Morgunblaðið - 13.08.1981, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1981
23
Forstöðumaður Tónabæjar:
Málinu var
frestað í
þriðja sinn
Á horKarráðsfundi srm haldinn
var á þridjudaKÍnn var máli um
rádninuu forstciðumanns félaifs-
miðstdðvar í Tónaha- frestað. en
þetta er í þriója sinn sem slíkt
Kerist.
Fyrst óskaði Sigurjón Pétursson,
forseti borgarstjórnar, eftir frestun,
því næst bað Kristján Benediktsson,
oddviti Framsóknarflokksins, um að
málinu yrði frestað og á þriðjudag-
inn fór Björgvin Guðmundsson, odd-
viti Alþýðuflokksins, fram á frestun.
Búist er við að málið verði tekið
fyrir á næsta fundi borgarráðs.
Norræna húsið:
Síðasta opna húsið
SÍÐASTA Opna hús sumarsins i
Norra-na húsinu verður í kvöld,
fimmtudag 13. ágúst. kl. 20.30.
Nanna Ilermansson b<irgar-
minjavörður flytur þá erindi á
dönsku og sýnir litskyggnur um
Reykjavík fyrr og nú. Eftir hlé
verður sýnd kvikmynd Osvaldar
Knudsens. Reykjavík 1955. en það
er 35 mín. kvikmynd tekin i lit og
sýnir þróun horgarinnar. ýmsar
hyggingar og íbúa. Myndin er með
íslensku tali.
Góð aðsókn hefur verið að Opnu
húsi í sumar og hafa ferðalangar frá
Norðurlöndunum fengið að hlýða á
erindi um upphaf byggðar á íslandi,
þjóðvísur, íslenskar nútímabók-
menntir, ísland í dag, eldvirkni á
íslandi og nú síðast um Reykjavík
fyrr og nú, auk þessa hafa þjóðdans-
ar verið á dagskrá sem og tónleikar
Manuelu Wiesler og Helgu Ingólfs-
dóttur. Kvikmyndir Osvaldar Knud-
sens hafa verið sýndar eftir hlé.
Yfirlitssýningunni á verkum
Þorvaldar Skúlasonar lýkur um
næstu helgi eða sunnudaginn 16.
ágúst. Sýningin er opin daglega kl.
14-19.
Gengu frá Stokks-
nesi inn á Höfn
Höfn. 10. áKÚst.
FRIÐARGANGAN, sem gengin
var frá Stukksnesi að Höfn, fúr
vel fram og var nokkuð fjölmenn,
eða 200—250 manns, ásamt bíl-
um sem fylgdu á eftir. Gangan
húfst við hlið stöðvarinnar ug
voru málin þar rædd. að sögn
Geirs Gunnarssunar. læknis. sem
var einn af fursvarsmönnum
göngunnar.
— Við fengum ekki að fara í
gegnum stöðina, en það náði ekki
lengra. Göngunni lauk við Fiskhúl
um miðjan dag, og var þar haldinn
stuttur útifundur, en þar voru um
300 manns. Að loknum fundi hélt
svo hver til síns heima. Geir sagði,
að kvöldið áður hefði verið haldin
samkoma í Mánagarði og hafi
vígbúnaðarmálin verið þar ítar-
lega rædd.
Að lokum sagði Geir, að sárast
hefði verið að fá nifteindasprengj-
una í friðargöngugjöf.
— Einar.
Leiðrétting
í FRÉTT Morgunblaðsins í gær af
Viðeyjarsundköppum misritaðist
eitt ártal. Þar stóð að Magnús
Magnússon frá Kirkjubúli hefði
synt árið 1931, en hið rétta er að
Magnús synti árið 1930. Eru við-
•komandi beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
Freeportklúbb-
urinn fimm ára
MIÐVIKUDAGINN 12. ágúst voru
liðin fimm ár frá stofnun Free-
port-klúbbsins. Í fréttatilkynningu
frá klúhhnum segir. að þennan dag
árið 1976 hafi komið saman hópur
fólks. er átti það sameiginlegt að
hafa á undangengnum mánuðum
leitað vestur til Bandaríkjanna til
að ná tökum á sjúkdómi sinum —
alkóhólisma — á Freeport-spítal-
anum, sem er í smábænum Free-
port á Long Island I Ncw York-
riki.
