Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978 Ný sovézk hætta í Afríku Ný hætta hlasir við í Afríku nú þegar Rússar og Kúbu- menn ættu að hefja brottflutn- ing frá Eþíópíu og hún felst í því að þeir komi rhódesísk- um skæruliðum til hjálpar í stað þess að fara heim. Hvern- ig bregðast Vesturveldin við þcssu? Hótanir þeirra höfðu engin áhrif í þá átt að koma þeim í burtu frá Eþíópíu. I>að var ekki fyrr en ögrunin, sem varð til þess að þeir fóru þangað, hvarf og eftir óskipu- lagt undanhald sómalska hersins, sem hafði ráðizt inn í Eþíópíu, að horfur á brott- flutningi Rússa og Kúbu- manna urðu raunverulegar. Ef Vesturveldin draga ekki af þessu réttan lærdóm verður það þeim sjálfum fyrir verstu. Sómalía var árásaraðilinn í Eþíóþíu og Vesturveldin lentu röngum megin. Þar með fengu Kremlverjar tækifæri til að senda leiðangursher sinn til Eþíópíu með samþykki flestra afrískra leiðtoga. Nú virðist svipuð atburðarás hafin í Rhódesíu. Skæruliðaleiðtogar og ríkis- stjórnir flestra blökkumanna- ríkja í Afríku Hafna hinu nýja samkomulagi, sem Ian Smith og þrír blökkumannaleiðtogar hafa gert í Rhódesíu. Vestur- veldin lentu aftur röngum megin ef þau styddu þetta samkomulag, af því þessi „innri lausn" er gagnsæ tilraun til að tryggja að rauriverulegt ákvörðunarvald í Rhódesíu verði sem fyrr í höndum hvítra manna. Þetta er það sem útvarpið í Moskvu hefur verið að segja Afríkumönnum og það er ekki auðvelt að mótmæla þessari skilgreiningu. Það hefur einnig sagt að þetta nýja ástand valdi „alvarlegri ógnun við friðinn" er gæti orðið ástæða til þess að kúbanskur og sovézkur liðsafli yrði sendur á vettvang. „Leið- togar Föðurlandsfylkingarinn- ar,“ segir Moskvuútvarpið, „hafa lýst því yfir að þeir muni Mengistu ofursti, leiðtogi eþfópísku stjórnarinnar og einn dyggasti stuðningsmaður Rússa í Afríku. Eftir Victor Zorza herða vopnabaráttuna gegn ólöglegri stjórn Smiths og leppum hennar og berjast til sigurs. „Þarna liggur ein hætt- an, sem friði er búin. Hin hættan, sem er raun- verulega andstæð hinni fyrri, felst í því að rhódesískar öryggissveitir reyni að fyrir- byggja harðnandi árásir skæruliða Föðurlandsfylk- ingarinnar, sem hafa bæki- stöðvar í grannlöndum Mozambique og Zambíu. Til þess að gera slíkar árásir verða rhódesískar liðssveitir að sækja yfir alþjóðleg landa- mæri eins og þær hafa hvað eftir annað gert á liðnum árum og þar með fengju Zambía og Moazambique ástæðu til að biðja Rússa og Kúbumenn um hernaðaraðstoð. Kremlverjar gætu þá ennþá einu sinni sagt, eins oog þeir gerðu í Eþíópíu, að leiðangurs- her kommúnista hefði farið til Afríku að beiðni lögmætra ríkisstjórna til þess að hjálpa Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri, Seltjarnarnesi: Hugleidingar um atvinnumál Sveinn Valfells verkfræðingur: Hvers vegna auðlindaskatt? Hvar stöndum við? Nýlega var haldinn fundur hjá Landssambandi iðnaðarmanna um atvinnuþróun á höfuðborgar- svæðinu. Til þess fundar var meðal annars boðið borgarstjóranum í Reykjavík ásamt bæjarstjórum á höfuðborgarsvæðinu og var aðal- mál fundarins, sú margumtalaða skýrsla um atvinnumál í Reykja- vík, sem gerð var í júní 1977 að ósk borgarstjóra. í framhaldi þessa fundar hef ég sett á blað hug- leiðingar um atvinnumál svæðisins. Byggingaiðnaður Hver er þörfin fyrir íbúðir á höfuðborgarsvæðinu í dag og næstu til dæmis 10 árin? Gerum okkur grein fyrir staðreyndum: Ibúum höfuðborgarsvæðisins í heild fa'kkaði um 0,1% á síðasta ári. Meðaltal íbúa í íbúð er í dag í Reykjavík 3 íbúar, Seltjarnarnesi 3,77, Kópavogi 3,51, Garðabæ 4,25, Hafnarfirði 3,72. Samkvæmt árs- skýrslu framkvæmdastofnunar ríkisins er meðalhúsrými á íbúa í Re.vkjavík 107,3 rúmm. og höfuð- borgarsvæðinu 97,2 rúmm. Hvað er eðlilegt að fjárfesta í „óarðbæru" íbúðarhúsnæði? Eig- um við að setja markið á til dæmis 2,9 íbúa í íbúð, sem miðað við 10 ára tímabil þýðir að byggja þurfi 11,000 íbúðir, nýjar og til endur- nýjunar eða höldum við okkur við núverandi mark, sem sparar okkur — 4.200 — íbúðir í verðlagi dagsins ca. 35—36 þúsund milljón- ir, ótalin gatnagerð og skólar. Aðilar málsins það er að segja yfirvöld bæja á höfuðborgar- svæðinu og aðilar innan bygginga- iðnaðarins þurfa að gefa sér tíma til að kryfja þessi mál til mergjar og gera síðan raunhæfar spár fram í tímann. Gömlu hverfin Af hverju leggjast gömlu hverf- in svo til í eyði? Þar kemur margt til að mínu mati, svo sem: a) alröng lánastefna varðandi eldra húsnæði og ungt fólk