Morgunblaðið - 11.10.1983, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 11.10.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983 27 menn í hörkusamræðum um hvort Schuster eigi aö leika í næsta leik, hvaða leikmaður sparkar oftast í Maradona, hvað oft hefur ekki ver- iö dæmt viti gegn Real Madrid og meö hvaöa stigamun mun el Barca verða fyrir ofan Real Madrid í lok deildarkeppninnar, íbúar í Cataluna-héraöi eru mjög þjóöernissinnaöir. Þeir eru yfir sig stoltir af menningu sinni; tungu, siðum og venjum sem eru aörar en annars staöar á Spáni. Alltaf þegar el Barca spllar eru út- varpsstöövar í Barcelona meö út- sendingar á katalónsku. Áhang- endur sem ekki hafa komist á völl- inn sitja límdir vlö útvarpstækin. Þessar stundir eru þeim heilagar. El Barca hefur frá byrjun viljaö vera alþjóölegt félag; þaö vildi strax losna viö hvers konar „fyrir- mæli“ frá Madrid, stökkva yfir Pýr- enea-fjöll... Þegar áriö 1904 leik- ur félagiö sinn fyrsta alþjóölega vinaleik í Toulouse. Og fjölmargir sigla í kjölfariö. El Barca er fyrsta knattspyrnufélagiö á Spáni er ræöur til sín heimsfræga erlenda leikmenn (Platko og Walter í kring- um 1920). Stjórnendur félagsins fá því viö komiö aö margir leikir í al- þjóðakeppnum veröa spilaöir í Barcelona (en ekki alltaf í Madrid), þeir skipuleggja fyrsta Alþjóölega knattspyrnudaginn; fá til félagsins þá bestu: Kubala, Di Stéfano, Cruyff, Maradona, Schuster, Nesk- ens, Krankl, Simonsen. „Margir frábærir leikmenn hafa spilaö meö liðinu. Sumum hefur brugöist bogalistin á 2 árum. Þaö er mjög erfitt aö leika með el Barca ef maður skilur ekki hvaö el Barca er í rauninni. Barca er ekk- ert venjulegt félag.“ Þannig kemst einn útvarpsþulur í Barcelona aö oröi. Hann hefur lýst hverjum ein- asta leik el Barca í útvarpi síöan 1976. • Ríkasta félag heims var ekkl í neinum vandræöum meö aö kaupa snillinginn Maradonna til liös viö sig fyrir metupphssö. Maradonna hefur átt erfitt uppdráttar hjá fálaginu vegna meiösla og nú sem stendur gengur hann viö haakjur eftir síöustu meiösli sín og leikur ekki knattspyrnu nssstu mánuöi. • Norska stúlkan Grete Waitz, sem hefur veriö í fremstu röö i lang- hlaupum kvenna hefur mikla tekjur af því aö keppa f gðtuhlaupum avo og í maraþonhlaupum. Þá hefur hún eins og annaö frssgt íþróttafólk miklar tekjur af auglýsingum. • Stóra stjarnan í frjálsum íþróttum í dag, Carl Lewis er oröin forríkur á því aö keppa í spretthlaupum og langstökki á stórmótum. Enda er hann sá eftirsóttasti. En er hssgt aö telja hann vera áhugamann í íþrótt sinni? Áhugamennska, hvaö er nú þad? Frjálsíþróttafólk er með miklar tekjur NÝIR TÍMAR, nýjar reglur. í dag geta íþróttamenn þegió greiöslu fyrir að keppa á Ólympíuleikunum og jafnframt haft tekjur af sjónvarpsauglýsingum án þess aö eiga á hættu aö þeir veröi ekki lengur í hópi áhugamanna í íþróttagreininni. Auðugastur þeirra allra er líklega mara- þonhlauparinn Alberto Salazar, sem getur fariö fram á 20.000 dollara greiöslu fyrir aö taka þátt í keppni og sagt er aö árstekjur hans séu yfir 200.000 dollarar. En íþróttafólkiö hiröir ekki bara peningana og hleypur svo af staö. Greiösiur þessar eru háöar vissum reglum sem ameríska Frjálsíþróttasambandiö hefur sett, þannig aö allar tekjur áhugamanna af íþróttinni veröa aö renna í sjóö sem ætlaöur er til greiöslu á framfærslukostnaöi og æfingakostnaöi íþróttafólksins. Meö þessu hefur staöa bandarísks íþróttafólks í alþjóöakeppnum styrkst til muna og auk þess hafa greiðslur „undir boröiö“ lagst nióur, sem voru orönar algengar í seinni tíö meö vaxandi áhuga fólks á spretthlaupi. En hvernig fara svo greiöslur úr sjóðnum fram? Tökum langstökkvarann og spretthlauparann Carl Lewis sem dæmi. Sjóösstjórnin ákvaröar líf- eyrisgreiöslu handa honum úr sjóönum, sem nemur 5.900 dollur- um á ári — en þaö er lægri upp- hæö en hann greiddi fyrir nýja jeppann sinn! Auk þess fær hann greiösiur úr sjóönum fyrir æfingakostnaö, en þaö má flokka æöi margt undir „æfingakostnaö", svo þar kemur e.t.v. skýringin á því hversu rík- mannlega Carl Lewis býr, og lifir. En þaö er ekki einungls íþrótta- fólkiö sjálft sem hagnast af nýju reglunum. Áöur en fyrirtæki gerir samnlng viö íþróttamann veröur þaö aö gerast ábyrgöarmaöur Alþjóöa frjálsíþróttasambandsins. Auk þess fá sjóössamtökin 10% af fyrstu 5.000 dollurunum sem samningurinn kveöur á um — eöa 10% af heildarupphæöinni ef sam- tökin sjálf standa aö samningnum. Þessar nýju reglur hafa ónelt- Frjðlsar íbrúttlr ____________ . anlega sætt gagnrýni, en ólíklegt er taliö aö breyting veröi á gerö meðan forvígismenn reglugeröar- innar geta skaraö eld aö slnnl köku. En þaö er ekki aöeins í Ameríku sem frjálsíþróttafólk fær greiðslur fyrir keppni. í Evrópu er frsBgu frjálsíþróttafólki borgaö offjár fyrir aö keppa á stórmótum. Carl Lewls fékk til dæmis 50 þúsund mörk fyrir aö keppa á móti í V-Þýska- iandi í sumar sem ieió, og var þaö ekkert leyndarmál heldur fjallað um þaö í blööum. Norska hlaupadrottningin Grete Waitz sem sigraöi i maraþonhlaupl kvenna í Helsinki hefur haft gífur- iegar tekjur á undanförnum árum fyrir götuhlaup og maraþonhlaup. Þá fær íþróttafólklö mikla peninga frá íþróttafyrirtækjum fyrlr aö keppa í vissum skóm og auglýsa íþróttavörur. Grete haföi ekki undir 1 milljón íslenskra króna (tekjur á síöustu tveimur árum fyrlr keppni í ýmsum stórhlaupum og svo fyrlr aö auglýsa (þróttavöfur. Hún er sögö áhugamanneskja í íþróttum og keppir sjálfsagt sem sl(k á OL- leikunum í Los Angeles á næsta ári en allir vita aö hún elns og svo margir fleiri llfir eingöngu á (þrótt sinni. Þaö er ekkert annaö en hræsnl aö kalla OL-leikana keppnl áhuga- manna. Allir þelr sem koma tl meö aö sigra hafa ekkert gert um langt árabil annaö en aö æfa og keppa ( (þrótt sinni og fengiö góöar tekjur fyrir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.