Morgunblaðið - 11.10.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 11.10.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983 5 Húsnæðismálastjómarlánin: Hægt að sækja um viðbót- arlánin í þessari viku ALEXANDER Stefánsson félagsmálaráðherra staðfesti formlega i sið- ustu viku nýjar reglur um lán Húsnæðismálastofnunar til húsbyggjenda. Lánin hækka um 50% frá því sem verið hefur og nemur þá lánsupphæðin um 30% af kostnaðarverði staðalíbúðar í stað 19,2% áður. Þá eiga þeir lántakendur sem fengið hafa húsnæðismálastjórnarlán eftir áramótin 1982 kost á viðbótarláni, sem er að upphæð helmingur þess láns sem viðkomandi fékk afgreitt á sinum tu „Ég hef lagt á það ríka áherslu," sagði Alexander, “að afgreiðslu viðbótarlánanna verði hraðað sem mest, þannig að fólk getur vænst þess að fá lánin í síðasta lagi um mánaðarmótin nóvember, des- ember. Ég vænti þess að fólk geti farið að sækja um viðbótarlánið strax eftir helgina." Að sögn ráðherra þýða þessar breyttu reglur um 300 milljóna króna útgjaldaaukningu fyrir sjóðinn þ.e.a.s. ef gert er ráð fyrir að allir þeir 6 þúsund húsbyggj- endur sem þegið hafa lán frá ára- mótum 1982 æski eftir viðbótar- láni. „Það verður reynt að ná í þessa peninga með útgáfu á sér- stökum ríkisskuldabréfum, sem verða boðin út næstu daga. Þeir peningar verða eingöngu notaðir í húsnæðismál. Ef þetta dugir ekki til verður leitað annarra ráða, því meiningin er að standa við þetta," sagði Alexander. Sem fyrr segir nemur viðbótar- lánið helmingi þeirrar upphæðar sem viðkomandi lántakandi fékk afgreidda þegar lánið var tekið. Það þýðir að þeir sem fengu lán afgreitt í ársbyrjun 1982 fá nokk- uð lægri upphæð en hinir sem Séra Jón Kr. ísfeld þjón- ar í Mosfellsprestakalli SÉRA Jón Kr. ísfeld hefur verið settur til að þjóna í Mosfellspresta- kalli frá 1. september síðastliðnum til áramóta í fjarveru sóknarprests- ins, séra Birgis Ásgeirssonar, sem er við nám í Bandaríkjunum og hefur fengið til þess 9 mánaða leyfi. Samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá biskupsritara eru nú þrjú prestaköll laus. Eru það Sauðlauksdalsprestakall í Barða- strandarprófastsdæmi, en það hefur verið laust í tvo áratugi, Bólstaðarprestakall i Húna- vatnsprófastsdæmi, sem auglýst var laust til umsóknar í sumar en enginn sótti um og loks Sauðanes- prestakall í Þingeyjarprófasts- dæmi, en það var auglýst laust til umsóknar fyrir nokkru og um- sóknarfrestur ekki útrunninn. hafa nýlega fengið lán. Svo dæmi sé tekið var lánsupphæðin til ein- staklings í ársbyrjun 1982 123 þús- und krónur, en á timabilinu júlí—september í ár var hún 305 þúsund krónur. Þeir sem tóku lán fyrstu mánuði ársins eiga þá kost á 61.500 krónum, en þeir sem tóku lán á síðasta reikningstímabili getað fengið 152.500 krónur. Lánin eru umreiknuð á þriggja mánaða fresti og hér á eftir fer listi yfir lánsupphæðir frá ára- mótum 1982 til síðustu mánaða- móta. Ef lántakendur deila í þessa tölu með tveimur fá þeir út þá upphæð sem þeim stendur til boða sem viðbótarlán. Liður (a) er lán til einstaklings, (b) til 2ja—4ra manna fjölskyldu, (c) til 5—6 manna fjölskyldu og (d) til sjö manna fjölskyldu eða þaðan af stærri. Tímabii Lánaupplueö í þús. króna a b c d Jan.—mars ’82 123 157 186 207 Apríl—júní ’82 141 179 216 251 Júlí—sept. ’82 161 205 240 278 Okt—des. '82 191 243 258 329 Jan.