Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 40
- 40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR15. OKTÓBER1985 Leggjum niður vinnu þann 24. okt. eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í ár er lokaár kvennaáratugar Sameinuðu þjóðanna sem hófst árið 1976. Það ár voru margar ís- lenskar konur fullar bjartsýni og vongóðar um að brátt myndi staða Itvenna breytast verulega til batn- ' aðar. Enda mörg teikn á lofti. Konur höfðu sýnt og sannað með eftirminnilegum hætti þann 24. okt. 1975 hversu gífurlega mik- ið vinnuframlag þeirra til þjóðfé- lagsips er. Með því að leggja niður vinnu þann dag höfðu þær jafn- framt sannað fyrir sjálfum sér hvers þær væru megnugar ef þær stæðu saman. í kjölfar þessa at- burðar sigldu svo jafnréttislög ár- ið eftir en samkvæmt þeim var at- vinnurekendum óheimilt að mis- muna fólki eftir kynferði m.a. hvað varðaði laun, ráðningu og starfskjör. Jafnréttisráð var sett á laggirnar til að fylgjast með því að lögunum væri framfylgt. * Samhliða þessu fór aukin áhersla á menntun kvenna enda trúðu konur því að aukin menntun myndi skila sér í bættum launum. Formlegar menntunarkröfur til þeirra sem sóttu í hefðbundnar kvennagreinar s.s. hjúkrun, fóstrunám, ljósmæðranám, kennaranám o.fl. jukust sífellt. Og til að bæta sér upp þá menntun, sem þær höfðu áður farið á mis við, streymdu konur í öldunga- deildir menntaskólanna. Það var — inikið að gerast í málum íslenskra kvenna. ' Hvad hefur áunnist? Nú u.þ.b. tíu árum síðar hljóta konur að spyrja sig hverju hinn margumtalaði kvennaáratugur hafi skilað þeim. í mínum huga er enginn vafi á því að allt starf og barátta kvenna þennan áratug hefur skilað konum þeim ómælda fjársjóði sem fólginn er í auknum krafti, kjarki og þori. Sjálfstraust og sjálfsvirðing kvenna hefur auk- ist og þær þora að fara sínar eigin leiðir. Hitt er jafn augljóst að lítið hefur tekist að þoka þjóðfélaginu í «Jafnréttisátt og flestar konur eru jafn illa settar innan heimilis sem utan og þær voru áður. Konur bera enn höfuðábyrgð á heimilis- störfum og barnauppeldi, þeim fjölgar sáralítið í stjórnunarstörf- um (Alþingi, verkalýðshreyfing o.fl.), meðaltekjur þeirra eru enn taisvert undir meðaltekjum karla og auknar menntunarkröfur til kvennastétta hafa síst orðið til að færa þær ofar í launastiganum. Jafnréttislögin hafa reynst mátt- lítil og Jafnréttisráð stofnun með þröngan fjárhag og fá úrræði. Einkenni- lega vaxin horn á lambi Lamb með einkennilega vaxin horn kom af fjalli á Snæfellsnesi í haust. Eigandi lambsins, Guð- bjartur Þorvarðarson á Hellis- saadi, er með lambið á myndinni. 'Hornin vaxa upp úr miðjum haus lambsins. Eins og sjá má á mynd- . ^inni eru þau flöt eins og sverð, og strekkja mjög á augum lambsins. Kvennastörfin En eins og ég sagði áðan þá hef- ur sjálfstraust og sjálfsvirðing kvenna aukist og það skiptir kannski sköpum. Allir sem fylgst hafa með fjölmiðlum á undanförn- um misserum vita, að það gengur æ verr að manna þau fyrirtæki og stofnanir sem byggja á hefð- bundnum kvennastörfum og launa þau samkvæmt taxta. Ekki alls fyrir löngu var t.d. staðan sú hjá slíkum fyrirtækjum og stofnunum í eigu Reykjavíkurborgar að á Borgarspítalann vantaði 30—40 hjúkrunarfræðinga, 50—60 sjúkraliða og eitthvað af Sókn- arstúlkum. Af þessum sökum stóð og stendur enn fjöldi rúma ónot- aður, m.a. rúm fyrir aldraða, sem spítalinn fær engin daggjöld fyrir sem leiðir aftur af sér mikinn hallarekstur. Hjá Heimilishjálp borgarinnar, sem m.a. sinnir þeim sjúku öldruðu sem ekkert pláss er fyrir hjá stofnunum borgarinnar, vantaði u.