Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978 19 félaginu. Er miðað við að maður skuli telja sér til tekna eigi lægra endurgjald fyrir starf sitt e'n hefði hann innt starfið af hendi fyrir óskyldan aðila, hvort sem hann vinnur við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi eða þá hjá félagi sem honum er tengt. Endur- gjald þetta yrði frádráttarbært sem kostnaður í atvinnurekstrinum en ekki frádráttarbært frá öðrum tekjum. Við ákvörðun endurgjalds- ins yrði tekið tillit til aðstöðu aðila, aldurs, heilsufars og annarra atriða sem máli skipta. Með þessu móti reiknar maður sér tekjur af at- vinnurekstrinum óháð sveiflum á afkomu rekstrarins frá einu ári til annars. Fyrningar og sölu- hagnaður í gildandi lögum fer um fyrningar skv. 15. gr. en þær teljast til rekstrarkostnaðar skv. A-lið 11. gr. I A-lið 15. gr. laganna er fyrnanleg- um eignum skipt í fimm flokka ög í 1. mgr. C-liðs sömu greinar er fyrning ákveðin sem fastur árlegur hundraðshluti af heildarfyrningar- verði eigna, sem þar eru upp taldar, og innan vissra marka að því er fyrningarhlutfall varðar. í aðalatriðum er árlegt fyrning- arhlutfall iausafjár 8—15%, bygg- inga og annarra mannvirkja en íbúðarhúsnæðis 1—10% eftir gerð og byggingarefni, en keypts eignar- réttar að verðmætum hugverkum og auðkennum svo og sérstaks stofnkostnaðar 5—20%. Þá eru ýmis önnur ákvæði um fyrningu, þar á meðal þess efnis að yfirleitt skuli standa eftir niðurlagsverð eignanna 10% af heildarfyrningar- verði þeirra. Auk þeirra föstu fyrninga, sem hér hafa verið taidar eru í lögunum ákvæði um tvenns konar heimildar- fyrningar til viðbótar. Annars vegar er heimild í D-lið 15. gr. til að fyrna lausafé og mannvirki, önnur en íbúðar- og skrifstofuhús- næði, með sérstakri fyrningu er nemi 30% af heildarfyrningarverði. Þessi sérstaka fyrning má ekki mynda rekstrarhalla eða notast til að fresta yfirfærslu tapa frá fyrri árum. I 6. mgr. C-liðs 15. gr. er veitt heimild til svonefndrar „stuðuls- fyrningar" af eignum öðrum en íbúðarhúsnæði. Miðast verðhækk- unarstuðullinn við almennar verð- breytingar á árinu og hefur hann reiknast af fyrningu ársins en ekki fyrningargrunni. í stað þeirra fyrninga, sem hér hefur verið lýst, er í frumvarpinu gert ráð fyrir einni árlegri fyrn- ingu. Ekkert árlegt lágmarkshlut- fall fyrningar er tiltekið en hins vegar árlegt hámarkshlutfall. Gert er ráð fyrir að fyrningar verði reiknaðar af endurmatsverði með lægri hundraðshlutum heldur en samkvæmt gildandi lögum. Endurmatið miðast við breytingar á vísitölu byggingarkostnaðar. I árs- lok á hverju ári skal ríkisskattstjóri birta verðbreytingarstuðul er mið- ist við þá hækkun sem orðið hefur á meðaltali gildandi byggingarvísi- tölu frá árinu á undan og skal þessi stuðull gilda fyrir allar eignir. Fengnar fyrningar skulu hækkaðar á sama hátt. Þá er í ákvæði til bráðabirgða gert ráð fyrir endur- mati á þeim eignum sem skattaðili hefur eignast fyrir gildi^töku lag- anna. Gert er ráð fyrir skerðingu frádráttar vegna fyrninga þegar fyrnanlegar eignir eru að einhverju eða öllu leyti fjármagnaðar með lánsfé. I frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir