Morgunblaðið - 11.10.1983, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.10.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983 39 fræðingur, Anna Sigríður sem stundar nám í Verslunarskólanum og Elfa Dögg augasteinn allra. Eitt barnabarn er komið í hóp- inn, sonur Jóhanns. Það er von min og trú að það sé þeim öllum styrkur í raun að fjöl- skyldan er öll á sama stað í Efsta- sundi 62, en þangað fluttu þau fyrir nokkrum árum. Ættir Símonar komu frá Suður- landi, Helga móðir hans var dóttir Símonar Símonarsonar frá Vatnskoti í Þingvallasveit. Var hann síðasti bóndinn í þjóðgarði íslendinga, konan hans var Jónína Sveinsdóttir. Er Vatnskotsfólkið þekkt fyrir hugvit og framtaks- semi og hugrekki til að fara ótroðnar slóðir. Afkomendur Símonar og Jónínu hafa reynst afburðafólk. Faðir Símonar var Gunnlaugur Melsted, byggingarmeistari. Var hann um tíma einn af um- svifamestu byggingarmeisturum í Reykjavík. Hann var sonur Bjarna Melsted, bónda i Framnesi, Skeið- um. Bjarni var kominn af stórum ættum, barnabarn Bjarna Thorar- ensen í móðurætt og í föðurætt barnabarn Páls Melsted. Báðir voru þessir forfeður Sím- onar amtmenn. Móðir Gunnlaugs var Þórunn Guðmundsdóttir frá Miðengi í Grímsnesi. Örlögin höguðu því þannig til að Símon kynntist aldrei föðurfor- eldrum sínum, þar sem þau voru látin fyrir hans tíð. Vatnskot og fólkið sem þar bjó var Símoni mjög kært. Þar dvald- ist hann oft og þar var hans annað heimili einkum framan af ævinni. Þangað sótti hann í frítímum. Þar hittust fjölskyldur okkar um há- vetur, þegar farin var sunnudags- ferð fyrir nokkrum árum. Var þá notað tækifærið og eldri sonur minn fékk tilsögn i skautaíþrótt og yngri sonur minn fór langa bunu um ísinn borinn ( fangi Sim- onar. Það er táknrænt að á þeim tíma, sem Þingvellir eru í fallegasta skrúða að margra dómi, kveður Símon þetta lif, lífsblóm hans fölnar og feykist burt með haust- vindunum. Ættingjar, vinir og vandamenn sjá eftir manni sem lét sig varða um mál annarra, var ætið boðinn og búinn til að hjálpa, kom hreinn og beinn fram, kjörinn leiðtogi án þess að trana sér fram. Þessum dreng má ekki gleyma. Þessum dreng gleymir enginn sem kynnt- ist honum. Við ættingjarnir höld- um minningu um hann i hugskoti okkar til æviloka. Laufey, börnunum, barnabarn- inu, móðurinni, systkinunum, tengdafólkinu og öllum sem stóðu honum næst ætla ég að alvaldið huggi í harmi og veiti þeim styrk. Sveinbjörn Matthíasson. Halldóra Páls- dóttir — Minning Fædd 6. febrúar 1919. Dáin 28. ágúst 1983. Þann 3. september sl. var frú Halldóra Pálsdóttir, Grænuvöll- um 1, Selfossi, kvödd hinstu kveðju frá Selfosskirkju. Halldóra var fædd að Eystra Fróðholti á Rangárvöllum, 6. febrúar 1919, dóttir sæmdarhjón- anna Sigrúnar Sveinbjarnardótt- ur og Páls Pálssonar, sem bjuggu þar allan sinn búskap. I Fróðholti var Páll faðir Halldóru einnig fæddur og uppalinn. Halldóra ólst upp í foreldrahúsum ásamt tveim- ur bræðrum sinum, Páli Júliusi og Þórarni. Páll faðir Hallóru var kominn af hinum traustustu ættum svo sem Guðbjörg Jónsdóttir frá Rangá í Reykjavík hefir rakið skilmerkilega í niðjatali Þorbjarg- ar Jónsdóttur og Nikulásar Ei- ríkssonar búandi i Sleif í V-Land- eyjum 1835—1871, en þar rekur Guðbjörg ætt Steinunnar móður sinnar Pálsdóttur m.a. til önnu á