Morgunblaðið - 23.07.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.07.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ1982 25 Bill Johnson — Minningarorð Jón Willard Johnson, af frum- býlingum kominn í Minnesota, var jarðsettur í Fort Snelling Nation- al grafreitnum fimmtudagsmorg- uninn, 17. júní 1982. Jarðarfarar- athöfn var daginn áður, á mið- vikudagnn kl. 1.30 e.h. í Fyrstu lúthersku kirkjunni, 463 Maria Avenue í St. Paul, undir stjórn sóknarprestsins, séra Ralph Lindquist. Naerri allir sem þekktu mann- inn kölluðu hann Bill Johnson, og útskrifaðist hann hér úr Minneota High School 1923. Lát hans var á Unity-sjúkrahúsinu í St. Paul laugardagskvöldið 12. júní, ná- kvæmlega einum mánuði eftir 76 ára afmælisdag hans. Hann gekk undir hjartauppskurð sem kallað- ur er „by-pass“, var sjö tíma á skurðarborðinu, og lézt svo loks eftir þrjá daga. Frumbýlingshátturinn í fjöl- skyldu hins látna undirstrikast þegar minnst er á föður hans — ávallt kallaður „John A.“ meðal enskumælenda, Jón Arngríms hjá Islendingum — sem var fyrsta barn íslenzkra foreldra sem fædd- ist í Minnesota-ríki, sonur Arn- gríms Jónssonar og Jóhönnu konu hans, fæddur hér í byggð 1876. Bróðir Jóns sem enn er á lífi í Minneota, Halldór Guðjón, alltaf kallaður Jimmy Johnson, varð hundrað ára 30. janúar sl. Móðir hins látna fæddist á íslandi, Björg Stefánsdóttir prests á Desjarmýri og Hjaltastað, og Ragnhildar Metúsalemsdóttir frá Möðrudal, konu hans; bróðir séra Stefáns átti heima hér í byggðinni, Guð- mundur Pétursson, faðir Stefáns sem lengst af var bóndi í Swede Prairie township fyrir norðan Minneota. Ragnhildur amma Bill Johnson varð ekkja með tólf börn snemma á árum, og síðastur þeirra tólf systkina var rúmlega 98 ára er hann dó í Reykjavík í febrúar sem leið, Þorsteinn Stef- ánsson. Af skemmtilegri tilviljun fædd- ust Björg og maður hennar sama árið, 1876, hún á íslandi, hann í Minnesota, og dóu þau svo sama árið hér í byggð 1950. Bill var að- eins annað af sjö börnum Jóns og Bjargar sem dáið hafa — sex dæt- ur og Jón Willard, eini sonurinn. María sem kenndi í skóla í Inter- national Falls við Kanada-landa- mærin í nær 30 ár, er elst, hætt störfum og til heimilis í Vero Beach, Florida. Joan giftist Karl Cedric Hoeglund, sem dó fyrir fá- einum árum, og á ekkjan heima að Libertyville, Illinois; dóttir henn- ar, Joan, gift Warren H. Fales, og eiga þau fjóra syni, búandi í Antioch, Illinois; Marya er gift John B. DeVos, foreldrar þriggja sona og einnar dóttur, til heimilis í Libertyville; og Karen, gift Don- ald McFadyan, foreldrar tveggja dætra, í Cotter, Arkansas. Willard var þriðji í systkinaröð- inni og þar næst Ragnhildur sem giftist Matthew Roberts í Boston, Massachusetts, og þar á hann heima sem ekkjumaður síðan Ragnhildur lézt 1976. Fram- kvæmdir voru sérgrein Ragnhild- ar og var hún lengi yfirkennari í „management training program" bæði við Radcliffe College og seinna Harvard University School of Business Administration. Þór- dís er næst í röðinni, gift Wilton V. Boyle, lengst af kennara í grennd við Washington, D.C., í MacLean, Virginia; gegndi Þórdís störfum við bandaríska stofnun í Kína um tímabil sjálf; þau eru bæði hætt störfum og búa í Fort Pierce, Florida. Doris giftist Chester E. Gilpin, á heima í San Diego, California, og hafa þau átt þrjá syni, Michael Eugene, Dalm- ar, California, John Roger, Las Vegas, og James Willard, San Francisco. Elaine er yngst, gift William P. House; eru þau