Morgunblaðið - 21.11.1984, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1984
Þrjú
fréttaskot
Það er annars einkennilegt, hve
sumar fréttir hræra uppí sálar-
tötrinu, skjóta jafnvel upp kollin-
um í draumaheiminum. Persónu-
lega finnst mér oft fréttir í sjón-
varpi hafa mestu áhrifin, því það
er stundum eins og þulirnir séu
að segja manni frá einhverju,
sem þeir sjálfir hafi lent í eða
frétt af. Já, svo sannarlega er
sjónvarpið áleitinn miðill. Því til
sönnunar vil ég hér nefna þrjár
stuttar fréttir, er bárust af skján-
um á mánudagskveldið var. Hér
er auðvitað um persónulegt
„fréttamat" mitt að ræða, en
þessi þrjú fréttaskot höfðu það
mikil áhrif á huga minn, að
skyndilega fannst mér íslenskur
veruleiki blasa við mér í nýju og
fersku ljósi. Fyrsta fréttin
greindi frá 12% gengislækkun, og
var hnýtt aftan við hana yfirlýs-
ingu frá oddvita ríkisvaldsins, í
þá veru, að hér væri raunar búið
að taka til baka að hluta þá
launahækkun er nýlega hefði
samist um, en að ríkisvaldið
myndi bæta launþegum upp
skerðinguna. Fréttaskot númer
tvö sýndi inní pólska kirkju, þar
sem menn gengu um og andæfðu
við sálmasöng aðför ríkisvaldsins
að nýstofnuðum mannréttinda-
samtökum. Þriðja fréttaskotið
sýndi okkur inní fundarsal rúm-
enska kommúnistaflokksins, þar
sem menn klöppuðu í kór að
venju fyrir oddvita ríkisvaldsins,
er þar ber nafnið Nicolae Ceaus-
escu.
Ég sagði hér fyrr, að þessi þrjú
fréttaskot hefðu sýnt mér ís-
lenskan veruleika í „ ... nýju og
fersku ljósi“. Ég átti við, að á ein-
hvern undarlegan hátt samtvinn-
uðust fréttirnar af ríkisvaldinu á
íslandi og í Rúmeníu og Póllandi
saman í huga mér, að afloknum
fréttatímanum. Ég fór að velta
fyrir mér, hvort það þýddi nokk-
uð fyrir almenning yfirleitt að
andæfa stefnu stjórnvalda, til
dæmis með því að heyja verk-
fallsbaráttu. Ríkið fer sínu fram
hvað sem tautar og raular. Því er
í lófa lagið að stjórna kaupgjaldi
með gengisbreytingum og ...
öðrum aðgerðum í peningamál-
um, einsog það er kallað á seðla-
bankamáli. Auðvitað er stigs-
munur á yfirgangi ríkisvaldsins
eftir því, hvort þú býrð austan
tjalds eða vestan, fulltrúar
mannréttindasamtaka hérlendis
þurfa ekki að flýja inní kirkjur
undan lögregluhundum ríkis-
valdsins, og oddviti ríkisvaldsins
á ekki eingöngu jábræður, er lofa
hann eins og guð almáttugan.
Þökk sé Guði fyrir að hér á ríkis-
valdið hverju sinni ekki eingöngu
jábræður.
Sá eðlismunur er líka hér á, að
í Póllandi og í Rúmeniu er ríkið
raunar eina leyfða fyrirtækið i
landinu. Þannig sér það auðvitað
alfarið um samninga milli launa-
manna og atvinnurekenda. Hér á
landi er „ríkið" aðeins eitt af fjöl-
mörgum fyrirtækjum lands-
manna, kannski það stærsta og
voldugasta, en bara eitt af mörg-
um, minnumst þess. Mér finnst
einhvernveginn, að framkvæmda-
stjórar þessa mikla fyrirtækis
eigi ekkert með að ráðskast með
þá launasamninga er gerðir eru í
öðrum fyrirtækjum á landi voru.
Þeir ættu fremur að fara að for-
dæmi forstjóra vel rekinna fyrir-
tækja, er greiða hæfum starfs-
krafti góð laun. Ég held að fáir
vilji, að fréttamyndir berist héð-
an af landi voru er sýna launþega
á flótta inni kirkjur, eða fram-
kvæmdastjóra Ríkis sf. á halle-
lújasamkomu, hyllandi stjórnar-
formanninn einsog Guð almátt-
ugan.
Olafur M. Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Mysa og skyr
■i í kvöld sýnir
40 sjónvarpið ann-
an þáttinn í
myndaröðinni „Matur og
næring". Þáttur þessi
fjallar um mjólk og
mjólkurmat og verða þar
kynntar þær uppskriftir,
sem hér birtast.
