Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÖBER1985 5 Slysavamafélagið borgar á borðið: Varðskipið ÞOR selt á 1000 krónur — verður gert að fræðslu- og þjálfunarmiðstöð sjómanna mmÞ r I Slysavarnafélag íslands keypti í gær varðskipið Þór og borgaði það út í hönd, að sögn Alberts Guðmunds- sonar fjármálaráðherra. Kaupverðið var eitt þúsund krónur. „Þetta er framlag ríkisins til öryggismála sjómanna," sagði fjármálaráðherra í samtali við blaðamann Morgunblaðsins eftir að afsal fyrir skipinu hafði verið gefið út í gær. „Slysavarnafélagið hyggst nota skipið til allsherjar þjálfunar fyrir íslenska sjómenn. Félagið, samtök sjómanna og Öryggismálanefnd sjómanna, höfðu óskað eftir skipinu fyrir nokkru síðan og þegar kaup, sem búið var að semja um fyrir all löngu, gengu til baka í sumar, ósk- uðu þessir aðilar eftir skipinu á nýjan leik. Að höfðu samráði við forsætisráðherra og dómsmála- ráðherra fannst okkur sjálfsagt að verða við þessari ósk enda lá ekkert annað fyrir en að selja skipið í brotajárn." Fjármálaráðherra minnti á, að varðskipið Þór hefði þjónað vel sínum tilgangi á Islandsmiðum. „Nú getur það haldið áfram að þjóna íslenskum sjómönnum og öryggismálum þeirra. Ég vona að eftir að Slysavarnaféiag íslands, það ágæta félag, eignast Þór þá verði félagið enn betur fært um að gegna sínu mikilvæga hlut- verki." varðveislu elsta varðskips okkar, sem á sér merkilega sögu,“ sagði Haraldur Henrysson að lokum. „Þór þjónaði dyggilega í öllum þorskastríðum okkar og því er full ástæða til að geyma þetta skip sem best.“ Slysavarnafélagið borgar rúm- lega þúsund sinnum lægra verð fyrir Þór en samið var um við nokkra unga athafnamenn i Reykjavík og víðar á síðasta ári. Samningurinn við þá hljóðaði upp á hálfa elleftu milljón króna en þeir ætluðu að selja skipið aftur eða leigja til eftirlitsstarfa með olíuborpöllum í Norðursjó. Þeir samningar tókust ekki og var kaupunum því riftað af hálfu fjár- málaráöuneytisins í sumar leið. Morgunbiaðid/RAX Nýir eigendur elsta varðskipsins IfU i gripinn í Straumsvíkurhöfn í gsr: Hannes Hafstein framkvæmdastjóri SVFÍ og Haraldur Henrysson foraeti félagsins. Unglingar 11 3 glös á dag Haraldur Henrysson, forseti SVFÍ, sagðist vera mjög ánægður með viðskiptin við fjármálaráðu- neytið. „Við höfum barist fyrir þvi í nokkur ár að fá skip, til að nota sem fræðslu- og þjálfunarmiðstöð fyrir íslenska sjómenn," sagði hann. „Við höfum áður sóst eftir þessu skipi í félagi við Sjómanna- samband Islands og Farmanna- og fiskimannasambandið en þá var það selt öðrum. Þegar við fréttum af því nú, að verið væri að flytja skipið suður í Straumsvík, þar sem átti að geyma það, þá fórum við af stað aftur í félagi við öryggis- málanefnd sjómanna. Albert Guð- mundsson brást fljótt og vel við og kunnum við honum bestu þakk- irfyrir." Haraldur sagði að nú myndi hefjast vinna við að koma föstu skipulagi á slysavarnaskóla félags- ins. Hugmyndin væri að láta skipið einkum liggja við bryggju eða nærri landi, því dýrt væri að gera það út, og auk þess myndi það fullkomlega þjóna sínum tilgangi sem fræðslumiðstöð sjómanna og geymsla fyrir ýmsan öryggis- og þjálfunarbúnað án þess að það væri á sjó. óvíst væri hvar skipið yrði látið liggja - væntanlega myndu fljótlega hefjast viðræður við hafnar- og borgaryfirvöld í Reykjavík um það atriði. „Við viljum einnig stuðla að Tveir ökumenn