—mars '83 211 268 314 363 Apríl—júní ’83 251 322 376 435 Júlí—sept. ’83 305 389 455 526 Tolur fyrir timabilið okt.—des. liggja ekki enn fyrir. INNLENT Albert Guðmundsson afhjúpar listaverkið. Frakkar gefa Reykja- víkurborg höggmynd HÖGGMYND eftir einn þekktasta núlifandi myndhöggvara Frakka, Morice Lipsi, var afhjúpuð á Hagatorgi í Reykjavík sl. sunnudag. Er höggmyndin gjöf frönsku rikisstjórnarinnar til Reykjavíkurborgar í tilefni af aldalangri vináttu Islands og Frakk- lands. Það var franski sendiherrann á íslandi, Hr. Louis Legendre, sem afhenti Davíð Oddssyni borgarstjóra gjöfina, en Albert Guð- mundsson, fjármálaráðherra og fyrrverandi forseti borgarstjórnar, afhjúpaði styttuna. Lúðrasveit Reykjavíkur lék við athöfnina. gNÚMER W EITT W% HJÁ auto motor sport AUÐVITAÐ ER UNO FREMSTUR í samanburöi á sex smábílum hjá hinu virta þýska bilablaði AUTO MOTOR UND SPORT var FIAT UNO i fyrsta sæti. Meðaleinkunn bii- anna úr þeim 25 atriðum sem prófuð voru varð þessi: FIAT UNO 8.62 VW POLO 8.50 PEUGOT 205 8.02 OPEL CORSA 7.72 FORD FIESTA 7.18 NISSAN MICRA 6.64 UMSÖGN UM EFSTA OG NEÐSTA BfLINN - þetta eru dómar hinna gagnrýnu þjóðverja. FIA T UNO: ,,Sterkustu hliðar UNO eru hið pláss- mikla farþega- og farangursrými og frábærir aksturseiginleikar. Auk þess getur maður veriö mjög ánægöur með þægindi bilsins og vélargæði." NISSAN MICRA: „Eiginleikar MICRA valda vonbrigðum. Þó þetta sé glænýr bíll eru það einungis eyðslan, verðið og auka- búnaðurinn sem maður getur fellt sig við." UNO sparakstur; meðaltal 3.9 lítrarsá besti 3.7 Þetta er lokaeinkunnargjöfin. Prófuð eru fimm atriði i hverjum hinna fimm aöalþátta og hæst gefið 20 stig fyrir hvert atriði. FIA T UNO fékk 431 stig af 500 mögulegum sem samsvarar 8,62 á tiuskalanum._ FIAT ER ENDURSÖLUBfLL NÚMER EITT Gesamtwertung I abrfeuetyp n. tori Niwwi ort vw kanwwrif 88 74 57 «7 84 81 Aatriak 81 74 59 85 63 m korafort 80 63 61 66 86 8.1 1 abrrt|r<n«cbaflen 95 47 67 81 87 92 W irlschafthi'hkrit 87 81 88 87 81 89 S«mn„ imxrmal 5W Prmll, l 431 359 332 386 481 425 Iegill I vilhjAlmsson hf. Smiðjuvegi 4. Kópavogi. Símar 77200 - 77202 VW Polo C 425 Punkte Die magere SerienaiMstattung nnd der relntrv bohe Verbraoch haben den Polo werfvollc Pnnkte gekoslet. Er ist gnt verarbeitel, temperamcntvoll nnd agil. Ford Fiesta 1.1 L 359 Punkte Ein kraftvoller Motor, Temperameni und gnte Verarbeitung - das sind die wesentlichen Vorange des Fíesta, dem man ansonstcn deutlich anmerkt. daB er in die Jabre gekommen ist. Pengeot 205 GR 401 Punkte Im Komfort schliigt der Franzose die Konkurrenfcn, auch setne viertörige Ka- rosserie bietet hand- feste Vorauge. Mit den Vahrleistungen ist es jedoch nicht weit her. Dic Kigensehaften dcs Micra sind cnttanschcnd. Obgleich er ete brandnen- es Ánto ist, kann er nur in Verbrauch, Preis und Ausstattung gefailen. Opel Corsa 1.2 S 386 Punkte Gute Fahrleistnngen und Moloreigen- schaften zcichnen dcn Corsa aus. Ka- rosserie und Fahr- werk können höhe- en Anspriicben nicht gcnögen. Nissan Micra GL 332 Punkte Fiat l)no 55 Super 431 Punkte Das gúnstige Raumangebot und ausgezeichnete Fahreigenschaften sind herausragcnde Pluspunkte des Uno. Mit dem Komfort und seinen Motorqualitaten kann man ebenfalls sehr zufrieden sein,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.