Stóru-Borg, Vigfúsdóttur, sýslu- manns i Rangárþingi um 1500. Steinunn var föðursystir Hall- dóru. Ég sem rita þessar linur þekkti fjölskylduna í Fróðholti frá þvi fyrst ég man eftir mér og gleymi þvi aldrei hversu þægilegt mér þótti að koma að Fróðholti, þar sem maður mætti ávallt jafn þægilegu viðmóti. Þar var snyrti- mennska, regla og góð umhirða á öllum hlutum utan húss sem inn- an augljós þeim er til þekktu. Halldóra hlaut þannig snyrti- mennsku sem góðan arf úr föður- húsum, arf sem hún varðveitti vel enda studd af manni sinum, sem alla tið hefir verið sérstakt snyrti- menni. Fimmtán ára gömul hleypti Halldóra heimdraganum og fór til Reykjavíkur, þar sem hún réðst i vist til Halldórs Hansen, læknis, og frúar, og var hjá þeim 4 vetur. Halldóra taldi það hafa verið góð- an skóla fyrir sig að dveljast hjá læknishjónunum á Laufásvegi, enda batt hún vináttu við fjöl- skylduna sem ætíð hélst óslitin. Einn vetur starfaði Halldóra i vist hjá Bergi Friðrikssyni, skipstjóra, og Guðrúnu Beck, konu hans, Bræðraborgarstfg 54. Siðar átti það fyrir Halldóru að liggja að giftast ólafi bróður Bergs. Á hverju vori kom Halldóra heim að Fróðholti i hina fögru sveit sína, þar sem hún unni um- hverfinu á bökkum Þverár með hinn víðfeðma fjallahring, sem m.a. Jónas Hallgrímsson lýsir svo vel i kvæðinu „Gunnarshólmi". Fróðholt er á suðurbökkum Þver- ár en um 20 km vestan Gunnars- hólma. Halldóra giftist 6. júni 1943 eft- irlifandi manni sínum ólafi Frið- rikssyni frá Rauðhálsi í Mýrdal. Þau hófu búskap i Vestmannaeyj- um og bjuggu þar fyrsta árið, en þar hafði Olafur stundað sjóróðra margar vertíðir með aflaskipstjór- anum Þorvaldi Guðjónssyni mági sinum á Leó VE 294, en mörg sum- ur starfaði ólafur hjá föður mín- um, Sveini Böðvarssyni á Uxa- hrygg, sem er næsti bær við Fróðholt. Ég man vel að mér þótti mikið til um hvað ólafur hafði fundið sér fallegt konuefni, þegar hann opinberaði með Halldóru, en hún var sérstaklega fönguleg stúlka. Vorið 1945 fluttust þau hjónin frá Vestmannaeyjum að Skálavík á Stokkseyri, en ólafur stundaði þá húsasmiði hjá Guðmundi Á. Böðvarssyni á Selfossi. Árið 1947 ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. LOKAÐ vegna jaröarfarar TÓMASAR GUÐJÓNSSONAR, vélstjóra, veröa skrifstofur sjómannadagsráös Hrafnistu- heimilanna í Reykjavík og Hafnarfiröi og aöalum- boö Happdrættis DAS, Aöalstræti 6, lokað milli 13 og 15 í dag. Sjómannadagsráð. fluttu þau svo að Selfossi þar sem þau siðan byggðu sitt eigið hús að Tryggvagötu 1, í félagi við for- eldra mína. Þar bjuggum við í góðu sambýli við þessi ágætu hjón í nærri 15 ár, þangað til leiðir minnar fjölskyldu lágu frá Sel- fossi. Á þessum stað undi Halldóra sér vel, enda um margt svipað æskuslóðum hennar. Þarna sköp- uðu þau sér fallegt heimili Hall- dóra og ólafur, heimili, sem alltaf var jafn notalegt að koma á, manni leið vel hjá þessum hressu samhentu hjónum, en bæði hafa þau átt við langvarandi heilsuleysi að stríða, en aldrei kvörtuðu þau og báru sig alltaf eins og ekkert amaði að þeim. Ég hitti Halldóru seinast á Landspítalanum rúmum mánuði áður en hún dó og fannst mér að- dáunarvert hversu hress i anda og glaðleg hún var, þrátt fyrir erfiða legu, en þar kom fram hinn sterki persónuleiki sem einkenndi Hall- dóru og oft minnti mig á Pál föður hennar. Ef til vill er það