sími: 84000 — Reykjavík PHILIPS heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 1 5655 útvarp/kassettutæki Lang og miðbylgja Bæði fyrir rafhlöður eða venjulegan straum. Verð aðeins kr. 42.260.-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.