að íbúðarhúsnæði verði fyrn- anlegt. Fasteignir, sem heimilt er að fyrna, verða samkvæmt frum- varpinu fyrndar af framreiknuðu kostnaðarverði (stofnverði) að há- marki 10% á ári, en fjármálaráð- herra getur með reglugerð ákveðið þetta hámark hærra fyrir einstaka flokka mannvirkja eftir notkun, gerð og byggingarefni. Heimilt er að færa að fullu til gjalda eignir sem kosta minna en tiltekna fjárhæð. Andstætt því sem er í gildandi lögum er engin lágmarksfyrning tiltekin og heimilt er að nota árlega fyrningu til fulls á kaupári en enga á söluári eignar. Gert er ráð fyrir 10% niðurlagsverði lausafjár og mannvirkja eins og verið hefur. Töp yrði heimilt að færa milli ára án tímatakmörkunar. Samkvæmt gildandi lögum má flytja tap á atvinnurekstri milli ára um fimm áramót, en þann hluta rekstrartapa sem myndast hefur vegna fyrninga, annarra en flýti- fyrninga, má flytja milli ára uns hann er að fullu jafnaður. í frumvarpinu eru ýmis önnur ákvæði um fyrningar,' bæði til skýringar á hugtökum, hvað teljast fyrnanlegar eignir, um upphaf og lok fyrningartíma, fyrningargrunn o.fl. Ennfremur um makaskipti, arftöku, eignir sem eru einungis að hluta til nýttar til öflunar tekna, um niðurlag rekstrar, skyldu til að halda skrá ýfir eignir og um heimild ríkisskattstjóra til að víkja frá reglum um fyrningarhlutfall. Söluhagnaður af þeim eignum í atvinnurekstri, sem heimilt yrði að fyrna, verður að fullu skattskyldur á söluári, óháð eignarhaldstíma. Samkvæmt gildandi lögum er skatt- skyldan hins vegar bundin eignar- haldstíma, en mismunandi er eftir tegundum eigna hvenær hann leysir aðila undan skattskyldu að ein- hverju eða öllu leyti, sbr. E-lið 7. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt. Hagnaður af sölu fyrnanlegra eigna verður samkvæmt ákvæðum frumvarpsins þannig að fullu skatt- skyldur án tillits til eignarhalds- tíma. Hagnaðurinn telst mismunur á söluverði annars vegar og stofn- verði (kostnaðarverði) þeirra að frádregnum áður fengnum fyrning- um, framreiknuðu með verðbreyt- ingarstuðli, hins vegar. Sá munur, sem þá stendur eftir sem sölu- hagnaður, ætti að svara til hagnað- ar sem myndast hefur, t.d. vegna þjóðfélagslegra aðgerða eða breyt- inga, svo sem vegna fenginna fyrninga umfram slit eignar við öflun tekna. Heimild er til að því er fasteignamat varðar að nota gild- andi fasteignamat í ársbyrjun 1978 i stað stofnverðs, hafi aðilar eignast hið selda fyrir þann tíma. Heimild er til frestunar skattgreiðslu enda sé söluhagnaðurinn notaður til fyrningar annarra fyrnanlegra eigna. Með þessu ákvæði, er leitast við að hafa flutning eigna milli atvinnugreina sem greiðastan, t.d. milli fiskveiða og fiskvinnslu, eða úr útgerð í vefjariðnað, ef svo ber undir. Þá felur ákvæði 2. mgr. 45. gr. í sér nokkurs konar óbeina skattalagningu söluhagnaðar, en samkvæmt því skal tekjufæra mismun mótreiknings fyrninga og samanlagðra eftirstöðva fyrningar- verðs allra fyrnanlegra eigna á því ári sem eftirstöðvar fyrningarverðs verða lægri en mótreikningurinn. Svipað ákvæði gildir um sölu- hagnað af ófyrnanlegum fasteign- um, þ.m.t. lönd, lóðir og ófyrnanleg náttúruauðæfi, og um söluhagnað af fyrnanlegum