Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.04.1978, Blaðsíða 40
(Ljósm. Eðvar Ólafss.) Alvarlegt umferðarslys varð á Vesturlandsvegi um hádegi á sunnudag. Ökumaður fólksbíls ók þvert í veg fyrir sendibíl og varð þar harður árekstur. Fjórir slösuðust en ökumaður fólksbílsins mest, enda var bíllinn mikið skemmdur, eins og sjá má á þessari mynd. Sjá frétt á bls. 3. Matthías Á.Mathiesen í viðtali við Morgunblaðið: Einstaklingar með 1500 þusund og hjón með um 3 millj. greiða engan tekjuskatt — Skattleysismörk miðað við brúttótekjur hærri Matthías Á. Mathiesen MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gærkvöldi til Matthíasar Á. Mathiesen, fjármálaráðherra, er skattafrumvörp ríkisstjórn- arinnar höfðu verið lögð fram, og beindi þeirri spurningu til ráðherrans, hvort ætlunin væri að afgreiða þessi frumvörp sem lög frá Alþingi fyrir þingslit í vor. Fjármálaráðherra sagði, að gert væri ráð fyrir því, að þessi frumvörp yrðu afgreidd sem lög frá Aiþingi á því þingi, sem nú situr. Tekju- og eignaskatts- frumvarp var mjög rætt á síðasta þingi, sagði Matthías Á. Mathiesen, og þá voru gerðar fjölmargar athugasemdir við það, sem teknar hafa verið til greina og hægt hefur verið að taka til greina vegna þess að Framhald á bls. 30. Aflahrota hjá Hornafjarðarbátum: Útflutningsbannið fer Kærði gæzlu- varðhaldió til Hæstaréttar Einn Hornafjarðarbáta — Eskey Baldvin Jónsson auglýsingastjóri Morgunbíadsins BALDVIN Jónsson hefur verið ráðinn auglýsingastjóri Morgun- hlaðsins frá og með deginum í dag að telja. Árni Garðar Kristinsson lét fyrir nokkru af starfi auglýsingastjóra. en því hafði hann gegnt frá árinu 1945. Baldvin Jónsson hefur starfað á auglýsingadeild Morgunblaðsins í 12 ár. Um leið og hann er boðinn velkominn til starfa, vill Morgun- blaðið færa Árna Garðari Kristinssyni þakkir fyrir störf hans sem auglýsingastjóra. F.INN árásarmannanna þriggja, sem voru úrskurðaðir í gæzluvarð- hald fyrir helgina vegna fantal^gr- ar árásar á tvo menn í íbúð viö Hrísateig, hefur kært gæzluvarð- haidsúrskurðinn til Hæstaréttar Umræddur maður fékk lengsta varðhaldið eða til 31. mai n.k. Ljósm. Snorri Snorrason VERKAMANNASAMBAND íslands heíur boðið vinnuveitendum upp á sérstakar viðræður um launakjör umbjóðenda sinna, verkamanna, og er Guðmundur J. Guðmundsson, formaður sambandsins, var spurður að því, hvort VMSÍ væri með þessu að skapa sér sérstöðu innan ASÍ, svaraði hann, „Það má segja það, við erum tilbúnir að semja sérstaklega um taxta Verkamannasambandsins.“ Sagði Guðmundur að það lægi í hlutarins eðli að með þessu gæfist tækifæri til þess að gera láglaunasamninga án þess að þeir gengju upp úr öllu í launastiga ASÍ. Er þetta í fyrsta sinn frá stofnun Verkamannasam- bandsins, að það býður upp á slíkar viðræður og samninga. Snorri Jónsson, varaforseti ASI, kvaðst ekki vera sammála um að Verkamannasambandið væri að lýsa yfir ákveðinni sérstöðu. Hann minnti á að þegar félögin sögðu upp samningum, þá hefðu þau strax boðið upp á viðræður, m.a. Dagsbrún og fleiri félög. Því kvað hann hér ekki vera um neina nýlundu að ræða. Kvað hann ekki óeðlilegt að Verkamannasamband- ið gerði þetta með tilliti til þess að það stæði í þessum ákveðnu aðgerðum og með tilliti til mál- anna í heild. Morgunblaðið spurði Framhald á bls. 31 Baldvin Jónsson Árni Garðar Kristinsson ttBara tók því sem verða vildi...” „KONAN vill auðvitað að ég hætti þessu en ég veit ekki, það er crfitt að hætta þegar maður er rétt búinn að fá delluna" sagði flaukur Sigurðsson, tvítugur fjöl- brautaskólanemi í Keflavík í samtali við Mbl., þar sem hann var í gær til meðferðar í sjúkrahúsinu í Keflavík eftir að verða fyrsti íslendingurinn sem hlekkist á í flugdreka- svifi. Gerðist þetta sl. sunnu- dag um kl. 4.30 þegar Haukur ætlaði að svífa af austurbrún Þorbjarnarfjalls við Grinda- vík. „Ég var búinn að ná í hang, eins og við köllum það og búinn að fara nokkrar ferðir meðfram fjallinu," sagði Haukur er Mbl. bað hann um að lýsa atvikinu. „Ég ætlaði að fara að lækka flugið til að koma inn til lendingar, átti eftir svo sem 7—10 metra niður og var nýbúinn að rétta mig úr beygju, Framhald á bls. 30. að segja til sln í Eyjum AFLAHROTA hefur verið hjá Hornafjarðarbátum síðustu vikur og mjög sæmilegur afli hefur verið hjá Vestmannaeyjabátum nú um skeið. Heildarafli Ilornafjarðarbáta er þegar orðinn um 2 þúsund tonnum betri en á allri vertíðinni í fyrra og horfur eru á mjög þokkalegri vertíð í Vestmannaeyjum, þótt blikur séu á lofti af völdum útflutningsbannsins, því að þar mun nú aðeins eftir kælirými til næstu 10—15 daga en að þeim loknum verður að loka frystihúsunum ef útflutningsbannið stendur ennþá. Vestmannaeyjabátar hafa nú um skeið aflað mjög sæmilega en að vísu var afli fremur tregur í gær að sögn vigtarmanns, því að bátarnir voru með frá 2 og upp í 9 tonn. Stefán Runólfsson, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinn- ar í Eyjum, sagði í samtali við Mbl, að allt stefndi í mjög þokkalega vertið í Vestmannaeyj- um og mikil vinna hefði verið þar í frystihúsunum undanfarið, unnið til tíu flest kvöld vikunnar. Hins vegar væri nú svo komið að í frystihúsunum væri ekki kælirými nema til næstu 10—15 daga en eftir þann tíma yrði væntanlega að loka húsunum, þar sem þau gætu ekki losað sig við birgðir vegna útflutningsbannsins. Þessi aðgerð gæti því haft alvarlegar afleiðingar hvað Vestmannaeyjar áhrærði. Mjög góð veiði hefur verið hjá Hornafjarðarbátum undanfarið að sögn Jens Mikaelssonar og aflinn í síðustu viku sérlega góður. Þá bárust á land þar rösklega 1200 tonn sem er með því mesta er Framhald á bls. 30. Sérviðræður um lágiaunasaimiinga? Vinnuveitendur fjalla um til- boð Verkamannasambandsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.