Morgunblaðið - 21.11.1984, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1984
„Ríkið, það er égu
Bréf til ungra kennara, 1. hluti, skrifað áður en friðarfræðslan í verki upphófst á haustdögum 1984
— eftir Guðjón
Jónsson
Bréf til ungra kennara, 1. hluti,
skrifað áður en friðarfrteðslan f
verki upphófst á haustdögum 1984.
Þið eruð reiðir, og er vorkunn.
Sjálfur er ég vafalaust miklu reið-
ari, og er enn meiri vorkunn. En
reiður maður er vitlaus. Hemjum
því reiðina, beislum hana og stýr-
um henni í réttan stað. Ef við
hömumst gegn ríkinu, gegn sam-
félaginu sem þjóðin hefur í 1100 ár
verið að byggja sér upp, þá stýrum
við reiðinni illa.
f gamla skólahúsinu við Lauf-
ásveg sátu verðandi kennarar og
horfðu til meistara síns, er hann
lokaði á eftir sér dyrunum og
slökkti Ijósin. Það var liðið nær
hádegi og löngu albjart. Dr.
Broddi, vinsælastur kennara, ung-
ur og glæsilegur, jafnaldri sumra
nemanna, en dulúðugur eins og
sjálf forlögin, gekk til sætis og
spurði eins og af tilviljun:
„Hver borgar rafmagnið?"
„Ríkið!“ hrópa nemarnir einum
rómi (skiptir engu máli, þótt það
logi ljós, það er ríkið, helv. ríkið,
sem borgar).
„Og hver borgar ríkinu?"
Broddi settist. Nú er gleymt,
hvort hann slöngvaði fótum upp á
púltið eða gerði eitthvað annað
orðum sínum til áherzlu, en
spurningin er enn fersk í minni.
Ekki brýndi meistarinn röddina,
þessa djúpu, hrjúfu og um leið lað-
andi bassarödd, sem hafði vakið
athygli þjóðarinnar frá fyrstu
stundu, er hún hljómaði frá þul-
arherbergi útvarpsins. Fágæt
rödd og fátítt nafn, doktor Broddi.
„Og hver borgar ríkinu?“
Hvilík dauðaþögn í bekknum.
Hvílík skömmusta.
Hvílík lexía. Ein spurning á
réttri stundu í réttu samhengi.
Hvílík kennsla í þegnhollustu, í
heiðarleika við sjálfan sig og aðra,
við samfélagið — ríkið. — Og hvað
er ríkið?
„Ríkið, það er ég“
Nýir tímar, nýir menn.
1974, þjóðhátíðarár, 1100 ára af-
mæli landnáms og samfélags á fs-
landi, samfélags lslendinga.
Kosningaár. Verðandi foringi
krata — flokks hugsjónar um öilugt
samfélag, sterkt og heiðarlegt ríkis-
vald, — talinn hófsamur maður i
skoðunum og málflutningi, Bene-
dikt Gröndal, flytur kosningaræðu
í Ríkisútvarp:
„Ríkið tekur af þjóðinni, af þér
og af mér ... “ og þessi kafli er
endurtekinn til þess að ekki fari
fram hjá neinum: „Ríkið tekur af
þjóðinni, af þér og af mér ...
Já, Benedikt Gröndal, sann-
gjarn og hófsamur foringi krata,
flokks ríkishugsjónar, álasar ekki
illri ríkisstjórn, vondum ráðherrum,
— hann segir ríkið, og tvítekur
það.
Svona langt gengur stanslaus
rógurinn gegn samfélaginu, ríkinu
(sem menn jafnframt kvabba á
látlaust), af því að stundum eða
oft er því stýrt af misvitrum
mönnum, kannski af enn heimsku-
legri ástæðum. Og mætti einhverj-
um þykja athyglisvert (t.d. vinstri
sinnuðum rannsóknarmönnum í
samfélagsfræði), að valdníðsla
gegn ríkinu er einkum leidd af
Guðjón Jónsson
„Já, unga fólk, þið verð-
ið að gera uppreisn.
Ekki gegn samfélaginu
sem þið eigið nú að taka
við að byggja upp og
betrumbæta, heldur
gegn hinum gömlu og
steinrunnu leiðtogum
ykkar, sem sífellt tipla
sömu villustígana, sem
ekki liggja til farsæld-
(i
„vinstri" mönnum, „félagshyggju-
mönnum", þeim sem annars boða
„hugsjón“ sína um öflugt ríkis-
vald, ef ekki alræði þess (sósíal-
isma).
(Innskot í miðri kennslustund
Friðarfræðslu í verki, 20. október:
Einmitt nú vill svo hlálega til, að
þessir „félagshyggjumenn” standa
fyrir heiftarlegri aðför að samfé-
laginu, ríkinu, en þeir sem reyna
að verja það áföllum, eru taldir
sérstakir fulltrúar kapitaiismans,
þeirra sem vilja „Báknið burt“,
þau Albert og Ragnhildur!)
Með lögum skal
land byggja
Þegar forfeðurnir settust hér
að, fóru þeir frá jafngóðum lönd-
um eða betri til þess að vera frjáls-
ir, til þess að búa ekki-við samfé-
lag og óhjákvæmilegar skyldur
þess: til þess að forðast „ríki, sem
tekur af þjóðinni, af þér og af
mér.. “
Þeim skjátlaðist. En þeir áttuðu
sig: Hið fyrsta sem þeir skráðu,
eftir að hafa lært þá list, fyrsta
sem þeir þannig staðfestu voru
lög: skipan samfélags og takmörk-
un þess frelsis sem þeir höfðu ætl-
að sér óheft.
„Þai er hvo bágt aA standa í ataA
og mönnunutn munar
annaöhvort aftur á balt
ellegar nokkuö á leiA.
Hvert er þá orAiA okkar starf
í nex hundruA sumur.. T “
— og þúsund þó.
Hefur þjóðin enn ekki lært, að
samfélag verðum við að hafa, —
við það megum við ekki heyja stríð.
Hvaö er til ráða?
Þið hafið lítið kaup og fáið ekki
meira með góðu. Lítið kaup — hvað
er nú það eftir á að hyggja? Eftir
umræðunni að dæma hlýt ég að fá
mikil laun, að ég ekki segi „há-
laun“, en þegar ég hef borgað
skatt og húsaleigu (mjög hófsam-
lega eftir því sem nú mun gerast),
þá hrökkva eftirstöðvar nákvæm-
lega fyrir mat og meðulum 9 mán-
uði ársins, og myndu þó víst fáir
kalla mig sælkera. Þrjá mánuði á
ári (tvo skattlausa) er útkoman
betri, svo að flýtur, með því að
stilla kröfum sínum og vænting-
um í hóf. Þó að persónuleg dæmi
geti verið mjög upplýsandi og
gagnleg umræðunni, held ég ekki
að frekari raunarolla af eigin
reynslu, hefði umtalsverða þýð-
ingu, en því má treysta að ég skil
vel vandræði þeirra, sem fá minna
en 14 þúsund á mánuði til að
borga skatt og allt annað, jafnvel
þótt þeir eigi íbúð. Þó er ekki allur
jarmur um neyð okkar smælingj-
anna ekta, nei þar er margur
falskur tónn, og má vera að ég
fjalli um þaö efni síðar.
Aðeins skal hér nefnt það dæmi,
að öldungur fær 10 þúsund á mán-
uði frá samfélaginu skattfrjálst
(og greiðslu frá skattinum!) — og
þarf ekki að nota af því eina ein-
ustu krónu, því að hann á eigin
íbúð og aðra til Ieigu er stendur
undir öllum útgjöldum (enda
margt orðið „ókeypis“ þegar þess-
um aldri er náð, þ.e. borgað af al-
mennum skattgreiðendum). Sumt
gamalt fólk skortir vissulega fé til
framfærslu — en það er fáránlegt
að tala og skrifa eins og vandræði
þesa hóps séu öll af fjárhags-
ástæðum.
Það er aðstaða fremur
en laun sem skiptir
sköpum
Þetta var einmitt haft á orði við
mig nýlega: Nú hlyti að vera erfitt
Norðmenn leggja áherslu
á nýtækni í iðnaði
eftir Steinar Steinsson
Norsk iðn-
þróunarumræða
Á hverju ári, síðla sumars,
koma stjórnendur og framleiðslu-
stjórar fyrirtækja í málm- og raf-
eindaiðnaði saman til ráðstefnu. Á
sl. sumri átti þessi norska venja
tuttugu ára afmæli. Markmið
þessa fundar er að auka fram-
Ieiðni í norskum iðnaði. Það er úti-
lokað að leggja mat á hve miklu
þetta samstarf, í milli fyrirtækj-
anna, hefur áorkað fyrir norskt
efnahagslíf á nefndum tuttugu ár-
um. Ljóst er þó að ávinningurinn
er verulega mikill. Á þessum
ráðstefnum er ekki rætt um
vinnumarkaðsmál, heldur ein-
göngu um þá þætti atvinnulífsins,
sem snúa að aukinni verðmæta-
sköpun og er grunnur að góðri af-
komu fyrirtækjanna og bættum
kaupmætti. Meginmálefni fund-
anna eru framleiðnimál, mark-
aðsmál og fræðslumál.
Þróunarverkefni
Á ráðstefnunni leggja fyrirtæki,
sem hlotið hafa styrk úr sérstök-
um opinberum sjóðum til fram-
leiðniaögerða og þróunarverkefna,
fram skýrslur um niðurstöður að-
gerðanna. Gerð er grein fyrir
hvernig staðið var að verkefnun-
um og hvaða árangri þau höfðu
skilað, svo og hvaða áætlanir væru
fyrirhugaðar I framhaldi af feng-
inni reynslu. Til að kasta ljósi á
hvað fram fer, skulu hér nefndar
skýrslur, er voru lagðar fram að
þessu sinni. A/S National Industri
gerði grein fyrir verkefni, sem
nefnt er „aðlögunarhæf sjálf-
virknitækni við samsetningu
hluta“. Kristjansands Mek. Verk-
sted A/S skilaði niðurstöðum frá
verkefni um „þróun suðuaðferða".
Aker Elektro A/S lagði fram
greinargerð varðandi „þróun á
kennsluefni í gæðaöryggi”. A/S
Norsk Viftefabrik skýrði frá verk-
efni, sem fjallaði um „neytenda-
fræðslu í tölvutækni". A/S Kongs-
berg Vápenfabrikk lagði fram
skýrslu um tilraunir með jap-
anska „KANBAN-kerfið".
Hagnýting reynslunnar
Það upplýsingastreymi, sem
þarna fer fram, veitir öðrum
fyrirtækjum innsýn I reynslu
brautryðjandans og aðgang að
prófuðum aðferðum, sem gætu
komið að notum við umbætur í
rekstri annarra fyrirtækja. Þegar
hafður er í huga sá geysimikli
kostnaður, sem iðulega fylgir hag-
ræðingu og þróunaraðgerðum, er
ekki úr vegi að velta fyrir sér með
hvaða hætti megi hagræða varð-
andi undirbúning að slíkum verk-
efnum. Þetta á ekki hvað síst við
sökum þess, að árangur af hag-
ræðingu og þróunarhugmyndum
verður ekki ávallt sá, sem til er
ætlast. Þetta ráðstefnuform
norsku málm- og rafeindaiðnfyr-
irtækjanna er merkilegur vísir til
markvissrar nýtingar þess fjár-
magns, sem veitt er til hagrænna
aðgerða. Mörg fyrirtæki senda
starfsmenn til ráðstefnunnar í því
augnamiði að safna upplýsingum
Steinar Stcinsson
um margvíslega þætti, sem gætu
orðið fyrirtækinu að gagni í vænt-
anlegum hagræðingar- eða þróun-
araðgerðum og sparað því ómælda
fyrirhöfn og fé.
Viðhorf sérfræðinga
Á ráðstefnunni er venja að
hlusta á álit sérfræðinga varðandi
ýmis iðnaðarmál. Að þessu sinni
ræddi öyvind Björke, prófessor
við NTH, um sjálfvirkni í vél-
smíðaiðnaði, svo og um þekkingar-
þörf og nauðsynlegt þróunarstarf.
Ennfremur flutti Nils Kjell Vhile
fróðlegt erindi um meðferð gjald-
þrotabúa í iðnaði og hvað aðrir
gætu af þeim lært.