fasteignum. Þó er skattaðila jafnan heimilt að telja helming söluverðs ófyrnanlegrar fasteignar til tekna sem söluhagn- að, enda getur viðmiðun við fast- eignamat 1979 eða framreikningur á gömlu stofnverði reynst erfiður í sumum tilvikum. Þetta þýðir í reynd að heildarskattur af sölu- hagnaðinum yrði rúm 25% hið mesta (í stað skattfrelsis eftir sex ára eða lengri eignarhaldstíma). Flutningur söluhagnaðar til lækkunar stofnverðs annarra eigna er einungis heimilaður vegna sölu á landi bújarða og er sú heimild bundin allströngum skilyrðum. Hagnaður af sölu ófyrnanlegs lausafjár, svo sem einkabíla telst að fullu skattskyldur án tillits til eignarhaldstíma en við ákvörðun söluhagnaðar skal hækka (eða lækka) stofnverð lausafjársins með tilliti til verðbreytinga frá kaupári. Frumvarpið gerir ráð fyrir að ekki verði heimilt að fyrna íbúðar- húsnæði, hvorki í eigu lögaðila né manna. Hagnaður af sölu íbúðar- húsnæðis telst að fullu til skatt- skyldra tekna á söluári, hafi maður átt það skemur en fimm ár, en sá skattfrjáls eftir fimm ára eða lengri eignarhaldstíma. Um söluhagnað af íbúðarhúsnæði i eigu lögaðila svo og þeirra raanna, sem eiga íbúðir yfir tilteknum stærðarmörkum, fer eins og um söluhagnað af öðrum ófyrnanlegum mannvirkjum. Þá eru í frumvarpinu ákvæði um flutning söluhagnaðar af seldu íbúðarhús- næði á það, sem aflað er í staðinn. Samkvæmt gildandi lögum telst ágóði af sölu hlutabréfa og eignar- hluta í sameignarfélögum og sam- lögum að fullu til skattskyldra tekna á söluári hafi aðili átt hið selda skemur en tvö ár, að hálfu eftir tveggja ára eignarhaldstíma en skemur en fjögur ár en eftir fjögur ár telst ágóðinn ekki til skattskyldra tekna. Samkvæmt frumvarpinu er full skattskylda söluhagnaður af þessum eignum án tillits til eignarhaldstíma. Ýmis ákvæði önnur eru í frum- varpinu um söluhagnað, svo sem af eignum sem einungis eru notaðar að hluta í atvinnurekstri, um altjón og eignarnám, arftöku, tap af sölu, makaskipti, um sölu fasteignar sem er seld í heild eða að hluta og sala hennar fellur undir mismunandi ákvæði, um ákvörðun verðbreyt- ingarstuðuls við ákvörðun sölu- hagnaðar o.fl. Önnur atriði varðandi atvinnu- rekstur Ýmsum öðrum atriðum varðandi skattalagningu atvinnurekstrar er ætlað að breyta með frumvarpi þessu. Má þar nefna frádráttar- bærni arðs og opinberra gjalda á því ári sem þau varða og yfirfærslu rekstrartapa án timatakmörkunar. Nýtt ákvæði er í frumvarpinu um heimild til sérstakrar 5% niður- færslu á útistandandi kröfum í lok reikningsárs. Þá er gert ráð fyrir því að skylt sé að nota varasjóð til að mæta yfirfæranlegu rekstrartapi og lögboðið að mæta skuli tapi áður en fé er lagt í varasjóð. III Framkvæmd, úrskurðir og eftirlit Frumvarpið gerir ráð fyrir að álagning skv. framtölum manna fari fram fyrir maílok á grundvelli lítt endurskoðaðra framtalna og frekari endurskoðun þeirra yerði látin bíða þar til eftir álagningu. Framtöl lögaðila verði hins vegar fullskoðuð áður en skattur er á þá lagður og álagningin birt þeim jafnharðan og henni lýkur. Skatt- skráin mun ekki koma út fyrr en í árslok þegar skattstjórar hafa úrskurðað flestar kærur. í stað gildandi ákvæðis um skipan ríkisskattanefndar skal hún sam- kvæmt frumvarpinu skipuð þremur mönnum sem hafa setu í nefndinni að aðalstarfi. Þá eru í frumvarpinu víðtækari ákvæði en í gildandi lögum um skatteftirlit og rannsókn- ir og verkefni skattrannsóknar- stjóra í því sambandi. IV Viðurlög Allmiklar breytingar eru gerðar á viðurlagaákvæðum. Eftir sém áður er meginreglan sú, að viðurlög eru ekki ákveðin af dómstólum nema sökunautur eða ríkisskattstjóri óski þess sérstaklega. Samkvæmt gild- andi lögum eru sektir í málum, sem ekki fara fyrir dómstóla, úrskurðað- ar af sérstakri skattsektanefnd. Hér er lagt til að þetta úrskurða- vald verði í höndum ríkisskatta- nefndar. Ætti þessi breyting að horfa til einföldunar enda gerir hin breytta skipan ríkisskattanefndar henni mögulegt að taka við auknum verkefnum. Þá eru refsingar við brotum á lögunum verulega þyngdar frá því sem er í gildandi lögum. Prófkjör sjálístæðismanna í Siglufírði: „Mjög viðunandi þátttaka miðað við fyrsta skipti” „ÉG TEL að þátttakan í prófkjör- inu hafi verið mjög viðunandi miðað við það, að þetta var fyrsta opna prófkjörið í Siglufirði,“ sagði Björn Jónasson, bankarit- ari, sem varð efstur í prófkjöri siglfirzkra sjálfstæðismanna um helgina. „Það var nýtt fyrir fólki að notfæra sér þennan rétt og ég held að það verði mun auðveldara með þátttöku fólks í framtíðinni, þegar það er búið að sjá, hvernig þetta er og að það er enginn leikaraskapur í þessu.“ Atkvæði greiddi 161, ' en við síðustu bæjarstjórnarkosningar í Siglufirði hlaut listi Sjálfstæðis- flokksins 320 atkvæði. Til að kosning yrði bindandi þurfti þátt- takan að verða 50% af síðasta kjörfylgi flokksins og frambjóð- endur að hljóta minnst 40% greiddra atkvæða. Björn Jónasson bankaritari hlaut 62 atkvæði í 1. sætið og samtals 131 atkvæði. Séra Vigfús Árnason hlaut 47 atkvæði í 1. og 2. sætið og samtals 99 atkvæði. Runólfur Birgisson, fulltrúi, hlaut 71 atkvæði í 1., 2. og 3. sæti og samtals 111 atkvæði. Árni V. Þórðarson, iðnverkamaður, hlaut 57 atkvæði í fyrstu 4 sætin og samtals 84 atkvæði. Frambjóðendur voru 12, en í gærkvöldi voru nokkur vafaatriði varðandi frekari úrslit prófkjörs- ins óleyst. Sjálfstæðismenn hafa nú 3 fulltrúa í bæjarstjórn Siglufjarð- ar. Knútur Jónsson, sem skipaði efsta sæti listans síðast, gaf ekki kost á sér, og heldur ekki Sigurður Fanndal, sem skipaði fjórða sætið síðast, en hann tók við starfi bæjarfulltrúa, er Þormóður Runólfsson, sem skipaði þriðja sæti listans síðast, féll frá á síðasta ári. „Ég er bjartsýnn á stöðu okkar sjálfstæðismanna hér í Siglufirði," sagði Björn Jónasson. „Á þessu kjörtímabili höfum við meðal annars fengið hitaveitu, raforku- ver okkar hefur verið stækkað og nú viljum við leggja áherzlu á umhverfismálin." Finnbogi Bjömsson hlaut flest atkvæði „ÞESSI þátttaka í prófkjörinu vekur vissulega góðar vonir um framboð H-listans við næstu hreppsnefndarkosningar. Ég er ánægður með þátttökuna og vil að sjálfsögðu þakka öllum sem veittu mér og öðrum frambjóð- endum stuðning," sagði Finnbogi Björnsson, sem varð efstur í prófkjöri um helgina vegna lista sjálfstæðismanna og annarra frjálslyndra í Garðinum. Atkvæði greiddu 262. Finnbogi hlaut 144 atkvæði í fyrsta sæti og samtals 192 atkvæði. 