Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978 29 fHtripmMíít»í§> Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Askriftargjald 2000.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakió. Rauntekjur aukast ekki í Noregi í 4 ár Aðgerðir norsku ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum halda áfram að vekja athygli hér á landi og ekki að ástæðulausu. í fyrri hluta síðustu viku tók jafnaðarmannastjórn Nordlis af skarið í vinnudeilu, sem staðið hefur um skeið í Noregi og stefndi í allsherjarverkfall og ákvað, að gerðardómur skyldi úrskurða kaup og kjör til næstu tveggja ára jafnframt því, sem verkföll voru bönnuð. Viðbrögð verkalýðssamtakanna í Noregi voru þau að hlíta þessum ákvörðunum norskra stjórnvalda. I vikulokin gerði norska stjórnin síðan grein fyrir frekari aðgerðum í efnahagsmálum og er meginatriði þeirra, að gert er ráð fyrir, að rauntekjur Norðmanna muni standa í stað og jafnvel minnka á næstu fjórum árum. í þessum tillögum er gert ráð fyrir, að barnafjölskyldur, eftirlaunafólk og fólk í lægstu launaflokkum fái lítilsháttar aukningu í rauntekjum á næstu fjórum árum, en aðrir þjóðfélagshópar verða að sætta sig við óbreyttar rauntekjur eða jafnvei minnkandi á þessu tímabili. Þá áformar norska stjórnin að skera mjög niður opinber útgjöld frá því sem ráðgert hafði verið á næstu 4 árum og er talið, að þessi niðurskurður muni koma fram á útgjöldum til hermála, samgöngumála og til umhverfis- verndar. Ennfremur er búizt við, að frestað verði breytingum á almannatryggingakerfinu, sem áttu að verða mjög kostnaðarsam- ar og m.a. byggðu á því, að launamissir í veikindum verkafólks yrði greiddur að fullu. Megintilgangurinn með þessum efnahagsaðgerðum norsku stjórnarinnar er að draga úr einkaneyzlu, en jafnframt er stefnt að því að draga úr framleiðslukostnaði á norskum framleiðsluvör- um, þar sem útflutningsvörur Norðmanna hafa ekki verið samkeppnishæfar í verði á alþjóðamörkuðum á undanförnum misserum. Ennfremur er stefnt að því með þessum efnahagsað- gerðum að draga úr neikvæðum viðskiptajöfnuði Norðmanna og koma í veg fyrir atvinnuleysi og auka útflutning. Norðmenn hafa fjárfest gífurlega í olíu- og gasleit í Norðursjó og hafa safnað miklum erlendum skuldum af þeim sökum. Hins vegar hafa tekjur þeirra af olíuvinnslu komið hægar inn en búizt hafði verið við og munaði m.a. 25 milljörðum norskra króna á síðasta ári frá þeim áætlunum, sem gerðar höfðu verið um olíutekjur á því ári. Þessi atburðarás í Noregi hefur verið rakin svo ítarlega hér í Morgunblaðinu og um hana fjallað vegna þess, að það er ákaflega gagnlegt fyrir okkur íslendinga að gera okkur grein fyrir því, að við erum ekki einir á báti þeirra þjóða, sem búa á norðurhveli jarðar, þegar um efnahagsvanda er að ræða. Sannleikurinn er sá, að velflestar þjóðir í nágrenni við okkur eiga við mikla efnahágserfiðleika að stríða ekki síður en við og má þar nefna Norðmenn, Svía og Dani og Breta alveg sérstaklega. Efnahags- vandi okkar er í meiri tengslum við þann almenna efnahagsvanda, sem þjóðir heims eiga við að glíma, heldur en við höfum gert okkur