Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÓBER1985 27 Fjárlögin í Noregi 1200 milljarðar króna Osló. 14. október. Frá Jmn Erik Lmuré, frétUi iUra Morgunblmósins. FJÁRLöG norska ríkísins fyrir áriö 1986 nema samtals 237 milljörðum norskra króna eða tæpum 1200 milljörðum íslenskra króna. Er gert ráð fyrir að hallinn verði 15 milljarðar norskra króna. Fjárlögin þýða aukin útgjöld fyrir hinn almenna þegn í Noregi. Gert er ráð fyrir að fargjöld hækki, áfengi og bjór hækkar einnig, sem og verð á tóbaki. Útgjöld til félagsmála hækka mest samkvæmt fjárlögunum. Er greinilegt að stjórnin hefur breytt viðhorfum sínum gagnvart þeim eftir að hún féll næstum í kosn- ingum í sumar vegna hugmynda um samdrátt á því sviði. Nær þriðjungur fjárlagana er vegna út- gjalda til félags- og heilbrigðis- mála og hefur Willoch, forsætis- ráðherra, látið undan kröfum Kristilega þjóðarflokksins og Mið- flokksins um aukin útgjöld á ýms- um sviðum. Upphæð fjárlaganna hækkar meira en spár um verðlag í Noregi á næsta ári, en spáð er 6% verðlagshækkun. Spár um verðbólgu á næsta ári gera þó flestar ráð fyrir meiri hækkun. Willoch hefur hins vegar sagt að ekki sé svigrúm til neinna breytinga á fjárlögunum í meðferð Stórþingsins, en þau hækka venju- lega við umfjöllun þess. Hann hef- ur látið að því liggja að stjórn hans mundi segja af sér verði ekki farið að vilja hans í þeim efnum. Stjórnin styðst hins vegar við mjög veikan meirihluta í þinginu. Verkamannaflokkurinn getur knúið fram breytingar á fjárlög- unum með stuðningi tveggja þing- manna Framfaraflokksins og hef- ur annar þeirra sagt að hann muni styðja ýmsar tillögur Verka- mannaflokksins. Það er því búist við viðburðaríkum umræðum um fjárlögin í Stórþinginu og leiða sumir getum af því að þær viðræð- ur kunni að valda stjórnarkreppu. AP/Símamynd Leikari kveður Bandaríski leikarinn Yul Brynner lést sl. fimmtudag eins og sagt hefur verið frá, en þessi mynd af honum og konu hans, Kathy, var tekin á næturklúbbi í New York fyrr á árinu. Frægastur varð Brynner fyrir leik sinn í myndinni „Konungurinn og ég“, þar sem hann lék konunginn af Síam. Brynner var hálfsjötugur þegar hann lést, farinn að heilsu og kröftum. Genf: Vilja ekki flóð- öldu flóttafólks Flokkur andvígur útlendingum næststærstur í kantónunni Genf, Svias, 14. október AP. FLOKKUR, sem amast við útlend- ingum og sér í lagi þeim sem vilja setjast að í Sviss, stórjók fylgi sitt í sveitarstjórnarkosningum, sem fram fóru í Genfarkantónu á sunnudag. Þegar 95% atkvæða höfðu verið talin hafði flokkurinn fyrrnefndi nærri þrefaldað þingmannatölu sína á fylkisþinginu, sem skipað er 100 mönnum, eða úr sjö í 19 menn. Er hann þar með orðinn næst- stærsti flokkurinn f kantónunni. Pólitískir fréttaskýrendur velkj- ast ekki í vafa um, að þessi úrslit sýni vaxandi andúð á straumi fólks til landsins, einkum Asíu- manna, sem þar vilja setjast að. í septemberlok voru óafgreiddar 14.000 umsóknir um landvist í Sviss og voru tamílar frá Sri Lanka og Tyrkir langflestir í þeim hópi. Nýlega hertu yfirvöldin mjög þær reglur, sem gilda um landvistarleyfi, og juku landa- mæravörsluna til að stemma stigu við flóðöldu fólks frá öllum heims- hornum. , t kosningunum á sunnudag fengu umhverfisverndarmenn í fyrsta sinn menn kjörna á fylkis- þingið og hafa þar nú átta sæti. Þrír hægri flokkar, sem fóru með málefni kantónunnar, töpuðu meirihluta sinum, misstu tíu menn og þar af tapaði Frjálslyndi flokkurinn fimm. Sú breyting varð samt á, að nú er hann stærstur með 20 þingmenn en Jafnaðar- mannaflokkurinn, sem löngum hefur verið með forystuna, er nú í þriðja sæti með 18 þingmenn. Tap- aði hann átta mönnum. PHILCOWD8Q4. ÞVOTTAVEL, ÞURRKARIOG VAKTMAÐUR. Philco WD 804 er þvottavél. Hún tekur bæði inn á sig heitt og kalt vatn og lækkar þannig orkureikninga þína. Vinduhraðinn er 800 snúningar á mínútu, - þvotturinn verður þurrari orka og tími sparast í þurrkaranum. Philco WD 804 er þurrkari. Þurrkarinn hefur tímarofa fyrir allt að 2 klst., auk sérstakrar 8 mínútna kælingar í lok þurrkunar. Sérstakt þurrkkerfi er fyrir viðkvæman þvott. Philco WD 804 hefur sérstakan öryggisbúnað, - vaktmaðurinn. Öryggið sem hann skapar er ómetan- legt, endingin verður betri og viðhalds- kostnaður lækkar. Láttu Philco skila þér þvottinum hreinum og þurrum - engar snúrur, engar áhyggjur. Við erum sveigjanlegir í samningum. Heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8- 15655 Hvernig líturAfton í Dallas út nakin? Hún er svo ótrúlega lík Aíton í Dallas, að vlð urðum að biðja um nafnskírteini til að sannfærast um að svo væri ekki. NÝR OC HRESS Á BLAÐSÖLUSTÖÐUM ALLT LAND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.