Morgunblaðið - 13.08.1981, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1981
11
Magni Kristjánsson, útgerAarstjóri i brúnni á Bjarti í höfn á
Neskaupstað. áður en haldið var til Grænhöfðaeyja. Ljósmynd Ásueír.
Öll hús vlö Brekkubyggö Garöabæ
hafa og veröa máluö meö
PERMA-DRI
utanhúss —
olíulímmálningu
Þetta er einsdæmi á íslandi ad 75 hús öll vid sömu götuna séu málud
med sömu utanhússmálningu, enda er þetta í samræmi viö 15 ára
endingu og reynslu fyrir PERMA-DRI á íslandi.
Aðstoðin við
Grænhöfðæyj-
ar gengur vel
Frekari langtímaskipulagningar er þörf,
segir Magni Kristjánsson, útgerðarstjóri
„Þetta hefur gcngið nokkuð vel
hjá okkur að undanförnu o« nú
hafa stjórnvöld á Grænhöfðaeyj-
um óskað aðstoðar okkar fram til
ársloka 1985, en það hefur ekki
verið samþykkt cnn hér heima.
Við höfum fundið þokklex to«-
veiðimið ok unnið að kortlaxn-
inKum, hitamælinKum ok öðrum
rannsóknum ok mér virðist að
ekki verði mikið um aðra veiði-
möKuleika en trollið, þó annað
«eti enn komið í Ijós," saicði
MaKni Kristjánsson. útKerðar-
stjóri hjá Þróunarsamvinnu-
stofnun Íslands á Gra*nhöfðaeyj-
um, er MorgunblaðiA ræddi við
hann un gang mála þar syðra.
„Við höfum nú verið þarna
niður frá í 18 mánuði og rekstur-
inn hefur gengið ágætlega að
undanförnu. Við vorum á trolli
fram á vorið frá því í vetur, þó við
værum nokkuð vanbúnir af veið-
arfærum og búnaði, og það er
alveg ljóst að þarna er hægt að
fiska þó nokkuð í trollið og er þá
um að ræða fiskitegundir, sem við
þekkjum ekki hér heima. Síðan fór
mánuður í slippferð til Kanaríeyja
og að því loknu vorum við nær
óslitið í tveggja mánaða makríl-
leit, en hún bar engan árangur.
Jafnframt því vorum við í ýmsum
rannsóknum, hita- og straummæl-
ingum og og mér virðist að
skilyrði í sjónum þarna bendi ekki
til þess að svona fisk sé að finna
þar. Það eru engir straumar eða
hitaskil, sem svona göngufiskur
laðast að.“
Hvert verður svo framhaldið?
„Nú, ég er að hætta í haust,
upphaflega átti þessi aðstoð að
standa til 1. september, en hefur
verið framlengd til áramóta. Eg
var aðeins í frí þennan tíma frá
Síldarvinnslunni á Neskaupstað,
en þó gæti hugsazt að ég yrði
eitthvað áfram við þetta, verði
þess óskað. Nú er svo verið að
hætta makrílleitinni og við þurf-
um að koma okkur upp betri
aðstöðu í landi áður en haldið
verður heim. En þá stendur einnig
til að fara á tilraunaveiðar á línu
og net með, til að sjá hvað komi út
úr því. Líklega munu þær tilraunir
standa út október og þá verður
farið að tygja bátinn til heimferð-
ar.
Þá hef ég þær hugmyndir að
nauðsynlegt sé að selja þennan
bát og láta smíða nýjan, sem henti
betur til þessara veiða og verði þá
byggt á fenginni reynslu. Þá yrði
um minni bát en Bjart að ræða, en
notadrýgri. Hann yrði þá miðaður
við allar aðstæður þarna syðra.
Hann gæti einnig verið gott sýnis-
horn af því sem við getum gert hér
í innlendri skipasmíði. Það hefur
einnig mikið að segja að vera með
nýjan bát við þetta vegna þess hve
iila íbúar eyjanna eru staddir með
viðgerðarþjónustu. Þó að ég telji
Bjart ekki hentugt skip, er hann
enn góður til síns brúks og auð-
seldur, svo þar fengist mikill hluti
byggingarkostnaðar nýja skipsins.