arfur frá önnu á Stóru-Borg, en hún þótti sterk persóna á sínum tíma. Halldóra og ólafur eiga eina dóttur, öldu. Hún er gift Ragnari Wessman, matreiðslumanni á Hótel Sögu, og eiga þau tvær ung- ar dætur, og voru þær augasteinar ömmu sinnar. Þeim er sár missir að Halldóru ömmu svo ungar sem þær eru. Alda og fjölskylda henn- ar veitti Halldóru marga gleði- stund og ómetanlega hjálp i erfið- leikum seinustu árin. Mér og fjölskyldu minni, for- eldrum og bræðrum hefir verið sérstök ánægja að þvi að þekkja Halldóru. Við bræðurnir lítum á ólaf mann hennar sem uppeld- isbróður okkar. Hann kom fyrst 19 ára gamall til föður mins og var hjá honum ( fjöldamörg ár, þang- að til hann giftist. Nú þegar Halldóra er öll, eigum við fallega minningu um prúðu konuna góðu, en hún á örugga bjarta heimvon, því hún æðraðist aldrei, byggði hús sitt á bjargi i trú sinni á Guð. Ég og fjölskylda min vottum ólafi, öldu, fjölskyldu hennar og öðrum aðstandendum Halldóru innilega samúð. Blessuð sé minning Halldóru Pálsdóttur. t Elginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, TÓMAS GUÐJÓNSSON, vélstjóri, Tjarnarstíg 2, Seltjarnarnesi, veröur jarösunginn frá Oómklrkjunni 1 Reykjavík þriöjudaginn 11. október kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Heiisugæzlusjóö Hrafnistu. Sigrióur Pálsdóttir, Adolf Tómasson, Sigrún Baldvinsdóttir, Guójón Tómasson, Þurfður Gisladóttir, Valdimar Tómasson, Anna Sigrlöur Zoéga, Guórún S. Tómasdóttir, Siguröur Sumarlíöason og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU BJARNADÓTTUR frá Ásgaröi. Salbjörg Magnúsdóttir, Ethelen Magnússon, Jóhanna K. Magnúsdóttir, Ingvar Hallgrímsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö andlát og jaröarför, TÓMASAR LÁRUSSONAR, Álftagróf. Sigurbjörg Bjarnadóttir, Elín Tómasdóttir, Ólafur Björnsson, Erna Lára Tómasdóttir, Kristinn Þ. Jóhannsson, Helga Tómasdóttir, Gunnar Auðunn Oddsson, Sigríöur Tómasdóttir, Valdimar Gíslason, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, ELÍSS BJARNASONAR. Kristrún Guönadóttir, Ólína Elisdóttir, Guömundur Elis Magnússon, Elísabet Birna Elfsdóttir, Jóhann Sigurösson, Svanur Elísson, Anna Margrát Jóhannsdóttir. t Alúöarþakkir til allra þeirra sem vottuöu okkur samúö viö andlát og jaröarför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, ÞURÍÐAR GÍSLADÓTTUR frá Bjarmalandi, Sandgeröi. Sérstakar þakkir til sóknarnefndar, kórfélaga og annarra íbúa Miöneshrepps sem vottuöu henni viröingu sína á ógleymanlegan hátt. Helga Kristófersdóttir, Gfsli Júlfusson, Ingibjörg Sara Jónsdóttir, Oliver G. Kristófersson Guölaug Kristófersdóttir, Guöjón Árni Guðmundsson, Guörún Andrea Guðmundsdóttir og barnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem vottuöu okkur samúö og vin- arhug viö fráfall eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, SÆMUNDAR B. ÞÓRDARSONAR. Sérstakar þakklr færum viö starfsfólki öldrunardeildar Borgarspít- alans. Guörföur Jónsdóttir, Þórhildur Sæmundsdóttir, Jón Gunnar Sæmundsson, Kristfn Kjartansdóttir, Smári Sæmundsson, Guörföur Gfsladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Kveðjukaffi- Hlýleg salarkynní fyrir erfisdrykkju og œttarmót. Upplýsingar og pantanir í sima 11633. LKvoóinnL Caté fíosanberg. Jón Þ. Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.