þ.b. 100 konur í hluta- störf til að fullmannað væri. Hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur geta 120 konur unnið við snyrtingu og pökkun þegar fullmannað er en fyrir stuttu mættu aðeins 30—40 konur til þeirra starfa, þrátt fyrir að mikið væri auglýst. Mannekl- una á dagvistarstofnunum borgar- innar þarf svo varla að tíunda, hún ætti að vera öllum kunn. Þetta er það ástand sem blasir við í dag og undirrót þess er, að enn er konum boðið upp á smánar- laun fyrir vinnuframlag sitt, laun sem eru þeim engan veginn sam- boðin og því leita þær á önnur og fengsælli mið. Þetta vita allir sem vilja vita en hvorki atvinnurek- endur né verkalýðshreyfing hafa verið tilbúin til að gefa baráttu- málum kvenna sérstakan forgang. Konan, vinnan, kjörin I launamálum sem og öðrum baráttumálum sínum verða konur fyrst og síðast að treysta á sjálfar sig, mátt sinn og megin. 1 þeim efnum er samstaða kvenna mjög mikils virði og hafi verið þörf fyr- ir hana þann 24. okt. fyrir tíu ár- um, þá er hennar ekki síður þörf í dag. Eins og fyrr segir lögðu konur niður vinnu þann dag til að sýna fram á vinnuframlag sitt. Nú tíu árum síðar hefur verið ákveðið að nota þennan sama dag til að benda á hversu illa launamálum kvenna er komið. Þennan dag verður opnuð sýning í nýju seðla- bankabyggingunni undir kjörorð- inu „konan, vinnan, kjörin" en hún hefur það að markmiði að leiða fólki fyrir sjónir hversu mikil og víðtæk atvinnuþátttaka kvenna er en jafnframt hversu vanmetin Morgunblaðið/Bcring Cecilsaon hún er til launa. Fyrir sýningunni stendur hin sk. ’85-nefnd, sam- starfsnefnd um lok kvennaára- tugarins, en í henni eiga m.a. sæti fulltrúar frá 16 félögum og sam- tökum kvenna. Þennan sama dag mun nefndin einnig gangast fyrir útifundi þar sem konum gefst kostur á að sýna með þátttöku sinni að þær sætta sig ekki við þau smánarlaun sem þeim er boðið upp á fyrir vinnuframlag sitt. Sjálfstæð aðgerð eða minningarathöfn? Til þess að gefa mótmælum sín- um þennan dag aukið vægi hafa konur á Akureyri og í Hafnarfirði ákveðið að leggja niður vinnu, rétt eins og 1975. Mikill hugur er í mörgum reykvískum konum að fara að dæmi kynsystra sinna fyrir norðan og sunnan en aðrar eru hikandi. Astæðan fyrir hiki þeirra virðist öðru fremur sú, að þær óttast að ekki verði hægt að endurtaka hið glæsilega „kvenna- frí“ eða „kvennaverkfall" ársins 1975. í hugum þeirra var þetta óviðjafnanlegur atburður sem þær vilja ekki fyrir nokkurn mun gengisfella í endurminningunni. Þessi afstaða er mjög vel skiljan- leg en að mínu mati er óttinn sem að baki henni býr ástæðulaus. Ef Ingibjörg Sólrún Gísladóttir „Til þess að gefa mót- mælum sínum þennan dag aukið vægi hafa konur á Akureyri og í Hafnarfirði ákveðið að leggja niður vinnu, rétt eins og 1975. Mikill hugur er í mörgum reykvískum konum að fara að dæmi kynsystra sinna fyrir norðan og sunnan en aðrar eru hikandi.“ konur fyrir tíu árum hefðu látið stjórnast af óttanum við mistök þá hefði þessi sögulegi atburður aldrei átt sér stað. Þær renndu blint í sjóinn og það tókst. Síðan þá hafa konur oft sýnt að þær bæði þora og geta — nú er viljinn allt sem þarf. Og það er ótrúlegt annað en að konur vilji einmitt núna leggja niður vinnu til að mótmæla sínum lélegu laun- um. Núna, þegar varla er hægt að manna skólana, sjúkrahúsin, frystihúsin, dagvistarstofnanirn- ar, skrifstofur hins opinbera o.fl. vegna lélegra launa. Ef konur vilja það ekki núna, þá hvenær? Ef konur hins vegar leggja niður vinnu þann 24. okt. nk. þá er það vegna þeirra