barn- laus og eiga heima í Marlborough, New Hampshire. J. Willard Johnson og Marie Westline voru gefin saman í hjónaband í Minneapolis 30. nóv- ember, 1933; hún fædd í Stewart- ville, ekki langt frá Rochester, Minnesota, en búsett í Minneapol- is frá þeim tíma er hún sótti há- skólann þar. Þau hjónin hafa átt fjögur börn og nú, auk ekkjunnar, syrgja þau og níu barnabörn, eig- inmann, föður og afa. Virginia Ragnhild heitir elsta barnið, til heimilis í Northfield, Minnesota, frá þeim tíma er hún útskrifaðist úr Saint Olaf College þar og gekk að eiga J. Riber Paulson, gagn- fræðaskólakennara í Northfield; eiga þau fjögur börn. Charlotte Marie er næst, gift Kenneth R. Neil, og er heimilið Great Falls, Montana, og heita þrjú börnin Anne Þórdís, Maicolm og Lorna. John Willard Johnson er eini son- ur J. Willards og Marie; að loknu námi varð hann skrifstofumaður hjá héraðsstjórninni, Ramsey county; hann og Janet kona hans eiga tvö ung börn, Eric Matthew og Maren Teckla. Yngst barnanna er Doris, til heimilis í Minneapol- is, ógift, starfandi hjá Control Data corporation eftir séræfingar í tölvufræði þegar hún lauk sínu námi við Macalester College í St. Paul. Bill Johnson var með réttu montinn af afrekum systra sinna en þær voru líka skiljanlega hrifn- ar af framúrskarandi námshæfi- Ieikum þessa eina bróður, og af þeim stöðum, sem hann skipaði er ferillinn gekk sinn gang. Byrjun- arstarfið var hjá stærsta banka höfuðborgar Minnesota-ríkis, First National Bank í St. Paul, eft- ir að hann lauk gráðum sínum i hagfræði og „Business Ad- ministration" við Minnesota- háskólann. Næst varð hann starfsmaður hjá líftryggingarfé- lagi, Minnesota Mutual Life In- surance Company, loks einn aðal- maðurinn í „investment" deild þess stórfyrÝrtækis, að ráðstafa fjárfestingum, upp á öryggi og ekki minnst upp á hagnaðinn, í skuldabréfum, hlutabréfum og slíku. Hann hélt áfram þessu starfi við vaxandi orðstír, fékk enn stærri verkahring hjá öðru fyrirtæki, St. Paul Fire and Mar- ine Insurance Company, og upp úr því frá háum stöðum upp í enn hærra hjá Western Life Insurance Company. Sem einn af aðal embættismönnum þess fyrirtækis varð nauðsynlegt að flytja til höf- uðborgar Montana-ríkis, Helena, og þar var Johnsonsfjölskyldan í tólf ár, fram til 1961, er farið var aftur til St. Paul. Nú var sú borg höfuðsetur félagsins — og varð Bill Johnson höfuðmaður félags- ins, President of the Western Life Insurance Company. Hann var hættur störfum hjá því félagi og kominn á eftirlaun hjá þeim síðari árin. Herþjónusta Bill Johnsons var í flotanum, lieutnant in the United States Navy frá því hann bauð sig fram vorið 1943, þangað til hann lauk þjónustunni í Wash- ington, D.C., og í Chicago, vorið 1946. Persónuleg kynni við hinn látna eru æfilöng eða því sem næst — fæddir sama árið, 1906, í sömu sveit, og fermdir af séra Guttormi í kirkjunni í Minneota báðir sam- an, ásamt fáeinum öðrum, á tríni- tatissunnudegi, 1920. Það var eng- in furða að nú síðari árin fór áhugi Bill Johnson fyrir ættfræð- inni að aukast — hann fékk nóg til þess að byrja með, aðeins með því að átta sig á skyldfólki beggja megin, ættfólki föður síns og móð- ur. Hann og kona hans og aðrir í fjölskyldunni heimsóttu Island oftar en einu sinni. Þar kynntist hann betur ýmsum í stóru fjöl- skyldu móður sinnar, fólkið komið af Jóni vefara, sumir ættfræð- ingar sjálfir eins og Halldór Stef- ánsson móðurbróðir hans. Ekki nægði að sækja í slíka fróðleiks- brunna, heldur