2. Sigurður Ingvarsson 182 atkvæði, þar af 90 í fyrstu tvö sætin. 3. Ingimundur Þ. Guðmundsson 160 atkvæði, þar af 94 í fyrstu þrjú sætin. 4. Ólafur Björgvinsson 123 atkvæði, þar af 90 í fyrstu fjögur sætin 5. Sigrún Oddsdóttir 109 atkvæði, en kosið var í fimm efstu sætin. Sjötti að atkvæðamagni var Karl Njálsson með 107 atkvæði en frambjóðend- ur voru 14. Einnig fór fram prófkjör vegna framboðs H-listans til sýslunefnd- ar og greiddu 236 atkvæði. Þor- steinn Einarsson hlaut flest, eða 113, og séra Guðmundur Guð- mundsson hlaut 85 atkvæði. Þriðji frambjóðandinn, Guðbjörn Ingvarsson, hlaut 38 atkvæði. Við síðustu hreppsnefndarkosn- ingar hlaut H-listinn 227 atkvæði og fjóra menn kjörna af 5. Af þeim, sem nú sitja í hreppsnefnd, gaf Þorsteinn Einarsson sem skipaði 1. dæti listans, ekki kost á sér nú, en aðrir hreppsnefndar- menn eru Sigrún Oddsdóttir, Finnbogi Björnsson og Sigurður Ingvarsson. „Þátttakan gefur tilefni til að líta björtum aug- um til kosningaslagsins” „ÉG ER mjög ánægður með útkomuna úr þessu prófkjöri og mér er efst í huga þakklæti til þeirra, sem tóku þátt í því, en það voru rösklega 84% félagsbundins sjálfstæðisfólks á Selfossi“, sagði Oli Þ. Guðbjartsson, sem hlaut flest atkvæði í lokuðu prófkjöri sjálfstæðismanna á Selfossi um helgina. „Ég vil einnig þakka kjörnefnd hennar hlut að því að þetta prófkjör bar svona góðan árangur, en þessi þátttaka gefur tilefni til að líta björtum augum til kosningaslagsins, sem fram- undan er og mun snúast um það, hvort við komum áfram fjölda verkefna, sem enn bíða úrlausnar í næstu framtíð og nefni ég þar sem eitt dæmi að ljúka við byggingu félagsheimilis,“ sagði óli. Af 205 flokksbundnum sjálf- stæðismönnum greiddu 173 at- kvæði, eða 84,8% og voru 162 atkvæðisseðlar gildir. Óli Þ. Guð- bjartsson hlaut 119 atkvæði í 1. sæti og samtals 151 atkvæði. Páll Jónsson fékk 93 atkvæði í 2. sæti og samtals 135 atkvæði, 3. Guð- mundur Sigurðsson fékk 54 at- kvæði í 3ja sæti og samtals 92 atkvæði. Sverrir Andrésson fékk 63 atkvæði í 4. sæti og samtals 104 atkvæði. Örn Grétarsson fékk 51 atkvæði í 5. sæti og samtals 71 atkvæði. Kosning þessara fimm var bindandi. í sjötta sæti fékk María Leós- dóttir 57 atkvæði og samtals fékk hún 76 atkvæði. Helgi Björgvins- son fékk 61 atkvæði í sjöunda sæti, samtals 73 atkvæði. Haukur Gísla- son fékk 66 atkvæði, Guðjón Gestsson 65 atkvæði, Bjarni Páls- son 64 atkvæði, Gústaf Sigurjóns- son 49 atkvæði, Ingveldur Sigurðardóttir 45 atkvæði og Þuríður Haraldsdóttir 43 atkvæði. Auk þess sem kjósendur merktu við frambjóðendur í þeirri röð, sem þeir vildu setja þá á fram- boðslistann, gátu þeir bætt þrem- ur nöfnum við. Samkvæmt upplýs- ingum kjörstjórnar fengu 8 ein- staklingar atkvæði með þeim hætti og sá þeirra, sem fékk flest atkvæði, fékk 18 atkvæði Sjálfstæðisflokkurinn á nú 3 af 7 hreppsnefnarmönnum á Selfossi. í upphafi kjörtímabilsins mynd- uðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi Alþýðuflokksins meiri- hluta, en nú er enginn formlegur meirihluti í hreppsnefndinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.