Morgunblaðið - 16.06.1981, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.06.1981, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ1981 17. júní Reykjavik: Fjölbreytt skemmtidag- skrá víða um borgina HÁTÍÐARHÖLD 17. júní f Reykjavík hefjast með hefðbundnum hætti. Sigurjón Pétursson, forseti borgar- stjórnar, leggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarðinum við Suðurgötu klukkan tíu um morguninn. Merki þjóðhátiöarinnar i KeyKja- vik í ár. Hátíðina setur Þorsteinn Egg- ertsson, formaður Þjóðhátíðar- nefndar, kl. 10.40 á Austurvelli. Forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, leggur blómsveig frá ís- lensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. Að því loknu mun Karlakór Reykjavíkur syngja þjóðsönginn. Dr. Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra flytur þvínæst ávarp. Að því k knu flytur Fjallkonan ávarp. Um klukkan 11.15 verður gengið til guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Biskupinn yfir íslandi, herra Sig- urbjörn Einarsson, predikar. Skólahljómsveit Arbæjar og Breiðholts og Skólahljómsveit Laugarnesskóla leika við sjúkra- hús og eiliheimili um morguninn. Hátíðarhöld í Árbæjarhverfi Safnast verður saman við Ar- bæjarsafn kl. 13.00 og þaðan gengið eftir Rofabæ að Árbæj- arskóla, þar sem hátíðarhöldin fara fram og hefjast þau kl. 13.45. Fjölbreytt dagskrá verður þar í umsjón nokkurra félagasamtaka úr hverfinu, s.s. söngur, leikur lúðrasveitar og þjóðdansar. Þá koma Tóti trúður og Laddi í heimsókn og skemmta áhorf- endum. Hátíðarhöld í Breiðholti Skrúðganga leggur af stað frá Stekkjabakka við Breiðholtsbraut um klukkan 13.00. Gengið verður eftir Breiðholtsbraut, Seljabraut og að bensínstöðinni við Norður- fell. Um kl. 13.20 verður síðan gengið eftir Norðurfelli, Vestur- bergi, Suðurhólum, Austurbergi, Norðurfelli að Fellaskóla, þar sem hluti hátíðarhaldanna fer fram í umsjón íþróttafélaga og annarra félagasamtaka í Breiðholti. Bílasýning verður á vegum Fornbílaklúbbsins og Bindindisfé- lags ökumanna á íþróttavellinum við Fellaskóla að loknum knatt- spyrnuleik sem hefst þar kl. 14.30. í sundlaug Fjölbrautaskólans verður sundkeppni og ýmislegt fleira sem hefst kl. 14.30. Á sama tíma verður kvenfélag Fjallkon- unnar með kaffisölu í Fellahelli. MiÖbærinn Um klukkan 15.30 leggur af stað frá Hlemmtorgi skrúðganga niður Laugaveg, Bankastræti og niður á Lækjartorg og klukkan eitt hefst þar fjölbreytt skemmtidagskrá. Að sögn ómars Einarssonar, framkvæmdastjóra Þjóðhátíðar- nefndar, verður skemmtiatriðun- um dreift um miðbæinn. Mun til dæmis, að sögn Ómars, Skóla- lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts leika við Menntaskólann í Reykja- vík. Á Austurvelli munu Stjúp- bræður syngja og að lokum má geta þess, að Jasshljómsveit Tón- listarskóla FÍH leikur á Hótel íslandsplani og sérstakt Götuleik- hús verður við Bernhöftstorfu. íþróttakeppnir Á Laugardalsvelli verður haldið sérstakt þjóðhátíðarmót í frjáls- um íþróttum og í Laugardalslaug verður haldið Reykjavíkurmeist- aramótið í sundi. Hefjast bæði mótin kl. 14.00. Kvöldskemmtanir I Bústaðakirkju verða sérstakir tónleikar í tilefni Þjóðhátíðarinn- ar. Kór Langholtskirkju syngur þar íslensk lög undir stjórn Jóns Stefánssonar og hefjast þeir klukkan 21.00. í Laugardalshöll verður kvöld- skemmtun fyrir yngri kynslóðina. Þar munu hljómsveitirnar Brim- kló og Grýlurnar leika fyrir dansi til klukkan eitt eftir miðnætti. Athygli skal vakin á því, að SVR verður með sérstakar ferðir frá Laugardalshöll eftir ballið. Aðgangur að báðum þessum skemmtunum er öllum heimill og ókeypis. Hvernig afla unglingar sér áfengis? Fá fullorðna til að kaupa f yrir sig í 16. GREIN áfengislaga segir: „Yngri mönnum en 20 ára má ekki selja, veita eða afhenda áfengi^ með nokkrum hætti. Ávallt þegar ástæða er til að ætla að kaupandi eða viðtak- andi áfengis hafi ekki náð þessum aldri, skal sá sem selur, veitir, eða afhendir það, láta hlutaðeiganda sanna aldur sinn á þann hátt að sýna nafnskírteini með mynd eða á annan fullnægjandi hátt.“ Æskulýðsráð og ungtemplar- ar gengust fyrir könnun nýlega þar sem kannað var hvar ungl- ingarnir á aldrinum 13 til 18 ára fengu áfengi. Til könnunarinnar voru fengnir 164 unglingar og niðurstöður könnunarinnar sem sjá má í töflunni sýna að algengast er að þeir fái einhvern fullorðinn sem þeir þekkja til að kaupa áfengið fyrir sig. Mjög sjaldgæft reyndist að ungl- ingarnir færu sjálfir í „ríkið" og verzluðu. Er eftirlitið svo strangt með ■i " 1 Það virtlst ekki vera miklum erfiðleikum bundið fyrir ungl- ingana að verzla áfengi i „rík- inu“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.