Mysudrykkur
l'h dl mysa
2'/2 dl appelsínuþykkni
þunnar appelsínusneiðar
vínber eða jarðarber
ísmolar
1. Blandið saman mysu og
appelsínuþykkni í glæra
skál.
2. Látið örþunnar appel-
sínusneiðar út i ásamt
vínberjum eða jarðarberj-
um og ísmolum.
Skyrsósa á grænmetis- eða
ávaxtasalat
'h lit.il skyrdós
'h dl appelsínuþykkni
'h dl vatn
klipptur graslaukur eða
blaðlaukur eftir smekk
Blandið saman skyri, app-
t
elsínuþykkni og vatni og
bætið klipptum graslauk
eða blaðlaukssneiðum út i.
Nkyrýsa
1 lítill blaðlaukur eða lítill
laukur
1 ýsuflak
'h tsk. salt
1 msk. sítrónusafi
'h. lítil skyrdós
3 msk. olíusósa
1 tsk. karrý
Graslaukur eða steinselja
til skrauts.
1. Látið púrru- eða
lauksneiðar í smurt eld-
fast mót.
2. Leggið roð- og bein-
hreinsað fiskflak ofan á.
3. Stráið salti yfir og hell-
ið sítrónusafanum yfir.
4. Hrærið saman skyri,
olíusósu og karrýi og
breiðið það yfir fiskinn.
5. Bakið neðarlega í 200°C
heitum ofni í 20—30 mín.
Berið réttinn fram með
soðnum kartöflum, hráu
salati og grófu brauði.
GERILSNEYDD
NYMJOLK
2 LiTRAR
GEHÍLSHEVÖO
NÝMJÖLK
2 LlTRAR
MIÐVIKUDAGUR
21. nóvember
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi. 7.25
Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Sigurðar G.
Tómassonar frá kvöldinu áö-
ur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.t5
Veöurfregnir. Morgunorð:
Guömundur Hallgrlmsson
talar.
9.00 Fréttir.
94)5 Morgunstund barnanna:
.Breiðholtsstrákur fer I
sveit" eftir Dóru Stefánsdótt-
ur. Jóna Þ. Vernharösdóttir
les (16).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
104» Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10A5 Islenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.15 Or ævi og starfi Islenskra
kvenna.
Umsjón: Björg Einarsdóttir.
11.45 Islenskt mál.
Endurtekinn þátlur Guörúnar
Kvaran frá laugardegi.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12^0 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13.20 Barnagaman.
Umsjón: Gunnvðr Braga.
144» A bókamarkaöinum.
Andrés Björnsson sór um
lestur úr nýjum bókum.
Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
14.30 Miödegistónleikar.
a. Fllharmonlusveitin I Los
Angeles leikur „Candide”,
forleik eftir Leonard Bern-
stein; höfundurinn stj. og
„Sirkus-polka eftir Igor
Stravinsky; Zubin Mehta stj.
b. St. Martin-in-the-Fields-
hljómsveitin leikur Menuett I
E-dúr op. 13 eftir Luigi
Boccherini; Neville Marriner
stj.
14.45 Popphólfið.
— Jón Gústafsson.
15J0 Tilkynningar. Tónleikar.
164» Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Slödegistónleikar:
islensk tónlist. Sinfónlu-
hljómsveit íslands leikur.
19.15 Attanstund
Barnapáttur með innlendu
og erlendu efni: Söguhorniö
— Karlinn I kúluhúsinu (1).
Höfundur Guörún Asmunds-
dóttir les. Litli sjóræninginn,
Tobba og Högni Hinriks.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Matur og næring
2. Mjólk og mjólkurmatur
I pessum pætti verður fjallaö
um hollustu mjólkur og
mjólkurafurða. bæöi fyrlr
börn og fullorðna, og kynntir
mjólkurréttir. Gestir I pættin-
Um-
ræður
unga
fólksins
Indira Gandhi
Indira
Gandhi
■ í kvöld sýnir
10 sjónvarpið við-
tal írska sjón-
varpsins við Indiru
Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, sem mvrt var
fyrir skömmu. I þætti
þessum segir Gandhi
meðal annars, að óróleiki í
Indlandi, sérstaklega
varðandi sikka, sé póli-
tísks eðlis en ekki trúar-
legs og að hún og ríkis-
ÚTVARP
Stjórnendur: Páll P. Pálsson,
Þorkell Sigurbjörnsson og
Guðmundur Emilsson. Ein-
leikarar: Hans Ploder
Franzson og Hafliöi Hall-
grímsson.
a. Fagottkonsert eftir Pál P.
Pálsson.
b. Tvö lög úr Melodlu I út-
setningu Þorkels Sigur-
björnssonar.
c. Sellókonsert „Ulysse ri-
torno" eftir Þorkel Sigur-
björnsson.
