Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR15. OKTÓBER1985 i: Akranes: Hörpuútgáfan send- ir frá sér 16 bækur Akranesi 8. október Hörpuútgáfan sendir frá sér 16 bækur nú í haust og eru þær eftir- taldar: Réttur dagsins — Gómsætur gæðamatur Höfundur þessarar nýju mat- reiðslubókar er Margrét Þorvalds- dóttir, sem annast hefur vikulegan þátt með sama nafni í Morgun- blaðinu. Fjölda margir hafa borið fram óskir um að uppskriftirnar væru gefnar út í bók og er hér með orðið við þeim óskum. Höf- undur hefur dvalið víða erlendis og kynnst þar matargerð og mat- arvenjum ýmissa þjóða. Sumar uppskriftirnar eru frumsamdar, aðrar af erlendum stofni, en aðlag- aðar íslenskum aðstæðum og inn- lendu hráefni. Áhersla er lögð á að uppskriftirnar séu auðveldar fyrir alla til matargerðar. Gætt er hófs í hráefniskostnaði. Þá hefur verið lögð áhersla á að rétt- irnir falli að smekk barna enda séu þeir „gómsætur gæðamatur". Bókin er prýdd litmyndum, sem Magnús Hjörleifsson ljósmyndari tók. Skagamenn skoruðu mörkin — síðara bindi. I þessari bók er áfram rakin saga knattspyrnunnar á Akranesi 1970-1984, en á því ári urðu Skaga- menn margfaldir meistarar, eins og reyndar stundum fyrr. Bókin er skrifuð á léttan og skemmtileg- an hátt. Fléttað er saman frásögn- um af spennandi augnablikum og afdrifaríkum. Þá eru í bókinni ný viðtöl við atvinnumennina Pétur Pétursson, Teit Þórðarson, Karl Þórðarson og Sigurð Jónsson, auk fjölda annarra þekktra knatt- spyrnumanna og frammámanna í þeirri grein. Síðast en ekki síst er í bókinni saga landsleikja íslands og fullkomin skrá um fjölda leikja einstakra liðsmanna, markafjölda þeirra í leik og nánast flest það sem máli skiptir á því sviði. Um það bil 90 myndir prýða bókina. Höfundar eru hinir sömu og fyrr: Jón Gunnlaugsson, Sigtryggur Sigtryggsson og Sigurður Sverris- son. Hér er á ferðinni merkileg og spennandi bók, enda vel við hæfi þar sem fjallað er um frægasta knattspyrnulið þessa lands. Ég geng frá bænum Ljóðabók eftir Guðnýju Bein- teinsdóttur frá Grafardal í Borg- arfirði. Hin eilífa leit Ljóðabók eftir Pétur Beinteins- son, bróður Guðnýjar. í Grafardal var ljóðagerð og kveðskapur dagleg iðja og hvers konar ljóðlist í hávegum höfð. Börnin á heimilinu voru átta og fengust öll við kveðskap. Hörpuút- gáfan hefur áður gefið út í sam- stæðri útgáfu ljóðabækur eftir Einar, Sigríði og Sveinbjörn og í undirbúningi er úgáfa ljóðabókar eftir Halldóru systur þeirra. Haustheimar, nefnist ný ljóðabók eftir Stefán Sigurkarlsson lyfsala á Akranesi. Haustheimar er fyrsta ljóðabók Stefáns, en áður hafa birst eftir hann á prenti tvær ritgerðir auk nokkurra ljóða. Mitt heiðbláa tjald, ný ljóðabók eftir Friðrik Guðna Þórleifsson söngstjóra og tónlist- arkennara á Hvolsvelli. Þessi nýja bók er fjórða bók höfundar, en áður hefur Hörpuútgáfan gefið út eftir hann ljóðabækurnar Ryk 1970, Augu í svartan himin 1973, Og aðrar vísur 1977. Bragfræði og háttatal eftir Sveinbjörn Beinteinsson. Þessi bók kom fyrst út 1953 og var strax tekin í notkun í framhalds- skólum sem kennslubók í rímna- og vísnakveðskap. Háttatalið var síðar gefið út á snældu. Þar kveður höfundurinn með rímnalögum. Um langt árabil hefur bókin verið ófá- anleg. Margir íslensku- og bók- menntakennarar hafa óskað eftir endurútgáfu hennar. Nú hefur verið bætt úr því og bókin endur- prentuð með leiðréttingum. Snælda er einnig fáanleg. Glampar í fjarska á gullin þil — Búskaparár og veiðidagar — síðara bindi. Höfundur