Morgunblaðið - 13.08.1981, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. AGUST 1981
17
140 manna hópur frá Bretlandi:
Útvarpsráð:
Reisti t jaldbúðir
á f riðlýstu svæði
í Hvannalindum
EKÍIsstödum. 11. áKÚst.
í SUMAR hefur borið meira á svokölluðum rannsóknarleiðangrum
hér en áður. Koma menn viða að til alls kyns rannsókna á landi og
gróðurfari, með leyfi islenskra yfirvalda þar til.
Nýlega kom hingað ti lands 140
manna hópur frá Bretlandi, og
voru í hópnum jarðfræðingar,
jurtafræðingar, líffræðingar og
fleiri, en mestur hluti hópsins er
þó skólafólk. Er förin eins konar
skólaferðalag, sem þó þjónar þeim
tilgangi að örva áhugann á nátt-
úruvísindum.
Fréttir bárust af því niður á
Hérað, að hópurinn hefði tjaldað á
friðlýstu svæði í Hvannalindum,
og fóru því tveir menn, þeir
Völundur Jóhannsson og Steinþór
Eiríksson, til móts við Bretana.
Var þeim gerð grein fyrir því að
þeir mættu ekki tjalda á þessum
stað, þó að á öðrum svæðum í
Hvannalindum sé það heimilt.
Leiðangursstjórinn reyndist vera
dæmigerður kurteis Breti af
gamla skólanum, og tók hann
þessum ábendingum af ljúf-
mennsku og kurteisi, enda hafði
hann ekki vitað að tjaldbúðirnar
höfðu verið reistar á ólöglegum
stað. Sá hann þegar til þess að
þær voru færðar.
Þetta vekur á hinn bóginn þær
spurningar, hvort ekki þurfi að
standa betur að leyfum til útlend-
inga, og einkum hvort ekki þurfi
að hafa heimamenn með í ráðum,
er vel þekkja til staðhátta. Væru
heimamenn með í ráðum mætti
oft koma í veg fyrir atvik á borð
við það er áður greinir.
Margt fleira þarf annars að
hafa í huga varðandi þessi mál,
svo sem að talsvert brögð eru að
því að rannsóknarmenn komi of
snemma sumars, þannig að ekki er
gerlegt áð komast um án þess að
spilla gróðri með ökutækjum. Því
þarf að breyta.
Fréttaritari
Sjötta Evrópumót íslenzkra hesta:
2 til 3 hundruð Islendingar
munu fylgjast með mótinu
SJÖTTA Evrópumót íslenzkra hesta fer fram i Larvik í Noregi
dagana 28.. 29. og 30. ágúst og eru það Norðmenn sem bera veg og
vanda af mótinu að þessu sinni. Landslið sjö íslenzkra knapa ásamt
hestum var valið i Evrópuúrtöku á Mánárgrund núna um helgina,
en alls tóku 30 hestar þátt i keppninni. Alls eiga 10 þjóðir aðild að
Evrópusambandi eigenda islenzkra hesta og eru það auk
Norðurlandanna Ilolland, Belgia, Þýzkaland, Austurríki og
Frakkland.
„Ég held að mér sé óhætt að
segja að það sé góður hugur í
mönnum," sagði Magnús Ingv-
arsson í samtali við Mbl. „Ég
held ailavega að við, sem fylgzt
höfum með undirbúningi þessa
Evrópumóts, getum verið sam-
mála um að ekkert Evrópumót
ísienzkra hesta hafi verið undir-
búið með öðrum eins myndar-
skap og núna. Norðmenn hafa
lagt í þetta alveg geysilega
vinnu.
Mér sýnist á öllu að það muni
fara einhvers staðar á bilinu 2 til
3 hundruð íslendingar tii að
fylgjast með mótinu í Noregi.
Norðmenn reikna með að um
5000 gestir muni koma á mótið
alls.“
Að loknu mótinu verða ís-
lenzku hestarnir, sem til þess
fara, seldir. Ekki treysti Magnús
sér til þess að gizka á hversu
mikið fengist fyrir þá, en sam-
kvæmt heimildum er Mbl. hefur
aflað sér, mun ekki ólíklegt að
söluverð hvers hests verði á
bilinu 70 til 100 þús. krónur.
Tvístrandaði
Norski rækjutogveiðibáturinn, sem tvístrandaði á Skut-
ulsfirði síðastliðinn laugardag, á strandstað við flug-
brautarendann. Ljósmynd Úlfar.
Gunnar Kvaran
og Ingibjörg
Þorbergs hlutu
flest atkvæði
í GÆR var fundur í út-
varpsráði þar sem meðlim-
ir ráðsins veittu umsögn
sína varðandi stöðuveit^
ingar annars vegar í
fréttamannastarf og hins
vegar varadagskrárstjóra-
starf.
Atkvæði féllu þannig að Gunnar
Kvaran hlaut 6 atkvæði en 1 sat
hjá. Aðrir umsækjendur voru
Birna Þórðardóttir, Gunnar
Finnsson, Hallur Valur Leopolds-
son, Kristín Ástgeirsdóttir, Páll
H. Hannesson og Tryggvi V. Lín-
dal.
I stöðu varadagskrárstjóra
hlaut Ingibjörg Þorbergs flest
atkvæði, eða fimm. Guðrún Guð-
laugsdóttir hlaut 1 atkvæði og
Silja Aðalsteinsdóttir 1.
LITASJONVORP
QQ” Verð kr. 9.750 - með
hjólastelli
Verð kr. 10.900.-
með hjólastelli
c
Sænsk hönnun ★
Sænsk ending ★
Bestu kaupin! ★
HLJÓMTÆKJADEILD
ffijp KARNABÆR
LAUGAVEGI 66 SÍMI 25999
Utsolustaðir: Karnabær Laugavegi 66 —
Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavík —
Portið Akranesi — Patróna Patreksfirði —
Eplið Isafirði — Álfhóll Siglufirði —
Cesar Akureyri — Bókav Þ S Húsavík —
Hornabær Hornafirði — M M h/f. Selfossi -
Eyjabær Vestmannaeyjum.
MITSUBISHI
ST/ERSTA OG FJÖLHÆFASTA FYRIRTÆKI JAPANS
Colt-inn hefur hlotiö alþjóöa viöurkenningu, — ekki eingöngu
fyrir sérstaka sparneytni heldur og fyrir útlit sitt, aksturs-
eiginleika, frábæra hljóðeinangrun, vandaðan frágang, og
fullkominn innri búnaö.
Ennfremur er Colt-inn tæknilega háþróaður, framhjóla-
drifinn blll og býöur upp á aksturseíginleika sport-
bílsins og hagkvæmni fjölskyldubllsins.
Þetta eru háttstemdar fullyrðingar, en þvl ekki aö
koma, skoða hann og reynsluaka Coltinum.
IhIh
L?__gjLaug
EKLAHF
Laugavegi 170-172 Sími 212 40
MITSUBISHI
MOTORS