Morgunblaðið - 21.11.1984, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1984
55
Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins:
Ríkisstjórnin tekur nú
alla kauphækkun aftur
WZR 6 MON THS—SA TtUSA L BESTSELLERJ
m£VKmrmm*MUAs
* K VOM-Y OKR,ir>VKV ONK,
I MAMUSD0m,Utn
— segir Svavar
Gestsson um
gengisfellinguna
„HELSTTU niðurstödur fundarins
voru ítarlegar tillögur um hvernig
megi tryggja kaupmátt nýgerðra
samninga, sem ríkisstjórnin hefur
nú ákveðið að Uka allan aftur og
rúmlega það með þeim hundakúnst-
um, sem tilkynnUr voru í dag. Þar
er komið afUn að launafólki á sví-
virðilegri hátt en þekkst hefur síðan
á viðreisnarárunum," sagði Svavar
Gestsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins, í samUli við blaðamann
Mbl. um flokksráðsfund bandalags-
ins, sem haldinn var í Reykjavík um
helgina.
Hánn sagði að fundurinn hefði
einkennst af þrótti og starfsvilja
og að umræður hefðu allar verið
mjög málefnalegar og góðar. „Það
voru gerðar samþykktir um kröft-
ugt átak til nýsköpunar í atvinnu-
lífinu cg mótaðar tillögur fyrir
næsta landsfund Alþýðubanda-
lagsins, sem haldinn verður að
ári,“ sagði Svavar. „Það liggur
fyrir, að þjóðartekjur á íslandi eru
svipaðar og I nágrannalöndunum
en engu að síður eru laun hér
miklu lægri. Við ætlum okkur að
skera niður þann mikla kostnað til
milliliðanna, sem fólk er að borga
með sínu lága kaupi og við viljum
að laun hér og félagsleg þjónusta
sé sambærileg við það, sem þekk-
ist í nágrannalöndunum."
Svavar sagði að á flokksstjórn-
arfundinum hefði mikið verið rætt
um nauðsyn kröftugs landsstjórn-
arafls, sem gæti myndað ríkis-
stjórn með stuðningi og tiltrú
vinnandi fólks í landinu. „Við er-
um að tala um ríkisstjórn gegn
fésýsluflokkunum — Framsókn og
Sjálfstæðisflokknum — og stefnu
þeirra. Við teljum að það þurfi að
vera unnt að mynda ríkisstjórn án
þátttöku þessara flokka. Það hef-
ur aldrei gerst í sögu lýðveldisins
en nú er kominn tími til að þess-
um tveimur flokkum sé byggt út
úr stjórnarráði íslands," sagði
hann.
Um miðstjórnarkosningar
flokksstjórnarfundarins og fall
Guðmundar Þ. Jónssonar, for-
manns Landssambands iðnverka-
fólks, sagði Svavar að þótt kosn-
ingarnar hefðu gengið átakalaust
fyrir sig, þá hefðu þær sýnt fram á
galla þess „punktakerfis", sem
notað væri við miðstjórnarkjör í
flokknum. Kerfið tryggði aftur á
móti rétt minnihlutahópa í
flokknum en búast mætti við að
reglurnar yrðu áfram til umræðu
á landsfundi að ári. „Þessi niður-
staða segir ekkert um að flokksráð
Alþýðubandalagsins sé andvígt
Guðmundi eða hans sjónarmiðum.
Enn er mikill fjöldi forystumanna
Alþýðubandalagsins úr verka-
lýðshreyfingunni og allir mið-
stjórnarmenn eru almennt launa-
fólk,“ sagði Svavar Gestsson,
formaður Alþýðubandalagsins.