17.10 Slðdegisútvarp. Tilkynn-
ingar
1845 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
194» Kvöldfréttir. Tilkynningar.
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR
21. nóvember
um verður Jón Óttar Ragn-
arsson, dósent.
Umsjónarmaður Laufey
Steingrímsdóttir, dósent.
Upptöku stjórnaöi Kristln
Pálsdóttir.
21.15 Þyrnifuglarnir
Rmmti páttur.
Framhaldsmyndaflokkur I tlu
þáttum, gerður eftir sam-
nefndri skáldsðgu Colleen
McCulloughs.
Efni sföasta þáttar: Ralph de
Bricassart fer til Sidney par
sem hans blður aukinn frami
en á Drogheda gerast vá-
legir atburðir. Þangaö spyrst
stjórn hennar hafi fylgi
meirihluta sikka. Hún
segir einnig, að hún muni
taka virkan þátt I ind-
versku þjóðlífi svo lengi
sem hún lifi. Viðtal þetta
var tekið við Indiru hinn
18. águst, en hún var skot-
in til bana síðasta dag
októbermánaðar og var
þar að verki einn lífvarða
hennar, sem er sikka-
trúar.
19.50 Daglegt mál. Siguröur G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Útvarpssaga barnanna:
„Ævintýri úr Eyjum“ eftir Jón
Sveinsson. Gunnar Stefáns-
son les pýöingu Freysteins
Gunnarssonar (4).
20J20 Mál til umræöu.
Matthlas Matthlasson og
Þóroddur Bjarnason stjórna
umræöupætti fyrir ungt fólk.
214» „Let the People Sing“
1984.
Alpjóöleg kórakeppni á veg-
um Evrópusambands út-
varpsstöðva. 2. páttur. Um-
sjón: Guðmundur Gilsson. I
pessum pætti verður sagt frá
keppni barnakóra.
21.30 Útvarpssagan:
I
aö Frank hafi verið dæmdur
I ævilangt fangelsi fyrir
morö. Skógareldur kviknar
og Paddy ferst viö að bjarga
búfénu. Villigöltur verður
yngsta bróöurnum aö bana.
Séra Ralph kemur I heim-
sókn og Meggie reynir enn
aö vinna ástir hans.
Þýöandi Oskar Ingimarsson.
22.10 Indira Gandhi
Viötal sem fréttamaður Irska
sjónvarpsins átti við hinn ný-
látna forsætisráöherra Ind-
lands 18. ágúst sl.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.40 Fréttir I dagskrárlok.
■■ Matthías Matt-
20 híasson og Þór-
oddur Bjarna-
son stýra í kvöld umræðu-
þætti fyrir ungt fólk og
nefna þeir þátt sinn „mál
til umræðu“. Þetta er
annar þáttur þeirra og
munu þeir í kvöld fjalla
um skiptinema. Fjölmarg-
ir íslendingar hafa farið
sem skiptinemar til út-
landa á síðastliðnum ár-
um og ekki hafa útlend-
ingarnir verið færri sem
hingað hafa komið, eins
og gefur að skilja. Matthí-
as sagði, að umræðurnar í
kvöld yrðu í beinni út-
sendingu og ættu hlust-
endur kost á að hringja í
þáttinn með fyrirspurnir.
„Við höfðum sama hátt-
inn á í fyrsta þætti okkar,
en þá fjölluðum við um
fíkniefnamál og komust
færri að en vildu í síman-
um. Við ætlum að reyna
að bæta úr því f kvöld og
viljum benda fólki á að
hafa fyrirspurnir stuttar
og hnitmiðaðar," sagði
Matthías Matthíasson að
Iokum.
I
Grettis saga. Oskar Hall-
dórsson les (4).
22.00 Horft I strauminn
með Úlfi Ragnarssyni. (RÚV-
AK).
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Tlmamót.
Þáttur I tali og tónum. Um-
sjón: Arni Gunnarsson.
23.15 Nútfmatónlist.
Þorkell Sigurbjörnsson kynn-
ir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
RÁS 2
10.00—12.00 Morgunþáttur
Róleg tónlist. Viðtal. Gesta-
plötusnúöur. Ný og gömul
tónlist.
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Jón Ölafsson.
14.00—15.00 Út um hvippinn
og hvappinn
Létt lög úr ýmsum áttum.
Stjórnandi: Inger Anna Aik-
man.
15.00—16.00 Ótroönar slóöir __
Kristileg popptónlist.
Stjórnendur: Andri Már Ing-
ólfsson og Halldór Lárusson.
18.00—17.00 Nálaraugaö
Djass rokk.
Stjórnandi: Jónatan Garö-
arsson.
17.00—18.00 Tapaö fundið
Sögukorn um soul-tónlist.
Stjórnandi: Gunnlaugur Sig-
fússon.