er Þorsteinn Guð- mundsson á Skálpastöðum í Borg- arfirði. Borgfirski bóndinn segir hér frá búskapnum á Skálpastöð- um. Þá eru í bókinni frásagnir af samskiptum höfundar við menn og málleysingja. Loks er svo þátt- urinn „Grímsá og Grafarhylur", þar sem rakin er saga laxveiði- manna i Grímsá frá upphafi og sagðar skemmtilegar veiðisögur frá þessari perlu laxveiðiáa í Borg- arfirði. Skrýtnar skepnur — Skopsögur, eftir spéfuglinn og húmoristann Ephraim Kishon, í þýðingu Ingi- bjargar Bergþórsdóttur. Þessi bók Kishons er eins og aðrar bækur hans kiarnyrt og leiftrandi af kímni. I henni eru bráðsmellnar skopsögur um fjölskylduna og „atvik" sem flestir þekkja. Á síð- asta ári kom út hjá Hörpuútgáf- unni bókin Hvunndagsspaug eftir sama höfund. Kishon er höfundur sem kitlar hláturtaugarnar og gerir óspart grín að sjálfum sér. Að handan Bók fyrir alla sém velta fyrir sér spurningunni um lífið eftir dauð- ann. Bókin hefur vakið geysimikla athygli og umræðu. Það eru 17 ár síðan séra Sveinn Víkingur þýddi bókina á íslensku, en hún kom út árið 1968. Margir hafa sagt að þessi bók hafi veitt þeim meiri huggun en orð fái Iýst og borið fram óskir um endurútgáfu henn- ar. Þýðandi segir m.a. um bókina: „Sá heildarboðskapur sem hún flytur um lífið eftir dauðann er harla fagur og bjartur." Bókin er helguð þeim sem harma látinn vin. Handan dauðans er eilíft líf og ástin er sterkari en hel. Hljómur hamingjunnar, eftir ensku skáldkonuna Nettu Muskett. Áður hefur Hörpuút- gáfan gefið út þrjár ástarsögur eftir þennan höfund. Hamingjudraumar, eftir Bodil Forsberg er 18. bókin, sem út kemur hjá Hörpuútgáfunni eftir þennan vinsæla danska höf- und. Barátta ástarinnar er 10. bókin í bókaflokknum „Rauðu ástarsögurnar" eftir danska höfundinn Erling Poulsen sem vart þarf að kynna fyrir ís- lenskum lesendum. Hefndarverkasveitin, eftir DUNCAN KYLE, höfund bókarinnar „t gildru á Grænland- sjökli' og fleiri spennubóka sem komið hafa út hjá Hörpuútgáf- unni. Efni bókarinnar snýst um flugrán, mannrán og flótta. Bresku blöðin sögðu m.a. um bókina: „Spennusaga í hæsta gæðaflokki.- .. Harðsvíruð og æsileg atburða- rás... Fyrsta flokks flóttafrásögn. Exocet-flugskeytin Ný bók eftir Jack Higgins höf- und bókarinnar „Örnin er sestur", sem varð stórsölubók hér á íslandi. Þúsundir manna sáu samnefnda kvikmynd sem hér var sýnd. EXOCET-FLUGSKEYTIN var oftsinnis í efstu sætum á metsölu- listum erlendra blaða á síðasta ári. Bækur Higgins eru metsölubækur í mörgum löndum og kvikmyndir hafa verið gerðar eftir nokkrum þeirra. Góða skemmtun gera skal Ný leikjabók eftir Jón Kr. ísfeld. í þessari bók eru leikir af ýmsu tagi, leikrit, gátur, spilagaldrar, spilaspá, huglestur, töfrabrögð, skrýtlur, spurningaleikir. Þetta er handhæg skemmtibók fyrir sam- kvæmi í heimahúsum, skóla, fé- lagasamtök og einstaklinga. Þessi nýja leikjabók er með svipuðu sniði og leikjabókin vinsæla „Leik- ir og létt gaman“, eftir séra Svein Víking, sem margir þekkja. J.G. Ódýrar íbúðir 3ja herb. 102 m2 brúttó Höfum til sölu vandaðar íbúðir með faUegum harðviðarínnréttingum í Selási Stórkostlegt útsýni. íbúðimar afhendast tilbúnar að fullu utan gólfefna. Sameign fullfrágengin. Kr. 2.047.000.- Útborgun:..............450.000 (er má skipta) Húsnæðislán .......... 860.000 (fjölskyldustærð 2-4) Eftirstöðvar..........737.000 (greitt á 3-6 árum) AUar teikningar og nánari upplýsingar fyrirUggjandi á skrifstofu okkar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.