þurfti Bill Johnson að rannsaka Snjóholtsættina með öllum kvistum — fólk kennt að einhverju leyti við þann bóndabæ í Eiðaþinghánni, og var föðuramma Bill Johnson fædd á Snjóholti, Jó- hanna Jónsdóttir. Bill var vel gefinn og voru and- ans kraftar hans svo einbeittir í fjárfestingarstarfinu að hann varð frægur meðal slíkra sérfræð- inga. Hann var sérstaklega trygg- lyndur, göfugur hugsjónamaður, hlýr í viðmóti með mátulega kímnigáfu, og leið vinum vel í nærveru hans. Hugur þeirra vina og ótal margra sem viðskipti áttu við hann færa samhryggð heim til ekkjunnar, Kitty, að 1208 St. Clair Avenue í St. Paul, og innilegar samúðarkveðjur til hennar og allra í fjölskyldunni, sem misst hafa svo mikils. Yaldimar Björnsson. Guðni Þórarinn Jónsson - Minning Fæddur 17. apríl 1914. Dáinn 16. júlí 1982. I dag kveðjum við tengdaföður okkar Guðna Þórarinn Jónsson frá Vopnafirði, sem lést á Land- spítalnum 16. júlí, eftir þriggja mánaða baráttu við ólæknandi súkdóm. Hann var fæddur á Hólmum í Vopnafirði 17. apríl 1914. Foreldrar hans voru hjónin Jón Sigurjónsson go Elísabet Kristjánsdóttir. Nokkra mánaða gamall var hann tekinn í fóstur af móðurbróður sínum, Guðna Jó- hannesi Kristjánssyni og konu hans Þórunni E. Kristjánsdóttur og reyndust þau honum sem bestu foreldrar, enda bar framkoma hans þess vitni að hann hafði fengið gott uppeldi, og minntist hann þeirra ætíð með mikilli hlýju og virðingu. Einnig ólu þau upp Gunndóru Jóhannesdóttur sem búsett er á Siglufirði. Ungur að árum fór hann til Reykjavíkur og lærði þar húsgagnasmíði. Á náms- árunum varð hann þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast eftirlifandi konu sinni Halldóru Geirsdóttur frá Akranesi og gengu þau í hjónaband 11. júní 1938. Að námi loknu hófu þau búskap á Akra- nesi. Þar byggði hann myndarlegt hús. En æskustöðvarnar virtust eiga hug hans allan og fluttust þau til Vopnafjarðar eftir tveggja ára búskap á Akranesi. Fósturfað- ir hans lést á meðan hann var i burtu og hefur hann trúlega einn- ig viljað vera fósturmóður sinni innan handar á efri árum hennar. Á Vopnafirði hafði hann verk- stæði og smíðaði innréttingar og húsgögn og var mjög vandvirkur við öll sín verk. Eins og algengt var í þá daga hafði hann smábú- skap. Margir munu minnast hans sem harmonikuleikara á dans- leikjum áðurfyrr, þegar dansað var fram á morgun. Þeim hjónum varð fimm barna auðið. Þau eru: Guðni Jóhannes, Þórunn Elísabet, Jón Geir, Hall- dór Elís og Hjörtur. Barnabörnin eru ellefu. Þegar koma þurfti börnunum til mennta, fluttu þau til Reykjavík- ur, þar sem ekki var um að ræða möguleika til menntunar fyrir austan. í fyrstu vann Guðni við smíðar þar, en heilsunar vegna varð hann að hætta því og gerðist þá húsvörður, fyrst á Kleppsvegi 2—6, síðan hjá Styrktarfélagi van- gefinna í Bjarkarási og nú síðast hjá Öryrkjabandalagi íslands í Hátúni 10Á. Var hann alls staðar sérlega vel liðinn af öllum sem höfðu samskipti við hann, enda einstakt prúðmenni. Ekki er hægt að enda þessa grein án þess að minnast á konu hans sem reynst hefur honum einstakur lífsföru- nautur og félagi og var hjónaband þeirra byggt á ástúð og virðingu. Teljum við tengdabörnin okkur hafa orðið mikillar gæfu aðnjót- andi að fá að tengjast þessari samheldnu og góðu fjölskyldu. Nú skilja leiðir um stund og við munum sakna sárt þessa góða manns, en minningin um hann mun lifa hjá ættingjum og vinum. Blessuð sé minning hans. Tengdabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.