b) skortur á smáíbúðum í gcimlu hverfunum fyrir þá sem vilja smækka við sig húsnæði en þó ekki yfirgefa hverfin c) skortur á traustum fyrirtækj- um sem sérhæfa sig í viðgerðum og breytingum eldri húsa. Beina þarf auknum fjölda byggingaiðnaðarmanna í viðgerðir og endurnýjun eldri hverfa og þá þannig að fyrirtækjum yrði gert kleyft að kaupa gömul hús, breyta og selja með sömu lánafyrir- greiðslu, sem ný væru. Fiskveiðar og vinnsla Það kann að vera talin nokkur bíræfni af mér að fara að ræða vandamál fiskvinnslunnar án teljandi þekkingar á þeirri atvinnugrein en einn þáttur er mér þar ofarlega í huga. Það er að segja siglingar skipa með ferskfisk meðan sagt er að hægt sé að margfalda aflaverðmætið með vinnslu i landi. Þessi leið að selja aflann óunninn rýmar ekki beint við tal um fiskverndun og atvinnu- leysi í þessari aðalatvinnugrcin okkar. Vöruvöndun og fullvinnsla aflans verður í auknum mæli að bæta okkur upp minnkandi afla og er í því sambandi fróðlegt að fylgjast með nýjungum í geymslu afla í veiðiskipum svo og í landi meðan beðið er vinnslu. Eftirtektarvert er að skip frá vestfjörðum virðast ekki sigla með aflann. Ljóst er að sjávarútvegur mun ekki næstu árin taka við þeim mannafla sem áætlaðr að komi út á vinnumarkaðinn, 10—12 þúsund næsta áratug ef halda á í horfinu. Iðnaður Ljóst er af framanrituðu að allra augu mæna nú á iðnaðinn sem síðasta haldreipi atvinnu- öryggis. Hvað getum við gert fyrir iðnaðinn og hvað getur sterkur íslenzkur iðnaður gert fyrir okkur? Ljóst er að mannaflafrekur iðnaður verður að vera þar ofar- lega á blaði ef halda á í horfinu atvinnulega séð. Forystumenn iðnaðar hafa talið sig mæta skilningsleysi stjórn- valda í málflutningi sínum og má vera að svo sé. Samstarf stjórnvalda og iðnaðarforystu er meiri nauðsyn nú en nokkru sinni og er þjóðar- nauðsyn að slíkt samstarf komist á sem allra fyrst. MIKLAR umræður hafa verið um auðlindaskatt, tilgang hans og framkvæmd. Hefur það m.a. verið á stefnuskrá F.I.I. að slíkum skatti væri komið á. Hér verður reynt að gera grein fyrir hvers vegna og hvernig væri hægt að beita slíkum skatti sem stýritækni í efnahags- kerfinu. Eftirfarandi áhrifum má ná með beitingu auðlindaskatts: 1. Stýringu á arðsemi sóknar í fiskistofna og takmörkun sóknar sem næst hinu æskilega. 2. Stýringu arðsemi veiða á hinum mismunandi fisktegundum, þann- ig að arðsemi veiða hinna ýmsu fisktegunda sé svipuð. 3. Stofna má allsherjar tekju- jöfnunarsjóð sem hefur tekjur sínar af auðlindaskatti eða hluta hans. Sjóður þessi væri til að jafna út sveiflur í þjóðartekjum vegna sveiflna í útflutningstekjum af sjávarafurðum. Leysti þessi sjóður af hólmi alla verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins. Þá kemur spurningin, af hverju auðlindaskatt og hví eru áhrif hans æskileg? 1. Það er talið að í dag séu veiðiafköst skipaflota okkar langt umfram þörf. Samt heldur sóknin áfram að aukast. Ástæðan er sú, að arðsemi veiðanna er hærri en arðsemi starfa í landi og sóknin mun halda áfram að aukast þar til framleiðni fiskveiðiflotans er sú sama og annarra atvinnuvega þjóðarinrtar. Sá skipastóll sem gefur sömu framleiðni við veiðar eins og önnur störf gefa í landi er ekki sá sami og gefur hámarksnýt- ingu fiskstofna. Sá skipastóll sem gefur hámarksnýtingu fiskstofna er mikið minni og til þess að halda jafnvægi þyrfti, ef skipastóll væri af þeirri stærð, að skattleggja umframgróða þessarra skipa, þannig að jafnvægi næðist og það yrði ekki ábatasamt fyrir fleiri að stunda útgerð. 2. Með því að hafa afgjald af veiðum hinna mismunandi fiskteg- unda misjafnt, mætti stýra arð- semi veiða á hinum ýmsu fiskteg- undum þannig, að hún yrði svipuð. Væri þorskstofninn í hámarksnýt- ingu, mætti beina veiðunum á aðra stofna. Það yrði þá jafn ábatasamt fyrir útgerðarmanninn að veiða t.d. ufsa eða karfa eða einhverjar aðrar fisktegundir sem ekki eru í hámarksnýtingu. 3. Hluta auðlindaskattsins mætti svo nota þegar vel áraði til að koma upp varasjóði fyrir þjóðina sem verkaði bæði sem gjaldeyris- varasjóður og verðjöfnunarsjóður. Hann myndi einnig virka sem launajöfnunarsjóður fyrir alla þegna þjóðarinnar, þar eð honum yrði beitt til að minnka hagsveifl- una. Einnig mætti nota fé úr honum til að jafna út verðsveiflur á hinum mismunandi fiskafurðum til að nýta betur_ fjárfestingu í fiskiðnaði og útgerð. Undirritaður vill taka það fram, að það sem hér er sett fram eru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.