Morgunblaðið - 11.10.1983, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 11.10.1983, Blaðsíða 42
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983 — Baráttuglaðir Framarar sigruðu daufa Þróttara ÞAÐ urðu heldur betur óv®nt úr- •lit í Reykjavíkurmótinu ( blaki um helgina þegar Fram lagói Þrótt aó velli, 3—1. Meó þessum sigri eru Framarar í forystu (mót- inu og nægir aó sigra ÍS til aó veröa Reykjavíkurmeistarar, en þaó yröi þá í fyrsta skiptið í sjö ár sem Þróttur missti af þessum titli. Þetta var góö helgi hjá blakdeild Fram, þvt á laugardeginum tryggðu þeir sér sæti i 1. deild meö sigri á Víkingi, 3—1, og síöan geröu þeir sór lítiö fyrir og lögöu margfalda meistara Þróttar aö velli á sunnudaginn. leikur Þróttar og Fram var mjög jafn, en úrslit uröu 12—15, 13—15, 15—3 og 14—16, eftir aö Þróttarar höföu haft forystu, 13—16 og 14—11. Fram lék vel og átti þennan sigur fyllilega skiliö; leikgleðin var mlkil og þeir voru ákveðnir í aö gefa ekkert eftir á meðan í herbúðum Þróttar rikti einhver ósklljanleg deyfð. ÍS átti í erfiöleikum meö aö sigra fyrstu hrinuna á móti Víklngum, en þeim tókst þaö 16—14 og eftir þaö var leikurinn léttur fyrir þá og þeir sigruöu í næstu tveimur 15—5 og 15—8, en mikill munur er að sjá Víkingsliöið leika eftir aö Sig- uröur Guömundsson hóf að leika á nýjan leik meö þeim. Hann er góö kjölfesta fyrir liöiö og þurfa þeir engu aö kvíöa ef framfarirnar veröa eins örar hjá þeim á næst- unni og þær hafa veriö aö undan- förnu. Kvennaliö Þróttar er nú líklega búiö aö missa af Reykjavíkur- meistaratitlinum, en þær uröu meistarar í fyrra, eftir aö þær töp- uöu fyrir stúdínum 3—1. Þróttur vann fyrstu hrinuna 15—10 og virtust ætla aö sigra í leiknum, en eftir þetta var framspiliö ( molum, svo og uppdekkun og iS-stúlkurn- ar áttu ekki í teljandi vandræðum meö aö sigra 15—12, 15—9 og 15—6. Síöustu leikirnir í mótinu veröa leiknir í Hagaskóla á sunnudaginn og hefjast kl. 19. Staöan fyrlr síö- ustu umferöina er nú þessi: Fram 2 2 0 6:3 4 Þróttur 2 11 4:3 2 ÍS 2 1 1 3:3 2 Víkingur 2 0 2 2:6 0 Fram vann ADIDAS-bikarinn HIÐ UNGA lið Fram hlaut ADIDAS-bikarinn á stórmóti samtaka íþróttafréttamanna sem haldið var á Selfossi á sunnu- dagskvöldið. Framarar sigruðu Akurnesinga í úrslitaleik eftir framlengingu, 6:4, en staðan var 4:4 eftir venjulegan leiktíma. í undanúrslitunum sigruöu | Framarar KR 5:3 og ÍA sigraöi Val 4:2. í fyrsta leik mótsins sigruöu Framarar Breiöablik, síöan sigraöi i KR Selfoss, þá Valur Víking og j loks sigraði IA liö íþróttafrétta- | manna. • Úrslitaleik mótsins lauk með sigri Fram 6—4, hér er það Árni Sveinsson sem er til varnar ar Framarar reyna markskot. • Bestu lið mótsins lA og Fram, hér er verið að afhenda þeim verð- launin í mótslok. Léttleikandi Valsarar ekki Mikil spenna var f úrslitaleik mótsins og réöust úrslitin ekki fyrr en í framlengingu eins og fyrr seg- ir. Keppni um ADIDAS-bikarinn fór nú fram í fyrsta skipti, og er mein- ingin aö mót þetta veröi árlegur viöburöur á þessum árstíma. Mót- iö var mjög vel heppnaö og kunnu Selfyssingar og aörir sem teiö sína lögöu í fþróttamiöstööina vel aö meta þaö sem þar fór fram. Fyrir knattspyrnumótiö sýndu tveir Kínverjar úr Henan-listfimlelka- flokknum listir sínar og geröu þau stormandi lukku. Ekki má gleyma leik kvenna- landsliösins í knattspyrnu og Stjörnuliös Ómars Ragnarssonar, en eftir jafna og spennandi viöur- eign náöu Ómar og félagar aö „taka þær“ eins og hann oröaöi þaö. Stjörnuliöið sigraöi 7:6. — SH • Snjólaug „smassar" hér í leik Þróttar og ÍS en Auður biokkar vel og að þessu sinni fór boltinn í gólfið hjá Þrótturum. KR-inga Valur — KR 93—73 sókn, skoraði grimmt úr alls konar færum og hirti mörg fráköst. Einar Ólafsson er nýliöi hjá Val og er þar skemmtilegur leikmaöur á feröinni. KR-ingar voru lengi aö koma lagi á spilið hjá sér og aö finna leiöir gegnum Valsvörnina, einkum og sér í lagi í fyrri hálfleik. Þótt tapiö hafi verið stórt er ástæöu- laust að örvænta í upphafi móts, hafa tímann til aö stilla sína strengi og sníöa af agnúana. Hjá KR bar Jón Sigurðsson höf- uö og heröar yfir aöra. Reyndi hann aö spila felaga sína upp og baröist vel í vörn og sókn, en einn sins liös vinnur hann ekki leikinn fyrir KR. Garðar Jóhannsson átti ágæta spretti inn á milli sókninni, en aörir voru í daufara lagi. Stig Vals: Jón Steingrímsson 22, Torfi Magnússon 20, Kristján Ág- ústsson 15, Einar Ólafsson 10, Leifur Gústafsson 10, Björn Zoéga 4, Jóhannes Magnússon 4, Tómas Holton 4, Valdimar Guölaugsson 4. Stig KR: Jón Sigurðsson 18, Garöar Jóhannsson 18, Kristján Rafnsson 12, Ágúst Líndal 9, Quöni Guönason 9, Þorsteinn Gunnarsson 4, Páll Kolbeinsson 3. - ágás. í erfiðleikum með Valsarar áttu ekki í erfiðleikum með KR-inga í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik í Seljaskólahúsinu á sunnudagskvöld og var áberandi getu- munur á liðunum tveimur. Tíu stig skildu að í hálfleík og 20 í lokin, en úrslitin urðu 93-73. Einstefna á KR-körfuna er þaö eina sem hægt er aö segja um gang leiksins fyrstu 15 mínúturnar. Valsarar spiluðu leikandi létt og fundu greiöar leiðir að körfu KR-inga, og á sama tíma gekk KR-ingum erfið- lega að finna spili sínu farveg, sem sézt bezt á því að þeir höföu aðeins skorað 4 stig þegar níu mínútur voru af leiknum, eða á fjórðungi leiktímans. Skoruöu Valsarar hverja körf- una af annarri og komust fljótt í 8-0, síðan 12-2, 16-4, 21-6 og mestur var munurinn í fyrri hálfleik 17 stig er Valsarar komust í 29-12 á 13. mínútu. KR-ingum tókst hins vegar aö rétta örlítiö úr kútnum síöustu fimm mínútur fyrri hálfleiks og minnkuðu muninn niöur í átta stig rétt fyrir lokin, en Valsarar áttu síðasta orölö og staöan í hálfleik var 39-29. Valsarar hófu seinni hálfleikinn af sama krafti og þann fyrri og eftir fimm mínútur var munurinn oröinn 20 stig, 55-35, og hélzt þaö bil nánast óbreytt út leikinn. Um miöj- an seinni hálfleikinn var munurinn reyndar um tíma 22 stig, sem segir mikið um gæöamuninn á liöunum tveimur. Af framansögöu má sjá að Vals- arar náöu miklu forskoti á KR á fyrstu mínútum beggja hálfleikj- anna. Léku Valsarar skemmtilega í vörn og sókn nær allan leikinn og veröa ugglaust erfiöir viðureignar í vetur. Þaö reyndi ekki um of á þá nú og fróölegt aö sjá hvernig þeir spjara sig þegar mótlætiö veröur meira. Flestallir leikmenn Vals komu vel frá leiknum, en langbeztur þeirra og bezti maður vallaríns var Torfi Magnússon, sem átti stórleik. Stóö hann sig vel bæöi í vörn og • Torfi Magnússon spilaði mjög vel með Val. Úrslit í körfuboltanum EFTIRTALDIR leikir fóru fram í íslandsmótinu í körfuknatt- leik um helgina og uröu úrslit sem hér segir: IS — KR 1. d. kvenna 45—38 ÍBK — ÍR Úrvalsd. 76—73 (68—68) framl. Fram — ÍS 1. d. karla 56—54 KR — UMFN 2. fl. karla 75—77 KR — UMFN 1. fl. karla 69—55 UMFL — UMFS 1. d. karla 73—45 Haukar — UMFN Úrslitad. 88—73 Haukar — ÍBK 1. fl. karla 72—68 Valur — KR Úrvalsd. 93—73 ÍR — UMFN 1. d. kvenna 43—41 Ovænt úrslit í blakinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.