Stjómmálayfirlýsing flokksráðsfundar Alþýðubandalagsins:
Brýnast að efla samstöðu
gegn ríkisstjórninni
— leitaö samvinnu við Alþýðuflokkinn, Bandalag jafnaðar-
manna, Samtök um kvennalista og fleiri
„BRÝNASTA viðfangsefnið á næstu
mánuðum er að efla á margvíslegan
hátt samstöðu allra þeirra, sem
hafna leið ríkisstjórnarinnar," segir
m.a. í niðurlagi stjórnmálaályktunar
flokksráðsfundar Alþýðubandalags-
ins, sem haldinn var í Reykjavík um
helgina. Segir að flokkurinn muni í
því skyni leggja megináherslu á sex
mcginatriði:
„1. Kaupmáttur nýgerðra kjara-
samninga verði varinn. Komið
verði í veg fyrir niðurskurð á
þeirri félagslegu þjónustu, sem
stuðlar að jöfnum rétti allra án
tillits til efnahags.
2. Lagður verði grundvöllur að
nýrri og réttlátari tekjuskiptingu í
íslensku þjóðfélagi. Fjármagn
verði fært frá stóreignamönnum
og milliliðum til framleiðslu-
greina og launafólks. Leitað verði
samkomulags á vinnumarkaði um
jafnlaunastefnu og skattkerfinu
breytt á þann veg, að fyrirtæki og
fjármagnseigendur beri sinn
réttmæta skerf.
3. Ný sókn I atvinnumálum
verði hornsteinn fjárfestingar.
Hugvit, þekking og reynsla, sem
hafa mótast við íslenskar aðstæð-
ur, verði uppistaðan í útflutningi á
þjónustu, hönnun, tæknigetu og
fullunnum afurðum. Framtíðar-
þróun í hátækni, fiskeldi og marg-
víslegum nýiðnaði opnar íslend-
ingum nýja möguleika. Jafnhliða
verður með skipulagsbreytingum
og endurbótum að efla eldri at-
vinnugreinar svo þær geti mætt
vaxandi samkeppni á útflutn-
ingsmörkuðum.
4. Nýtt stórátak verði gert í
menntunar- og menningarmálum
þar sem höfuðáherslan verði lögð
á jöfnuð í víðtækasta skilningi.
5. Aukið lýðræði og valddreifing
móti ákvarðanir á öllum sviðum.
Starfsemi ríkis, sveitarfélaga,
fyrirtækja og verkalýðsfélaga
verði breytt í þessu skyni. Tryggja
verður að allir sem ákvarðanir
snerta hafi kost á að taka þátt i
mótun þeirra.
6. fsland verði ekki vettvangur
aukins vígbúnaðar og komið verði
í veg fyrir að hér hlaðist upp sf-
fellt fleiri tæki, sem tengjast
hernaðarkapphlaupi risaveldanna.
Við eigum að gerast virkir boðber-
ar afvopnunar og hafna þátttöku I
framkvæmd nýrra vígbúnaðar-
áætlana. ísland leggi sitt lóð á
vogarskálarnar til þess að stöðva
vígbúnaðarkapphlaupið og styrkja
alla viðleitni til afvopnunar. Frá
íslandi heyrist rödd friðarins á al-
þjóðavettvangi.“
Segir síðan að Alþýðubandalag-
ið muni beita sér fyrir því, „að
umræður um leiðir að hinum sam-
eiginlegu markmiðum fari fram á
vinnustöðum og í samtökum
launafólks, svo að öllum almenn-
ingi gefist kostur á að koma sjón-
armiðum sínum á framfæri.
Alþýðubandalagið mun einnig
leita eftir viðræðum við Alþýðu-
flokkinn, Bandalag jafnaðar-
manna og Samtök um kvennalista
og aðra aðila, hópa og einstaklinga
utan þings og innan, um þetta við-
fangsefni, m.a. við þá sem áður
hafa verið tengdir stjórnarflokk-
unum. Þessar viðræður yrðu allar
opnar og jafnóðum skýrt opinber-
lega frá því, sem þar kæmi fram,“
segir í niðurlagi stjórnmálaálykt-
unar flokksráðsfundar Alþýðu-
bandalagsins 1984.