Sjálfvirkni í iðnaði
Prófessorinn ræddi ýtarlega
stöðu norsks iðnaðar og taldi að
Norðmenn ættu fullt I fangi með
að fylgja tækniþróuninni til jafns
við aðrar iðnaðarþjóðir. Hann
lagði mikla áherslu á nauðsyn
þess að fyrirtækin fylgdust vel
með þróuninni I sjálfvirkni við
framleiðslu. Hann áleit að sam-
keppnishæfni iðnaðar í dag byggði
á aðferðum, sem aðeins væri unnt
að beita með tölvuvæddum búnaði.
Hann taldi nauðsynlegt að vera
framarlega í þróunarstarfinu, því
þeir sem væru aftarlega hefðu
lakari samkeppnisstöðu um mark-
aðina. Hann lagði mikla áherslu á
menntunarþáttinn i iðn-
aðarsamfélagi nútíðar og framtíð-
arinnar, og benti á stóraukna þýð-
ingu hönnunar og áhrif hennar á
framleiðslukostnaðinn og sam-
keppnisstöðuna. Fyrirlesarinn
nefndi, að algengt væri að
hönnunarkostnaður vöru væri um
5% af kostnaði. Hinsvegar gæti
hönnunin ein sér haft geysimikil
áhrif á framleiðslutímann og gæti
það numið allt að 75% af smíða-
kostnaði. Vissulega hefur hönnun-
in alltaf skipt miklu máli hvað
framleiðslukostnað varðar, en
með nýrri tækni verða áhrif henn-
ar enn meiri en áður. Því verður
að gera auknar kröfur til grunn-
þekkingar á framleiðsluaðferðum
hjá þeim, er starfa að hönnun.
Hann taldi þörf á að lengja nám
tækni- og verkfræðinga.
Þróunarstarf
Að undanförnu hafa Norðmenn
og Þjóðverjar unnið sameiginlega
að verkefni varðandi hagnýtingu á
tölvutækninni. Miklu fé hefur ver-
ið veitt í samstarfsverkefnið, eða
um 18 millj. DM. Markmið verk-
efnisins er að gera margháttuð
iðnaðar- og verkfræðileg pró-
grömm, sem iðnfyrirtækin fá að-
gang að og mun auðvelda þeim að
nýta tölvuna við hönnun og fram-
leiðslu. Prógrammbankar á þessu
sviði verða stöðugt öflugri og taldi
fyrirlesarinn að norsk fyrirtæki
gætu notfært sér þann þekk-
ingarforða, sem þar safnast fyrir
og myndi það styrkja samkeppn-
isstöðu þeirra við hönnun og
framleiðslu. Settar hafa verið á
stofn KAD/KAM-miðstöðvar er
veita framleiðslufyrirtækjum
fyrirgreiðslu og aðstoð. Þar geta
fyrirtækin prófað hugmyndir um
breyttar framleiðsluaðferðir og
kannað kostnað slíkra breytinga
áður en ákvörðun er tekin varð-
andi fjárfestingar.
Rafeindabúnaður í
málmiðnaðarvörum
Norðmenn leggja mikla áherslu
á að dreifa þekkingu um rafeinda-
búnað sem hluta í vöruframleiðslu
vélsmíðaiðnaðarins. Kynningar-
fundir eru haldnir fyrir stjórnend-
ur fyrirtækjanna, svo og sam-
starfsmenn þeirra. Mörg fyrirtæki
hafa hlotið beina aðstoð I formi
námskeiða, sem haldin eru fyrir
starfsmenn þeirra og fjalla um
þennan þátt framleiðslunnar I
fyrirtækinu. Eftirspurn eftir
tækjum, sem búin eru slíkum bún-
aði, fer stöðugt vaxandi á mörkuð-
unum. Þá stendur fyrirtækjunum
til boða sérfræðileg umsögn um
framleiðsluvöru sína og hvort
möguleiki sé á að nýta rafeinda-
búnað til stýringa i stað eldri að-
ferða. Þá eru Norðmenn að taka
saman fróðlegt yfirlit um raf-
eindabúnað í málmiðnaðarvöru og
er ætlunin að dreifa þessum upp-
lýsingum til fyrirtækjanna. Með
þessum hætti er ætlunin að hvetja
iðnfyrirtækin til að íhuga betur þá
möguleika, sem felast í nýtækn-
inni, bæði tæknilega og markaðs-
lega.