aðstæðna sem þær búa við í dag, en ekki vegna þess að þær ætli að halda minn- ingarathöfn um eitthvað sem gerðist fyrir tíu árum. Enda eng- um hollt að lifa í endurminningu þar sem slíkt líf leiðir ekki til ann- ars en vonbrigða með atburði líð- andi stundar. Það má heldur ekki gleymast að það er komin ný kynslóð kvenna út á vinnumarkað, konur sem vegna ungs aidurs voru þar ekki fyrir tíu árum og hafa því kannski lítils að minnast. Það má ekki svipta þær þeirri dýrmætu reynslu sem felst í því að upplifa samstöðu kvenna. Að öllu þessu sögðu vil ég hvetja reykvískar konur til að hugsa þessi mál gaumgæfilega og ræða þau hvar sem tvær eða fleiri eru samankomnar. Það er skammur tími til stefnu en ef andinn er reiðubúinn þá er okkur ekkert að vanbúnaði. Þá fetum við í fótspor kynsystra okkar fyrir norðan og sunnan. Höfundur er borgarfulltrúi Krennaframboðsins í borgarsíjórn Reykjaríkur. Steve Bauer og David Caruso sem glæpaspírur f HJARTAÞJÓFNUM. Dagbókin og draumaprinsinn Kvikmyndir Snæbjörn Valdimarsson REGNBOGINN: HJARTAÞJÓF- URINN - THIEF OF HEARTS irVt Leikstjóri Douglas Day Stewart. Handrit Stewart. Kvikmyndataka Andrew Laszlo. Búningar Michael Kaplan. Klipping Tom Rolf. Tón- list Harold Faltermeyer. Aðalhlut- verk Steven Bauer, Barbara Willi- ams, John Getz, David Caruso. Bandarísk, frá Paramount, gerð 1984. 100 m. Eftir því sem mér er best kunnugt þá er leikstjóri Hjarta- þjófsins lítt þekktur utan hann skrifaði handrit An Officer and a Gentleman, sem öllum á óvart, sló rækilega í gegn á því herrans ári 1982. Sá samsetningur hefur sjálfsagt stappað stálinu í ráða- menn Paramount að hleypa kauða i leikstjórnina, sem hann ræður svo engan veginn við. Fytir það fyrsta er efnisþráð- urinn orðinn ansi slitinn og framlágur, þolir illa þessa við- vaningslegu viðbótarnauðgun. Ef myndin hefði átt að eiga ein- hverja möguleika þá hefði ekki veitt af frísklegra handriti og efnistökum. Taugaslappur, fola- legur innbrjótsþjófur í einni ránsferðinni hefur af tilviljun á brott með sér dagbækur munað- arlegrar eiginkonu. í þær hefur hún skráð vonir sínar og drauma um hressilegra og villtara kynlíf en hún á víst að venjast með sín- um slyttingslega eiginmanni. Þetta kitlar þjófinn og þar sem hann uppfyllir folaímynd frúar- innar verður honum ekki skota- skuld úr að leggja snörur sínar fyrir hana og ganga enn frekar á það sem ektamannsrolan taldi vísar eigur sínar. En upp komast svik um síðir. Folinn þverfur helsærður á braut, en frúin, nýupplýst um að jafnvel hin fjölbreytilegasta upplyfting í kynlífi er kannski ekki alveg eins eftirsóknarvelð þegar á heildina er litið og hún hafði borið upp við dagbókina, tekur nú að daðra við dauðyflið sitt á nýjan leik og ailt fellur í ljúfa löð. Þær eru harla fáar, jákvæðu minningarnar, sem sitja eftir sýningu Hjartaþjófsins. Bauer, (Scarface), er reyndar sennilegur í hlutverki þjófsins enda hefur hann útlit strætislyddu, „sem ekki á heima í kreditkortahimn- aríki hinna útvöldu, heldur í göturæsinu með sínum jafningj- um“, en eitthvað á þesas leið hljóðaði ein háfleygasta setning myndarinnar. Þessu merglitla efni hefur oftsinnis verið skilað betur í myndum og sjónvarpi, einkan- lega eru málalokin óviðunandi og ósennileg. Tilgangur Hjarta- þjófsins er því harla óljós. Leik- stjórnin og leikurinn er flatur, tónlistin minnir óþægilega á þá sem kennd er við Emmanuelle og frænkur hennar allar, en rýkur upp í óþægilegan gassagang þeg- ar minnst varir. Tímasóun, þeg- ar á heildina er litið. I +
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.