Þessir einstaklingar, sem þá voru
33 að tölu, höfðu kynnst nýjum
viðhorfum til alkóhólisma og nýjum
aðferðum til að meðhöndla sjúk-
dóminn, og var Freeport-klúbburinn
stofnaður til að hrista upp í ríkjandi
skipulagi í þessum málum hér á
landi, annast fræðslu um þau og
veita aðstoð við ferðir alkóhólista
vestur um haf vegna sjúkdóms síns
meðan ekki væri svipuð aðstaða
fyrir hcndi hér. Útskrifaðir sjúkl-
ingar af Freeport urðu sjálfkrafa
meðlimir, þannig að klúbbnum óx
fljótlega fiskur um hrygg.
Fræðslustarfsemi varð strax mik-
il og hafði klúbburinn forgöngu um
að fá hingað þekkta fyrirlesara um
áfengismál vestan um haf, sem
vöktu athygli og umræður manna á
meðal, og félagar komu fram í
fjöimiðlum og ræddu sjúkdóm sinn
fordómalaust, en það var nýlunda.
Með stofnun Freeport-klúbbsins
og þeirri almennu umræðu, er
félagsmenn stóðu fyrir, voru mörk-
uð afgerandi tímamót í afstöðu alls
almennings til áfengismála á ís-
landi; þetta skref varð áhrifavaldur
að því Grettistaki, sem þjóðin hefur
orðið vitni að á vettvangi áfengis-
mála sinna síðan, er nokkrir
Freeport-félagar höfðu forgöngu um
stofnun SÁÁ.
Samtök áhugramanna
um áfengismál
Starfsemi klúbbsins breyttist
eðlilega nokkuð við tilkomu SÁÁ;
var í raun viljandi dregin fremur í
skuggann, er þeim áfanga var náð.
Forgöngu um hingaðkomu erlendra
fyrirlesara var þó haldið áfram og
innan klúbbsins er haldið uppi
líflegu félags- og fræðslustarfi, með
aðfengnum innlendum ræðumönn-
um, er á einhvern hátt tengjast
áfengismálum og því sem þar er að
gerast á hverjum tíma. Þá hcfur
klúhhurinn veitt styrki til náms
erlendis I meðferðarmálum alkó-
hólista og hafa fjórir aðilar notið
styrkveitingar klúbbsins til þessa.
Félagaskrá Freeport-klúbbsins
telur nú hálft sjötta hundrað félaga,
sem notið hafa meðferðar á Free-
port Hospital frá upphafi Freeport-
ferða — og þó svo aðeins hluti
þeirra séu virkir meðlimir, er það
samdóma álit þeirra, sem notfært
hafa sér félagsskapinn, að hann hafi
reynst þeim ómetanleg lyftistöng í
gegnum tíðina.
Fyrsti formaður klúbbsins var
Anna Þorgrímsdóttir, núverandi
deildarstjóri hjá SÁÁ, en formaður
í ár er Rúnar Guðbjartsson, flug-
stjóri.
Félagar Freeport-klúbbsins
hyggjast minnast fimm ára afmæl-
isins á ýmsan hátt, er kemur fram á
haustið — en að kvöldi afmælis-
dagsins, 12. ágúst, verður sérstakur
kvöldverðarfundur að Hótel Eddu í
Húsmæðraskólanum á Laugarvatni,
þar sem aðalræðumaður verður dr.
Alan Herzlin, framkvæmdastjóri
Freeport Hospital.
Þrír af foss-
um Eimskips
í siglingum
erlendis
ÞRÍR AF fjórhurunum svo-
nefndu. Fjallfoss, Iláifoss og
Laxfoss, eru allir í flutningum
milli hafna erlendis. að þvi er
segir í fréttahréfi Eimskipafé-
lags íslands.
Fjallfoss er á leiðinni frá
Felixstowe til Trípolí í Líbýu og
losar þar væntanlega um 20.
ágúst. Háifoss er í Alsír og
Laxfoss er í Misurata í Líbýu.
Vegna verkefnaleysis fyrir
þessi skip hér heima, munu þau
verða eitthvað í siglingum er-
lendis á næstunni.