Þá er það næst á dagskrá að
stokka þetta upp og vega og meta
þá reynslu, sem fengizt hefur. Nú
þegar er byrjað að frumhanna
nýja bátinn og reikna má með að
smíði hans taki um 10 mánuði, svo
nægur tími ætti að vera til frekari
skipulagningar, sem verður að
vera vandvirknislega unnin þar
sem um langtímaáætlun yrði að
ræða,“ sagði Magni.
Vlach er stofnandi kvartetts, sem
ber nafn hans og hefur starfað í 30
ár, ferðast um víða veröld og leikið á
fjölmargar hljómplötur.
Þetta hlýtur að vera dálítið
óvenjulegt framtak einstaklinga í
músíkheiminum og því höldum við
áfram að spyrja þær stöllur hvort
þetta sé upphafið að hljómsveit,
hvernig fyrirtækið sé fjármagnað
o.s.frv. — Við fórum bara út í þetta
vegna ánægjunnar og til þess að
þjálfa okkur, sögðu þær og hlógu.
Viljum halda áfram þessu starfi,
ekki að við séum beint að stofna
hljómsveit. En möguleikar svona
hóps eru óendanlegir, hægt að
minnka hann og stækka, og ekkert
að vita hvernig hann þróast. Við
fáum ekkert borgað og sjáum ekkert
fram á það í náinni framtíð að fá
það. Við fengum svolítinn styrk úr
menntamálaráði til að fá hljóm-
sveitarstjórann hingað. Hann býr í
íbúð, sem kostar okkur ekkert og við
vonum að fá upp í kostnaðinn á
tónleikunum, svo við stöndum á
jöfnu. Allir hafa lagt okkur lið, sem
við höfum leitað til, bókstaflega
allir.
Þá erum við búin að hafa upp úr
þessu ánægjuna og læra óskaplega
mikið, sögðu þær. Hjá Josef Vlach
skipta allir einstaklingarnir og öll
hljóðfærin í hljómsveitinni jafn
miklu máli. Hann hefur einstaka
hæfileika til að laða fram með
elskulegheitum og yfirvegun það
besta hjá hverjum og einum. Við
höfum æft 6 tíma á dag í hálfan
mánuð. Og þetta er stórkostleg
músíkölsk upplifun fyrir okkur öll.
En hvað svo? — Svo fara sumir
aftur til útlanda, en aðrir verða
eftir og spila hér og kenna, svara
þær Helga og Rósa. Þessi hljómsveit
er kannski fyrir þá, sem hafa verið
og eru úti að læra, tæki til að
tengjast músíklifinu á íslandi og
upplifa það. Josef Vlach segir okkur
að í Prag hafi tónlistarfólkið haft
það þannig að koma saman einu
sinni í viku, músísera saman og fara
svo út að skemmta sér saman, til að
kynnast betur og ná samstöðunni.
Það sé mikilvægt. Eitt er víst, að
andinn á þessu námskeiði hjá okkur
hefur verið óskaplega góður, allir
hjálpast að með allt, hvort sem þarf
að ljósrita nótur, hella upp á
könnuna eða hvað sem er. Svo
vonum við bara að fólk vilji hlusta á
okkur þótt ekki sé þetta kannski
heppilegasti hljómleikatíminn á Is-
landi.
E.Pá.
PEKMA-DKI hentar vel bæði á ný og gömul steinþök, bárujárn og asbestklædd.
MÁLNING í SÉRFLOKKI, HINNA VANDLÁTU.
Sendi í póstkröfu, Siguröur Pálsson, byggingam.,
greiðsluskilmálar. Kambsvegi 12, Reykjavík.
Símar 34472 — 38414.
Bankastrætí7
Sími 2 9122
A6alstræti4
Símí 150 05
TlLBOÐ
Bjóöum staka jakka og buxur á sérstöku
tilboösverói.
Stendur aóeins í nokkra daga. _
7.151
wm