grein fyrir. Og þær sveiflur, sem verða í okkar efnahagsmálum, eru í meiri tengslum við sveiflur í alþjóðlegum efnahagsmálum en við höfum viljað viðurkenna. Jafnframt því sem nauðsynlegt er, að við áttum okkur á því, að nágrannar okkar eiga ekki síður við efnahagsvanda að etja en við, getum við líka talsvert af þeim lært. Þegar ríkisstjórnin hér gerir ráðstafanir, sern taldar eru skerða gildandi kjarasamninga, eru viðbrögð verkalýðshréyfingarinnar þau að efna til ólöglegra verkfalla, útflutningsbanns og annarra slíkra aðgerða og hafa að öðru leyti í hótunum um stööugan ófrið á vinnumarkaðnum. Þegar ríkisstjórnin í Noregi grípur til margfalt harkalegri ráðstafana, ákveður að gerðardómur skuli úrskurða um kaup og kjör, bannar verkföll og lýsir því yfir, að engin rauntekjuaukning verði á næstu 4 árum eru viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar í Noregi þau að hlíta ákvörðunum löglega kjörinnar ríkisstjórnar. Á þessu tvennu er mikíll munur og þarf ekki að eyða mörgum orðum að því. Okkur íslendingum mundi farnast betur við stjórn efnahags- mála okkar, ef heilbrigð skynsemi fengi að ráða meira ferðinni. Nú þýðir ekki að sakast um það sem orðið er, hitt skiptir meira máli, hvernig til tekst í framtíðinni og það ættum við a.m.k. að hafa lært á síðustu misserum, að lítið vit er í að spenna bogann svo hátt í kjarasamningum, að efnahagskerfið taki nýja kollsteypu. Nú skiptir tvennt mestu máli; í fyrsta lagi að tryggja frið á vinnumarkaðnum eins og nú er komið, og í öðru lagi, að þeir kjarasamningar, sem framundan eru á næstu mánuðum, taki mið af raunveruleikanum og að um raunhæfar kaupgjaldsbreyt- ingar verði að ræða í þeim samningum. Það er hagsmunamál allra bæði launþega og atvinnurekenda og skiptir miklu, að forystumenn verkalýðs og vinnuveitenda hagi samningum sínum í samræmi við það. Frumvarp um staðgreiðslukerfi skatta: Skattgreiðsla áætluð í árs- byr jun - gerð upp um áramót RÍKISSTJÓRNIN lagði fram á Alþingi í gær frumvarp til laga um staðgreiðslu opin- berra gjalda og er miðað við það að frumvarpið ef það verður að lögum taki gildi hinn 1. janúar 1979. Frum- varpið gerir ráð fyrir að tekjur skattþegns séu áætlaðar í ársbyrjun og síðan greiði hann mánaðar; lega hina áætluðu skatta. í lok ársins fari síðan fram uppgjör og tekjur hans tiundaðar. Hafi áætlunin reynzt of lág, er hann kraf- inn mismunar, en hafi skatt- ar verið ofreiknaðir endur- greiðir ríkissjóður eða sveit- arfélag mismuninn. Frumvarpið gildir um tekjuskatt samkvæmt ákvæð- um laga um tekjuskatt og eignaskatt, álag á tekjuskatt samkvæmt ákvæðum laga um Húsnæðismálastofnun ríkisins, útsvar samkvæmt ákvæðum laga um tekju- stofna sveitarfélaga, kirkju- garðsgjald samkvæmt ákvæðum laga um kirkju- garða, sóknargjald sam- kvæmt ákvæðum laga um sóknargjöld, launaskatt samkvæmt ákvæðum laga um hann, lífeyris- og slysa- tryggingagjöld samkvæmt ákvæðum laga um almanna- tryggingar, atvinnuleysis- tryggingagjöld, iðnaðar- gjald samkvæmt ákvæðum laga um rannsóknir í þágu atvinnuveganna, aðstöðu- gjald samkvæmt ákvæðum laga um tekjustofna sveitar- félaga iðnlánasjóðsgjald