Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÓBER1985 45 saman og ætluðum allir að verða ríkir og bjuggum til hluti og seld- um en enginn varð ríkur, nema af vináttu og ekki sist hans. Og ekki vantaði okkur leikara, þegar einn úr hópnum eignaðist kvikmyndatökuvél og stofnað var kvikmyndafélag, þá var hann kjör- inn í aðalhlutverkið. Ef spilin verða tekin upp, eins og okkar var vani, verður Eyjólfur ekki í sínu sæti og hláturinn hans heyrist ekki á meðal okkar, þar verður hans saknað því hann var hrókur kátínu og gleði. Eyjólfur var einn þeirra, sem gekk í Björgunarsveitina Stakk, er hann hafði aldur til, þar var hann traustur og góður félagi, og þar var hann að störfum, er sá sem öllu ræður kallaði hann burt — kannski hefur vantað góðan björg- unarsveitarmann handan móð- unnar miklu. Eyjólfur var fæddur 15. sept- ember 1964 en við þann mánaðar- dag er skrifað, þú ert gæddur eldmóði og hrifnæmi, einlægni og alúð, mikilli skarpskyggni í hugs- un og mannþekkingu, þú ert glað- lyndur og jafnlyndur og ætíð nærgætinn við aðra. Eyjólfur lauk námi á málmiðn- aðarbraut við Fjölbrautaskóla Suðurnesja vorið 1985, og vann við blikksmíðar hjá íslenskum aðal- verktökum. Á heimili hans var gott að koma, en hann átti heimili hja'foreldrum sínum, Maju Sigurgeirsdóttur og Sigurði Ben Þorbjörnssyni, að Faxabraut 80. Er við kveðjum vin okkar Eyjólf með söknuði vottum við foreldrum hans og systur okkar dýpstu sam- úð. Já, sefist sorg og tregi, þér saknendur við gröf, þvítýnderyðureigi hinyndislegagjöf: Hún hvarf frá synd og heimi til himins — fagnið því — svo hana Guð þar geymi oggefifegriáný. Björn Halldórsson frá Laufási. Höskuldur, Jón Mír, Karl Jóhann, Ragnar. Það er ávallt erfitt að horfa á eftir vinum sínum yfir móðuna miklu og standa frammi fyrir þeirri nöturlegu staðreynd að geta aldrei aftur notið návistar við þá. Ekki vekur þetta síst blendnar tilfinningar í hópi, sem á því að venjast að hittast reglulega, á stundum undir erfiðum kringum- Leiðrétting í minningargrein um Helga Finn- bogason frá Hítardai sem birtist í Morgunblaðinu hinn 8. þ.m. voru tvær vísur eftir Guðmund Sigurðsson fyrrv. bónda á Höfða í Eyjarhreppi. Því miður var seinni vísan röng. Rétt er hún svona: Burt ég sveima af bænum þeim beiskjueimi hlaðinn. Mig skal dreyma í dalinn heim. Drottinn geymi staðinn. Er hér með beðist velvirðingar á þessum mistökum. Sigurður Helgason' Birting afmœlis- og minningar- greina ATHYGLl skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. stæðum, en ávallt undir þeim merkjum sem prýða mega góðan hóp — samheldni, vináttu og kank- vísi. Þegar skarð er höggvið skipu- lega í slíkan hóp verður erfitt að sameinast aftur — hópurinn er breyttur og okkur setur hljóð. Og víst er um það, starf björgunar- sveita hlýtur að þjappa einstakl- ingum þeirra nánar saman en almennt tíðkast. Nú höfum við misst Eyjólf Ben úr röðum okkar og við því kunnum við engin svör. Svo snöggt, svo óvænt. Hann varð ekki gamall en náði á skammri ævi að ávinna sér fágætt traust og væntumþykju með þægilegri framkomu sinni og ósérhlífni. Það eru ekki hvað síst þeir þættir í fari hans sem gera okkur svo ráðþrota og agndofa. Hópinn setur hljóðan. Björgunarsveitin Stakkur naut veruleega góðs af kröftum og manngildi Eyjólfs Ben. Nokkrar myndir þjóta um hugann. Ungur, áhugasamur drengur fylgir föður sínum á æfingar og nær strax að vinna hug og hjörtu sveitarmanna. Hann fylgir fordæmi föður síns Vog gengur í sveitina um leið og aldur leyfir, tekur þegar að sér ábyrgðarstörf tengd tækjum sveit- arinnar og skilar þeim óaðfinnan- lega, rétt eins og öðru sem hann tók að sér. Við kveðjum góðan félaga með þessum fátæklegu orðum. Hann á það inni hjá okkur að við höldum á loft því merki sem hann reisti með vaskri framgöngu sinni og veitti okkur svo þægilega með ná- vist sinni. Foreldrum, systur og öðrum aðstandendum sendum við djúpa hluttekningu á erfiðri stundu. Megi blessun fylgja góðum dreng. Félagar úr Björgunarsveitinni Stakk, Keflavík og Njardvík. I I* • éi»i»i«*ai«ifl«mi laiyii ** Stykkishólmur: Sjúkrahúsið máiað Stvkkishólmi; 5. október. SJUKRAHÚSIÐ hefur nú verið málað að utan hátt og lágt og er nú til mikillar prýði fyrir bæinn. Þar er nú verið að innrétta nýbygginguna, sem verður að mestum hluta heilsugæzlustöð. Árni. Danir KurniA GOTTAD META Ánægjuleg niðurstaða fyrir íslenska ostameistara og neytendur. Á mjólkurvörusýningu sem nýlega var haldin í Herning í Danmörku voru íslenskir ostar metnir ásamt dönskum ostum. Er skemmst frá því aö segja aö íslensku ostarnir gáfu þeim dönsku ekkert eftir, enda fengu þeir sambærilega meðaleinkunn í gæðamati dönsku sérfræöinganna, eöa rúmlega 11 af 15 mögulegum. Danir eru annálaöir fagmenn í ostagerö og því er útkoma íslensku ostanna mjög uppörvandi fyrir íslenska ostameistara. Hún er um leiö skýring á því hvers vegna íslendingar hafa skipað sér á bekk meö mestu ostaneysluþjóöum heims. íslensku ostarnir sem fengu hæstu einkunn voru: > 4 Mysingur sem fékk 12,8 í einkunn. Framleiðandi er Mjólkursamlag KEA á Akureyri og ostameistari er Oddgeir Sigurjónsson. 45% Maribóostur sem fékk 12.5 í einkunn. Framleiöandi er Mjólkursamlag K.S. á Sauöár- króki og ostameistari er Haukur Pálsson. Smurostar frá Osta- og smjörsölunni sem fengu 12,5 í einkunn. Ostameistari er Guömundur Geir Gunnarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.