stinga af ÖKUMENN tveggja bifreiða stungu af eftir árekstra er urðu aðfaranótt laugardagsins. Annars er leitað, en hinn gaf sig fram í gær. Ekið var á kyrrstæða bifreið, sem stóð fyrir utan Hverfisgötu 12 laust fyrir hálffjögur um nóttina. Ökumaður hvarf út í myrkið á tveimur jafnfljótum eftir árekstur á gatnamótum Grensásvegar og Suðurlandsbrautar um hálffimm um nóttina og síðan hefur ekki til hans spurst. Eigandi bifreiðarinn- ar, stúlka, kvaðst í yfirheyrslu, hjá lögreglu ekki vita náin deili á ökumanni. Slysarannsóknadeild lögreglunnar í Reykjavík vinnur að rannsókn málsins. þegar vöxturinn er hraður* Unglingar verða að fá uppbyggilegt fœði vegna pess hve vöxtur þeirra er hraður ö tiltölulega föum örum. Þar gegnir mjólkumeysla mikilvœgu hlutverki því ön mjólkur, og kalksins sem f henni er, nö unglingarnir síður fullri hœð og styrk. Komið hefur í Ijós að neysluvenjur unglinga fullnœgja sjaldnast lógmarks kalkþörf og er þeim því einkar hœtt við hinum alvarlegu afleiðingum kalkskorts síðar ó œvinni. Sérstaklega eru stúlkur í hœttu þvf þeim er hœttara við beinþynningu og Mjólk í hvert mál hörgulsjúkdómum f kjölfar bameigna. Kalksnauðir megrunarkúrar og lélegt matarœði virðist einnig einkenna neysluvenjur stúlkna fremur en drengja. Fjögur mjólkurglös ö dag innihalda lögmarkskalk- skammt fyrir unglinga og neysla undir því marki býður hœttunni heim. Það er staðreynd sem unglingar og foreldrar þeirra œttu að festa í minni því þegar vöxturinn er hraður er hver dagur dýrmœtur. * Mjólk: Nýmjólk, léttmjólk, eða undanrenna. Aldurshópur Ráðlagður dagskammtur af kalki í mg Samsvarandi kalk- skammtur f mjólkur- glösum (2,5 dl glös)* Lágmarks- skammtur í mjólkurglösum (2,5 dl glös)** Böm 1-10 ára 800 3 2 Unglingarll-18óra 1200 4 3 Ungt fólk og fullorðið Ófrískarkonurog 800“ 3 2 < brjóstmœður 1200“* 4 3 * Hér ©r gert róð fyrlr að allur dagskammturlnn af kalki komi úr mjólk. " Að sjálfsögðu er mágulegt að fá allt kalk sem llkaminn þarf úr óðrum matvœlum ©n mjólkurmat ©n slíkt krefst nákvœmrar þekkingar á nœringarfrœðl. Hór ©r miðað vlð neysluvenjur ©ins og þœr tíðkast í dag hér ó landi. “ Margir sérfrcBðingar telja nú að kalkþórf kvenna ©ftir tfðahvörf sé mun melri ©ða 1200-1500 mg á dag. **** Nýjustu staðlar fyrlr RDS í Bandaríkjunum gera ráð fytir 1200 tll 1600 mg á dag fyrir þennan hóp. Mjólk inniheldur meira kalk en ncer allar aðrar fœðutegundir og auk þess B-vítamfn, A-vftamín, kalíum, magnfum, zink og fleiri efni. Um 99% af kalkinu notar líkaminn til vaxtar og viðhalds beina og tanna. Tœplega 1 % er uppleyst f líkamsvókvum, holdveljum og frumahimnum, og er það nauðsynlegt m.a. fyrir blóðstorknun, vöðvasamdrótt, hjartastarfsemi og taugaboð. Auk þess er kalkið hluti af ymsum efnaskiptahvötum. Tll þess að líkaminn geti nýtt kalklð þarf hann D-vftamfn, sem hann fœr m.a. með sólþöðum og úr ýmsum fœðutegundum, t.d. lýsi. Neysla annarra fœðutegunda en mjólkurmatar gefur sjaldnast meira en 300-400 mg ó dag, en það er langt undir ráðlögðum dagskammti. Úr mjólkurmat fœst miklu meira kalk, t.d. 800 mg úr u.þ.b. þremur glðsum af mjólk. Helstu hemnlidir: Bækíngurinn Kak og beinþynning efbr dr. Jón Óöar Ragnarsson og Nutriton and Ptiysical Fitness, 11. úlg., 0 ____ efbr Briggs og Caloway, Holt Reinhaidt and VWiston, 1964 MJÓLKURDAGSNEFND - MJÖLK ER GÓO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.