samkvæmt ákvæðum laga um Iðnlánasjóð, iðnaðar- málagjald samkvæmt ákvæð- um laga um það, landsútsvar samkvæmt ákvæðum laga um tekjustofna sveitar- félaga, orlofsfé samkvæmt ákvæðum laga um orlof og skyldusparnað samkvæmt ákvæðum laga um Húsnæðis- málastofnun ríkisins. Frá ofangreindi upptalningu er greint í fyrstu grein frumvarpsins, en í annarri grein þess segir að verði síðar sett lög, hvort heldur eru tímabundin eða ótímabundin, um gjöld, sem ákvarðast af sömu eða svipuðum gjaldstofnum, skulu um þau gilda ákvæði þessara laga. Lögin ná til allra, innlendra og erlendra aðila, sem gjaldskyldir eru hér á landi. I 5. grein segir að staðgreiðsla samkvæmt lögunum sé bráðabirgðagreiðsla opinberra gjalda, greiðsla orlofsfjár, svo og innheimta eða greiðsla skyldu- sparnaðar á tekjuári. Fyrir upphaf staðgreiðsluárs skal ríkisskattstjóri láta gera skattkort fyrir hvern launþega, þar sem fram koma þær upplýsing- ar, sem nauðsynlegar teljast til að ákvarða staðgreiðslu hans á stað- greiðsluárinu. Skattkort þessi skulu ‘gerð samkvæmt þeim upp- lýsingum sem fyrir hendi eru við frumgerð þjóðskrár þann 1. desem- ber þess árs sem næst fer á undan staðgreiðsluári. Strax við móttöku skattkorts ber launþega að kanna þær upplýsing- ar sem fram koma á því. Telji launþegi þær ekki réttar miðað við fjölskyldu hans í lok þess almanaksárs sem næst fer á undan staðgreiðsluári, eða upphaf eða lok skyldu til skyldusparnaðar, ber honum strax að endursenda skatt- kort sitt til skattstjóra ásamt skriflegum rökstuðningi fyrir kröfu sinni um nýtt skattkort.. Telji skattstjóri beiðni launþega að hluta til réttmæta ber honum að láta launþeganum strax í té nýtt skattkort ásamt rökstuðningi fyrir synjun að hluta. Synji skattstjóri beiðni launþega að öllu leyti ber honum strax að endursenda laun- þeganum skattkortið ásamt rök- stuðningi fyrir synjun. Við upphaf greiðsluárs á laun- þegi að afhenda launagreiðanda sínum skattkort sitt til vörzlu og telst hann þá aðallaunagreiðandi hans. Ber hann ábyrgð á vörzlu skattkortsins á meðan launþeginn er í þjónustu hans. Ef launagreið- endur eru fleiri en einn, skal aðallaunagreiðandi hafa kortið, en telji launþegi að við það að launagreiðendurnir séu tveir eða fleiri, að hann greiði óeðlilega háa staðgreiðslu og reynist krafa hans réttmæt skal skattstjóri gefa út aukaskattkort, sem tilgreinir hundraðshluta, sem taka beri af launþeganum. Ef aðeins annað hjóna hefur tekjur getur launþegi afhent skattkort maka síns aðal- launagreiðanda sínum og hann hafi því skattkort beggja. I upphafi greiðsluárs lætur ríkisskattstjóri gefa út skatttöflur fyrir launagreiðendur byggðar á ákvæðum þeirra laga sem um ræðir eftir því sem við á. Við gerð skatttaflna skal ávallt miðað við hámarkshundraðshluta af útsvars- skyldum tekjum. Greiðslutímabil skatta ákvarðast af ákvæðum kjarasamninga. B-hluti frumvarpsins fjallar um atvinnurekendur og segir þar að allir atvinnurekendur skulu eigi síðar en fyrir 31. október á því almanaksári, sem næst fer á undan staðgreiðsluári senda skattstjóra rökstudda áætlun um gjaldstofna þeirra skatta og gjalda á viðkom- andi staðgreiðsluári. Þar skal einnig koma fram rökstudd áætlun um það endurgjald, sem atvinnu- rekandinn ætlar að telja sjálfum sér til tekna eða reikna maka sínum eða barni til tekna á greiðsluárinu. Skal skattstjóri síðan innan 30 daga frá því er honum barst áætlun hafa endur- skoðað hana tilkynnt atvinnurek- anda niðurstöðu sína um áætlun gjaldstofna og endurgjalds, svo og upphæð áætlaðra skatta og gjalda, sem atvinnurekandanum ber að greiða á staðgreiðsluárinu. Ákvarðan endurgjalds myndar stofn að staðgreiðslu atvinnurek- andans sem launþega. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir að fjármálaráðherra hafi heimild til þess að breyta vísitölu stað- greiðsluársins hvenær sem er á sjálfu staðgreiðsluárinu. Taki jafn- framt gildi ný lög sem falla innan ramma frumvarpsins á stað- greiðsluári, ber ríkisskattstjóra að gefa þegar út nýjar skatttöflur fyrir launagreiðendur og skatt- stjórum að gera nýjar skrár yfir áætlaða skatta og gjöld eftir því sem við á. Saman- burdur á tölum ígild- andi skatta- lögum, hinu nýja frum- varpi og skatta- frv. ’76 Hér fer á eftir samanburður á ýmsum tölum í núgildandi skattalögum, skattafrumvarpi því, sem ríkisstjórnin lagði fram á þingi 1976, og í því skattafrumvarpi, sem nú hefur verið lagt fram. Núv. frv. 250.000 hjá einstakl. 500.000 hjá hjónum 1.600 kr. á dag 260.000 kr. 185.000 kr. fyrir hvort hjóna 10% 1- 2 millj. 18% 2— 4 millj. 26% 4 millj. og yfir 34% 250.000 þús. kr. 5% • . Með 1. þarni 65 þús. og 90 þús. með 2. barni og fleirum. Auk þess fá foreldrar með börn innan skólaskyldualdurs 25 þús. til viðbótar. Barnabætur einstæðra for- eldra eru 40% hærri. 47% Hjá einstakl. 8 millj. skattfrj. Hjá hjónum 16 millj. skattfrjáls (Þessar tölur eru miðaðar við álagningu eignarskatts pr. 31.12 1977 Gildandi lög Frv. 1976 1. Hámark skattfrjáls arðs Arður ekki frádráttarbær 150.000 hjá einstakl. í hendi móttakanda. hjá móttakanda 300.000 hjá hjónum 2. Sjómannafrádráttur 4.825 + 30.555 á mán. Var i formi afsláttar frá skatti kr. 270 á dag 3. Hámark námsfrádráttar Mishár eftir skólum og námstíma hámark 212.000 Var ekki inni í þessu formi 3.a. Kostnaður við stofnun heimilis 272.500 kr. fyrir hjón Var ekki í formi sérstaks samtals afsláttar eða frádráttar 4. Hlutfall fasts launafrádráttar Hliðstætt ákvæði ekki í g.l. Var í formi afsláttar frá reiknuðum skatti 2% af launum 5. Skattþrep og skatthlutföll í Einstakl. tekjuskattstiga einstaklinga 1 - 1.310.700 kr. 20% 1 - 900.000 kr. 20% 1.310.700 - 1.835.000 kr. 30% 900.000 kr. og 1.835.000 - og þar yfir 40% Hjón 1 - 1.835.000 kr. 20% og þar yfir 40% 1.835.000 - 2.621.500 kr. 30% 2.621.500 — og þar yfir 40% 6. Persónuafsláttur Einstakl. 206.610 kr. Einstakl. 163.000 kr. hjón 308.850 kr. hvort hjóna 115.000 kr. 7. Skatthlutfall Hliðstætt ákv. ekki í g.l. Hliðstætt ákv. ekki í frv. af launatekjum barna 8. Barnabætur Með 1. barhi 67 þús. kr. Með 1. barni 47.400 kr. i ' ■S}5.ní»n oj-i um ,með tíörhum; umfram 100.500.00 með börnum umfram 71.100.00 »neoi{ ititosiI Þár við bætist barnabótaauki 9. Tekjuskattshlutfall lögaðila 53% 53% 10. Eignarskattstigi Hjá einstakl. 8 millj. Hjá einstakl. 6 millj. gjaldfrjáls skattfrjáls Hjá hjónum 12 millj. Hjá hvoru hjóna gjaldfrjáls 4.5 millj. skattfrjáls Hvaða áhrif hefur skattafrumvarp- ið áskattbyrði? í FYLGISKJALI með skatlafrumvarpi ríkiastjórnarinnar er gerö grein fyrir pvt hvaða áhrif sampykkt frumvarpsins ef pað yröi aö lögum mundi hafa á skattbyrði fólks. Hór fer á eftir í heild texti fylgiskjalsins ásamt peim töflum, sem fylgja: Um breytingu á skattbyrði manna Á grundvelli viöamikils úrtaks úr skattframtölum ársins 1977 hefur verið kannað hver breyting yrði á skattbyrði manna ef frumvarp þetta yrði að lögum. Tekjur og eignir til skatts voru færðar til verölags á árinu 1978 með jafnri hlutfalislegri hækkun þannig aö dreifing helst óbreytt frá 1977. Gögn um eignarskattsstofninn eru ófullkomnari en um tekju- skattsstofninn, en samkvæmt fyr- irliggjandi áætlun hefðu ákvæði frumvarpsins haft í för með sér nokkra lækkun á álögöum tekju- skatti í heild á árinu 1978 vegna þess aö skattskyldumörkin hækka fyrir hjón. Áformað er að taka upp stað- greiöslu beinna skatta á árinu 1979 eins og kunnugt er. Af þessum sökum þótti rétt að miöa tillögur frumvarpsins um skattstiga o.fl. við þessa tilhögun. Jafnframt er þá nauösynlegt aö áætla hækkun tekna til skatts milli áranna 1976, 1977 og 1978 til þess aö bera réttilega saman skatta sem lagöir væru á og greiddir á árinu 1978 og skatta samkvæmt gildandi lögum sem lagóir eru á tekjur ársins 1977. í þessu skyni hefur verið reiknaö með 43% meöalhækkun tekna til skatts milli áranna 1976 og 1977 og 35% milli áranna 1977 og 1978, og er seinni talan vitaskuld óvissari en hin fyrri. Á þessum forsendum er áætlaö aö álagöur tekjuskattur að frádregn- um barnabótum og afslætti sem nýtist til greiöslu útsvars (hreinn tekjuskattur) yrði um 1000 m. kr. lægri en samkvæmt gildandi lög- um á árinu 1977. Hér á eftir er gerð í fjórum töflum grein fyrir því hvernig byrðin af hreinum tekjuskatti breytist frá gildandi lögum meö þessu frumvarpi fyrir einstaka hópa skattþegna með ólíkar fjöl- skyldu- og framfærsluaöstæóur. I töflu 1 kemur fram heildaryfirlit yfir breytingar á hreinum tekju- skatti eftir fjölskylduhögum manna. Þar kemur fram aö meöal- breyting tekjuskatts samkvæmt frumvarpinu er lækkun um 7% af álögðum skatti. Skattar hjóna lækka þó nokkru minna, eða um tæplega 5%, en einhleypra um meira, eða um 11%. Skattar einstæöra foreldra lækka um 7% samkvæmt þessari áætlun. Sé hjónum skipt niöur eftir barnafjölda er skattbreytingin barnmörgum hjónum almennt í vil. Þetta má enn sjá úr töflu 2. Sé hjónum skipt eftir tekjuöflun eiginkonunnar sést umtalsverð endurdreifing á skattbyrói hjóna, enda koma þá skýrast fram áhrifin af hinni breyttu skattameöferö hjóna samkvæmt frumvarpinu, þ.e. upptöku sérsköttunar hjóna og þar með niöurfellingu 50% frádráttar af launatekjum eigin- konu. Tafla 1 Breyting á hreinum tekjuskatti manna á verölagi 1978. í stórum dráttum má segja aö hjón, þar sem eiginkonan aflar engra tekna, hagnist á skattbreyt- ingunni allt þar til eiginmaðurinn hefur u.þ.b. 6 millj. kr. tekjur (1978). Afli konan á hinn bóginn tekna umfram 2 millj. kr., þá skeröist hlutur hjónanna strax viö u.þ.b. 2 millj. kr. tekjur hjá eiginmanninum. í töflu 3 er hjónum skipt eftir tekjum eiginkonunnar og sýnt, hvernig hjónin dreifast eftir um- fangi skattbyrðisbreytingarinnar. Eins og fram kemur í töflu 1 fá einhleypingar heldur meiri skatta- lækkun samkvæmt frumvarpinu en aörir. Lækkunin dreifist nokkuð jafnt á milli þeirra, enda þótt nokkur frávik séu þar frá. í töflu 2 má sjá hvernig einhieypingar skiptast eftir umfangi skattbreyt- ingarinnar. í heild fá einstæöir foreldrar skattalækkun á við aðra, en á hinn bóginn er endurdreifing í skatt- byröi innan hópsins. Lækkun verður veruleg hjá tekjulágum og barnmörgum einstæðum foreldr- um en hækkun hjá sumum hinna í þessum hópi. Tafla 4 sýnir að lokum hversu mörgum framteljendum væri frem- ur í hag aö nota fasta frádráttinn skv. 2. mgr. 30. gr. en að sundurliöa frádrátt sinn, miðað viö áætlun um hækkun frádráttarliöa frá árinu 1977. Skv. gildandi Lækkun (-=-) lögum cða hækkun( + ) Mcðalbrcyting á skattgrciðslum Hlutfallsleg skipting Hjón án barna ........... Hjón með 1 barn .......... Hjón með 2 börn .......... Hjón með 3 börn ......... Hjón með 4 börn eða fleiri Hjón alls ............... Einhleypingar ............ Einstæð foreldri ......... Framteljendur samtals (Millj. kr.) skv. frv. (Millj. kr.) framteljcndn 3 350 -=-150 h- 4,5% 13% 3 000 + 70 + 2,3% 9% 2 150 -=- 50 -4- .2,3% 11% 800 -r-200 h- 25 % 6% 120 -=-130 h-108 % 2% 9 400 -=-450 -- 4,8% 41% 1 200 +-450 -4- 11 % 54% -v-470 -+ 35 -4- 7 % 5% 13 100 +-950 *4— 7 % 100% Tafla 2 Dreifing manna eftir umfangi skattbyrðisbreytingar. Hjón án barna ............ Hjón með 1 barn .......... Hjón með 2 börn .......... Hjón með 3 börn .......... Hjón með 4 börn eða fleiri Hjón alls ................ Einhleypingar ............ Einstæð foreldri ......... Frámteljendur samtals Lækkuu (a. m. k. Standa í stað Hækkun 1% af vergum (breyting minni (a. m. k. 1 % tekjum) en 1% af vcrgum af vergum tekjum) tekjum) 41% 41% 18% 32% 43% 25% 41% 39% 20% 48% 39% 13% 70% 22% 8% 41% 40% 19% 28% 67% 5% 47% 16% 37% 35% 53% 12% Tafla 3 Dreifing hjóna, —, flokkuðum eftir tekjum eiginkonu, — eftir umfangi skattbyrðisbreytingar. Tekjur ciginkonu ;i vcrðlagi 1ÍJ78 Lækkun (a.m.k. 1% af vergum tekjum lieggja ) Standa í stað (breyting minni en 1 % af vérgum tekjum beggja) Hækkun (>a. m. k. 1% af vergum tekjum beggja) Hlutfallsleg skipting hjóna o 60 %; 30% 10% 26% . Undir 5Ö0 þús. kr. 65% 27% 8% 18% 500 til .1 000 þús. kr 44 % 42% 14% 20% 1 000 til 1 500 þús. kr. 23% 61% 16% 14%. 1 500 til 2 000 þús. kr. 12% 63% 25%, 11% Yfir 2 000 þús. kr. 1% 31% 65% 11%, Hjón alls 41% Tafla 40% 4 19% 100% Hlutfallslegur fjöldi framteljenda, sem hefðu fremur hag af föstum en sundurliðuðum frádrætti, sbr. 2. mgr. 30. gr. Hjón ................................................ 65% Einhleypingar ....................................... 90% Einstæð foreldri .................................... 75% Framteljendur alls .................................. 75%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.