ímwBOHm
mm&mvp
Peter Pan
Syndrome
Erlendar
bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Dr. Dan Kiley: Tbe Peter Pan
Syndrome — Men who have nev-
er grown up. Útg. Avon.
ÞESSI bók hefur verið lengi á
metsölulistum vestanhafs, enda
dæmigerð fyrir bækur, sem fólk
steypir sér á kaf í, af því að það er
svo fróðlegt að lesa um aðra en
mann sjálfan .... eða hvað. Bókin
er uppfull af fýsilegum upplýsing-
um og sjálfsögðum hlutum, sem
ekki koma á óvart. Eftir lýsingum
dr. Dan Kileys að dæma á Peter
Pan-syndrómi og skilgreiningu á
því, hygg ég að mjög fáir karlar
sleppi alveg við einkenni og varla
held ég að fyrirfinnist sú kona
sem hefur ekki kynnst einhverjum
Pétri Pan í lífinu. Að minnsta
kosti ef á að fylgja leiðsögn dr.
Dan Kileys.
í samkvæmum skiptir hann sér
ekki af konunni sinni en leggur sig
fram um að hrífa aðra gesti, eink-
um konur.
Honum er um megn að biðja
fyrirgefningar.
Hann væntir þess að maki/ást-
vina sé reiðubúin til ástarleikja
þegar honum þóknast og skeytir
lítið um hvað henni finnst.
Hann er til að hjálpa vinum sín-
um og félögum, en vanrækir að
gera smáhlutina sem konan biður
hann um.
Hann Iætur því aðeins í ljós
áhyggjur um velverð og velliðan
að kvartað sé hástöfum undan af-
skiptaleysi hans.
Hann á afar erfitt með að tjá
tilfinningar sínar.
Hann á við áfengisvandamál að
stríða; engu er líkara en hann hafi
hamskipti þegar hann neytir víns.
Hann er uppfullur af karl-
rembuhugmyndum: Eg hef ekkert
á móti því að konan mín vinni úti,
ef hún heldur heimilinu hreinu.
Honum finnst hann alltaf vera
að missa af einhverju skemmti-
Iegu ef hann kemst ekkí út með
vinum sínum að vild.
Ég bara spyr. Hver þekkir ekki
mann/menn sem „þjást“ af öllu
þessu. Skyldi þurfa doktor til að
segja okkur það. í þessum dúr er
bókin öll, með heiðarlegum og
læsilegum undantekningum þó.
Tæknimenn, verktakar,
húsbyggjendur,
skólar, áhugafólk ...
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins gefur út handhæg sérrit og tækniblöö
sem spanna yfir flest sviö byggingariönaöarins. Þar færöu upplýsingar um:
einangrun húsa, steinsteyputækni, klæöningu húsa, viögeröir á alkalí-
skemmdum, vísitölu byggingarkostnaöar, rakavandamál í húsum, innrétt-
ingar, vegageröarmál o.fl.
Hringdu til okkar í síma 83200 og viö sendum þér þaö sem þú vilt fá — í
póstkröfu, eöa lista yfir öll okkar rit, þér aö kostnaöarlausu.
Ath.: Ritin okkar fást einnig í Byggingarþjónustunni, Hallveigarstíg 1.
Rannsóknastofnun
byggingaríðnaðarins
Keldnaholti — Reykjavlk
Simi 83200.
Einhell
vandaöar vörur
boftpressur
FYRIR LIGGJANOI
ALLTAF SAMA LÁGA
VERÐIÐ
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
símar81722 og 38125
WIKA
Þrýstimælar
Allar stæröir og geröir
■LlLL
StimirÐjDiyigjtyir
Vesturgötu 16, sími 13280
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
Aóstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
REGGIANA
RIDUTTORI
Drifbúnaóur
fyrirspil o.fl
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA